Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Heimsmeistaraeinvígið í skák gæti
verið haldið á Íslandi árið 2022, en
þá verða 50 ár liðin frá einvígi ald-
arinnar milli þeirra Fischers og
Spasskys í Laugardalshöll. Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, bar hugmyndina undir ný-
kjörinn forseta Alþjóðaskák-
sambandsins, Arkady Dvorkovich, á
nýafstöðnu ólympíumóti í skák í
Georgíu. Dvorkovich tók vel í hug-
myndina, sagði tilefnið til að halda
einvígið á Íslandi mjög gott og
hyggst skoða málið.
„Í þessu fælist stórkostlegt tæki-
færi fyrir land og þjóð. Tímapunkt-
urinn er frábær og Harpa hinn full-
komni mótsstaður fyrir heimsmeist-
araeinvígi. Heimsljósið myndi
beinast að Íslandi og einvígið frá
1972 yrði rifjað upp í máli og mynd-
um. Fjöldi blaðamanna myndi koma
til landsins og fjalla um leið um land-
ið okkar. Ég get séð fyrir skák-
sprengingu rétt eins og eftir heims-
meistaraeinvígi aldarinnar árið
1972,“ segir Gunnar.
Sviptivindar í kosningabaráttu
FIDE
Ólympíumótið í skák fór fram í
Batumi í Georgíu á dögunum og lauk
síðustu helgi. Á sama tíma voru
kosningar til forseta Alþjóðaskák-
sambandsins, FIDE, haldnar í Bat-
umi, en þar höfðu skáksambönd
allra landa atkvæðisrétt. Rússinn
Dvorkovich, sem er þekktastur fyrir
að vera fyrrverandi aðstoðarmaður
Pútíns, bar sigur úr býtum gegn hin-
um gríska Georgios Makropoulos.
Hinn gamalreyndi „Makro“ hefur
verið viðloðandi FIDE í um tvo ára-
tugi og má því segja að kjör Dvorko-
vich sé ákall á breytingar. Með kjör-
inu lauk 25 ára valdatíð fráfarandi
forsetans, Kirsans Ilyumzhinovs,
sem hefur lengi verið umdeildur.
Skáksamband Íslands kaus
Dvorkovich en Gunnar segir að al-
menn sátt hafi ríkt um kosningu
hans. „Mín tilfinning fyrir mann-
inum er mjög góð. Hann hefur fram-
tíðarsýn og virðist vera einlægur, ég
trúi því að hann hafi margt fram að
færa fyrir skákina,“ segir Gunnar.
Þrír frambjóðendur, Georgios
Makropoulos, Arkady Dvorkovich
og Nigel Short, héldu ræður áður en
gengið var til kosninga en mörgum
til mikillar undrunar dró Nigel
Short framboð sitt til baka strax eft-
ir framboðsræðu sína.
Gunnar var á staðnum og hlýddi á
ræður frambjóðendanna. „Þetta var
náttúrlega snilldarleikur hjá Nigel
Short. Fyrst kemur Dvorkovich og
heldur stórfenglega ræðu. Síðan
kemur Short, talar mikið um sjálfan
sig í sinni ræðu og í lok ræðunnar
kynnir hann framboð sitt og dregur
það síðan til baka og lýsir yfir stuðn-
ingi við Dvorkovich. Þetta var fyrir-
fram ákveðið – Short talaði illa um
„Makro“ og náði athygli fólks en
Dvorkovich talaði á jákvæðu nót-
unum. Svo í framhaldinu kemur
Makro og heldur frekar slaka ræðu
sem ég held að hafi kostað hann ein-
hver atkvæði,“ segir Gunnar. Kosn-
ingarnar enduðu því með 103 at-
kvæða sigri Dvorkovich gegn 78
atkvæðum Makros.
Gunnar kosinn
varaforseti ECU
Í kjölfarið var Gunnar kosinn
varaforseti skáksambands Evrópu,
en hann segir heiður fyrir Ísland að
fá slíkt tækifæri. „Þá kemst Ísland
nær allri ákvarðanatöku innan ECU,
sem skiptir okkur miklu máli. Ég er
sjálfur áhugasamur um að Ísland
stígi stærri skref í alþjóðlegu móts-
haldi enda höfum við á okkur afar
gott orð fyrir mótshald og Ísland er
vinsæll áfangastaður skákmanna,“
segir Gunnar.
Á ólympíumótinu stóð gengi ís-
lenska landsliðsins í opnum flokki
ekki undir væntingum og lenti liðið í
68. sæti þrátt fyrir að hafa setið í 44.
sæti í styrkleikaröð fyrir mótið.
Samtals töpuðu keppendur 40 skák-
stigum og fengu fjórum vinningum
minna en gert var ráð fyrir. Kvenna-
landsliðinu gekk hins vegar í sam-
ræmi við styrkleika þess, þrátt fyrir
þolraunir Lenku Ptacnikovu, fyrsta-
borðsmanns kvennalandsliðsins,
sem slasaðist á fæti í mótinu og gat
því ekki teflt allar skákirnar. Lenka
er langstigahæst af konunum og því
mikill skellur að hún skyldi hvíla
fjórar umferðir.
„Niðurstaðan er auðvitað ákveðin
vonbrigði. Þó munaði litlu að loka-
viðureignin ynnist og þá hefði loka-
staðan orðið ásættanleg. Það er of
stutt á milli hláturs og gráts í skák-
inni og það verður einnig að gæta
þess að draga miklar ályktanir af úr-
slitum eins móts, ein úrslit geta
hæglega breytt lokaniðurstöðu um
20 til 30 sæti.
Stjórn SÍ og landsliðsnefnd munu
fara yfir niðurstöðuna á komandi
vikum og velta upp öllum steinum –
því auðvitað má ýmislegt bæta.“
Dvorkovich mætir
á Reykjavíkurskákmótið
Þrátt fyrir að ekki hafi allt gengið
fullkomlega að óskum á ólympíu-
mótinu má með sanni segja að Ís-
land sé skákþjóð. Reykjavík-
urskákmótið, sem er haldið árlega í
Hörpu, hefur ávallt verið vel sótt og
er á lista yfir bestu mót heims um
þessar mundir. Sterkir skákmenn
hvaðanæva úr heiminum fjölmenna
á mótið á ári hverju, en eins og áður
sagði er gert ráð fyrir komu nýja
FIDE-forsetans, Dvorkovich, á mót-
ið í apríl. „Við ræddum meðal annars
við Shakhriyar Mamedyarov, þriðja
stærsta skákmann heims, og Par-
ham Maghhsoodloo, heimsmeistara
undir tvítugu – átján ára strák frá
Íran sem segist skoða skák í allt að
18 klukkustundir á dag!“
Skoða að
halda HM-ein-
vígi á Íslandi
Nýkjörinn forseti FIDE tekur vel
í hugmyndina og hyggst skoða málið
Morgunblaðið/Eggert
Skákheimurinn Gunnar Björnsson, forseti SÍ, segir að heimsljósið myndi beinast að Íslandi, verði HM haldið hér.
Einvígið 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar, milli Fischers og Spasskys.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
55 ára heiðursdansleikur
með Gunna Þórðar í broddi fylkingar
Sérstakir gestir:
•Erlingur Björnsson (Elli í Hljómum)
•Elvar Örn Friðriksson
•Alma Rut Kristjánsdóttir
leikur fyrir dansi bæði föstudags-
og laugardagskvöld. á góðri stundu
Bláu augun þín • Fyrsti kossinn • Ertumeð
I don’t care • Þú ein • Sveitapiltsins draumur
Ástarsæla • Ég elska alla • Lífsgleði
Er hann birtist • Við saman
Laugardaginn 13. okt. 2018
HLJÓMAR