Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 ✝ Diljá KristínOddsdóttir fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1971. Hún lést í Balti- more í Bandaríkj- unum 27. október 2018. Foreldrar henn- ar eru Oddur Gúst- afsson, f. 27.3. 1941, og Erna Gísladóttir, f. 1.7. 1941, d. 23.12. 2003. Systir Dilj- ár er Hildur Hrönn Oddsdóttir, f. 27.6. 1973. Eiginmaður Diljár er Paul Ernst Terrill, f. 25.2. 1971, og er sonur þeirra Einar Raymond Terrill, f. 4.1. 1996. Diljá ólst upp í Mosfellsbæ, gekk í Varmárskóla og síðar Kvennaskól- ann í Reykjavík. Flutti að loknu stúdentsprófi til Bandaríkjanna og lauk BS-námi í sál- fræði við Háskól- ann í Maryland. Bjó um tíma í Þýska- landi en flutti aftur til Banda- ríkjanna ásamt manni sínum og syni og bjó þar til dauðadags. Minningarathöfn fer fram í Árbæjarkirkju í dag, 23. nóvem- ber 2018, klukkan 15. Diljá var yndisleg stóra systir sem reyndist mér alltaf vel. Hún var hvorki fúl á móti né leiðinleg, eiginlega bara mjög skemmtileg. Ég man hvað mér þótti alltaf vænt um að fá að vera með stóru systur og vinkonum hennar þegar við vorum litlar. Ég fór líka í sama framhaldsskóla og hún. Við fórum báðar í Kvennaskólann en það var töluvert ferðalag að fara úr Mos- fellsbænum og niður í miðbæ. En ég vildi vera í sama skóla og Diljá svo ég lét það ekki á mig fá. Ég held að henni hafi líka fundist það ágætt að hafa mig með. Við vor- um alltaf nánar vinkonur, meira að segja eftir að hún flutti til út- landa. En hún flutti strax eftir framhaldsskóla til Bandaríkj- anna, síðar til Þýskalands og svo aftur til Bandaríkjanna. Við héld- um alltaf góðu sambandi en það var dýrt að hringja á milli landa á þessum tíma. Þegar Diljá bjó í Þýskalandi var ég búsett í Sví- þjóð. Það var mjög hentugt enda mun ódýrara að hringja frá Sví- þjóð til Þýskalands heldur en frá Íslandi. Við áttum því oft hvítvíns- spjall á föstudags- eða laugar- dagskvöldum. Þá fengum við okk- ur hvítvín í sitthvoru landinu og töluðum saman um heima og geima. Diljá fannst gaman að spjalla og hlæja en hún var ekki mikið fyrir slúður eða baktal, vildi frekar segja gamansögur af sam- ferðafólki sínu en þó mest af sjálfri sér. Hún var einstaklega utan við sig og kom því sér oft í klandur og henni fannst fátt skemmtilegra en að segja frá því. Á þessum árum var ég líka dugleg að heimsækja þau og þau komu líka til Svíþjóðar þegar Ein- ar sonur þeirra var lítill. Við rifj- uðum oft upp sögur og atvik úr þessum ferðum okkar. Seinna þegar ég var líka komin með fjöl- skyldu og Diljá aftur flutt til Bandaríkjanna hittumst við sjaldnar en nú var auðveldara að vera í sambandi í gegnum netið. Skype og Facebook auðveldaði systrum sitthvoru megin við Atlantshafið lífið til muna. Diljá hafði mikla þörf fyrir að koma heim. Hún hélt alltaf góðu sambandi við fjölskyldu sína og vini hér á landi. Diljá veiktist lífs- hættulega í byrjun þessa árs. Greining var ristilkrabbamein á lokastigi. Það var því strax ljóst í hvað stefndi. Samt sem áður tókst hún á við veikindi sín af æðruleysi og einstakri jákvæðni. Hún var alltaf „bara hress“ er hún var spurð og var sannfærð um að hún myndi sigra krabbameinið. Innst inni vissi hún þó að hún myndi þurfa að lúta í lægra haldi fyrir meininu. Þessir síðustu mánuðir í lífi hennar voru erfiðir en Paul eiginmaður hennar stóð eins og klettur við hlið hennar allan tím- ann. Það sama má einnig