Morgunblaðið - 11.10.2018, Page 58

Morgunblaðið - 11.10.2018, Page 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 ✝ Berglind Guð-mundsdóttir fæddist í Reykja- vík 30. janúar 1969. Hún lést á heimili sínu á Álftanesi 28. sept- ember 2018. Foreldrar henn- ar eru Guðmundur Vilhjálmsson, f. 20.12. 1946, raf- eindavirki, og Guðbjörg Gunnarsdóttir. f. 4.5. 1948, hjúkrunarfræðingur. Eftirlifandi sambýlismaður Berglindar er Geir Magnússon. fræðingur, f. 14.4. 1988. Börn þeirra eru Andrea Rut, f. 13.12. 2008, og Lovísa María, f. 1.8. 2014. 2) Freyja Björk, leið- beinandi á leikskólanum Ökr- um, f. 27.7. 1994. Systur Berglindar eru: Bergþóra, f. 19.11. 1966. Börn hennar eru Guðmundur Berg, f. 1985, Guðbjörg Berg, f. 1987, Jóhannes Berg, f. 1990, Brynjar Berg, f. 1997, og Birta Kristrún Berg, f. 1998, og Dagbjört Rún félagsráðgjafi. Dætur hennar eru Sara Rún, f. 5. september 2006, og Elísa Rún, f. 27. september 2010. Berglind starfaði við bók- hald hjá Gunnars ehf. en lengst af starfaði hún sem bók- ari. Útför Berglindar fer fram frá Bessastaðakirkju í dag, 11. október 2018, klukkan 13. f. 8.11. 1968, sjó- maður. Tengdafor- eldrar Berglindar eru Magnús V. Stefánsson, f. 16.12. 1930, d. 18.5. 1989, og Gróa Guðbjörns- dóttir, f. 31.10. 1933. Dætur Berglind- ar og Geirs eru: 1) Linda María, f. 25.7. 1988, nemi í þroska- þjálfafræðum við HÍ, sambýlis- maður hennar er Guðmundur Þórir Sigurðsson tækni- Elsku mamma. Ég man hvað mér leið und- arlega þennan dag sem þú fórst frá okkur, þessum degi mun ég aldrei gleyma. Að missa mömmu sína svona snemma er eitthvað sem enginn óskar sér og finnst mér lífið svo ósann- gjarnt akkúrat núna, af hverju þú? Þú varst svo góð mamma og amma, alltaf til í að hjálpa öllum í fjölskyldunni, þú varst mín hægri hönd og ég veit hreinlega ekki hvernig ég á að lifa án þín. Við töluðumst við nánast daglega og alltaf hafðir þú svo mikinn áhuga á öllu í mínu lífi og mun lífið verða svo tómlegt án þín, alltaf hafði ég svo mikla þörf fyrir þig, elsku mamma. Það er erfitt að hugsa til þess að þú verðir ekki með okkur í framtíðinni. Ég leitaði alltaf til þín þegar mig vantaði svör við hinu og þessu, þú viss- ir alltaf svarið eða nálgaðist upplýsingarnar einn, tveir og tíu. Þú áttir tvær ömmustelpur, Andreu og Lovísu, það sást langar leiðir hvað þú varst stolt af þeim og er ég þakklát fyrir tímann sem við fengum með þér, að sjá þig verða amma í fyrsta skipti gaf mér svo mikið, það var svo fallegt. Elsku mamma, mig langar að þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og fjölskylduna okkar, ég mun halda áfram fyr- ir þig og gera þig stolta, ég veit að þú vakir yfir okkur. Elska þig. Þín dóttir, Linda María. Móðir mín var svo skilnings- rík og umhyggjusöm. Hún var alltaf dugleg að hrósa mér og ég gat alltaf treyst á hana til að láta mér líða vel. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, hún var skjól mitt og minn verndari. Ég hafði alltaf svo gaman af því að heyra hana hlæja og sjá hana brosa. Hún var svo góð við alla í kringum sig og vildi að öllum liði vel. Mamma kenndi okkur systrum að fjölskyldan er það sem skiptir öllu máli, hún sá um okkur öll og var miðpunkt- urinn í okkar fjölskyldu. