Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 65
fyrir söngtónlist sína en þar er að
finna bæði stór og smá verk. Óp-
erurnar eru orðnar fjórar og sú
fimmta í vinnslu. Þrymskviða var
frumflutt 1974 í Þjóðleikhúsinu og
var fyrsta íslenska óperan í fullri
lengd, buff-óperan Eilífur og Úlf-
hildur fyrir karlakór og einsöngv-
ara, Galdra-Loftur, frumflutt 1996,
Möttulssaga hefur enn ekki verið
flutt og óperan Rósa sem liggur á
vinnuborðinu. Þess má geta að Jón
hefur unnið alla texta og leikgerð
fyrir óperurnar sjálfur.
Einsöngslög Jóns eru orðin um
90 talsins. Þar er að finna margar
söngperlur eins og Hjá lygnri
móðu, Vor hinsti dagur og Maís-
tjarnan, svokölluð Laxness-lög, við
ljóð Halldórs Laxness, og Augun
mín og augun þín, einnig sönglaga-
flokkinn Svartálfadans við ljóð eftir
Stefán Hörð Grímsson, og fyrstu
sönglögin, sem samin eru í kringum
1947.
Jón hlaut tvisvar menningar-
verðlaun DV, árið 1979 fyrir ballett-
inn Blindisleik og árið 1997 fyrir
óperuna Galdra-Loft. Hann var út-
nefndur borgarlistamaður Reykja-
víkur 1996 og sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf í þágu lista og menning-
ar 2001.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns var Elísabet Þor-
geirsdóttir, f. 12.12. 1931, d. 19.11.
2013, húsmóðir. Hún var dóttir Þor-
geirs Elísar Þorgeirssonar sjó-
manns og Guðrúnar Kristjáns-
dóttur húsmóður.
Börn Jóns og Elísabetar eru Þor-
geir, f. 5.10. 1955, arkitekt í Reykja-
vík; Arnþór, f. 20.8. 1957, sellóleik-
ari og formaður SÁÁ en börn hans
eru Gunnar, Anna Elísabet, Hlín
(móðir Nancy Gunnarsdóttir) og
Kristín Amalía (móðir Agnes Krist-
jónsdóttir); Guðrún Jóhanna, f. 1.5.
1966, tónlistarkennari en eig-
inmaður hennar er Stig Rasmussen,
verkfræðingur hjá Mannverk.
Hálfsystkini Jóns, sammæðra:
Jónína Guðrún Guðmundsdóttir, f.
20.3. 1910, d. 19.9. 1919; Grettir
Guðmundsson, f. 30.9. 1912, d.
11.10. 1967; Bragi Magnússon, f.
14.1. 1917, d. 24.4. 2001, lög-
regluþjónn á Siglufirði; Magnús
Kristján Magnússon, f. 22.2. 1919, d
13.3. 2012, starfsmaður FAO í Síle;
Guðmundur Ásgeirsson, f. 24.9.
1920, d. 30.6. 1978, skrifari hjá Eim-
skipafélagi Íslands í Reykjavík, og
Kjartan Ásgeirsson, f. 8.6. 1922, d
15.10.1998, sjómaður í Garði;
Hálfsystkini Jón samfeðra: Guð-
mundur Skúlason, f. 22.7. 1921, d
25.6. 2005, trésmiður á Ísafirði, og
Áslaug Skúladóttir, f. 1.8. 1924, d
20.1. 2003, sendiráðsfulltrúi í Stokk-
hólmi..
Foreldrar Jóns voru Skúli Skúla-
son, f. 10.7. 1888, d. 19.4. 1957,
kaupmaður á Ísafirði, og Jóhanna
Amalía Jónsdóttir, f. 7.10. 1885, d.
23.8. 1963, ljósmóðir.
Í tilefni afmælisins hefur fjöldi
tónlistarmanna ákveðið að halda
tónleika og óperusýningar Jóni til
heiðurs í októbermánuði. Flytj-
endur eru vel þekktir tónlistarmenn
en einnig nýir og spennandi ungir
söngvarar.
Upplýsingar um þessa afmælis-
dagskrá birtust í Morgunblaðinu
síðustu helgi, en dagskránni lýkur
með Þrymskviðu 26. og 27. október
kl. 20 í Norðurljósum í Hörpu.
Þrymskviða var fyrsta íslenska
óperan í fullri lengd en hún var
frumflutt í Þjóðleikhúsinu 1974. Jón
hefur síðan endurunnið óperuna,
bætt og breytt, og verður þessi
nýja endurgerð nú frumflutt.