segja um Einar son hennar, sem þrátt fyrir að vera að ljúka krefjandi háskólanámi var mjög duglegur að heimsækja foreldra sína og hjálpa til. Það gat tekið á að vera svona langt í burtu frá henni en sem betur fer hafði ég tök á að heimsækja hana reglulega þessa síðustu mánuði og þær heimsókn- ir voru nýttar vel til að hlæja og gráta. Elsku systir, takk fyrir að nenna að keyra mig út um allt, takk fyrir skilninginn og stuðn- inginn, takk fyrir hláturinn og gleðina. Takk fyrir samfylgdina, það var gaman. Hildur Hrönn Oddsdóttir. Kæra Diljá frænka. Okkur finnst svo sárt að hafa þig ekki hjá okkur. Þú brostir allt- af og hlóst svo fallega og þegar við heimsóttum þig, Paul og Einar í Baltimore tókstu vel á móti okk- ur. Það var líka alltaf svo gaman að fá þig til Íslands. Þegar við vorum lítil og heim- sóttum ykkur í Baltimore varstu svo dugleg að fara með okkur í dýragarðinn. Það fannst okkur skemmtilegt. Í fyrra fórum við bara tvö að heimsækja ykkur; pabbi og mamma fóru ekki. Þið voruð svo góð við okkur, fóruð með okkur í útilegur í hjólhýsinu ykkar og kennduð okkur fullt af leikjum. Við erum svo ánægð með að hafa getað heimsótt ykkur og við munum alltaf sakna þín. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Erna Þórey Sigurðardóttir og Eiður Þorsteinn Sigurðsson. Elsku Diljá bróðurdóttir, ég beið spennt eftir að fá ykkur Paul í heimsókn síðasta vor. Þið ætl- uðuð að gista hjá mér og vera áfram í íbúðinni minni á meðan ég færi til Bandaríkjanna til þess að eyða páskunum með Kristu dótt- ur minni. Svo komu fréttirnar um sjúkdómsgreiningu þína, eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ekkert varð úr ferðinni þinni heim í þetta sinn og þær verða ekki fleiri í lif- anda lífi. ´ Af öllum systkinabörnum mín- um áttum við sérstaka tengingu, þar sem við vorum báðar giftar og búsettar í Bandaríkjunum. Í fyrsta skipti sem þú komst og heimsóttir mig í Ohio varstu með foreldrum þínum og Hildi systur þinni. Krista, dóttir mín, var um það bil fjögurra ára og alveg him- inlifandi að fá frænkur í heimsókn frá Íslandi, þar sem hún átti engin frændsystkini í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta vakning hennar, að það væru fleiri en mamma, pabbi og föðurforeldrar sem til- heyrðu fjölskyldu hennar. Mér er sérstaklega minnisstætt að koma að ykkur Hildi, Kristu og pabba þínum uppi í rúmi eitt kvöldið og þið voruð að leyfa Kristu að lesa fyrir ykkur. Krista talaði um þetta lengi eftir að þið fóruð, hún var svo stolt að fá að lesa fyrir ykkur. Tíminn leið og þið full- orðnuðust. Þú komst til Banda- ríkjanna og hittir draumaprins- inn hann Paul. Giftingin fór fram í Connecticut, og ekki var annað í boði en að mæta í glæsilegt brúð- kaup. Við komum saman frænd- systkinin Gústaf, Þórunn og ég, hittum ykkur og fjölskyldu og það var dansað langt fram á nótt og margar ljúfar minningar verða alltaf til staðar. Næst hittumst við þegar Paul var að útskrifast úr hernum, á leið aftur heim til Con- necticut frá Colorado, þá stopp- uðuð þið hjá mér í Ohio, með hundinn Pílu. Svo kom að giftingu Kristu, dóttur minnar, og þið Paul gerðuð ykkur lítið fyrir og komuð fljúgandi til Ohio í brúðkaupið. Aftur gleði og ógleymanlegar stundir saman. Seinna hitti ég ykkur þegar Einar var á öðru ári og ég var að ferðast um vegna vinnu í Connecticut og fékk að líta á gullprinsinn ykkar. Allt eru þetta svo ljúfar