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir tím- ann okkar saman og ég geymi minningu hennar í hjarta mínu. Elsku móðir mín kær, ætíð varst þú mér nær, ég sakna þín, góða mamma mín. Já, mild var þín hönd er um vanga þú straukst, ef eitthvað mér bjátaði á. Við minningu um þig geymum og aldrei við gleymum, hve trygg varst þú okkur og góð. Við kveðjum þig, mamma, og geymum í ramma í hjarta okkar minningu um þig. (Gylfi V. Óskarsson.) Þín dóttir, Freyja Björk. Elsku systir. Ég trúi því varla að ég sé að skrifa hér minningarorð um þig. Síðustu dagar hafa verið óraunverulegir, eftir sitjum við öll hálfdofin og sorgmædd. Þú varst mér alltaf meira en bara stóra systir mín enda ólst þú mig að hluta til upp og varst mér alltaf svo góð. Ég sá svo um að passa stelpurnar þínar þegar þær fæddust og eru þær mér svo dýrmætar. Ég mun auðvitað passa vel upp á þær áfram fyrir þig og ömmustelp- urnar þínar, þú getur treyst því. Við vorum ekki alltaf sam- mála um alla hluti, en eitt áhugamál áttum við sameigin- legt og það voru íþróttir. Þú komst mér á bragðið með það og eru minningarnar ótalmarg- ar tengdar hinum ýmsu lands- leikjum, hvort sem um var að ræða handbolta eða fótbolta. Æsingurinn var þó alltaf tölu- vert meiri þegar handboltaleik- ir voru í gangi, þú verður vænt- anlega glöð að heyra það að Elísa Rún er byrjuð í hand- bolta. Þú komst mér í fótbolt- ann, eina sem kom til greina var auðvitað að ég færi í Hauk- ana. Þegar stelpurnar mínar fóru svo í FH var það ákveðinn skellur, enda þú búin að ala móðurina upp í að vera Hauka- manneskja. Ég veit þó að þú gladdist yfir því þegar Sara Rún skartaði Haukabúningnum þegar hún fór að æfa körfu- bolta líka. Minningarnar eru svo ótalmargar, elsku Berglind, t.d utanlandsferðirnar þar sem litla örverpið ég fékk að fylgja með. Fyrst og fremst varstu alltaf styðjandi í öllu því sem ég og stelpurnar mínar tókum okkur fyrir hendur. Ég alltaf á hraða ljóssins gegnum lífið, þú meira róleg og yfirveguð. Takk, elsku systir, fyrir sam- fylgdina, ég hugsa hlýlega til þín og þakka fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég sakna þín og það verður erfitt að að- lagast þeim veruleika að þú verðir ekki lengur til staðar. Ást og kærleikur. Þín litla systir, Dagbjört Rún. Elsku Berglind. Þú varst mér afar hjartfólgin og ég elska þig mjög. Þú varst í raun ein af mínum uppalendum – ein af mömmum mínum í rauninni. Þú tókst okkur öllum svo vel, við vorum svo velkomin í ykkar daglega líf, þitt, Lindu, Freyju og Geirs – einn af þeim sem ég hef alltaf haldið mikið upp á, enda ekki skrýtið, þið tvö gerðuð líf mitt aðeins bjartara á mínum yngri árum. Þið hafið alltaf verið svo fal- legar vinkonur þið amma frá því ég man eftir mér. Hjarta mitt grætur fyrir hana og afa líka og ykkur öll. Ég kveð þig með svo miklum trega, svo mikilli sorg og ekki síst þakk- læti í hjarta mínu fyrir að hafa bæði fengið að hafa þig í lífi mínu frá fæðingu og fyrir alla samúðina og umhyggjuna í minn garð og systkina minna. Alltaf varst þú til staðar fyrir mig, Berglind, og ég held að ég hafi aldrei þakkað þér fyrir. Þú varst okkur öllum góð frænka. Svo ég nefni eina minningu um þig, elsku Berglind, þá kemur upp í hugann kjúklinga- kvöldið á fimmtudögum og óskabeinið. Ég reyni ennþá að líkja eftir bragðinu, minningin er