Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í fundargerðborgarráðs áþriðjudag voru birt svör við fyrirspurn Vigdís- ar Hauksdóttur borgarfulltrúa sem fela í sér upplýsingar um kostnað við fjórar gatnafram- kvæmdir sem Reykjavíkur- borg hefur ráðist í á undan- förnum árum. Þetta eru allt framkvæmdir sem vakið hafa töluverða athygli, einkum fyr- ir það að megintilgangur þeirra hefur verið að þrengja götur og gera þeim sem velja þann kost að ferðast um á eig- in bílum, sem langflestir borg- arbúar gera, erfiðara fyrir. Þetta byrjaði með þreng- ingum á Hofsvallagötu, þar sem fuglahús voru sett á göt- una af óútskýrðum ástæðum, sömuleiðis eitthvað sem líktist fiskikörum, auk þess sem myndir af reiðhjólum voru málaðar á götuna. Kostnaður við þetta var yfirgengilegur, eins og við flestar fram- kvæmdir borgarinnar á liðn- um árum, eða 25 milljónir króna. Einnig var ráðist í að breyta og í leiðinni að þrengja Borgartúnið, meðal annars með því að fjarlægja útskot fyrir strætisvagna, þannig að nú stöðva þeir alla umferð þegar þeir hleypa fólki inn og út. Þetta hefur aukið á um- ferðarvandann í Borgartúninu og var hann þó nægur fyrir. Kostnaður við þetta var litlar 280 milljónir króna. Borgin ákvað einnig að þrengja Grensásveg og þar var kostn- aður sömuleiðis mikill, eða 200 milljónir króna. Ekki verður séð að nokkur þörf hafi verið fyrir þau útgjöld. Loks var farið í það að þrengja Birkimelinn og þar var, líkt og í Borgartúninu, valin sú leið að öll umferð stöðvaðist þegar strætis- vagnar þyrftu að nema staðar. Þessi aðgerð hefur meðal ann- ars orðið til þess að þeir sem koma úr austri eftir Hring- braut og beygja inn Birkimel- inn hafa lent í því að eiga á hættu að komast ekki yfir Hringbrautina en festast þar með tilheyrandi slysahættu. Þessi aðgerð hefur kostað í það minnsta 55-60 milljónir króna, en endanleg tala liggur ekki fyrir í því tilviki. Samtals er kostnaður borg- arbúa af þessum fram- kvæmdum því um 565 millj- ónir króna. Langstærstur hluti þeirra útgjalda var full- kominn óþarfi og raunar til mikillar óþurftar. Fyrir borg sem er með skatta í leyfilegu hámarki og getur þrátt fyrir það ekki sinnt ýmissi grunn- þjónustu, verður þetta að telj- ast óskiljanleg forgangsröðun. Fjórar óþarfar fram- kvæmdir borgar- innar hafa kostað 565.000.000 króna } Óskiljanleg forgangsröðun Ný skýrslaloftslags- nefndar Samein- uðu þjóðanna send- ir svipuð skilaboð og fyrri skýrslur, þ.e. að draga þurfi úr útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda og leggja áherslu á endurnýjanlega orkugjafa. Ís- land stendur mjög vel að þessu leyti og ætti að vera fyrirmynd annarra ríkja. Væru öll ríki heims með sambærilega sam- setningu orkugjafa og Ísland væri óþarfi að hafa áhyggjur af útblæstri af mannavöldum. Það er til dæmis sláandi að horfa á orkugjafana hér á landi, að langstærstum hluta nýting vatnsfalla og há- hitasvæða, og í Þýskalandi, sem hefur sig mjög í frammi í umræðu um loftslagsmál. Þjóð- verjar, og þar með Evrópusam- bandið, gera miklar kröfur til annarra í þessum efnum, en staðreyndin er sú að í Þýska- landi hefur útblástur gróð- urhúsalofttegunda farið vax- andi á allra síðustu árum og lítið þok- ast niður á við þó að horft sé áratug aftur í tímann. Eini árangur Þýska- lands sem heitið getur stafar af sameiningu þýsku ríkjanna og þeirri stað- reynd að óhagkvæmum verk- smiðjum var lokað í austur- hluta landsins eftir fall múrsins. Að öðru leyti er „ár- angurinn“ aðallega í áætlunum sem lítið útlit er fyrir að gangi eftir. Og Þjóðverjar eru enn að undirbúa nýjar kolanámur og fá um 40% orkunnar frá kolum. Íslendingar geta verið stoltir af því hvernig þeir framleiða sína orku og ef markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda á heimsvísu ættu Íslendingar að auka orkufram- leiðslu þrátt fyrir viðmið sem sett voru fyrir nokkrum ára- tugum og henta sameinuðu Þýskalandi en ekki þeim sem þegar höfðu lagt sitt af mörk- um í þessum efnum. Þýskaland gerir kröfur til annarra en framleiðir kol og brennir af kappi} Loftslagsmál Á dögunum birtist umfjöllun um að bakteríur hefðu ræktast í 111 sýnum af innfluttu græn- meti og í 14 þeirra fundust bakteríur sem eru ónæmar fyr- ir sýklalyfjum. Engar slíkar fjölónæmar bakteríur fundust í íslensku sýnunum sem tekin voru. Það er því engin spurning að hlúa þarf vel að innlendri matvælafram- leiðslu, það getur beinlínis verið skaðlegt heilsu fólks að gera það ekki. Það er nefni- lega þannig að svokallaðar fjölónæmar bakteríur geta flutt sig yfir á aðrar teg- undir baktería sem finnast í okkur mann- fólkinu og það getur haft afdrifaríkar af- leiðingar ef þær berast á milli manna og sérstaklega ef fólk er veikt fyrir. Alþjóða- heilbrigðisstofnunin hefur ályktað um að grípa þurfi til tafarlausra aðgerða ef ekki á illa að fara. Hér á landi búum við Íslendingar að því að eiga okkar eigin landbúnaðarframleiðslu sem okkur ber að standa vörð um og styðja með öllum tiltækum ráðum. Það má ekki gleyma því að stuðningur við íslenskan landbúnað er ekki síður stuðningur við neytendur sem þannig er tryggður aðgangur að heilnæmum matvælum. Allar nágrannaþjóðir okkar og flestar þjóðir heims styðja sinn landbúnað og vernda. Ís- lendingar verða því að standa vörð um eig- in framleiðslu með sama hætti eigi hún að standast samkeppni. Auk þess skilar stuðningur við landbúnaðinn sér margfalt til baka í verðmæta- og atvinnusköpun bæði í dreifbýli og þéttbýli og er um leið skynsamlegasta leiðin til að halda landinu öllu í byggð en hlutverk landbúnaðarins í byggðamálum er stórlega vanmetið. Því er það mikilvægast ef hugsa á um heildarhagsmuni landsins alls að leiðrétta kjör bænda tafarlaust, innlend landbún- aðar- og matvælaframleiðsla eru meðal grunnstoða samfélagsins sem ber að tryggja til framtíðar. Ef ekki er hugað að því verður hvorki fæðuöryggi þjóðarinnar né matvælaöryggi tryggt því er það furðu- leg tilhögun að sameina skrifstofu matvæla og landbúnaðar undir skrifstofu alþjóða- mála. Nær hefði verið að styrkja skrifstofu matvæla og landbúnaðar og auka þannig vægi íslensks land- búnaðar innan ráðuneytisins í stað þess að koma skrifstofunni fyrir, að virðist, í skúffu á skrifstofu al- þjóðamála. Það þarf sem aldrei fyrr að hugsa um hreinleika og heilnæmi og íslenskur landbúnaður hef- ur allt sem þarf. annakolbrun@althingi.is Anna Kol- brún Árna- dóttir Pistill Íslenskur landbúnaður Höfundur er þingmaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Skiptar skoðanir eru innanhagsmunasamtaka at-vinnulífsins um Þjóðar-sjóðinn sem ríkisstjórnin áformar að stofna með lagasetn- ingu í vetur. Hugmyndin er kynnt á samráðsgátt stjórnvalda á net- inu. Þar kemur fram að sjóðnum er ætlað að mæta „hugsanlegum fátíðum efnahagslegum skakkaföll- um s.s. vegna vistkerfisbrests eða náttúruhamfara,“ eins og það er orðað. Sjóðnum verður sett sér- stök stjórn sem hefur yfirumsjón með rekstri og fjárfestingum hans á erlendum fjármálamörkuðum. Framlög ríkissjóðs til sjóðsins eiga að verða jafnhá nýjum tekjum frá orkuvinnslufyr- irtækjum í eigu ríkisins sem horf- ur eru á að falli til á komandi ár- um. Verði ríkissjóður fyrir verulegum fjárhagslegum skaða af völdum ófyrirséðs áfalls sem þjóð- arbúið hefur orðið fyrir verði heimilt með samþykki Alþingis að veita fé úr Þjóðarsjóði til rík- issjóðs, sem nemi allt að helmingi eigna sjóðsins á hverjum tíma. Fram kemur í kynningunni á samráðsgáttinni að við