Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdottir
ge@mbl.is
„Allt frá því ég komst yfir þýðingu á
Reisubók séra Ólafs Egilssonar fyrir
nokkrum árum hefur sagan ekki látið
mig í friði. Hvernig var fyrir Ástu,
konu séra Ólafs, að fæða barn í ræn-
ingjaskipi? Hvernig var að vera þræll
í ókunnu landi og hvernig var líðanin
þegar 11 ára sonur var seldur frá fjöl-
skyldunni? Hvernig var að koma í
ólíka menningu og loftslag? Hvernig
tókst Ástu að aðlaga sig í ánauðinni?
Hvernig var líðanin að skilja börnin
eftir í Alsír og hvernig gekk Ástu að
aðlagast lífinu í Vestmannaeyjum
þegar hún kom til baka úr ánauðinni?
Þetta er meðal þess sem leitaði á
huga minn við lestur Reisubókar
Ólafs,“ segir Sally Magnússon, rithöf-
undur og sjónvarpskona hjá BBC,
sem skrifaði bókina Sagnaseið sem
fjallar um Tyrkjaránið árið 1627 og
afleiðingar þess þegar meira en helm-
ingur íbúa Heimaeyjar var drepinn
eða fluttur í ánauð til Alsírs.
Sally leitaði heimilda í Reisubók
séra Ólafs Egilssonar sem tekinn var
til fanga á Heimaey ásamt konu sinni
Ástu og tveimur börnum en þeim
hjónum fæddist sonur um borð í ræn-
ingjaskipinu á leið til Alsírs. Egill,
eldri sonur hjónanna, er tekinn strax
frá foreldrum sínum við komuna til
Alsírs og seldur en Ólafur, Ásta,
barnung dóttir þeirra og nýfæddur
sonur voru seld til sama þrælahald-
ara sem freistaði þess að senda sr.
Ólaf til Danmerkur til þess að beiðast
lausnargjalds frá konungi fyrir Ís-
lendinga í ánauð í Alsír.
„Ólafur skrifar frásögnina í raun-
tíma. Frá því að lagt var úr höfn frá
Vestmannaeyjum þar til 34 eru leyst-
ir úr ánauðinni og hluti þeirra kemst
aftur til Íslands níu árum síðar. Ólaf-
ur stendur sig vel sem fréttaritari en
hann skrifar reisubókina undir þungu
trúarmáli og líkt og aðrir sagnamenn
þess tíma ritar hann lítið sem ekkert
um konu sína. Almennt var ekki sagt
frá konum nema þær væru drottn-
ingar. Mér fannst spennandi að nýta
mér frelsi skáldsögunnar í bland við
ritaðar heimildir. Ég varð að skálda
allt sem viðkom Ástu nema það að
hún var kona séra Ólafs, átti fjögur
börn, var hneppt í ánauð og kom til
baka,“ segir Sally, sem er dóttir hins
þekkta sjónvarpsmanns Magnúsar
Magnússonar, sem flutti ungur til
Skotlands með íslenskum foreldrum.
„Ég er hálfur Íslendingur og pabbi
deildi Íslandi með okkur systkinun-
um. Hann kynnti okkur fornsögurn-
ar. Pabbi skrifaði mikið um Ísland og
þýddi meðal annars Laxdælu, Njálu
og fleiri fornsögur yfir á ensku,“ segir
Sally, sem minnist föður síns sitjandi
við ritvélina að slá inn sögurnar.
Á ferð með Vigdísi um landið
Sagnaseiður er tileinkuð gömlum
fjölskylduvini, Vigdísi Finnboga-
dóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
„Árið 1976 kom ég til sumarvinnu
hjá Ferðaskrifstofu ríkisins í þeim til-
gangi m.a. að læra íslensku. Ég bjó
hjá föðurbróður mínum. Hann var
nýfluttur með fjölskylduna frá Sví-
þjóð og talaði ekki mikla íslensku.
Um helgar kom Vigdís og keyrði mig
um landið. Hún sagði mér sögur af
tröllum, álfum og selfólki,“ segir
Sally, sem lagði mikla áherslu á að
skoða gögn sem til eru um Tyrkja-
ránið. Sally fann mikið af upplýs-
ingum í Sagnheimum – byggðasafni
Vestmannaeyja og á gosminjasýn-
ingu í Eldheimum, sem varpaði ljósi á
draum selkonunnar sem dreymdi eld-
gos sem varð rúmum þremur öldum
síðar.
Sally segist m.a. hafa notið góðs af
rannsóknum Þorsteins Helgasonar
prófessors sem hann notaði í bók
sinni The Corsairs’ Longest Journey:
The Turkish Raid in Iceland 1627 og
rannsóknum Steinunnar Jóhannes-
dóttur vegna skrifa hennar á Reisu-
bók Guðríðar Símonardóttur.
„Steinunn gerir sögu Guðríðar vel
skil og það er merkilegt að varðveist
hafi heillandi brot úr bréfi Guðríðar
sem hún sendi alla leið frá Algeirs-
borg til Eyjólfs eiginmanns síns í
Vestmannaeyjum.“ En Guðríður,
eins og margir vita, giftist Hallgrími
Péturssyni sálmaskáldi, sem hún
kynntist þegar hún var skikkuð til
endurmenntunar í kristinni trú í
Kaupmannahöfn á leið heim til Ís-
lands úr ánauðinni í Alsír.
„Ég heillaðist af Ástu, eiginkonu
Ólafs, annars af prestum Eyjanna.