minningar sem ylja manni um hjartarætur. Þú varst alltaf með þitt heillandi bros og jákvæðni í kringum þig. Sorg- arfréttir bárust eitt árið til mín í Ameríku þegar Erna móðir ykkar Hildar kvaddi eftir baráttu við krabbamein. Ég kom heim til Ís- lands til þess að vera með ykkur á þeirri sorgarstund. Þegar litið er yfir liðna tíð get ég ekki annað en verið þakklát fyrir að hafa fengið að fíflast, hlæja, dansa og gráta með þér, elsku Diljá mín. Minn- ingarnar lifa. Elsku Oddur bróðir, Paul, Einar, Hildur, Sigurður, Erna Þórey og Eiður Þorsteinn, mínar innilegustu samúðarkveðj- ur og megi guð gefa ykkur styrk til þess að halda áfram og geymið allar góðu minningarnar. Sigrún Gústafsdóttir. Diljá Kristín Odds- dóttir – Terrill ✝ Agnar Trausta-son var fæddur á Hörgshóli í Þver- árhreppi V.-Hún 22. mars 1941. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Hvamms- tanga 11. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Sigríður Hansína Sigfúsdótt- ir, f. 21. ágúst 1915, d. 29. ágúst 1999, og Trausti Sigurjónsson, f. 1. maí 1912, d. 4. nóvember 2004. Systkini Agnars voru: Björn, f. 29.5. 1938, Þorkell, f. 10.7. 1939, Þráinn, f. 9.4. 1942, Guð- úr sveitinni í þann barnahóp sem fyrir var á Hörgshóli á meðan skólahald stóð yfir. Einn vetur stundaði Agnar nám við Héraðsskólann í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Hann var bóndi á Hörgshóli ásamt móður sinn til ársins 1983 er þau fluttu að Laugarbakka í Miðfirði þar sem hann bjó æ síðan. Agnar vann í Sláturhúsinu á Hvammstanga í mörg ár, var afleysingamaður á bæjum og aðstoðaði bændur í nágrenninu við landbúnaðar- störf árum saman. Hann stund- aði hrossarækt á Hörgshóli um árabil. Agnar var ókvæntur og barnlaus. Útför Agnars fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Vestur- hópi í dag, 23. nóvember 2018, klukkan 14. björg Stella, f. 15.6. 1943, Sigfús, f. 29.5. 1945, d. 18.5. 2011, Hörður, f. 2.1. 1955, og Sig- urður Rósberg, f. 9. 12. 1957, d. 8.7. 2000. Agnar ólst upp á Hörgshóli og sinnti þar bústörf- um sem vani var til sveita á þeim tíma. Skólaganga hófst þegar börn voru 10 ára gömul og þá var enn farskóli í Þverárhreppi. Kennsla fór fram á bæjunum í sveitinni oftast þar sem börnin voru flest. Oft bættust því börn Nú er Aggi bróðir minn farinn yfir móðuna miklu. Margs er að minnast frá liðinni tíð. Sem börn lékum við bræðurnir okkur með leggi, horn og kjálka. Við áttum myndarbú hver fyrir sig, gáfum dýrunum okkar nöfn og þekkt- um hvert bein. Svo voru lagðir vegir og leikið sér. Fimm ára gamlir vorum við farnir að vinna við búskapinn heima, raka og rifja, teyma hesta sem settir voru fyrir heyvinnutækin og sækja kýrnar. Þegar við vorum að alast upp á Hörgshóli var veiði góð í Reyð- arlæknum. Þar var gott að una sér því veiðiáhuginn var mikill og komum við oft heim úr læknum rennandi blautir með góðan afla. Eftir að ég flutti að heiman fannst mér ekki koma sumar nema ég kæmist norður í hey- skapinn. Það var mér mikils virði að geta tekið þátt í heyskapnum með Agnari og ekki skorti verk- efnin. Frá morgni til kvölds var hamast við að ná heyi í hlöður á meðan veður hélst þurrt. Svo var kannski skroppið í lækinn snemma næsta morgun til að ná í lax eða silung í soðið. Oft voru Aggi og mamma með krakka hjá sér í sveit til að hjálpa til við bú- störfin. Þeim börnum reyndist hann vel enda var hann einstakt ljúfmenni. Systkinabörn