Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
upp á milljón kanadíska dollara, en
samtals söfnuðust yfir tvær milljónir
dollara. Kom þá berlega í ljós hvað ís-
lenskudeildin nýtur mikillar velvildar
á Íslandi sem og í Kanada. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra heim-
sótti Manitoba í ágúst sem leið og eft-
ir að hafa kynnt sér íslenskudeildina
og íslenska bókasafnið benti hún á í
samtali við Morgunblaðið að þessi
starfsemi skipti gríðarlega miklu máli
til að halda samskiptunum lifandi.
Samstarf við HÍ endurvakið
Ýmis samskipti hafa verið á milli ís-
lenskudeildarinnar og Íslands. Í
nokkur ár var boðið upp á sum-
arkúrsa á Íslandi en þeim hefur
verið hætt vegna kostnaðar og
fræðslan veitt á heimaslóð í staðinn.
1999 gerðu Manitoba-háskóli og
Háskóli Íslands með sér samstarfs-
samning, m.a. um nemenda- og
kennaraskipti og sameiginlega ráð-
stefnu til skiptis í skólunum á 18
mánaða fresti.
Fljótlega var ákveðið að hafa ráð-
stefnuna á tveggja ára fresti, en
hún var síðast haldin á Íslandi 2012.
Nú hefur verið ákveðið að taka
þráðinn upp á ný og verður næsta
ráðstefna í Reykjavík haustið 2019.
Birtir yfir íslenskudeildinni
Eina deild sinnar tegundar utan Íslands stendur vörð um íslenska arfleifð í Vesturheimi
Sameiginleg ráðstefna Manitoba-háskóla og Háskóla Íslands í Reykjavík haustið 2019
Manitoba-háskóli Peter John R. Buchan, yfirkennari íslenskudeildarinnar, framan við aðalbyggingu skólans.
Íslenska safnið Katrín Jakobsdóttir skoðaði bókakostinn síðsumars. Árið 2000 David Arnason, Kristín Jóhannsdóttir og Haraldur Bessason.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenskudeild Manitoba-háskóla í
Winnipeg í Kanada er eina deild
sinnar tegundar utan Íslands og á sér
langa og merka sögu. Rekstur henn-
ar hefur gengið í gegnum öldudali en
nú birtir til á ný, að sögn Peter John
R. Buchan, yfirkennara deildarinnar.
Íslensku vesturfararnir á síðari
hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar
héldu í móðurmálið eins og þeir gátu.
Íslenska var gjarnan töluð á heim-
ilum þeirra og kennd í skólum á Nýja
Íslandi. Einnig í Jon Bjarnason Aca-
demy í Winnipeg 1914 til 1940 og í
Wesley College (síðar Winnipeg-
háskóli) 1901 til 1926. Fjársöfnun
fólks af íslenskum ættum leiddi til
stofnunar íslenskudeildar Manitoba-
háskóla 1951.
Um 50 til 60 nemendur
Peter John R. Buchan er eini fasti
kennari deildarinnar, en auk þess
kenna stundakennarar ákveðin fög
eins og til dæmis Íslendingasögur og
norræna goðafræði. „Ég hef verið
með um 25 til 30 nemendur í ís-
lenskukúrsum mínum,“ segir hann
og bætir við að þar af hafi verið um
15 nemendur á fyrsta ári í íslensku
og um fimm á öðru ári. Nú séu reynd-
ar aðeins sex á fyrsta ári og tíu nem-
endur í áfanga um íslenskar þjóðsög-
ur. „Þegar allt er talið erum við með
45 nemendur skráða í haust.“
Manitoba-háskóli hefur, eins og
margir aðrir skólar, þurft að draga
saman seglin, og undanfarin ár hefur
niðurskurðurinn bitnað á íslensku-
deildinni eins og á öðrum deildum.
Þannig hefur ekki verið ráðinn pró-
fessor við deildina síðan Birna
Bjarnadóttir hætti 2015. Finnbogi
Guðmundsson var fyrsti yfirmaður
deildarinnar (1951-1956), Haraldur
Bessason bætti um betur og var
deildarforseti lengst allra (1956-
1987), Kirsten Wolf tók við af honum
(1988-2000) og David Arnason (2000-
2006) stjórnaði síðan deildinni þar til
Birna tók við.
„Helsta vandamál okkar er hvað
fáir taka íslensku sem aðalfag,“ segir
Peter John R. Buchan, sem byrjaði
að kenna við deildina 2009. Hann
bendir líka á að eftir að Birna hætti
hafi deildin ekki getað tekið inn nem-
endur í framhaldsnám. Vegna að-
halds hafi enginn verið ráðinn í stað-
inn fyrir hana, frekar en í aðrar
stöður sem hafi losnað í háskólanum,
og hann sé ekki með doktorspróf.
Samningur um deildina
Íslenskudeildinni var komið á
laggirnar til þess að standa vörð um
íslenska arfleifð í Vesturheimi,
tryggja íslenskukennslu og auka
áhuga á sameiginlegri sögu Íslands
og Ameríku. Forsvarsmenn deild-
arinnar og kennarar hafa ekki látið
sitt eftir liggja og hafa gefið út bækur
og fræðirit í nafni deildarinnar.
Peter John R. Buchan bendir á að í
byrjun hafi verið gerður samningur
um stofnun íslenskudeildarinnar og
hún verði því hluti af háskólanum um
aldur og ævi. Sama gildi ekki um
embætti deildarforseta. Deildin hafi
ekki verið fjárhagslega sjálfbær og
brugðist hafi verið við því. „Við þurf-
um sennilega að hrinda af stað enn
einni söfnuninni til þess að tryggja
embætti prófessors á ný,“ segir
hann.
Rekstur íslenskudeildarinnar hef-
ur oft verið erfiður. Hún stóð sér-
staklega illa skömmu fyrir aldamót
og þá var skipulögð fjársöfnun, Valu-
ing Icelandic Presence - Metið ís-
lenska nærveru, til þess að bjarga
málum auk þess sem hún renndi
traustum stoðum undir hið einstaka
íslenska bókasafn skólans og end-
urbætur á því. Ríkisstjórn Íslands,
Eimskipafélagið og Háskólasjóður
lögðu málinu lið með rausnarlegum
hætti, styrktu málefnið með framlagi
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
frystidagar
kæli- og
1. - 14. okt
finna rétta tækið
við hjálpum þér að