Úr frændgarði Jóns Ásgeirssonar
Þorsteinn Carlsson
öve múrarameistari
í Rvík
L
Agnes Löve
píanóleikari og
fv. skólastjóri
Tónlistarskóla
Garðabæjar
Agnes
Veronika
Jónsdóttir
húsfreyja
á Ísafirði
Jón Ásgeirsson
Þuríður Ívarsdóttir
húsfreyja, frá Hokinsdal
Ólafur Guðlaugsson
b. á Laugabóli
Benonía Ólafsdóttir
í Tjaldanesi
Jóhanna Amalía Jónsdóttir
ljósmóðir á Ísafirði
Ólöf Jóhanna
Vilhjálmsdóttir
húsfreyja í
Rvík
Guðmundur
Ágústsson
lögm. og fv.
alþm.
Ólafía Ragna
Ólafsdóttir
húsfreyja á
Krumshólum
í Borgarfirði
Ólafur
Ólafsson
bókbindari
í Rvík
Ólafur Ólafsson
b. á Leirum
undirAustur-
Eyjafjöllum
Sigurlaug
Ólafsdóttir Hólm
húsfreyja í Rvík
Ólafur Hólm kennari
Friðbjörn Hólm kennari
Árni Hólm dr. í uppeldisfræði
Leó Löve
hrl. í Rvík
Þóra
Guðmunda
Jónsdóttir
húsfreyja á
Ísafirði
Guðmundur Löve kennari
og skrifstofumaður í Rvík
Þráinn Löve
aðstoðarrektor KHÍ
Salvör Oddsdóttir
húsfreyja í Elliðaey
Sigurður Gíslason
b. í Elliðaey
Ragnhildur Sigurðardóttir
húsfreyja á Ísafirði
Skúli Kristján Eiríksson
úrsmiður á Ísafirði
Rúnhildur Runólfsdóttir
húsfreyja á Brúnum
Eiríkur Ólafsson
á Brúnum, mormónatrúboði
Skúli Kristinn Skúlason
kaupm. og úrsmiður á Ísafirði
Jón Þórðarson
b. á Horni í Mosdal og dýralæknir á Ísafirði
Guðríður Þorvaldsdóttir
húsfr. á Kistufelli, bróðurdóttir Jóns, langafa Jóns Björnssonar kaupm. í Borgarnesi,
föður Selmu listfræðings, af Deildartunguætt og ætt sr. Snorra á Húsafelli
Þórður Jónsson
b. á Kistufelli
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Sigurður Demetz Franzsonfæddist í St. Ulrik í Grödendalí Suður-Týról, á landamærum
Austurríkis og Ítalíu, 11.10. 1912,
sonur hjónanna Franz og Mariu De-
metz. Hann var skírður Vincenz og
kenndur við bæinn Four en tók upp
íslenskt nafn er hann settist hér að.
Sigurður stundaði söngnám
vetrarlangt í Padova á Ítalíu og var í
læri hjá Vincenzo Pintorno, nafntog-
uðum flautuleikara og hljómsveitar-
stjóra. Berklaveiki og hörmungar
stríðsins hömluðu mjög söngferli
hans, en þó þáði hann vegtyllur af
heimsþekktum hljómsveitarstjórum
eins og Karajan og Böhm og söng við
ýmis virtustu óperuhús Evrópu, svo
sem í Zürich, Bern og Barcelona, og
við Scala-óperuna, fyrst 1949.
Sigurður kom til Íslands 1955,
kenndi hér söng og ílengdist hér á
landi. Hann sinnti söngkennslu og
kórstjórn í Reykjavík, Keflavík, á
Akureyri og víðar, söng í óperum og
á fjölda tónleika hér á landi og í Rík-
isútvarpinu.
Meðal íslenskra óperusöngvara
sem stunduðu nám hjá Sigurði má
nefna Kristján Jóhannsson, Gunnar
Guðbjörnsson, Guðjón Óskarsson,
Erling Vigfússon, Jón Sigurbjörns-
son, Kolbein Ketilsson og Guðbjörn
Guðbjörnsson. Jafnframt var hann
vinsæll fararstjóri um árabil fyrir
fjölda útlendinga í kynnisferðum um
landið.
Sigurður Demetz var sæmdur
stórriddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir störf í þágu söng-
menntunar á Íslandi, riddarakrossi
ítalska ríkisins og kjörinn heiðurs-
borgari í fæðingarbæ sínum. Hann
var verndari Nýja söngskólans –
Hjartansmáls.
Sigurður Demetz kvæntist Þór-
eyju Sigríði Þórðardóttur árið 1960,
en hún lést árið 1992.
Systkini Sigurðar Demetz, öll
yngri, eru Ulrike, læknisfrú, Ivo, for-
stjóri, Franz, listamaður, og Gian-
carlo, húsvörður, sem er látinn.
Ævisaga Sigurðar kom út árið
1995.