hans dvöldu oft á Hörgshóli hjá ömmu sinni og Agga og þar var gjarnan glatt á hjalla. Þegar hefðbundinn búskapur lagðist af á Hörgshóli var Aggi með hross þar. Á vorin fórum við, fjölskyldan, oft norður til að fylgjast með folöldunum nýköst- uðum. Það var áhugavert því Agnar var oft með góða stóð- hesta til að bæta stofninn. Stundum fórum við saman á hestamannamót hjá Þyt, bæði sem keppendur og áhorfendur. Síðasti reiðtúrinn okkar saman var fyrir nokkrum árum er við fórum ríðandi í Þverárrétt. Sú ferð verður í minni höfð. Agnar hafði mjög gaman af dýrum, hugsaði vel um þau og fóðraði vel. Það var alltaf gaman að fylgjast með Agnari þegar hann var að snúast í kringum hrossin og kindurnar því hann gat hlaupið endalaust án þess að blása úr nös. Kindunum náði hann alltaf en hrossin á Hörgs- hóli voru frá á fæti enda góðir stökkhestar af hrossakyninu og náðu nokkrir langt í keppni. Með móður sinni ól Agnar upp tvo yngstu bræðurna Hörð og Begga. Hann var þeim góður bróðir og reyndist þeim vel. Hann var alla tíð nægjusamur, tók ekki miklar áhættur í lífinu og eyddi ekki um efni fram. Hann var vinur vina sinna og alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd ef á þurfti að halda. Hann var alinn upp af þeirri kynslóð sem fór ekki af bæ nema eiga er- indi en hafði þó gaman af að fara í ferðirnar með eldri borgurum síðustu árin. Við minnumst ferð- ar sem hann fór með okkur til Aðalvíkur fyrir 10 árum, þá frár á fæti og við góða heilsu. Agnar átti við heilsubrest að stríða síðustu árin. Þá ákvað hann að fella hrossin og selja jörðina nágrönnum sínum í Böðvarshólum. Síðastliðna tvo mánuði var Agnar á Sjúkrahús- inu á Hvammstanga. Fjölskylda hans þakkar starfsfólkinu hlýju og góða umönnun. Kæri bróðir og mágur. Þegar þér var þrotið þrek og kraftur varstu sáttur við að kveðja. Hitt- umst fyrir hinum megin. Þorkell og Halldóra. Agnar Traustason ✝ Sigurlaug Sig-urðardóttir fæddist 28. septem- ber 1962 á Land- spítalanum í Reykjavík. Hún lést á Akureyri 20. október 2018. Sigurlaug var dóttir hjónanna Arnþrúðar Mar- grétar Jóhannes- dóttur, f. 25.7. 1931, d. 28.6. 2011, og Sigurðar Gunnlaugssonar, f. 24.8. 1929. Systkini hennar eru Aðal- björg Sigurðardóttir, f. 15.7. 1951, Gunnlaugur S. Sigurðs- son, f. 17.7. 1953, d. 23.9. 2009, Hulda Sigurðardóttir, f. 12.3. 1957, og Margrét Sigurðar- dóttir, f. 3.2. 1965. Börn Sigur- laugar eru 1) Bene- dikt Sigmar Emilsson, f. 5.11. 1981. 2) Ester Anna Emilsdóttir f. 2.8. 1984. 3) Emil Þorri Emilsson, f. 23.3. 1990, sam- býliskona hans er Sóley Björk Ein- arsdóttir. 4) Þor- kell Óttar Emils- son, f. 23.3. 1994, eiginkona hans er Sara Bene- diktsdóttir. Sigurlaug ólst upp í Kópa- vogi og gekk þar í Kársnes- skóla og Þinghólsskóla. Hún flutti ung norður til Akureyrar og átti þar heimili lengst af. Útför hennar fór fram í kyrr- þey. Haustið 1962 sótti pabbi mig í sveitina þar sem ég hafði dvalið síðan í maí. Hann færði mér þær fréttir að ég hefði eignast litla systur 28. september og að hann og mamma hefðu flutt heimili okkar í húsið sem þau voru að byggja á Kópavogsbraut. Hún litla systir mín var borin inn í fokhelt hús með einu máluðu herbergi, herbergi þar sem vagg- an hennar stóð og öll fjölskyldan svaf. Fyrir jól voru baðherbergi og eldhús innréttuð, öll herbergi máluð, hurðir komnar í allar dyr og meira að segja dyrabjalla. Fyrsta veislan í húsinu var haldin um