Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 4

Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 10.10., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Akureyri 7 léttskýjað Nuuk 1 léttskýjað Þórshöfn 9 rigning Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 15 heiðskírt Stokkhólmur 14 skýjað Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 21 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 19 heiðskírt Hamborg 20 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 19 heiðskírt Moskva 11 skýjað Algarve 23 skýjað Madríd 19 skýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Róm 23 heiðskírt Aþena 19 heiðskírt Winnipeg 1 alskýjað Montreal 11 súld New York 24 léttskýjað Chicago 21 rigning  11. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:07 18:23 ÍSAFJÖRÐUR 8:17 18:23 SIGLUFJÖRÐUR 7:59 18:06 DJÚPIVOGUR 7:37 17:51 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á föstudag Austan 5-10, skýjað og úrkomulítið, en hægari vindur og bjart norðantil á landinu. Gengur í norðan 10-18 um kvöldið með rigningu um landið austanvert. Hiti 3 til 8 stig. Austan 13-20 m/s og víða rigning, en slydda eða snjókoma til fjalla fram að hádegi. Lægir og dregur úr úrkomu víða á landinu í kvöld. Hiti 4 til 11 stig. Ísfirðingar og nærsveitarmenn fjölmenntu á Hótel Ísafjörð í gær- kvöldi á fyrsta fundinn í röð tíu funda Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra um stöðu sjávar- útvegsins og nýtt frumvarp um veiðigjald. Á myndinni má sjá nokkra þeirra sem sóttu fundinn í gær, þá Guðna Einarsson, Jón Pál Hall- dórsson, Karl Geirmundsson og Smára Karlsson, ásamt Kristjáni Þór. Auk þess að ræða stöðu sjávar- útvegsins ræddu fundarmenn byggðamál á Vestfjörðum. Fundirnir verða öllum opnir, sá næsti verður í Félagsheimilinu í Vesturbyggð í dag klukkan 12 á hádegi og sá þriðji verður í Fé- lagsheimilinu Röstinni á Hellis- sandi klukkan 19:30 í kvöld. Næstu fundir verða í Reykjavík, Vestmannaeyjum, á Akureyri, Þórshöfn, Eskifirði og Höfn og sá síðasti verður haldinn í Salthúsinu í Grindavík þriðjudaginn 23. októ- ber. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heldur tíu fundi um veiðigjald og sjávarútvegsmál víða um landið Sjávarút- vegur rædd- ur á Ísafirði Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Hallur Símonarson, innri endur- skoðandi Reykjavíkurborgar, telur augljóst að skoða þurfi innkaupa- þáttinn sérstaklega í tengslum við yfir 400 milljón króna framkvæmd- ir borgarinnar á umdeildum bragga í Nauthólsvík. Gagnrýnt hefur ver- ið að framkvæmdin fór langt fram úr kostnaðaráætlun. „Þegar þetta er komið í þessar fjárhæðir hlýtur það að vera sú spurning sem allir eru að velta fyrir sér,“ segir Hallur spurður hvort ekki þurfi að skoða innkaupareglur í þessu samhengi. Erlendur Gíslason, lögmaður á Logos og sérfræðingur í opinberum innkaupum, segir að sveitarfélög- um sé skylt að bjóða hluti út ef áætlaður kostnaður er yfir ákveðnum mörkum. „Það er ein- mitt útboð og samkeppnin sem felst í því sem er til þess fallin að halda verði niðri eða að sem hagkvæmust lausn sé valin eftir því hverjar for- sendurnar eru. Í svona verki væri það væntanlega bara verð.“ Hann segir að ekki sé hægt að sundurliða verk í marga þætti og komast hjá útboði. „Það er eitt af því sem má ekki ef lög um opinber innkaup eru skoðuð; það má ekki brjóta niður innkaup til þess að komast hjá útboðsskyldu.“ Dregur verðfyrirspurnir í efa Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að ekkert bendi til þess að farið hafi verið í útboð. Á síð- asta borgarstjórnarfundi spurði Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Dag B. Eggerts- son borgarstjóra hvort farið hefði ver- ið í útboð. Hann svaraði því neitandi en sagði að verðfyrirspurnir hefðu verið viðhafðar en ekki útboð. „Verð- fyrirspurnir eru innan ramma lag- anna en ég er ekki viss um að þessar verðfyrirspurnir hafi farið fram,“ seg- ir Vigdís. „Það eigum við eftir að fá að sjá vegna þess að þegar við fáum svar um hverjir unnu verkin, með kennitöl- um og dagsetningum, þá gefur borgin rangar upplýsingar upp og sundurlið- ar ekki efniskaup og vinnu hjá þeim aðila sem er með hæsta reikninginn.“ „Allar reglur þverbrotnar“ Stærsti reikningurinn í tengslum við braggann var frá Smiðnum þínum lfs. og var upp á 105,5 milljónir króna. Segir Vigdís að smiðurinn hafi keypt efni eftir hendinni með heimild frá fyrrverandi starfsmanni borgarinnar. „Þessi samskipti fóru fram í tölvu- pósti og svo fór reikningurinn bara niður í ráðhús og hann stimplaður þar og greiddur út. Þannig að það eru all- ar reglur þverbrotnar í þessu máli,“ segir Vigdís. Tillögu Vigdísar um óháða rannsókn á bragganum var breytt og vísað til innri endurskoð- anda Reykjavíkurborgar. Aðspurður telur Hallur sig vel hæfan til að sjá um rannsókn á bragganum. Vigdís telur þó enn rétt að óháð rannsókn fari fram. „Ég treysti innri endurskoð- anda sem manni og persónu en mér finnst þetta mál vera svo stórt og það eru svo margar spurningar og svo mikill feluleikur að það verði að fá óháðan aðila til að fara í saumana á því.“ Bendir hún á að borgarkerfið sé byggt þannig upp að skrifstofa eigna og atvinnuþróunar, sem sá um fram- kvæmdina, heyri undir borgarstjóra og borgarritara. Þá sitji bæði borgar- lögmaður og innri endurskoðandi fundi borgarráðs. „Borgarlögmaður er ekki enn bú- inn að skila áliti sínu um braggann þótt beðið hafi verið eftir því í ár. Innri endurskoðandi situr borgar- ráðsfundi líka og af hverju hefur hann ekki sýnt frumkvæðisathugun á þessu máli? Það er þetta sem ég er að gagn- rýna: Það virðast allir sitja hringinn í kringum sama borðið og enginn stoppar þessa hringavitleysu.“ Innkaupaþáttur skoðaður sérstaklega Morgunblaðið/Árni Sæberg Óklárað Náðhús braggans hefur kostað yfir 40 m.kr. og virðist óklárað.  Enginn hluti af bragganum í Nauthólsvík fór í útboð  Innri endurskoðandi borgarinnar mun skoða þann þátt sérstaklega  Borgarfulltrúi Miðflokksins telur enn þörf á rannsókn óháðs aðila vegna málsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.