Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Haust
2018
595 1000 . heimsferdir.is
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
a
m
pr
en
illu
r.
He
i
sf
rð
i
á
il
r
ét
il
i
i
í
.
t
Ljubljana
s
f
i
r 17. TIL 21. OKTÓBER
Frá kr.
59.995
EINSTÖK HELGARFERÐ
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að
birting Morgunblaðsins á gögnum
tengdum Aurum-málinu sé tilraun til
að hafa áhrif á niðurstöðu Landsrétt-
ar í málinu. Þetta kom fram í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér í gær.
Morgunblaðið greindi í gær frá
tölvupóstssamskiptum stjórnenda
og starfsmanna Glitnis fyrir hrun,
þar sem meðal annars kom fram að
Jón Ásgeir fékk ítrekað að hækka yf-
irdrátt sinn hjá bankanum, m.a. á
þeim grundvelli að hann myndi fá
milljarð frá Pálma í Fons þegar hlut-
ur hans í Aurum hefði verið seldur.
Yfirlýsing Jóns Ásgeirs er svo-
hljóðandi:
„Frá því um aldamótin síðustu
hefur það verið einlægur vilji Davíðs
Oddssonar og hans nánustu fylgi-
sveina að koma mér á bak við fang-
elsismúra. Í þeim tilgangi hefur sú
hirð misbeitt valdi sínu og áhrifum,
m.a. með beinum hætti á ríkislög-
regluna á árinu 2002 og síðar. Enn
hefur þessari þrá þeirra ekki verið
svalað og nú tæpum tuttugu árum
síðar birtist þetta sjúklega hugar-
ástand á síðum Morgunblaðsins.
Það er í anda vinnubragða þeirra
að þegar væntanlegur er dómur á
næstu dögum í máli sem ég er
ákærður í sem hlutdeildarmaður, að
reynt sé að hafa áhrif á dómsniður-
stöðuna með því að láta blaðamann
skrifa „fréttaskýringu“ á heila opnu
Morgunblaðsins með forsíðuvísun. Í
umfjölluninni eru orð og gerðir slitin
úr samhengi og reynt að skapa þau
hughrif lesandans, og þá væntanlega
dómenda Landsréttar líka, að málið
snúist bara um mig. Allt í þeim til-
gangi að láta þennan gamla og rætna
draum ritstjórans rætast.
Það er augljóst að uppruni
gagnanna er beint úr skúffu sak-
sóknara. Það er merkilegt að sak-
sóknari árið 2018 láti ekki nægja að
flytja málið fyrir dómi, heldur taki
upp á því að taka sér stöðu með
náhirð Davíðs Oddssonar og haldi
málflutningi áfram á síðum Morgun-
blaðsins.
Málið er nú í þriðja skipti fyrir
dómi. Í hin tvö skiptin hef ég verið
sýknaður. Ég trúi því að sama nið-
urstaða verði raunin á næstu dögum
og Landsréttur sjái hið augljósa í
málinu; að Glitnir banki hf. var betur
settur eftir viðskiptin en fyrir, eins
og staðfest var af þremur fræði-
mönnum úr háskólasamfélaginu við
meðferð málsins og sem hlýtur að
leiða til sýknu allra ákærðu. Þessa
staðreynd kaus Morgunblaðið að
leiða hjá sér í umfjöllun sinni. Hún
þjónar sennilega ekki lund ritstjór-
ans, enda sannleikurinn ekki alltaf
sagna bestur í Hádegismóum.
Jón Ásgeir Jóhannesson“
Segir gögnin úr
skúffu saksóknara
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær í sakamáli sem
höfðað var gegn Hreiðari Má Sig-
urðssyni, fyrrum forstjóra Kaup-
þings banka, og Guðnýju Örnu
Sveinsdóttur, fyrrum fjármálastjóra
Kaupþings banka, fyrir innherja- og
umboðssvik.
Um er að ræða síðasta hrunmálið
sem tekið er fyrir í héraðsdómi af
þeim 23 sem sérstakur saksóknari og
síðar héraðssaksóknari ákærði í.
Hreiðar Már er í málinu ákærður
fyrir umboðssvik með því að hafa í
ágúst 2008 látið bankann lána eign-
arhaldsfélagi í hans eigu, Hreiðari
Má Sigurðssyni ehf., 574 milljónir
króna án samþykkis stjórnar bank-
ans eða fullnægjandi tryggingar fyrir
láninu. Guðný er ákærð fyrir hlut-
deild í umboðssvikum með því að
hafa veitt liðsinni við að koma að fyr-
irmælum og samskiptum við lægra
setta starfsmenn bankans þegar um-
rætt lán var veitt.
