Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það má afskaplega lítið út af bera í
svona málum. Liðin eru hins vegar
ágætlega tækjum búin og mann-
skapurinn vel þjálfaður. Það hefur
töluvert að segja,“ segir Jón Viðar
Matthíasson, slökkviliðsstjóri á
höfuðborgarsvæðinu, í samtali við
Morgunblaðið og bætir við að
slökkviliðsmenn hafi haft í nógu að
snúast það sem af er ári vegna
brunaútkalla. „Manni finnst þetta
vera orðið ansi gott,“ segir hann.
Meðal stærri verkefna sem
slökkviliðsmenn hafa sinnt á þessu
ári má nefna eldsvoða í Hellisheiðar-
virkjun. Þar höfðu snör viðbrögð og
góð þjálfun mikið að segja og tókst
við erfiðar aðstæður að koma í veg
fyrir stórtjón á orkuverinu, en alls
sinntu um 80 slökkviliðsmenn
slökkvistörfum á svæðinu. Þá kom
einnig mikill eldur upp í fiskeldis-
stöðinni á Núpi í Ölfusi seint í júní,
stórbruni í Miðhrauni í Garðabæ
snemma í apríl og í Perlunni í
Reykjavík undir lok saman mánaðar.
Þá var einnig kveikt í fjölmörgum
bílum á verkstæðisstæði bílaum-
boðsins Öskju í ágúst og tilkynnt um
mikinn eld við Hvaleyrarbraut í
Hafnarfirði fyrir um viku.
Það sem af er ári hafa þrír látist í
tveimur eldsvoðum. Karlmaður á
sjötugsaldri lést þegar eldur kom
upp í íbúð við Gullsmára í Kópavogi
seint í maí. Eiginkona mannsins
komst lífs af. Tvennt lést í eldsvoða í
húsi við Kirkjuveg á Selfossi í lok
október, kona, fædd 1971, og karl-
maður, fæddur 1969.
Eitt dauðsdall að meðaltali á ári
Björn Karlsson, brunamálastjóri
og forstjóri Mannvirkjastofnunar,
segir einn að meðaltali látast í elds-
voða ár hvert hér á landi. „Það má
segja að einn látist að meðaltali í
bruna hér. Í nágrannalöndum okkar
deyr á sama tíma að meðaltali einn á
hverja 100.000 íbúa. Ísland er því
oftast með yfir helmingi færri dauðs-
föll vegna eldsvoða,“ segir hann og
bætir við að erfitt sé að benda á eitt-
hvert eitt atriði sem kunni að skýra
þennan mun.
„Vafalaust tengist þetta fámenni
þjóðarinnar að einhverju marki. Ís-
lendingar fylgjast oft vel hvert með
öðru. Þá eru byggingar á Íslandi oft-
ast byggðar úr steinsteypu og ekki
má gleyma forvörnum sem eru mikl-
ar hér á landi og skila oft sínu,“ segir
Björn.
Félögin sent afkomuviðvaranir
Tryggingafélögin hafa mörg hver
sent frá sér afkomuviðvörun á árinu í
kjölfar fregna af stórbrunum. Vega
þyngst í því samhengi bruninn við
Hvaleyrarbraut, Miðhraun, í Perl-
unni og á Núpi í Ölfusi.
Kjartan Vilhjálmsson, tengiliður
TM við fjölmiðla, segir tíðina þegar
kemur að stórtjónum „óvenjulega“.
„Við vorum með stóran bruna í
fyrra á Snæfellsnesi og annan í
Skeifunni 2014. Frá þeim tíma að
telja höfum við séð óvenjulega mikið
af stórum brunatjónum,“ segir hann.
Andri Ólafsson, samskiptastjóri
VÍS, segir þá hafa greitt viðskipta-
vinum sínum rúmlega 13 milljarða
króna í bætur það sem af sé ári.
„Athugun á brunatjónum í okkar
bókum bendir til þess að töluvert
meira sé um eldsvoða það sem af er
ári en í fyrra. Ef við miðum við tjón
þar sem greiddar eru meira en 10
milljónir í bætur eða meira erum við
að tala um helmingi fleiri mál en í
fyrra, eða tæplega tuttugu tilvik,“
segir hann og bendir á að tíðni sveifl-
ist nokkuð á milli ára.
