Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 77
MENNING 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Óvenjumörg leikrit þetta leik-árið taka útgangspunkt íendalokunum þar sem lífiðer ýmist skoðað út frá dauð-
anum eða dauðinn út frá lífinu. Með
breyttri samfélagsgerð hefur dauðinn
að stórum hluta horfið úr hinu daglega
lífi og einangrast að mestu við heil-
brigðis- og umönnunarstofnanir. Um
leið og dauðinn verður fjarlægur og lít-
ið ræddur er ákveðin hætta á því að
hann verði fyrir vikið ógnvænlegri. En
frá því við fæðumst eigum við aðeins
eitt sameiginlegt og það er vissan um
að við munum öll deyja. Þess vegna er
svo nauðsynlegt að geta rætt það sem
bíður okkar allra.
Dauðleikinn er áberandi í ein-
leiknum Griðastaður eftir Matthías
Tryggva Haraldsson sem tekinn var til
sýningar í Tjarnarbíói um liðna helgi.
Verkið, í leikstjórn höfundar, var út-
skriftarverkefni Matthíasar Tryggva
frá sviðshöfundabraut Listaháskóla
Íslands í vor sem leið, en fór þá fram-
hjá rýni. Stjórnendur Tjarnarbíós eiga
því þakkir skildar fyrir að veita Griða-
stað framhaldslíf á fjölum sínum enda
á verkið fullt erindi við almenning.
Leikurinn fjallar um Lárus sem
finnur sér griðastað í húsakynnum
sænska húsgagnarisans IKEA þegar
móðir hans deyr eftir langvinn veik-
indi. Í hans huga er IKEA griðastaður,
því þar er dauðleikinn eins uppstilltur
og uppstillt baðherbergi. Umgjörð
sýningarinnar vísar með skemmti-
legum hætti í fagurfræði IKEA. Hvít-
um Billy-hillum er raðað skáhallt eftir
sviðinu, sem gefa góða tilfinningu fyrir
gríðarlegum vegalengdum innan
verslunarinnar, og gráum Nockeby-
sófa er haganlega komið fyrir á svið-
inu. Í sófanum leynist aðeins einn gul-
ur koddi sem í samspili við bláan fatn-
að Lárusar kallast á við sænsku
fánalitina og einkennisliti IKEA.
Speglar og tímaglös eru áberandi í
leikmyndinni sem minna okkur ekki
aðeins á dauðleikann heldur einnig á
þá birtingarmynd sem við kjósum að
draga upp af okkur sjálfum gagnvart
öðrum og þá brotakenndu sjálfsmynd
sem aðalpersónan glímir við.
Því það er ekki aðeins dauðleikinn
sem svífur yfir vötnum í einleik
Mattthíasar Tryggva heldur nær hann
með meistaralegum og hárbeittum
hætti að fanga tilvistarkrísu Vestur-
landabúans sem knúin er áfram af
endalausu samviskubiti yfir eigin vist-
spori. Samviskubit sem kallar á neyslu
„fairtrade“ eða sanngirnisvottaðs
súkkulaðis, notkun svansmerktra
vara, rafmagnsbíl, minni kjötneyslu og
flokkun rusls. Á sama tíma erum við
drifin áfram af neysluhyggju sem með-
al annars birtist í fjöldaframleiddum
vörum sem við viljum helst kaupa með
sem mestum afslætti. Eina leiðin til að
losna undan samviskubitinu er að
kaupa ekkert og minnka þar með só-
unina. Innst inni vitum við sennilega
flest að dótið sem við keppumst við að
eignast veitir okkur ekki lífsfyllingu í
reynd. Í uppfærslunni er tómleiki Lár-
usar hins vegar undirstrikaður með
tómum hillum. Á sama tíma vekur
verkið áhorfendur til umhugsunar um
hvað við ætlum að skilja eftir okkur
hér á jörðinni þegar við kveðjum.
Þrátt fyrir þungan undirtón mat-
reiðir Matthías Tryggvi innihaldið með
vænum skammti af húmor þannig að
sýningin sveiflast milli hins harmræma
og kómíska. Textinn er marglaga og
býður upp á draumkenndar senur þar
sem tilfinningum aðalpersónunnar er
miðlað með táknrænum hætti.
Leikstjórinn hefði ekki getað valið
sér betri leikara í hlutverk Lárusar en
Jörund Ragnarsson sem nær að fanga
blæbrigði persónunnar. Lítið hefur
sést til Jörundar á íslensku leiksviði
síðan hann lauk framhaldsnámi vest-
anhafs fyrir tveimur árum sem er synd
því hann hefur einstaklega góða sviðs-
nærveru þar sem allt sem hann gerir
og segir verður satt. Þegar áhorfendur
gengu í salinn var Jörundur, í hlut-
verki Lárusar, að yfirfara sviðsmynd-
ina tautandi ávarp með sjálfum sér
sem hann hugðist flytja viðstöddum.
Smám saman varð tautið skýrara og
hann rann inn í frásögnina með full-
komlega eðlilegum hætti. Texta-
meðferð Jörundar og kómísk tíma-
setning sem og tempó- og styrkleika-
breytingar voru svo vel útfærðar að
unun var að fylgjast með. Það væri
óskandi að leikhúsgestir fengju að sjá
meira til Jörundar á næstunni.