bara svo góð. Við vitum öll að það var örugglega bara sea- son all en þú varst einn sá besti kokkur og bakari sem ég veit um, alltaf gat ég leitað til þín með allt því tengt. Ég veit með vissu að þín verður mikið saknað af öllum því þú varst mjög elskuð. Blessuð sé minning þín eng- ill. Þín frænka, Guðbjörg Berg. Við skulum svífa um með englum þeim, sem ávallt láta bjartar sálir kætast. Þeir munu okkur færa fagran heim, í friði þar sem allir draumar rætast. (Kristján Hreinsson) Fallegt bros, hæglát framkoma, dugnaðarforkur, greiðvikin, nægjusöm, hrein og bein. Svona minnumst við Beggu eins og hún var ávallt kölluð. Það er ákaflega sárt að kveðja konu eins og Beggu á besta aldri. Hugur okkar er hjá fjöl- skyldu hennar, sem hún elskaði svo heitt og var alltaf tilbúin að fórna öllu fyrir. Minning um Beggu lifir með okkur, björt og falleg, og við þökkum henni samfylgdina og hlýjuna. Elsku Linda mín, Þórir, Geir, Freyja og ömmustelpurn- ar okkar Andrea og Lovísa, megi Guð og góðar vættir hjálpa ykkur að vinna úr sorg- inni. Minning um yndislega eig- inkonu, mömmu, ömmu og vin- konu mun lifa um ókomin ár. Blessuð sé minning hennar. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra, veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sigríður Bernadetta Lorange og Hlöðver Helgi Gunnarsson. Berglind Guðmundsdóttir Hrikalega finnst mér erfitt að vera svona langt að heiman á svona erfiðum tímum. Elskuleg amma mín komin á annan og betri stað. Ég á ekki margar minningar um hana þegar hún var heilbrigð og í fullu fjöri en man þó að hún var alltaf svo glöð og brosandi. Hún hafði svo gaman af að heyra frá því hvað við værum að gera og var sérstaklega áhugasöm ef við höfðum einhverjar vandræðaleg- ar og fyndnar sögur til að segja henni. Síðan ég fékk fréttirnar að hún væri farin þá er ég búin að vera að söngla „Somewhere over the rainbow“ endalaust í hausnum mínum vegna þess að hún söng það alltaf aftur og aftur eftir að hún veiktist og ég heyri röddina hennar á meðan ég syng það. Hún er reyndar líka eina mál- lausa manneskjan sem ég þekki sem hefur skráð sig í kór, mér hefur alltaf þótt það svo fyndið. Sérstaklega þegar hún náði að útskýra það að kórstjórinn væri svo myndarlegur. Elsku amma mín. Ég vona að þér líði betur núna, einhvers staðar í sumarlandinu þar sem þú getur gengið, hlaupið, talað og verið skemmtlegi stríðnispúkinn sem þú varst alltaf aftur. Ég hef oft og mörgum sinnum skemmt vinum mínum með sög- um sem ég hef heyrt um þig, það sem þú hefur sagt og gert og það mun ég aldrei hætta að gera. Í sögunum og í hjarta okkar allra lifir þú að eilífu. Ég mun sakna þín alltaf, elsku besta amma mín. Þín Kolbrún. Ég var ekki gamall þegar ég áttaði mig á því að allt var heldur flóknara í fjölskyldu pabba en hjá mömmu. Pabbi átti sex hálfsystkini, sum þekkti ég en önnur lítið. Ég man eftir því að pabbi talaði stundum um Kollu hálfsystur sína sem bjó í Reykjavík og vann á Hressingarskálanum. Þau pabbi voru sammæðra, en Kolla var alin upp á Ánabrekku á Mýr- Kolbrún Jóhannesdóttir ✝ Helga FríðaKolbrún Jó- hannesdóttir fædd- ist 28. febrúar 1940. Hún lést 28. september 2018. Útför Kolbrúnar fór fram 9. október 2018. um hjá Jóhannesi föður sínum og fjöl- skyldu hans. Pabbi alinn upp á