Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Stúdenta-
myndatökur
„Barnaþorpið“, ný skólamiðstöð í
jaðri regnskógar í Norður-Brasilíu,
hreppti hinn virtu alþjóðlegu RIBA-
arkitektúrverðlaun sem besta nýja
byggingin á jörðinni árið 2018. Bar
hún sigur úr býtum í samkeppni við
aðrar athyglisverðar nýbyggingar
sem valdar höfðu verið í úrslit sam-
keppninnar.
Hönnuðir Barnaþorpsins eru ungir
brasilískir arkitektar, Gustavo Ut-
rabo og Petro Duschenes frá hönn-
unarstofunni Aleph Zero, og unnu
þeir úr hugmyndum sínum í sam-
starfi við Marcelo Rosenbaum og
Adriana Benguela frá arkitektastof-
unni Rosenbaum.
Barnaþorpið hlýtur verðlaunin í
senn fyrir útlit og hagkvæmar lausnir
við byggingu og framkvæmd verks-
ins. Barnaþorpið er heimavist fyrir
um 540 ungmenni á aldrinum 13 til 18
ára sem sækja nám við Canuanã-
skólann. Nemendurnir koma allir frá
strjálbýlum héruðum og þurfa marg-
ir þeirra að sigla klukkustundum
saman eftir ám til að komast í skól-
ann. Byggingin var kostuð að Brad-
esco-stofnuninni en Barnaþorpið er
við einn fjörutíu skóla sem hún rekur
fyrir börn og ungmenni í strjálbýlum
landbúnaðarhéruðum Brasilíu.
Byggingarefni af svæðinu
Grunnhugmynd arkitektanna við
hönnun barnaþorpsins var að nota
arkitektúr sem tæki fyrir félagslega
umbreytingu. Þeir unnu í nánu sam-
tali við nemendur til að fá tilfinningu
fyrir þörfum þeirra og hugmyndum
um skólann. Þau vildu fá umhverfi og
aðstöðu sem byggi þeim heimili fjarri
heimilinu, og þar sem þau gætu notið
sín í senn sem einstaklingar og hluti
af samfélagi. Hluti af lausninni var að
byggja herbergi sem sex deildu í stað
eldri heimavistar þar sem 40 voru
saman í svefnherbergi. Þá voru al-
mannarýmin hönnuð með það í huga
að þar mætti njóta sín í senn við lær-
dóm, leiki og hvíld.
Barnaþorpið nær yfir um 25 þús-
und fermetra og eru meginálmurnar
tvær, ein fyrir pilta og önnur fyrir
stúlkur; á milli svefnálmanna eru þrír
skuggsælir garðar. Svefnherbergin
eru á jarðhæð og ofan á þeim ýmis-
konar leik- og samverurými, allt frá
lestrarrými og svæðum með hengi-
rúmum að sjónvarpsherbergjum.
Ein aðaláskorunin, þar sem hita-
beltisloftslag ríkir á svæðinu, var að
skapa nóg af svölum skugga. Dóm-
nefnd segir breitt þakið afar vel lukk-
að og opin rýmin í skugganum tengj-
ast ytra rými bygginganna á fallegan
hátt með góðu útsýni.
Þá er arkitektum hrósað fyrir góð-
ar lausnir með tilvísunum í hefðbund-
inn arkitektúr Brasilíu og hvað bygg-
ingarefni varðar. Hleðslusteinar voru
mótaðir úr leir af svæðinu og hlaðið
með loftrásum sem trekkir um, og þá
er viðurinn sem mótaður er fagurlega
allur af svæðinu, ódýrt efni sem hent-
ar vel í loftslaginu.
Barnaþorpið
best hannað
Ljósmyndir/Leonardo Finotti
Barnaþorpið Brasilíska skólamiðstöðin í jaðri regnskógarins var valin besta nýja bygging heimsins í ár.
Viðargrindur Áberandi viðurinn er
úr nágrenni heimavistarskólans.
Góðar lausnir Vel loftar um hvíldar- og afþreyingarrýmin sem eru ýmiskon-
ar, fyrir leik og störf og flest byggð ofan á svefnálmunum sem eru tvær.
Hreppti RIBA-arkitektúrverðlaunin
Efnið og andinn er yfirskrift Tón-
listarhátíðar Rásar 1 sem verður
haldin í Kaldalóni í Hörpu í kvöld,
föstudag. Dagskráin hefst með tón-
skáldaspjalli klukkan 18 en tónleik-
arnir sjálfir, sem eru um klukku-
stundar langir,
hefjast klukkan
18.30.
Á hátíðinni
verða frumflutt
fjögur ný ein-
leiksverk eftir ís-
lensk tónskáld,
sem öll fjalla – að
sögn Höllu Odd-
nýjar Magnús-
dóttur stjórnanda
hátíðarinnar –
um spurningar um samspil efnis og
anda á einn eða annan hátt. Á milli
tónverka hljóma stutt útvarpsverk
um sama efni, en þar heyrist meðal
annars upptaka af gömlum miðils-
fundi og hugleiðingar svæfinga-
læknis um meðvitundina. Tón-
skáldin eru Valgeir Sigurðsson,
Þuríður Jónsdóttir, Halldór Smára-
son og Finnur Karlsson. Valgeir og
Þuríður eru vel þekkt eftir áralang-
an og fjölbreyttan tónsmíðaferil, en
Halldór og Finnur eru fulltrúar
nýrrar og afar framsækinnar kyn-
slóðar tónskálda sem þegar eru far-
in að vekja athygli bæði hér heima
og erlendis. Hvert þeirra valdi sér
einn flytjanda til að treysta fyrir
nýja verkinu, en sum nýta sér einnig
rafhljóð til að auka við hljóðheim ak-
ústísku hljóðfæranna.
Tónskáldin semja líka með út-
varpið í huga og finnur hver sinn flöt
á því hvernig ný músík fyrir útvarp
ætti að hljóma.
Heildstæð hlustunarupplifun
Flytjendur verkanna eru Daniel
Pioro fiðluleikari, María Ösp Ómars-
dóttir þverflautuleikari, Una Svein-
bjarnardóttir fiðluleikari og Þór-
gunnur Anna Örnólfsdóttir söng-
kona.
„Það er ekki á hverjum degi sem
fjögur ný verk hljóma saman á tón-
leikum, en umgjörðin er líka dálítið
óvenjuleg – þematengd, og hugsuð
til þess að skapa heildstæða hlust-
unarupplifun fyrir áheyrendur, og
opna þeim þannig nýjar leiðir inn í
samtímamúsíkina,“ segir Halla
Oddný. Hún bendir á að hátíðin sé
líka knöpp í formi. „Það er von okk-
ar sem að henni stöndum að hún gefi
sem flestum færi á að koma og hlýða
á fallega og nýja tónlist í samhengi
sem er bæði opið og áhugavert.“
Frumflytja ný einleiks-
verk eftir íslensk tónskáld
Tónlistarhátíðin Efnið og andinn í Kaldalóni í kvöld
Valgeir Sigurðsson Halldór Smárason
Þuríður Jónsdóttir Finnur Karlsson
Halla Oddný
Magnúsdóttir