Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardals- höllinni um helgina. Sýningin hefst á morgun og stendur fram á sunnu- dag. Það er fyrirtækið Ritsýn sf. sem stendur að sýningunni og fram- kvæmdastjóri hennar er Ólafur M. Jóhannesson. Að sögn Ólafs verður þetta stærsta landbúnaðarsýning sem haldin hefur verið í Höllinni og hafa þegar yfir 100 fyrirtæki pant- að bása bæði á úti- og innisvæði. Seldust öll svæðin upp. Búist er við að gestir verði í það minnsta 20 þúsund. Alla helgina verður stór mat- arsýning þar sem fjölmörg fyr- irtæki kynna hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu. Fólki gefst tækifæri til að smakka réttina. Þá verður umfangsmikil sýning bæði úti og inni á tækjum, tólum og vörum til landbúnaðar. Loks verður fyrirlestradagskrá í anddyri Laugardalshallar á laug- ardag og sunnudag, þar sem fyr- irlesarar verða 18 talsins. Fólk get- ur kynnt sér dagskrána á www.bbl.is. Á fjórða tug starfs- manna mun vinna við sýninguna um helgina á vegum sýningarhald- ara auk allra sem verða við störf á vegum sýnenda. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar hefur undirbúningur að sýningunni staðið yfir um langa hríð. Að sögn hans hefur honum komið þægilega á óvart hversu fjölbreyttur land- búnaður er stundaður á Íslandi. Það séu ekki bara okkar fjölbreyttu og hreinu matvæli sem streyma frá bændum heldur stundi þeir ferða- þjónustu í æ meira mæli og líka skógrækt, orkuframleiðslu og hvers kyns heimilisiðnað og allt verði þetta kynnt á sýningunni. „Þessi sýning á eftir að koma á óvart, “ segir Ólafur. Sýningin verður opin á föstudag klukkan 14.00-19.00, laugardag 10.00-18.00 og sunnudag 10.00- 17.00. Miðaverð er 1.000 krónur og frítt fyrir aldraða, öryrkja, náms- menn og börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Ritsýn hélt stóra sjávarútvegs- sýningu í Laugardalshöll haustið 2016. Fyrirtækið verður með sjáv- arútvegssýningu í september 2019 og þá í allri Laugardalshöllinni. Morgunblaðið/Eggert Allt klárt Ólafur M. Jóhannesson skipuleggur sýninguna Íslenskur landbúnaður 2018 í Laugardalshöll um helgina. Kynna íslensk matvæli á landbúnaðarsýningu  Yfir 100 fyrirtæki á sýningu í Laugardalshöll um helgina Átta tillögur bárust í samkeppni um útfærslu á minningarreit í Nes- kaupstað. Í júlímánuði sl. tilkynnti Síldar- vinnslan að fyrirhugað væri að gera minningarreit á austasta hluta gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar sem eyðilagðist í snjóflóði 20. des- ember 1974. Skyldi reiturinn helg- aður þeim sem farist hefðu í störf- um hjá fyrirtækinu. Tekið var fram að ætlast væri til að gamli gufu- ketillinn sem stendur á grunninum yrði hluti reitsins. Skilafrestur á tillögum var til 1. október og gert er ráð fyrir að störfum dómnefndar ljúki 20. nóv- ember. Veitt verða verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur fyrir vinningstillöguna en þegar sam- keppnin var auglýst var tekið fram að Síldarvinnslan áskildi sér rétt til að hafna öllum tillögum. Eins var tíundað að heimilt væri að nýta fleiri en eina tillögu til frekari út- færslu og skiptist þá verðlaunaféð á milli viðkomandi þátttakenda. Átta tillögur bárust um minningarreit Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytis- stjóri atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins, undirritaði nýlega samning um stjórn fiskveiða utan lög- sögu ríkja og samstarf um fiskirann- sóknir og vöktun fiskistofna í Norður- Íshafi. Þar með lauk meira en tveggja ára ferli samningaviðræðna um gerð þessa mikilvæga samnings. Jóhann Sigurjónsson, sérlegur erindreki mál- efna hafsins í utanríkisráðuneytinu og fyrrverandi forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, leiddi samningaviðræð- urnar af hálfu Íslands. Grunnur með rannsóknum „Með aðild að samningnum mun aðkoma Íslands að ákvarðanatöku og rannsóknasamstarfi á þessu mikil- væga hafsvæði verða tryggð,“ segir í frétt frá atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti. Að samkomulaginu standa tíu aðilar, þ.e. Bandaríkin, Danmörk (fyrir hönd Færeyja og Grænlands), Ísland, Japan, Kanada, Kína, Noreg- ur, Rússland og Suður-Kórea, ásamt Evrópusambandinu. Samningurinn nær til úthafsins og felur í sér að aðilar hans munu skuld- binda sig til að heimila ekki veiðar á samningssvæðinu fyrr en vísinda- rannsóknir hafa lagt grunn að sjálf- bærum fiskveiðum ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast. Einnig eru ákvæði um vís- indasamstarf, fyrirkomulag tilrauna- veiða, vöktun fiskistofna og umhverf- is, upplýsingaskipti, og um ákvarðanatöku varðandi hvort og hvenær skal koma á fót svæðisbund- inni fiskveiðistjórnunarstofnun. Hraðar breytingar Á grundvelli varúðarnálgunar ákváðu aðilarnir hins vegar að stofna til samnings nú til að fyrirbyggja stjórnlausar veiðar á þessu viðkvæma hafsvæði á komandi árum þar sem hraðar breytingar eiga sér nú stað vegna hlýnunar og bráðnunar íss, þ.e. áður en kemur til mikilla veiðihags- muna ríkja og hugsanlegra árekstra. Að þessu leyti er því um að ræða tímamótasamning. Með samningnum er jafnframt lokað síðustu úthafs- veiði„smugunni“ í Norðurhöfum. Í samræmi við ríkjandi hafrétt og út- hafsveiðisamning Sþ er aðgangur að auðlindum á svæðinu háður því að við- komandi ríki gerist aðili að þessum samningi, segir í frétt frá ráðuneyt- inu. Samstarf um rannsóknir og vöktun stofna  Samningur um Norður-Íshafið Í ár eru liðin nákvæmlega 50 ár síðan fyrsta landbúnaðarsýn- ingin var haldin í Laugardals- höll. Sýningin stóð yfir dagana 9. til 18. ágúst 1968, eða í heila 10 daga. Sýningahald af þessari strærðargráðu var nýmæli enda var aðsókn geysimikil. Alls seld- ust 80.209 aðgöngumiðar. Fjölmiðlar fjölluðu að vonum ítarlega um sýninguna. Í for- ystugrein Morgunblaðsins sagði m.a: Landbúnaðarsýningin mun vafalaust verða til þess að auka skilning neytenda í þéttbýlinu á gildi landbúnaðarins fyrir þjóð- ina, en óneitanlega hefur þess gætt, að nokkuð skorti á gagn- kvæman skilning milli bænda annars vegar og neytenda hins vegar. Er þó hvor um sig hinum háður. Gestir voru 80 þúsund VINSÆL SÝNING 1968 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.