jólin, þegar litla systir var skírð og nefnd Sigurlaug. Hverfið var að byggjast upp og hún systir mín með fallega rauða hárið átti marga leikfélaga því fullt var af krökkum í húsunum í kring og leiksvæðið móar, klapp- ir og hálfbyggð hús. Árið sem Sigurlaug fermdist héldum við Gísli til dvalar í Kaup- mannahöfn. Heimsókn til okkar var hennar fyrsta utanlandsferð. Það var gaman að upplifa allt með henni. Fara í Tívolí, á Bakk- ann, í dýragarð, í búðir og skilja ekki dönsku. Þegar við komum svo heim var Sigurlaug flutt til Akureyrar þar sem hún stofnaði heimili og eign- aðist börnin fjögur. Við settumst að á Ísafirði. Ísafjörður á hjara veraldar. Akureyri í þjóðbraut. Enda reyndi meir á gestrisni hennar en mína. Börnin á Ísafirði, Eiríkur, Greipur og Arnþrúður, stunduðu öll skíðaíþróttir. Skíðabörn á Ísa- firði voru árlega sett upp í flugvél ásamt fararstjóra og þjálfara og flogið til Akureyrar á Andrésar Andar-leikana og fleiri mót. Þá var gott að eiga frænku á Akur- eyri ef eitthvað vantaði, t.d. dýnu. Og þegar Þrúða braut á sér tána var það frænkan sem kom henni til læknis. Við fórum oft um Norður- og Austurland í sumarfríum. Alltaf komið við hjá Sigurlaugu. Nutum gestrisni hennar og barnanna og þess að hún var afbragðskokkur. Frændgarður okkar á Norður- landi er stór og var Sigurlaug í góðum tengslum við margt það fólk. Ekki var óalgengt að pabbi hringdi í mig og segði: Sigurlaug hringdi og sagði fréttir af frænd- fólki; fæðingu, giftingu, veikind- um og öðru fréttnæmu. Þannig tengdi hún okkur betur okkar fólki. Sigurlaug las mikið og símtöl okkar enduðu oft með því að verða bókaspjall. Nú verða þau samtöl ekki fleiri. Við Gísli og börnin sendum Benna, Ester Önnu, Emil Þorra og Þorkeli Óttari okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Aðalbjörg Sigurðardóttir. Sigurlaug Sigurðardóttir Elsku Víglundur frændi. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn heim til mömmu, afa og ömmu. Ég trúi því að við hittumst aftur þegar minn tími er kominn og hlutverki mínu er lokið. Og ég hlakka til. Það sagði einhver við mig um daginn að allir gegndu sínu hlut- verki hér á jörðinni og þú gegndir mikilvægu hlutverki í atvinnulíf- inu, fyrirtækjarekstri og í fjöl- skyldulífinu. Við í fjölskyldunni elskuðum þig og dáðum! Ég man þegar ég var fimm ára og við mamma og Arnar komum heim til Íslands þegar Steini afi var að deyja, þá hélst þú á mér í fanginu og það þótti mér voða gott. Við höfum alltaf verið mjög náin í gegnum tíðina. Þú tókst mér eins og ég væri heilbrigð manneskja þrátt fyrir fötlun Víglundur Þorsteinsson ✝ Víglundur Þor-steinsson fædd- ist 19. september 1943. Hann lést 12. nóvember 2018. Útför Víglundar fór fram 21. nóv- ember 2018. mína og trúðir á mig, fyrir það er ég mjög þakklát að ei- lífu. Við áttum góðar stundir saman hvort sem það var úti í náttúrunni eða fór- um í heimsókn til hvort annars. Elsku Víglundur, takk fyrir að koma til mín þegar þú varst nýkominn yfir og kveðja mig, mér þótti vænt um það. Ég finn mikið til með strákun- um þínum þremur og fjölskyld- um, megi allt það góða í veröld- inni vernda þau og styrkja í sorginni þeirra. Hvíl í friði, elsku frændi, þang- að til við hittumst aftur í eilífð- inni. Ást á lífinu Ég elska að lifa lífið er dásemd, andinn í okkur deyr aldrei hann lifir um eilífð. Ásta Dís Jenna Ástráðsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.