Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskilti
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tyrkneskir fjölmiðlar birtu í gær
myndir úr öryggismyndavélum, sem
sagðar voru sýna þá menn, sem sagð-
ir eru hafa orðið valdir að hvarfi sádí-
arabíska blaðamannsins Jamals
Khashoggi. Þá birti tyrkneska blaðið
Sabah nöfn fimmtán manna, sem
sagðir eru sádí-arabískir leyniþjón-
ustumenn, og eiga myndirnar að sýna
ferðir þeirra til og frá ræðismannsbú-
stað Sádí-Arabíu og á alþjóðaflugvell-
inum í Istanbúl.
Khashoggi hefur verið saknað síð-
an hann fór til ræðismanns Sádí-Ar-
abíu í Istanbúl hinn 2. október síðast-
liðinn, og sögðu tyrknesk yfirvöld um
helgina að þau teldu hann hafa verið
myrtan þar inni. Stjórnvöld í Sádí-Ar-
abíu hafa hins vegar neitað þeim
ásökunum. Hafa Tyrkir því krafist
þess að Sádí-Arabar sanni að Khas-
hoggi hafi yfirgefið ræðismannsbú-
staðinn heill á húfi.
Settur í svartan sendiferðabíl?
Tyrkneskir fjölmiðlar greindu hins
vegar frá því í gær að nú væri verið að
kanna þann möguleika að Khashoggi
hefði verið numinn á brott og fluttur
með leynd til Sádí-Arabíu, og mun
tyrkneska lögreglan vera að rann-
saka myndefni úr um 120 mismun-
andi öryggismyndavélum víðsvegar
um Istanbúl. Þá hafði bandaríska
dagblaðið Washington Post eftir
heimildarmanni sínum að bandarísk-
ar leyniþjónustustofnanir hefðu hler-
að samskipti sádí-arabískra embætt-
ismanna, þar sem lögðu voru á ráðin
um brottnám Khashoggis, ef ekki
væri hægt að „lokka“ hann til Sádí-
Arabíu svo „leggja mætti hendur á
hann þar“.
Á meðal þess sem sást á myndun-
um sem birtar voru í gær voru svartir
sendiferðabílar, sem sáust keyra frá
ræðismannsbústaðnum um tveimur
tímum eftir að Khashoggi hvarf, og
telur lögreglan í Istanbúl nær öruggt
að hann hafi verið í öðrum þeirra. Þá
er lögreglan einnig að rannsaka ferðir
tveggja einkaflugvéla frá Sádí-Arabíu
sem lentu í Istanbúl sama dag og
Khashoggi hvarf og möguleikann á
því að hann hafi verið fluttur til Sádí-
Arabíu með annarri þeirra.
Trump krefst svara
Hatice Cengez, unnusta Khas-
hoggi, ritaði í fyrradag grein í Wash-
ington Post, þar sem hún bað Donald
Trump Bandaríkjaforseta um að
beita áhrifum sínum til þess að kom-
ast að því hvað hefði orðið um Khas-
hoggi. Trump sagði í gær að hann
hefði talað við ráðamenn á „æðstu
stöðum“ í Sádí-Arabíu oftar en einu
sinni og krafist svara um örlög Khas-
hoggis. „Þetta er alvarlegt ástand,“
sagði Trump og bætti við að hann og
Melania eiginkona sín hefðu rætt við
Cengez og athugað hvort hægt væri
að bjóða henni til Hvíta hússins.
Þá hefur málið vakið athygli á bágri
stöðu blaðamanna í Sádí-Arabíu, en
samtökin Blaðamenn án landamæra
sendu frá sér yfirlýsingu í gær um að
minnsta kosti 15 blaðamenn og blogg-
arar hefðu verið handteknir á síðustu
12 mánuðum í landinu, og að í heildina
væru á bilinu 25-30 blaðamenn í haldi
stjórnvalda þar. Þá sagði að mönn-
unum væri í flestum tilfellum haldið
án þess að gefin hefði verið út ákæra
eða réttað hefði verið í máli þeirra.
Sjálfur hafði Khashoggi lýst yfir
áhyggjum sínum vegna stöðu mála í
heimalandi sínu. Birti breska ríkisút-
varpið samtalsbúta sem teknir voru
upp í síðasta viðtalinu sem Khashoggi
veitti fyrir hvarfið, þar sem hann
sagði að hann ætti líklega ekki aft-
urkvæmt til Sádí-Arabíu vegna þess
hvernig stjórnvöld þar hegðuðu sér í
garð blaðamanna.