Grundvallaratriði í málinu tengist
þeim mismun sem varð á kaupverði
Hreiðars sjálfs vegna kaupréttarins
og svo því markaðsverði sem hann
framseldi félaginu nokkrum klukku-
stundum síðar. Munar þar um 320
milljónum króna.
Staddur í fáránleika
Hreiðar Már brást illa við nokkr-
um spurningum saksóknara þegar
kom að því að spyrja um þennan mis-
mun og sagði hann saksóknara í raun
ekki skilja um hvað málið snerist.
„Gerir þú þér grein fyrir hvert pen-
ingarnir fóru?“ spurði hann saksókn-
ara.
Sagði Finnur Þór Vilhjálmsson,
saksóknari, að fjármunirnir hefðu að
hluta til verið notaðir til að greiða
skattaskuld við ríkissjóð. Greip
Hreiðar þá fram í fyrir honum og
sagði „hver einasta króna“ og spurði
saksóknara að nýju: „Runnu þessir
peningar til mín eða eitthvað annað?“
Vísaði hann til þess að samkvæmt
ákvörðun stjórnar nokkrum árum
áður og samkvæmt ráðningarsamn-
ingi ætti bankinn bæði að lána fyrir
kaupunum á kaupréttargengi sem og
fyrir skatti ef bréfin væru færð í sér-
stakt félag. Þannig hefði það meðal
annars verið árin áður. Þá sagði
Hreiðar einkennilegt að vera ákærð-
ur fyrir innherjasvik í þessu máli þar
sem bréf væru seld frá sér til félags í
sinni eigu.
„Framkvæmdastjóri, stjórnarfor-
maður og eini eigandi Hreiðars Más
Sigurðssonar ehf. vissi nákvæmlega
það sama og Hreiðar Már Sigurðs-
son,“ sagði hann og bætti við að hann
teldi þetta sögulegt mál á heims-
mælikvarða þar sem hann vissi ekki
um neitt mál þar sem innherjabrot
gæti átt við viðskipti milli sama aðila.
„Þessir tveir aðilar bjuggu yfir ná-
kvæmlega sömu upplýsingunum,“
sagði Hreiðar. „Mér finnst ég stadd-
ur í hálfgerðum fáránleika.“
Var í fríi
Guðný Arna Sveinsdóttir sagði
fyrir dómi í gær, að hún hefði rætt við
Hreiðar Má um lánveitinguna, sem
deilt er um í málinu. Þá sagðist hún
enga ákvörðun hafa tekið um lánið.
Hefði hún verið í fríi stóran hluta
þess tíma sem málsgögn ná til og því
sé ekki líklegt að hún hafi skoðað alla
þá pósta sem saksóknari bar undir
hana. Sagði hún að um langþráð frí
hefði verið að ræða og að Hreiðar
hefði meðal annars gefið henni skýr
skilaboð um að huga sem minnst að
bankanum meðan hún væri í fríi.
Guðný sagði að sitt hlutverk hefði
verið bókhald og uppgjör og hún
hefði ekki komið að neinni ákvarð-
anatöku. Slíkt væri á hendi stjórnar
félagsins.
Nokkur vitni komu fyrir dóminn í
gær, meðal annars fyrrverandi yfir-
lögfræðingur bankans, fyrrverandi
varaformaður stjórnarinnar og fyrr-
verandi stjórnarformaður. Sögðu
þeir allir að stjórn hefði árið 2005
samþykkt að lán væru veitt fyrir
kaupum stjórnenda sem hefðu kaup-
rétt. Þá væri einnig veitt aukalega
lán vegna skattaskuldbindinga sem
kæmu til þegar bréf væru áframseld í
einkahlutafélög í eigu viðkomandi
starfsmanna.
Morgunblaðið/Hari
Í réttarsalnum Hörður Felix Harðarson, lögmaður og Hreiðar Már Sig-
urðson, fyrrum forstjóri Kaupþings, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Síðasta hrunmálið
Fyrrverandi forstjóri og fjármálastjóri Kaupþings fyrir
héraðsdómi Ákært fyrir innherja- og umboðssvik
Allt um sjávarútveg