Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 67
DÆGRADVÖL 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum skjóta gamlir draugar upp kollinum og hafa áhrif á líf manns. Vertu já- kvæður og brostu framan í heiminn sem mun þá brosa aftur til þín. 20. apríl - 20. maí  Naut Samtöl við vini og hópa munu ganga vel í dag. Þú þekkir marga klára, en ekki svo klára að þú ættir að efast um eigin dómgreind. Tak- mörk þín og væntingar eru á hreinu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Kannski er kominn tími til að sýna leiðtogahæfileikana og taka við taumunum í vinnunni. Hafðu allt þitt á hreinu og reyndu að þrauka daginn ef þú mætir mótstöðu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir fundið til andúðar gagnvart samstarfsmanni í dag. Reyndu að miðla mál- um á fordómalausan hátt og vertu á verði gagnvart þeim sem ala á illu umtali um aðra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að leysa vandamál í vinnunni sem krefst mikillar einbeitingar og yfirsýnar. Gættu þess að ofmetnast ekki þegar allir vilja hrósa þér fyrir árangur þinn í starfi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er oft tímafrekt að skoða allar hlið- ar mála, en engu að síður nauðsynlegt til þess að geta tekið réttar ákvarðanir. Hlýddu inn- sæinu, þannig nærð þú bestum árangri. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú gengur í augun á hvers kyns yfirboð- urum í dag. Nú er nauðsyn að þú takir af skar- ið og nýtir forystuhæfileika þína til fullnustu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Finndu út hvar þú best getur komið skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að hlustað sé á þig. Fátt jafnast á við skemmti- legar umræðustundir í hópi góðra vina. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það gæti verið vandasamt að velja réttu leiðina þegar fleiri en ein eru í boði. En sá sem veit hvað hann vill er við öllu búinn. Var- astu að dragast inn í deilur manna. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú leyfir hæfileikafólki að komast upp með hvað sem er því þú nýtur nærveru þess í lífinu. Slepptu samt ekki fram af þér beislinu því hóf er best á hverjum hlut. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú verður beðinn um að taka að þér flókið verkefni, af því að þú kannt það svo vel. Taktu þér tíma til þess að sjá hvernig land- ið liggur og taktu svo til þinna ráða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Varastu að láta aðra ráðskast með líf þitt þótt þeir þykist vita betur. Gakktu sjálfur úr skugga um sannleiksgildi hlutanna og gefðu þér tíma til að setjast niður og ræða málin. Nú á síðustu dögum kom útbókin „130 vísnagátur“ eftir Pál Jónasson í Hlíð á Langanesi sem var kúabóndi í 20 ár en býr nú aðallega með æðarkollur og orð. Áður hafa komið út eftir hann „Vísnagátur“ árið 2012 og „Hana- nú – 150 fuglalimrur“, eftir- minnileg og bráðskemmtileg bók enda er höfundurinn náttúrubarn. Í formála hinnar nýju bókar seg- ir Páll: „Oftast er sama lausnar- orðið í öllum línunum, en til að gera leikinn fjölbreyttari og skemmtilegri þá er staf eða stöf- um stundum bætt við eða tekinn burt stafur eða stafir úr lausn- arorðinu til að fá enn eina merk- ingu: Notuð hún við útsaum er, einn í burt er málmur. Hana snót í hári ber, henni eftir lyfið fer. Hér er lausnarorðið nál. Saum- nál, einn í burt (n)ál, hárnál og sprautunál. Annað dæmi: Bæjarnafn sem algengt er, einn í plús er þjófavörn. Hæsta spil á hendi þér, heiðinn guð, og ráðið börn. Hér er lausnarorðið ás; bærinn Ás, l-ás, ás í spilum og ás (guð) í ásatrú.