undirbún- ing málsins hafi verið litið til þess að víða eru starfræktir svokallaðir þjóðarauðssjóðir (e. Sovereign Wealth Funds). Aðstæður hér á landi, m.a. öflugt lífeyriskerfi, gefi hins vegar ekki tilefni til að koma á fót sérstökum stöðugleika- eða sveiflujöfnunarsjóði og ekki heldur til þess að byggja upp sérstakan sjóð til þess að standa undir líf- eyrisgreiðslum í framtíðinni, líkt og ýmsar þjóðir hafa séð sig knún- ar til að gera. „Í venjulegu efna- hagslegu árferði og í gegnum venjulegar hagsveiflur á íslenskur þjóðarbúskapur ekki að verða fyr- ir mótbyr sem ekki verður ráðið við með hefðbundnum hagstjórn- arviðbrögðum og tækjum, þ.m.t. með áhrifum af svonefndum sjálf- virkum sveiflujöfnurum ríkisfjár- mála. Afkoman batnar í góðæri og versnar þegar miður árar,“ segir í kynningunni. Um hinn áformaða Þjóðarsjóð segir: „Fyrirhugað er að Þjóðar- sjóður fái framlög úr ríkissjóði sem svari til tekna af arðgreiðsl- unum frá orkuvinnslufyrirtækj- unum og að hann fjárfesti þá fjár- muni einvörðungu í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfest- ingarstefnu sem stjórn sjóðsins setur með samþykki ráðherra.“ Þá segir: „Þjóðarsjóðurinn verður eign íslenska ríkisins og verður færður á efnahagsreikning rík- issjóðs, enda væri hann í rauninni tiltekið fyrirkomulag á stýringu og ávöxtun á afmörkuðum hluta af peningalegum eignum ríkissjóðs. Fjárhagsleg staða ríkisins batnar því sem stærð sjóðsins nemur. Með stofnun sjóðsins mun sjálf- bærni og stöðugleiki opinberra fjármála styrkjast, traust aukast á íslenskt hagkerfi og þjóðarbúskap og þar með eflist lánshæfi rík- issjóðs og fleiri innlendra aðila sem tengjast því.“ Hemja þarf útgjaldavöxt Samtök atvinnulífsins leggjast gegn stofnun sjóðsins. Þörf sé á að hemja vöxt ríkisútgjalda sem eigi að hækka um ríflega milljarð króna í viku hverri á næsta ári frá því sem er á þessu ári. Umfangs- miklar opinberar fjárfestingar séu fyrirhugaðar á næstu árum. Sam- tökin telja að tekjum af arð- greiðslum eða auðlindagjöldum af orkuvinnslufyrirtækjum verði best varið með því að lækka skatta og efla þannig til framtíðar hagsæld allra Íslendinga. Viðskiptaráð seg- ir aftur á móti í umsögn sinni að hugmyndin um Þjóðarsjóð og upp- legg hans „endurspegli alltof sjaldgæfa fyrirhyggju og lang- tímahugsun í stjórnmálum“ og því beri að fagna. Efast megi þó um hvort stofnun slíks sjóðs sé rétt forgangsröðun þegar aðrir inn- lendir aðilar sæki í auknum mæli erlendis og ófjármagnaðar lífeyris- skuldbindingar séu nærri tvöfald- ar á við fyrirhugaðan sjóð. Ráðið telur að raunveruleg hætta á að lánalínur ríkissjóðs verði lokaðar við alvarleg áföll ætti að vera skil- yrði fyrir stofnun Þjóðarsjóðs. Umsögn Samtaka iðnaðarins er nokkuð jákvæð. Þar segir að þjóð- arsjóðir geti gegnt mikilvægu hlutverki við hagstjórn og geti haft áhrif á opinber fjármál, pen- ingastefnu og gengi gjaldmiðils. „Ef rétt er á spilum haldið getur slíkur sjóður og stýring hans haft jákvæð áhrif á hagkerfi ríkja og dregið úr sveiflum sem ella hefðu orðið. Þannig geta þjóðarsjóðir bætt samkeppnisstöðu ríkja.“ Samband íslenskra sveitarfélaga hefur einnig birt umsögn um áformin. Þau segja ekki knýjandi að leggja frumvarpið fram á þingi í vetur. Miklu skipti að skapa breiða sátt um málið, þannig að við ríkisstjórnarskipti verði ekki stefnubreyting um hlutverk sjóðs- ins. Jafnframt sé eðlilegt að fyrir liggi skýrar forsendur um framtíð- artekjur sjóðsins og tímabundnar heimildir til ráðstöfunar á hluta af tekjum hans til verkefna í al- mannaþágu. Ólík viðhorf atvinnu- lífs til Þjóðarsjóðs Morgunblaðið/RAX Þjóðarsjóður Tekjur sjóðins munu koma frá orkuvinnslufyrirtækjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.