Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 61
Sérfræðingur á
peningaþvættisskrifstofu
Embætti héraðssaksóknara óskar eftir að ráða í starf sérfræðings á peningaþvættisskrifstofu.
Eftir atvikum verður ráðið í tvær stöður. Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar nk.
Helstu verkefni:
• Móttaka og skráning tilkynninga um hugsanlegt
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
• Gagnaöflun, aðgerðagreining og miðlun upplýsinga
vegna gruns um hugsanlegt peningaþvætti og/eða
fjármögnun hryðjuverka.
• Samskipti og fræðsla til tilkynningarskyldra
aðila, stjórnvalda sem móttaka greiningar frá
peningaþvættisskrifstofu og annarra aðila.
• Þátttaka í gerð stefnumiðaðra greininga, sem
greina þróun og mynstur við peningaþvætti, vinnsla
tölfræðilegra gagna, ársskýrslu og áhættumats.
Með umsókninni skulu fylgja eftirfarandi
upplýsingar eftir því sem við á:
• Upplýsingar um menntun og fyrri störf. Reynsla af
störfum sem nýtist í framangreint starf.
• Upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni.
• Upplýsingar sem lúta að andlegu atgervi, áræði,
mannlegum samskiptum og sjálfstæði.
• Upplýsingar um tvo núverandi eða fyrrverandi
samstarfsmenn/yfirmenn sem veitt geta upplýsingar
um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda.
• Aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega
eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta
fyrir starfið.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Umsækjendur skulu hafa lokið BS/BA háskólagráðu
í viðskiptafræði eða öðru sambærilegu
háskólanámi sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun
í viðskiptafræði eða öðru námi á háskólastigi sem
nýtist í starfi er kostur.
• Menntun og/eða reynsla við fjármálagreiningar,
regluvörslu og/eða störf innan fjármálafyrirtækja,
rannsókn fjármuna- og skattalagabrota er kostur.
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót
og samvinnufærni.
• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
• Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu
sem rituðu máli er áskilin.
Um verkefni og skipulag héraðssaksóknara
er vísað til heimasíðu embættisins;
www.hersak.is.
Með vísan til 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur
um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það
traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að
afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%.
Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 29. október 2018 og skal umsókn berast embætti héraðssaksóknara,
Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Einnig má senda umsókn með tölvupósti á netfangið starf@hersak.is og skal
pósturinn merktur „Umsókn um stöðu sérfræðings“. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða
ekki teknar til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Árnadóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, eða Sveinn Ingiberg Magnússon,
yfirlögregluþjónn, í síma 444 0150.
Frekari upplýsingar um störfin
Um er að ræða tvö 100% störf, annars vegar yfirlæknis
við heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og hins vegar
sérfræðings í heimilislækningum við sömu heilsugæslu.
Viðkomendur þurfa að geta hafið störf frá 1. febrúar
2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármálaráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef HSU www.hsu.is
undir flipanum “lausar stöður”.
Umsóknum þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um
menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Umsóknarfrestur í störfin er til og með 15.11.2018.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurjón Kristinsson, settur framkvæmdastjóri
lækninga HSU, sigurjon.kristinsson@hsu.is
Sími: 432-2000.
Yfirlæknir
og sérfræðingur
í heimilislækningum
óskast á heilsugæsluna
í Vestmannaeyjum
• Skipulag og stjórnun lækninga við heilsugæslu
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
• Vaktþjónusta
• Leiðandi hlutverk í mótun og framkvæmd
teymisvinnu starfsfólks á heilsugæslu
• Þátttaka í gæðaverkefnum innan stofnunarinnar
s.s. þátttaka í kennslu og starfsþjálfun kandídata
og sérnámslækna í heimilislækninum auk fræðslu
til samstarfsmanna
Hæfniskröfur í bæði störf
• Sérfræðiréttindi í heimilislækningum
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Helstu verkefni og ábyrgð sérfræðings í heimilis-
lækningum
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
• Vaktþjónusta
• Þátttaka í teymisvinnu og gæða- og
nýsköpunarverkefnum innan stofnunarinnar
kopavogur.is
Kópavogsbær
Laus störf hjá Kópavogsbæ
Grunnskólar
· Aðstoðarskólastjóri í Smáraskóla
· Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla
· Frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla
· Frístundaleiðbeinandi í Smáraskóla
· Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla
· Kennari á yngsta stig í Snælandsskóla
· Matráður starfsfólks í Vatnsendaskóla
· Matráður starfsfólks og frístundar í
Hörðuvallaskóla
· Umsjónarkennari í Vatnsendaskóla
· Þroskaþjálfi eða sérkennari í Hörðuvallaskóla
Leikskólar
· Deildarstjóri í Fífusali
· Deildarstjóri í leikskólann Kópahvol
· Leikskólakennari eða þroskaþjálfi
· Leikskólakennar í Kópastein
· Leikskólakennar í Marbakka
· Leikskólakennar í Álfatún
· Starfsmenn í hlutastarf eftir hádegi
· Starfsmaður í sérkennslu í leikskólann Læk
Velferðarsvið
· Starfsfólk í félagslega heimaþjónustu
· Starfsfólk í íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk
· Þroskaþjálfi / fagaðili á heimili fatlaðra
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is, þar
sem jafnframt má finna fleiri störf og nánari upplýsingar.
Sjúkraliði óskast
til starfa á Húðlæknastöðin ehf. Um er að
ræða 80-100% starf og þarf viðkomandi að
geta hafið störf sem fyrst. Starfið er
fjölbreytt og krefst sjálfstæðra vinnubragða.
Leitað er eftir röskum einstaklingi sem getur
unnið undir álagi ef svo ber undir.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á
agusta@hls.is Nánari upplýsingar veitir
Ágústa Ýr Hafsteinsdóttir í netfanginu
agusta@hls.is eða í síma 520-4444
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf. atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á