Matthías Tryggvi hefur verið virkur
við handritaskrif og þýðingar á síðustu
misserum, en þreytir í Griðastað frum-
raun sína sem leikstjóri í atvinnuleik-
húsi. Hann nýtir leikrýmið vel og tekst
í samspili við flotta lýsingu Egils Ingi-
bergssonar og Hafliða Emils Barða-
sonar að undirstrika dýnamík verks-
ins. Tónlist Ingibjargar Ýrar Skarp-
héðinsdóttur var spennandi og studdi
oftast vel við framvinduna. Á köflum
varð undirliggjandi hljóðteppið hins
vegar of hávært á kostað textaflutn-
ingsins, sem var miður. Eftir stendur
að Griðastaður er spennandi upp-
færsla frá ungum höfundi með ferska
rödd og leikstjóra sem gaman verður
að fylgjast með í framhaldinu.
Við munum öll deyja
Tjarnarbíó
Griðastaður bbbbn
Eftir Matthías Tryggva Haraldsson í
leikstjórn höfundar. Dramatúrgar: Eydís
Rose Vilmundardóttir og Jökull Smári
Jakobsson. Tónlist: Ingibjörg Ýr Skarp-
héðinsdóttir. Lýsing: Egill Ingibergsson
og Hafliði Emil Barðason. Leikmynd og
búningar: Allir deyja leikfélag. Leikari:
Jörundur Ragnarsson. Allir deyja leik-
félag frumsýndi í Tjarnarbíói laugardag-
inn 6. október 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST Ferskur „Griðastaður er spennandi
uppfærsla frá ungum höfundi með
ferska rödd og leikstjóra sem gaman
verður að fylgjast með í framhaldinu.“
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík,
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími: 588 8000 • slippfelagid.is
ICQC 2018-20
Fyrsti þátturinn í nýrri syrpu BBC
um geimveruna Doctor Who var
frumsýndur á sunnudaginn og í
fyrsta sinn fer kona með hlutverk
doktorsins, leikkonan Jodie Whitta-
ker. Hefur áhorf á Doctor Who-þátt
ekki verið meira í 13 ár, að því er
fram kemur á vef enska dagblaðs-
ins Telegraph. Um níu milljónir
manna horfðu á þáttinn, skv. frétt
blaðsins, en fyrra met er þó 9,9
milljónir, frá árinu 2005.
Um níu milljónir horfðu á Doctor Who
Vinsælir Þættirnir um Doctor Who hófu göngu sína árið 1963. Hér sést nýjasti dokt-
orinn, Jodie Whittaker, og jafnframt fyrsta konan sem fer með hlutverkið.
Útgáfuhóf bók-
arinnar We are
Here, eftir Detel
Aurand, fer fram
í Nýlistasafninu í
Marshallhúsinu í
kvöld kl. 20. Í til-
efni útgáfunnar
ræðir Claudia
Hausfeld við
Aurand um verk hennar og Unnur
Jökulsdóttir les upp úr bókinni. Í
tengslum við útgáfuna má einnig
sjá örsýningu á verkum Aurand í
anddyri Nýlistasafnsins fram til 16.
október. „Bókin spannar verk unn-
in í ýmsa miðla frá síðustu tuttugu
árum, ljósmyndir frá persónulegu
safni listamannsins sem og sjálfs-
ævisögulegan texta um fjar-
samband hennar og maka hennar,
Jóns Sigurgeirssonar (1909-2003),
sem þau áttu í á milli Íslands og
Berlínar. Eins og titillinn gefur til
kynna hverfist We are Here um
tímaskynið,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Aurand býr og starfar sem
teiknari, myndlistarmaður, skúlp-
túristi, rithöfundur og kvikmynda-
gerðarmaður í Berlín.
Bókaútgáfa og örsýning í Nýló
Verk eftir Aurand.
„„Andmæli gegn
Wagner“: Jón
Leifs og endur-
heimt norræns
menningararfs“
nefnist erindi
sem Árni Heimir
Ingólfsson flytur
á vegum
Wagnerfélagsins
á Íslandi í Hann-
esarholti á laug-
ardag kl. 13.30. Þar fjallar Árni
Heimir um áhrif Wagners á Jón
Leifs, tónsköpun hans og hug-
myndafræði. „Árni Heimir er tón-
listarfræðingur og listrænn ráð-
gjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Hann hefur ritað fjölda greina og
bóka um tónlist, m.a. ævisögu Jóns
Leifs, sem var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2009 og
kemur út í Bandaríkjunum á næsta
ári undir heitinu Jón Leifs and the
Musical Invention of Iceland,“ segir
í tilkynningu. Aðgangur er ókeypis.
Fjallar um áhrif
Wagners á Jón Leifs
Árni Heimir
Ingólfsson
Aðeins sólar-
hring eftir að
Taylor Swift
hvatti banda-
ríska aðdáendur
sína á Instagram
til að skrá sig á
kjörskrá þar í
landi höfðu yfir
65 þúsund manns
skráð sig. „Til
samanburðar höfðu aðeins 190.178
skráð sig í september öllum og
56.669 í ágúst,“ segir Kamari Gut-
hrie, upplýsingastjóri Vote.org, í
samtali við Buzzfeed News. Sé kjör-
skráin í Tennessee skoðuð, sem er
heimaríki Swift, má sjá að 2.144 af
þeim 5.183 sem skráðu sig í október
gerðu það eftir áskorun Swift.
Kjósendur virðast
svara kalli Swift
Taylor Swift