Sauðárkróki hjá móðurforeldrum sínum, en stundum hittust hann og Kolla þegar þau voru bæði í heim- sókn hjá móður sinni, henni Laugu ömmu minni. Sennilega var ég orðinn átta eða níu ára gamall þegar ég hitti Kollu frænku í fyrsta skipti og hún kom eins og stormsveipur á Krókinn. Pabbi hafði tekið við rekstri Ábæjar, bensínsölu og veitinga- staðar á Sauðárkróki. Hann ætlaði að taka þetta með stæl, setja upp eldhús á staðnum og selja Króksurum og ferðafólki grillaða hamborgara, samlokur og franskar. Auðvitað var enginn betri en Kolla til að kenna starfs- fólki réttu handtökin við elda- mennskuna. Ég man ennþá þegar pabbi sagði frá því að Kolla myndi koma á Krókinn og vera í viku við að kenna réttu handtökin og hún hefði tilkynnt honum að hún tæki punglausan kokk með sér. Ég man að maður velti fyrir sér í hvaða hremmingum þessi kokkur hefði lent, ekki síst vegna þess að Kolla og kokkurinn áttu að gista heima. Á þessu var auðvitað einföld skýring. Kokkurinn var kona, en orðbragðið lýsti Kollu – aldrei lognmolla, hvorki í orði né á borði. Kolla var einstaklega dugleg, ósérhlífin og framtakssöm. Hún lét ekkert stoppa sig, enda lét hún til sín taka í veitingarekstri. Fyrst stofnaði hún veitingastað- inn Torfuna ásamt fleirum og síð- an Lækjarbrekku sem hún rak í um áratug eða svo. Rúmlega fimmtug varð Kolla fyrir því að fá slæmt heilablóðfall og eftir það tók lífið aðra stefnu. Samskipti pabba og Kollu voru alla tíð góð og að mörgu leyti voru þau systkin lík. Þegar þau hittust var líf og fjör og ýmislegt látið fjúka. Þeim þótti vænt hvoru um annað og þó svo að samskipti þeirra hefðu verið minni en systkina alla jafna þá kom það ekki að sök. Fyrir hönd pabba, okkar bræðra og fjölskyldu okkar send- um við börnum Kollu, þeim Lindu og Gumma og fjölskyldum þeirra, samúðarkveðjur. Páll Snævar Brynjarsson. ✝ GuðmundurArnar Her- mannsson fæddist á Akureyri 21. maí 1962. Hann lést á heimili sínu 28. september 2018. Foreldrar hans eru hjónin Her- mann Guðmunds- son útgerðarmaður frá Árskógssandi, f. 22. apríl 1940, og Margrét Ágústa Arnþórsdóttir úr Glerárþorpi, f. 17. ágúst 1938. Systkini hans eru Agnes Eyfjörð, Arnþór Elvar, Heimir og Jónína Hafdís. Árið 1984 stofnaði Guðmund- ur heimili á Árskógssandi Blær, f. 15. október 1998, og Hafrún Mist, f. 13. október 2002. Sín fyrstu ár bjó Guðmundur í Sandgerði, Akureyri. Á þriðja aldursári fluttist hann ásamt foreldrum sínum í Pálmalund á Árskógssandi þar sem hann bjó öll sín æskuár. Guðmundur byrjaði til sjós sem háseti árið 1976 á sínu fjórtánda aldursári. Eftir grunnskólapróf lá leiðin í Stýrimannaskólann í Vest- mannaeyjum og öðlaðist hann þaðan skipstjórnarréttindi af 2. stigi árið 1982. Að námi loknu starfaði hann sem skipstjóri og stýrimaður á Arnþóri EA 16 og Sæþóri EA 101 sem gerðir voru út af G. Ben Árskógssandi. Árið 2001 stofnaði hann útgerð ásamt föður sínum og bræðr- um. Þar vann hann ýmis störf bæði á sjó og í landi allt til loka. Útförin fer fram í Stærra-Ár- skógskirkju í dag, 11. október 2018, klukkan 14. ásamt eiginkonu sinni, Önnu Guð- rúnu Snorradóttur frá Krossum, Ár- skógsströnd, f. 4. desember 1965. Foreldrar hennar eru hjónin Snorri Eldjárn Kristjáns- son, bóndi og hreppstjóri frá Hellu, f. 7. janúar 1917, d. 23. ágúst 