Hjá Sjóvá fengust þær upplýsing-
ar að samkvæmt þeirra bókum
mætti ekki greina aukningu í tíðni
brunatjóna á húseignum á milli ára.
Alvarlegir brunar 2018
JANÚAR JANÚAR
MAÍJÚNÍJÚLÍ
ÁGÚST OKTÓBER NÓVEMBER
APRÍL APRÍL
Íbúðarhús í Stardal
Bílabruni við bílaumboðið Öskju Einbýlishús við Kirkjuveg á Selfossi Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði
Kísilver PCC á Bakka Fiskeldisstöð á Núpi í Ölfusi Gullsmári í Kópavogi
Hellisheiðarvirkjun Geymslur í Hafnarfirði Perlan í Reykjavík
Stórbrunar áberandi á árinu
Slökkviliðsmenn glímdu við flókin brunaútköll á árinu sem er að líða Hellisheiðarvirkjun, fiskeldis-
stöð, atvinnuhúsnæði af ýmsum toga, Perlan og bílabrenna meðal verkefna Þrír látnir eftir eldsvoða
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sett verður upp önnur vefmyndavél í
Eldey undan Reykjanesi í vetur og
bætt við 4G-beini, til viðbótar við ör-
bylgjusendinn. Umhverfisstofnun
setur það skilyrði fyrir leyfi til að fara
út í eyjuna í þessum tilgangi að engir
fuglar séu í þar og fuglalíf verði ekki
truflað. Því þarf að vinna verkið fyrir
miðjan janúar.
Eitt stærsta súluvarp í heimi er í
Eldey. Sigurður Harðarson raf-
eindavirkjameistari setti upp vef-
myndavél í eyjunni fyrir tíu árum,
ásamt nauðsynlegum búnaði til að
koma myndunum í land og inn á net-
ið. Vann hann að því í samvinnu við
fyrirtæki og stofnanir á Suður-
nesjum.
Hægt er að fylgjast með súlu-
byggðinni allt árið á vefnum eldey.is.
Mikið er fylgst með útsendingum,
sérstaklega þegar súlan er að setjast
upp og berjast um svæði og þegar
ástarlífið hefst með tilheyrandi
skylmingum. Þá fylgjast margir með
þegar ávextir ástarlífsins skríða úr
eggjunum.
Eldey er friðlýst og óheimilt að
fara í eyna án leyfis Umhverfisstofn-
unar. Sigurður hefur fengið slíkt leyfi
fyrir sig og tvo aðstoðarmenn til að
bæta tækjabúnaðinn í vetur.
Snýr að landi
Hann hyggst í þessari ferð bæta
við annarri vefmyndavél og setja upp
4G-beini. Örbylgjusendirinn virkar
enn ágætalega en þar sem ekki er
hægt að fara í eyjuna nema þegar
enginn fugl er þar vill Sigurður hafa
beininn með til öryggis. Aukavélin
snýr að landi, að Reykjanesvita þar
sem tekið er á móti útsendingunum.
Landhelgisgæslan hefur hjálpað til
við þetta verkefni með því að flytja
Sigurð og aðstoðarmenn hans með
þyrlu út í Eldey, þegar þyrluáhöfn er
við eftirlit og æfingar á svæðinu.
Súlan kemur venjulega í eyjuna um
20. janúar en á síðasta vetri kom hún
ekki fyrr en 10. febrúar. Hún kemur í
stórum hópum og fyllist eyjan á stutt-
um tíma.
Bætt tækni í súluvarpi
Önnur vefmyndavél í Eldey Margir fylgjast með
Morgunblaðið/Rax
Súlur Margir hafa áhuga á að fylgj-
ast með súluvarpi í Eldey.
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFIRÐI
Allar verslanir opnar til kl. 22.00 í kvöld
BLACK
FRIDAY
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM *25%
KOMDU NÚNA!
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð.