Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 64
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
POTTAR OG PÖNNUR
Fagmaðurinn velur AMT en þú?
Þýsk hágæðavara
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Allt fyrir eldhúsið
Friðgerður Pétursdóttir, eða Fríða eins og hún er kölluð, fagnar75 ára afmæli sínu í dag.Fríða er Bolvíkingur í húð og hár eins og hún segir sjálf.
Hún fæddist í Tröð en ólst upp í Meiri-Hlíð í Bolungarvík. Hún stund-
aði nám við Héraðsskólann í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og við
Húsmæðraskólann að Laugalandi í Eyjafirði.
Fríða hefur mest starfað í eigin rekstri í gegnum tíðina, í útgerð og
í blómabúð. Fjölskyldan átti heima í Bolungarvík en flutti svo árið
1995 til Ólafsvíkur. Um tíma áttu þau íbúð bæði í Ólafsvík og í Reykja-
vík en núna búa þau hjónin, Fríða og Maggi, í Reykjavík. Aðaláhuga-
mál Fríðu eru hannyrðir ýmiskonar, ferðalög, blómastúss og að skella
sér á ball.
En hvað skal gert í tilefni dagsins?
„Ég verð heima svo ég missi nú ekki af neinni afmæliskveðju. Verð
tilbúin að svara símanum og taka á móti gestum. Mér finnst svo gam-
an að eiga afmæli.“
Fríða er gift Magnúsi Snorrasyni og eiga þau fimm börn. Þau eru
Pétur Hlíðar, f. 1965, Þorbjörg Jónína, 1966, Jón Ólafur, f. 1967, Arn-
þór, f. 1970 og Fjóla Rós, f. 1981. Þau eiga 14 barnabörn og sex barna-
barnabörn.
Á Gran Canaria 2017 Hjónakornin, Maggi og Fríða, bregða á leik og
hafa gaman af: „Maður verður víst aldrei of gamall til að leika sér.“
Ætlar ekki að missa
af afmæliskveðjum
Friðgerður Pétursdóttir er 75 ára í dag
J
ón Ásgeirsson fæddist á
Ísafirði 11.10. 1928. Hann
stundaði nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík þar
sem aðalkennarar hans
voru Árni Kristjánsson, Jón Þór-
arinsson og dr. Victor Urbancic. Að
loknu námi hérlendis stundaði hann
framhaldsnám við Konunglega
skoska háskólann í Glasgow og síð-
ar Guildhall School of Music í
London.
Fyrir utan tónsmíðastörf starfaði
Jón lengi við kennslu, lengst af við
KHÍ og Söngskólann í Reykjavík.
Hann stjórnaði einnig Liljukórnum,
Karlakór Keflavíkur og Fóst-
bræðrum, lúðrasveitum og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í eigin verkum.
Hann var tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins um árabil, frá
1970.
Jón var skipaður prófessor í tón-
list við KHÍ árið 1996 og varð þar
með fyrsti prófessorinn í list-
greinum á Íslandi. Árið 2008 veitti
Kennaraháskóli Íslands Jóni dokt-
orsnafnbót í heiðursskyni fyrir mik-
ilvægt framlag hans til kenn-
aramenntunar á sviði tónlistar og
tónlistaruppeldis í skólum landsins.
Jón hefur samið fjölda tónverka
en meðal kammerverka má nefna
þrjá strengjakvartetta, blásara-
kvintetta, oktett fyrir blásara og
Sjöstrengjaljóð samið 1968. Af
smærri hljóðfæratónverkum má
nefna 10 þjóðlög og sónötu fyrir
sólógítar, píanóæfingar og stutt
orgelverk.
Konsertarnir eru sex; sellókons-
ert, hornkonsert, klarinettkonsert,
trompetkonsert, píanókonsert,
flautukonsert sem frumfluttur verð-
ur í janúar 2019 af Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, einleikari
Freyr Sigurjónsson, og ófullgerður
fiðlukonsert. Ballettinn Blind-
isleikur var sýndur í Þjóðleikhúsinu
1979.
Í verkum sínum Þjóðvísu, Lilju
og Fornum dönsum sótti Jón efni-
við til íslenskra þjóðlaga, en eftir
hann liggja ótal þjóðlagaútsetn-
ingar, ýmist fyrir hljóðfærahópa
eða kóra, en kórútsetningar hans
hafa öðlast sérstakan sess meðal ís-
lenskra kórbókmennta. Meðal
stærri kórverka má nefna Tímann
og vatnið, við ljóð Steins Steinarrs,
Á þessari rímlausu skeggöld, við
ljóð Jóhannesar úr Kötlum, og
sálmalög við alla Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar, auk fjölda
smærri kórverka.
Líkalega er Jón einna þekktastur
Jón Ásgeirsson, tónskáld og prófessor emeritus – 90 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónskáldið Jón er fjölhæft tónskáld. Hann hefur m.a. samið kammerverk, kórverk, óperur, sönglög og konserta.
Einn af hinum stóru meist-
urum íslenskra tónsmíða
Sunna Dís, Ágústína Líf, María Mist og Hrafndís Veiga gengu í hús í Garðabæ og
seldu skutlur sem þær bjuggu til og skreyttu. Þær söfnuðu 4.272 kr. sem þær
gáfu Rauða krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is