1987, og Anna Soffía Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, bóndi frá Brattavöllum, f. 5. febrúar 1934. Börn þeirra eru Sigurlaug Dröfn f. 25. maí 1985, Her- mann, f. 8. maí 1988, Hjörvar Elsku bróðir. Nú hefur þú kvatt okkur alltof snemma eftir erfið veikindi sem þú þurftir því miður að lúta í lægra haldi fyrir. Þú varst næstelstur í okkar systkinahópi en bara tvö ár voru á milli okkar og vorum við því í miklum samskiptum alla tíð. Íþróttir áttu hug okkar allan og fylgdumst við að þar, minnist ég þess hvað þú hafðir mikið keppnisskap og fórst alltaf af stað með það að markmiði að vinna. Við tókum líka báðir snemma þá ákvörðun að feta í fótspor pabba og gerast sjómenn, drifum okkur hvor í sinn stýrimanna- skólann og útskrifuðumst úr skipstjórnarnámi sama ár eða 1982. Ég guttinn var þá nýkominn með bílpróf og var farinn að huga að kaupum á bíl en þú þegar bú- inn að festa kaup á flottum Volvo og til marks um góðmennsku þína, þá býður þú mér afnot af honum sem mér þótti mjög vænt um og sýnir hve fallega þú hugs- aðir til litla bróður. Samskipti okkar hafa alla tíð verið mikil. Við stunduðum sjó- mennsku saman nánast óslitið frá fermingu, stofnuðum okkar eigin útgerð ásamt litla bróður og pabba, við vorum einnig svo lánsamir að búa hvor á móti öðr- um og samgangur því mikill á milli okkar og fjölskyldna okkar. Þú varst alltaf mikið snyrti- menni og vildir hafa fínt í kring- um þig, við vorum því oft sam- stiga að bardúsa í görðunum okkar þegar tími gafst til og köll- uðumst við gjarnan á yfir götuna svona til að athuga hvernig gengi eða til að gera góðlátlegt grín hvor að öðrum. Ég mun sakna þess mikið að heyra ekki lengur köllin frá þér yfir til okkar og heyra þig ekki lengur kalla á Gunnu þína til að fá álit á hinu og þessu eða bara til að spjalla. Þú varst líka mikill fuglaáhuga- maður og var krían í miklu uppá- haldi hjá þér. Þú fylgdist vel með komu farfuglanna og spurðir okk- ur gjarnan hvort við hefðum séð hina og þessa fuglategundina þann morguninn. Eftir að þú greindist með þennan sjúkdóm þá þurftir þú að fara í land en komst þó einn og einn túr þegar heilsan leyfði en varst alltaf mættur á kranann í löndun. Þú hringdir daglega um borð til að taka stöðuna á aflabrögðum, veðri og hvernig hefði gengið og sama hvernig gangurinn var hjá okkur þá sagðir þú alltaf: þetta er bara fínt. Þú varst heldur ekki fyrir að gefast upp og ætlaðir svo sann- arlega að sigrast á þessum veik- indum. Lýsir það hugarfari þínu svo vel þegar við bræður sóttum end- urmenntun í Slysavarnaskólanum fyrir rúmum mánuði, heilsunni farið að hraka en þú ákveðinn í að endurnýja þín réttindi til að vera klár um borð þegar þar að kæmi. Elsku bróðir. Við yljum okkur við góðar minningar sem munu alltaf lifa í hjörtum okkar, minn- umst allra samverustundanna með fjölskyldum okkar, bústaða- ferðanna, ferðanna til útlanda en við vorum búnir að plana aðventu- ferð eitthvað út í heim með kon- unum okkar, sem þú varst svo spenntur fyrir. Við þökkum þér svo mikið fyrir samfylgdina gegnum öll árin og munum alltaf vera til staðar fyrir elsku Gunnu þína, Sigurlaugu, Hermann, Hjörvar og Hafrúnu sem voru þér allt. Arnþór, Erla og Aníta Rut. Guðmundur Arnar Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.