“ Ég hef dundað við það á kvöldin að leysa gáturnar eða leysa ekki, – slík hugarleikfimi er í senn skemmtileg og þroskandi. Páll er gott limruskáld, – hér leikur hann sér með stíl og orð í „Amerískri bíómynd í lit“: Efnið var snauðara en snautt um lík sem var dauðara en dautt, og blárri en blá var bólsenan grá, en blóðið var rauðara en rautt. Síðan kemur „Hótel Ísland“: Starfslið er færra en fátt og kjötið er smærra en smátt, og hrárra en hrátt og þrárra en þrátt en verðið er hærra en hátt. Nú er ekki úr vegi að rifja upp fuglalimrur eftir Pál, – „Lóan í flokkum flýgur“: Hún horfir á flokkinn sinn fara þennan frjálsa vængjaða skara, hún vængbrotin er og veit hvernig fer þegar haustar á norðurhjara. Þá er „Nostalgía“: „Við síladráp áður ég undi,“ sagði aldraður, værukær lundi. „Þá hræddist ég fátt og hafið var blátt og gaman á Grímseyjarsundi.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísnagátur Páls í Hlíð „BÆTTU VIÐ OLÍUHREINSUN OG SAMNINGURINN ER Í HÖFN.“ „HANN ER BLANDA AF PÁFAGAUKI OG BRÉFDÚFU. ÉG HEF NÚ ÞEGAR SELT HANN TÍU SINNUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... fótspor í snjónum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VÁ... FERTUGUR! ÞÚ HLÝTUR AÐ HAFA SÉÐ MARGT! MANSTU EFTIR DISKÓINU? AUÐVITAÐ HÉR FÓR ÞAÐ ALDREI ÚR TÍSKU ÞIÐ SÓIÐ TÍMA YKKAR, FARANDSALAR! VIÐ EIGUM GLÆNÝTT HNÍFAPARASETT! Víkverji er búinn að vera í líkams-ræktarátaki núna í dágóðan tíma. Árangurinn hefur hins vegar látið á sér standa. Víkverji virðist þeirri náttúru gæddur að alveg sama hversu mörg kíló hann léttist um; ein óráðleg máltíð dugar til þess að skella þeim öllum á aftur. Á þess- um rússíbana hefur nú gengið svo mánuðum skiptir og veit Víkverji varla hvað hann á að gera, því ekki kemur til greina að svelta sig. x x x Annars hefur Víkverji tekið eftireinu í matvörubúðinni. Í hill- unum þar sem „hollu“ líkamsrækt- armáltíðirnar eru er jafnan að finna ógrynnin öll af alls kyns „orkustöng- um“, sem við nánari skoðun reynast vera þurrkaðir ávextir, ber og/eða hnetur, og allt saman húðað með salti og súkkulaði. Alveg sérstaklega súkkulaði. Það liggur við að hægt sé að fá súkkulaðihúðað súkkulaði, sem samt er sagt á einhvern hátt hollara en annað súkkulaði. x x x Svo eru það fæðubótarefnin, semflest eru í formi einhvers konar prótíndufts, sem á að blanda við vatn og hrista duglega. Víkverji hef- ur ekki lagt í að fá sér þannig ennþá, en var næstum því búinn að taka af skarið um daginn þegar hann rakst á stóran dunk af prótíndufti, sem ekki bara var sagt vera með súkku- laðibragði heldur var dunkurinn merktur „MARS“ í bak og fyrir. Annar við hliðina var síðan merktur „Snickers“. Aðdáendur Mars- og Snickers-súkkulaðistykkjanna, sem hingað til hafa ekki beint verið fyrsti kostur þeirra sem eru að reyna að rækta líkamann, geta nú farið áhyggjulausir í ræktina og hrist sér síðan einn góðan Snickers eftir á. x x x Fyrir Víkverja var þessi uppgötv-un hins vegar mjög upplífgandi. Nú þarf hann ekki lengur að vera með sektarkennd þegar hann snigl- ast í eins og eitt súkkulaðistykki, ekki þegar hann veit að öll vaxtar- ræktartröllin sem hann sér í rækt- inni eru í raun bara algjörir sælgæt- is- og súkkulaðigrísir. vikverji@mbl.is Víkverji Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til samfélags við son sinn Jesú Krist, Drottin vorn. (Fyrra Korintubréf 1.9) Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar, í aðra sali eða í heimahúsi. Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur á jarðhæð, gott aðgengi. Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í verði þegar erfidrykkja er í sal.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.