Skoða öryggismyndavélar
Tyrkneskir fjölmiðlar birtu myndir af mönnum sem grunaðir eru um að hafa
orðið valdir að hvarfi Khashoggi Allar mannaferðir úr bústaðnum kannaðar
AFP
Horfinn Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi sést hér ganga inn í
ræðismannsbústað Sádí-Arabíu í Istanbúl, en hann hefur ekki sést síðan.
Fellibylurinn Michael skall í gær á vesturhluta Flórída-
ríkis, en veðurfræðingar vöruðu við því að kraftur byls-
ins gæti valdið „ótrúlegum hörmungum“. Um 375.000
manns fengu fyrirskipun um að yfirgefa heimili sín í að-
draganda fellibylsins, og sagði Rick Scott, ríkisstjóri
Flórída, að þeir sem ekki hefðu hlýtt því kalli yrðu nú að
leita sér skjóls á heimilum sínum og forðast að fara út á
meðan bylurinn riði yfir.
AFP
Fellibylurinn Michael skall á Flórída í gær
Varað við „ótrúlegum hörmungum“
Bandaríkjastjórn
fordæmdi í gær
ríkisstjórn Vene-
súela og sagði
hana hafa átt þátt
í andláti stjórnar-
andstæðingsins
Fernandos Alb-
ans, en hann féll
út um glugga á
mánudaginn meðan hann var í haldi
lögregluyfirvalda. Stjórnvöld í Vene-
súela segja að Alban hafi fyrirfarið
sér, en fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar hafa dregið þá útskýringu í efa.
Alban hafði verið sakaður um að
hafa átt þátt í „morðtilræði“ gegn
Nicolas Maduro, forseta Venesúela,
þegar dróni með flugeldum sprakk í
návist hans fyrr í haust.
Stjórnvöld fordæmd
fyrir andlát Albans
VENESÚELA
Lögreglan í
Þýskalandi hand-
tók í gær tvítug-
an karlmann frá
Búlgaríu, sem
grunaður er um
að hafa nauðgað
og myrt búlg-
örsku blaðakon-
una Viktoríu
Marinova. Lík hennar fannst á
laugardaginn í bænum Ruse í norð-
urhluta Búlgaríu, en að svo stöddu
var ekki talið að morðið tengdist
starfi hennar sem blaðamanns.
Sögðu þýsk yfirvöld að framsals-
ferli væri hafið í máli mannsins.
Handtekinn fyrir
nauðgun og morð
ÞÝSKALAND
Tsai Ing-wen, forseti Taívans, sakaði
Kínverja í gær um „alvarlegar ögr-
anir“ gagnvart friði og stöðugleika á
Kyrrahafi, og að hafa beitt þrýstingi
til að neita Taívönum um viðurkenn-
ingu alþjóðasamfélagsins. Einungis
17 ríki hafa viðurkennt Taívan sem
ríki, og hefur þeim fækkað um fimm
frá því að Tsai tók við embætti fyrir
tveimur árum.
Kínverjar hafa haldið því fram all-
ar götur frá árinu 1949 að Taívan sé í
raun hluti af Kína, og að á endanum
verði eyjan „sameinuð“ meginland-
inu á ný, með valdi ef þurfa þykir.
Samskipti Kínverja og Taívana hafa
hins vegar hríðversnað á undanförn-
um árum, ekki síst þar sem Tsai við-
urkennir ekki stefnu kínverskra
stjórnvalda um „Eitt Kína“.
Sagði Tsai í ræðu sinni að hún
myndi ekki auka á spennuna í sam-
skiptum ríkjanna, en tók fram að
Taívan myndi reyna að styrkja varn-
ir sínar og utanríkissamskipti. Þá
myndi hún ekki víkja frá „vilja fólks-
ins“ og fórna „fullveldi Taívans“.
Kínversk stjórnvöld brugðust illa
við ræðu Tsai, sem var sjónvarpað í
Taívan, og sögðu að hún myndi ein-
ungis leiða til enn meiri spennu í
samskiptum Kínverja og Taívana.
Sveitarstjórnarkosningar fara
fram í Taívan í næsta mánuði, og er
talið að stjórnarflokkur Tsais muni
fara halloka í þeim.
Segir Kínverja ögra Taívan