Sigurður lést 7.4. 2006.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Demetz
Franzson
95 ára
Bjarnheiður S.
Þórarinsdóttir
90 ára
Svava Gunnlaugsdóttir
85 ára
Ester Úranía Friðþjófsdóttir
Fjóla Jóhannsdóttir
Guðbjörg S. Ögmundsdóttir
Guðborg Aðalsteinsdóttir
Hjördís Guðbjartsdóttir
Stefán Þór Haraldsson
80 ára
Ólafur Friðsteinsson
Sigrún Ingólfsdóttir
Svavar Berg Magnússon
Þorgrímur Eiríksson
75 ára
Birgir Rafn Jónsson
Bjarni Björnsson
Jóhanna Sigtryggsdóttir
Jóna H. Valdimarsdóttir
Sigrún G. Stefánsdóttir
70 ára
Agnar Kristjánsson
Danelíus Sigurðsson
Guðjón Ingvi Jónsson
Jóhannes Georgsson
Jón G. Hermannsson
Sigríður Árnadóttir
Sigurður B. Ringsted
60 ára
Andrés Narfi Andrésson
Bryndís Petra Bragadóttir
Ester Eggertsdóttir
Guðbjörg Eggertsdóttir
Guðlaug Brynja
Hjaltadóttir
Heiðrún Hafsteinsdóttir
Jónína D. Ásgeirsdóttir
Katrina Downs-Rose
Katrín Ingadóttir
Magnús Bragason
Óskar Vignir Bjarnason
Rósa Finnbogadóttir
Snæbjörn Sigurðsson
Tómas Pham
Unnar Már Sumarliðason
Þorgeir S. Kristinsson
50 ára
Aðalsteinn Þorláksson
Alex Júníus Stefánsson
Ásta Þórarinsdóttir
Guðrún Gyða Ólafsdóttir
Halla Tómasdóttir
Haukur Halldór Barkarson
John Hillary George Lloyd
Þórhallur Björgvinsson
40 ára
Anna S. Sigurðardóttir
Arnar Þór Gíslason
Florica Vasilache
Gígja Jónsdóttir
Guðrún S. Þorvarðardóttir
Gyða Björg Jóhannsdóttir
Harpa Dröfn Georgsdóttir
Heiðrún Högnadóttir
Hjalti Baldursson
Ingibjörn Pétursson
Ívar Þór Erlendsson
María Gomez
Ragnar Helgi Ragnarsson
Rut Friðriksdóttir
Tryggvi Jóhannesson
Urszula Sutkowska
30 ára
Adam Örn Óskarsson
Andri Davíð Pétursson
Anna J. Guðjónsdóttir
Emilia Andreea Enache
Fannar Óli Ólafsson
Halla Logadóttir
Huldís Ósk Hannesdóttir
Johanne K.K. Skjönhaug
Rakel Lilja Halldórsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Valdimar býr í
Reykjvavík, lauk prófum í
markaðsfræði og verk-
efnastjórnun frá HR og er
sérfræðingur hjá Borgun.
Maki: Elsa Mjöll Berg-
steinsdóttir, f. 1991, hug-
búnaðarverkfræðingur
hjá Gangverki.
Foreldrar: Jóhann Páll
Valdimarsson, f. 1952, fv.
bókaútgefandi, og Guðrún
Sigfúsdóttir, f. 1953, rit-
stjóri. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Valdimar
Jóhannsson
30 ára Kristrún ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
MA-prófi frá HÍ og er
rekstrarstjóri hjá Hug-
smiðjunni.
Maki: Haukur Elís Sigfús-
son, f. 1991, sjúkraflutn-
ingamaður.
Foreldrar: Sigrún Sigurð-
ardóttir, f. 1954, starfs-
maður hjá Íslandsbanka,
og Kristinn Halldórsson, f.
1955, deildarstjóri hjá
Eimskip. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Kristrún
Kristinsdóttir
30 ára Pétur Orri ólst
upp á Akureyri, býr í Mos-
fellsbæ, lauk sveinsprófi í
vélfræði og starfar hjá ál-
verinu Rio Tinto.
Maki: Erla Guðmunds-
dóttir, f. 1992, skólaliði í
Mosfellsbæ.
Börn: Hólmfríður Katrín,
f. 2011, og Huginn, f.
2014.
Foreldrar: Hólmfríður
Pétursdóttir, f. 1964, og
Tryggvi Pálmason, f.
1960, d. 2016, sjómaður.
Pétur Orri
Tryggvason
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
SPORT-
HALDARI
frá Panache
• Einstök
verðlaunahönnun
• Hámarks stuðningur
• Minnkar hreyfingu
brjósta um 83%
• Ath! Einnig fáanlegur
í svörtu
Nýr