Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 AIR OPTIX® COLORS Linsur í lit VR óskar eftir orlof VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2018. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS • Lýsing á eign og því sem henni fylgir • Ástand íbúðar og staðsetning • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Öllum tilboðum verður svarað. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is T ónlistarhefðin hér á Ísa- firði er sterk og listin er okkur lífsnauðsyn- leg; athvarf frá hinu daglega amstri og gef- ur lífinu gildi,“ segir Ingunn Ósk Sturludóttir, skólastjóri Tónlistar- skólans á Ísafirði. Næstkomandi laugardag verður efnt til afmælis- hátíðar, en skólinn er sjötugur um þessar mundir. Það var á haust- dögum 1948 sem skólastarfið hófst, en þá hafði Jónas Tómasson, for- maður Tónlistarfélags Ísafjarðar, ráðið Ragnar H. Ragnar sem fyrsta skólastjóra skólans. Ragnar stjórnaði skólanum í áratugi og var driffjöður í menningarlífinu á Ísafirði. „Ragnar lagði alltaf mikið upp úr því að nemendur í tónlistarnámi kæmu fram opinberlega. Í því skyni stóð hann meðal annars fyrir samæfingum sem haldnar voru á heimili fjölskyldu hans á sunnu- dögum. Sigríður, dóttir Ragnars, sem síðar tók við skólastjórninni af föður sínum, lagði sömuleiðis mikið upp úr því að skólinn skipaði sterkan sess í menningarlífi bæj- arins og svo er enn. Á Vestfjörðum hefur alltaf verið mikill sköp- unarkraftur sem endurspeglast í blómlegu menningarlífi. Hér hefur tónlistarlífið verið ríkt í áratugi og tenging við aðrar listgreinar mikil og sterk. Listin hefur verið hald- reipi í mannlífinu hér og list- viðburðir alla tíð vel sóttir,“ segir Ingunn Ósk Sturludóttir, sem er menntuð söngkona. Tónleikar á tólf heimilum Afmælishátíðin á Ísafirði hefst á því að skólalúðrasveit fer um götur bæjarins og spilar fyrir fólk. Sveitin blæs svo hátíðina inn af svölum skólahússins þegar hátíðin verður sett kl. 12. Þar verður með- al annars frumflutt lag eftir Hall- dór Smárason við texta Steinþórs B. Kristjánssonar, sem er tileinkað skólanum. Við sama tilefni munu kórar og söngnemendur skólans koma fram og opnuð verður sögu- sýning um tónlistarstarf í bænum síðustu áratugi. Síðdegis á laugardaginn, eða klukkan 15, hefst svo dagskrá sem ber yfirskriftina Heimilistónar, en þá verða tónleikar á tólf heimilum á Eyrinni á Ísafirði. Þar mun fólk- ið sem í húsunum býr telja í og flytja tónlist á stofutónleikum; pí- anóspil, harmonikkuleik, lúðra- blástur, raftónlist og söng svo eitt- hvað sé nefnt. 300 nemendur Á næstunni verður bryddað upp á ýmsu fleiru í tengslum við afmælið, til dæmis verður barna- óperan Kalli og sælgætisgerðin eftir Hjálmar H. Ragnarsson sett á svið af nemendum og kennurum skólans, en tónskáldið er sonur Ragnars H. Ragnar, sem fyrr er nefndur. Í framhaldinu og til vors verður svo efnt til ýmissa tónleika við skólann og verður fjölbreytni þar ráðandi. „Skólastarfið er öflugt. Nem- endur eru um 300 talsins, sem læt- ur nærri að sé 10% af íbúafjölda Ísafjarðarbæjar, en við erum með útibú í öllum þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Meðal krakkanna er píanónám alltaf vinsælast en gítar, rytmískt samspil og raf- tónlist hefur komið sterkt inn síð- ustu árin,“ útskýrir Ingunn um starf skólans þar sem vinna fjórtán kennarar í rúmlega tólf stöðugild- um. Kennararnir hafa fjölbreyttan bakgrunn og eru víða að, svo sem frá Ungverjalandi, Póllandi og Eistlandi, en þess ber að geta að fólk frá löndum Austur-Evrópu er mjög áberandi í tónlistarstarfi á landsbyggðinni. „Mér finnst vert að halda góðu framlagi þessa fólks til haga. Það á uppruna sinn í annarri menningarhefð en hér á landi og einmitt þess vegna auðgar það ís- lenskt samfélag og tónlistarlíf svo mikið sem raun ber vitni,“ segir Ingunn. Söngstund og samfélag Mikilvægt er að öll börn kynnist tónlist og hafi tækifæri til hljóðfæranáms, segir Ingunn. „Framtíðardraumur okkar í tónlistarskólanum er að tónlist- arnám standi öllum til boða og verði jafn sjálfsagt og allt annað skyldubundið nám. Hér á Ísafirði er elsta deild leikskólans í sama húsi og tónlistarskólinn og við bjóðum börnunum að koma reglu- lega til okkar í söngstund. Grunn- skólinn er nánast í næsta húsi við okkur og talsverð samskipti þar á milli,“ segir Ingunn og bætir við að lokum: „Við ýmis tækifæri hér í bæj- arlífinu koma nemendur tónlistar- skólans fram; spila í kirkjunni, á hjúkrunarheimilinu, sjúkrahúsinu og víðar. Með þessu alast börn og ungmenni í tónlistarnámi upp við að taka virkan þátt í samfélaginu, leggja sitt af mörkum og hafa áhrif á bæjarbraginn og menning- arlífið á svæðinu. Tónlistarnám er gjöf sem endist allt lífið.“ Í samfélaginu er sköpunarkraftur Tónlistarskólinn á Ísafirði er 70 ára og verður tímamótanna minnst um helgina. Listin á sterkar rætur fyrir vestan og er gott athvarf frá daglegu amstri, segir skólastjórinn. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Tónlist Listin er haldreipi, segir Ingunn Ósk Sturludóttir í viðtalinu. Í baksýn er málverk af Ragnari H. Ragnar, sem í áratugi var skólastjóri og sú driffjöður að Ísafjörður varð menningar- og tónlistarbær á landsvísu. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Stjórnendur Frá vinstri Finney Rakel Árnadóttir og Sigrún Pálmadóttir aðstoðarskólastjórar, Ingunn Ósk Sturludóttir skólastjóri og Dagný Arn- alds, sem um þessar mundir er starfandi skólastjóri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísafjörður Tónlistarskólinn er hér til húsa, í fyrrverandi húsmæðraskóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.