Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 61 Sérfræðingur á peningaþvættisskrifstofu Embætti héraðssaksóknara óskar eftir að ráða í starf sérfræðings á peningaþvættisskrifstofu. Eftir atvikum verður ráðið í tvær stöður. Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar nk. Helstu verkefni: • Móttaka og skráning tilkynninga um hugsanlegt peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. • Gagnaöflun, aðgerðagreining og miðlun upplýsinga vegna gruns um hugsanlegt peningaþvætti og/eða fjármögnun hryðjuverka. • Samskipti og fræðsla til tilkynningarskyldra aðila, stjórnvalda sem móttaka greiningar frá peningaþvættisskrifstofu og annarra aðila. • Þátttaka í gerð stefnumiðaðra greininga, sem greina þróun og mynstur við peningaþvætti, vinnsla tölfræðilegra gagna, ársskýrslu og áhættumats. Með umsókninni skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á: • Upplýsingar um menntun og fyrri störf. Reynsla af störfum sem nýtist í framangreint starf. • Upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni. • Upplýsingar sem lúta að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og sjálfstæði. • Upplýsingar um tvo núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem veitt geta upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda. • Aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir starfið. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Umsækjendur skulu hafa lokið BS/BA háskólagráðu í viðskiptafræði eða öðru sambærilegu háskólanámi sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun í viðskiptafræði eða öðru námi á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur. • Menntun og/eða reynsla við fjármálagreiningar, regluvörslu og/eða störf innan fjármálafyrirtækja, rannsókn fjármuna- og skattalagabrota er kostur. • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi. • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni. • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum. • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg. • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu sem rituðu máli er áskilin. Um verkefni og skipulag héraðssaksóknara er vísað til heimasíðu embættisins; www.hersak.is. Með vísan til 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 29. október 2018 og skal umsókn berast embætti héraðssaksóknara, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Einnig má senda umsókn með tölvupósti á netfangið starf@hersak.is og skal pósturinn merktur „Umsókn um stöðu sérfræðings“. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Árnadóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, eða Sveinn Ingiberg Magnússon, yfirlögregluþjónn, í síma 444 0150. Frekari upplýsingar um störfin Um er að ræða tvö 100% störf, annars vegar yfirlæknis við heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og hins vegar sérfræðings í heimilislækningum við sömu heilsugæslu. Viðkomendur þurfa að geta hafið störf frá 1. febrúar 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef HSU www.hsu.is undir flipanum “lausar stöður”. Umsóknum þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf. Umsóknarfrestur í störfin er til og með 15.11.2018. Nánari upplýsingar veitir: Sigurjón Kristinsson, settur framkvæmdastjóri lækninga HSU, sigurjon.kristinsson@hsu.is Sími: 432-2000. Yfirlæknir og sérfræðingur í heimilislækningum óskast á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum            • Skipulag og stjórnun lækninga við heilsugæslu • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Vaktþjónusta • Leiðandi hlutverk í mótun og framkvæmd teymisvinnu starfsfólks á heilsugæslu • Þátttaka í gæðaverkefnum innan stofnunarinnar s.s. þátttaka í kennslu og starfsþjálfun kandídata og sérnámslækna í heimilislækninum auk fræðslu til samstarfsmanna Hæfniskröfur í bæði störf • Sérfræðiréttindi í heimilislækningum • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Helstu verkefni og ábyrgð sérfræðings í heimilis- lækningum • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Vaktþjónusta • Þátttaka í teymisvinnu og gæða- og nýsköpunarverkefnum innan stofnunarinnar kopavogur.is Kópavogsbær Laus störf hjá Kópavogsbæ Grunnskólar · Aðstoðarskólastjóri í Smáraskóla · Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla · Frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla · Frístundaleiðbeinandi í Smáraskóla · Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla · Kennari á yngsta stig í Snælandsskóla · Matráður starfsfólks í Vatnsendaskóla · Matráður starfsfólks og frístundar í Hörðuvallaskóla · Umsjónarkennari í Vatnsendaskóla · Þroskaþjálfi eða sérkennari í Hörðuvallaskóla Leikskólar · Deildarstjóri í Fífusali · Deildarstjóri í leikskólann Kópahvol · Leikskólakennari eða þroskaþjálfi · Leikskólakennar í Kópastein · Leikskólakennar í Marbakka · Leikskólakennar í Álfatún · Starfsmenn í hlutastarf eftir hádegi · Starfsmaður í sérkennslu í leikskólann Læk Velferðarsvið · Starfsfólk í félagslega heimaþjónustu · Starfsfólk í íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk · Þroskaþjálfi / fagaðili á heimili fatlaðra Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is, þar sem jafnframt má finna fleiri störf og nánari upplýsingar. Sjúkraliði óskast til starfa á Húðlæknastöðin ehf. Um er að ræða 80-100% starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Starfið er fjölbreytt og krefst sjálfstæðra vinnubragða. Leitað er eftir röskum einstaklingi sem getur unnið undir álagi ef svo ber undir. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á agusta@hls.is Nánari upplýsingar veitir Ágústa Ýr Hafsteinsdóttir í netfanginu agusta@hls.is eða í síma 520-4444 Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.