Hinn presturinn, Jón Þorsteinsson,
sem kallaður var píslarvottur eftir
dauða sinn, dó með guðsorð á vörum
eftir að sjóræningjar höfðu háls-
höggvið hann,“ segir Sally, sem svar-
ar í skáldsögunni spurningum sem
komu í huga hennar varðandi upplif-
anir Ástu sem móður og eiginkonu
sem er tekin úr umhverfi sínu og flutt
til framandi landa í ánauð; konu sem
þarf að horfa á eftir 11 ára syni seld-
um í ánauð, eiginmanni sem sendur
var um langan veg og óvíst hvort þau
hittust aftur. „Hún þurfti að venjast
nýjum siðum, nýju loftslagi, öðruvísi
mat og að vera svipt frelsi sínu. Elsta
dóttir Ástu og Ólafs var ekki í Eyjum
þegar Tyrkirnir komu og Ásta veit
ekki í níu ár hvernig hennir reiðir af,“
segir Sally og bætir við að þegar Ásta
losni úr langþráðri ánauð verði hún
að skilja ung börn sín eftir í Alsír og
fái aldrei að vita hver örlög þeirra
urðu. Eftir allt sem á Ástu hefur verið
lagt þarf hún að aðlagast lífinu án
barnanna í Vestmannaeyjum, í kulda,
myrkri og harðri lífsbaráttu. Ásta og
Ólafur þurfa einnig að takast á við
hjónabandið eftir níu ára aðskilnað,
missi og sorg.
„Það þurfa allir sögur til þess að
lifa af. Sögurnar sem hún kom með
frá Íslandi hjálpuðu henni að komast
af,“ segir Sally og veltir því upp hvað
geri það að verkum að manneskjan
geti tekist á við stór áföll.
Sally segir að Sagnaseiður taki
einnig á því hvernig maðurinn geti
aðlagað líf sitt algjörlega nýjum að-
stæðum. „Í sögunni eiga Ásta og
Cilleby þrælahaldari hennar í ein-
hvers konar rökræðu-ástarsambandi
og takast á við siðferðisspurninguna
um það hvort ránsferðir og strand-
högg norrænna víkinga hafi verið
eitthvað betri eða verri en ánauðin
sem alsírsku sjóræningjarnir
hnepptu Íslendinga í,“ segir Sally
sem er ánægð með viðtökurnar sem
bókin hefur fengið frá því hún kom út
í Bretlandi í febrúar á þessu ári. Þar í
landi heitir bókin The Sealwoman’s
Gift en Sagnaseiður í íslenskri þýð-
ingu Urðar Snædal.
„Bókin hefur verið tilnefnd af Hist-
orical Writers’s Association til verð-
launa sem ein af sex bókum í flokkn-
um Frumraun sögulegra skáldsagna.
Bókin hefur hlotið góða dóma í bóka-
klúbbum og sjónvarpsþáttum,“ segir
Sally og bætir við að bókin hafi opnað
augu Breta fyrir Tyrkjaráninu á Ís-
landi og ekki síður fyrir því hversu lít-
ið breska þjóðin veit um sambærilega
atburði á Írlandi og í Bretlandi þar
sem hundruð manna frá suðurströnd
Englands voru hneppt í ánauð.
Muna hvar á að fela sig
„Það virðist algjör þögn um þessi
mál í sögu Bretlands, en nú eru fræði-
menn í Cornwall farnir að skoða þetta
þögla tímabil. Á sama tíma þekkir
næstum því hvert mannsbarn á Ís-
landi söguna. Mér hefur verið sagt
frá því að enn lifi fólk á Austfjörðum
sem muni eftir því að hafa verið sagt
hvar þau ættu að fela sig ef Tyrkirnir
kæmu,“ segir Sally, sem þykir mikið
til þess koma hvernig Íslendingar
hafa haldið sagnahefðinni við.
Sally kom til Íslands í þeim tilgangi
að taka þátt í ráðstefnu ISBA-sam-
takanna en Sally skrifaði árið 2014
bókina Handan minninganna sem
fjallaði um glímu móður hennar við
alzheimer.
Í dag kl. 17 verður Sally viðstödd
þegar Sagnaseiður verður kynntur í
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Staðsetningin á vel við þar sem leg-
steinn sr. Ólafs Egilssonar er í and-
dyri kirkjunnar og flutt verða lög
Lilju Þorbjörnsdóttur tónskálds við
texta sr. Jóns Þorsteinssonar. Að
sögn Sallyar og Helgu Hallbergs-
dóttur, safnstjóra í Sagnheimum, hef-
ur áhugi ferðamanna aukist á Tyrkja-
ráninu eftir að The Sealwoman’s Gift
kom út.
Sally vinnur nú að bók sem gerist á
miðri 19. öld og segist hlæjandi vera
að færa sig nær nútímanum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sagnakona Sally Magnúsdóttir hefur vakið áhuga Breta á Tyrkjaráninu.
Sagnaseiður Sallyar
Segir frá lífi kvenna í Tyrkjaráninu 1627 „Það þurfa
allir sögur til þess að lifa af“ Ólst upp við fornsögur
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Mið 24/10 kl. 19:30 Auka
Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00
Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fös 12/10 kl. 22:00 Fös 19/10 kl. 22:00
Daður og dónó
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Fim 8/11 kl. 20:00 aukas.
Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Athugið, sýningum lýkur í byrjun nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s
Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Besta partýið hættir aldrei!