Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
AFP
Prag Ferðamaður tekur sjálfu í heimsborginni. Um 10 milljónir erlendra ferðamanna sækja Tékkland heim á ári.
Jaroslav
Knot
Denisa
Frelichová
flutti ávarp. Var það í fyrsta sinn
sem sendiherrar beggja landa voru
með sameiginlega móttöku á Íslandi,
eftir aðskilnað ríkjanna 1993.
Fræg vínhéruð og baðstaðir
Knot segir aðspurður að góðar
flugsamgöngur frá Tékklandi til Ís-
lands séu til þess fallnar að styðja
ferðaþjónustu og viðskipti landanna.
Tékkland hafi margt að bjóða ís-
lenskum ferðamönnum. Þar sé fleira
að sjá en hina vinsælu borg Prag.
„Unnendur góðra vína geta notið
góðra vína frá Suðaustur-Móravíu
en aðrir gætu kosið að láta fara vel
um sig á hinum heimsþekktu bað-
stöðum í Carlsbad, Marienbad eða
Luhaèovice,“ segir Knot.
Hann segir Ísland og Tékkland
eiga í nánum diplómatískum sam-
skiptum. „Tékkland er Nato-ríki
eins og Ísland og samstarfið ristir
djúpt. Til dæmis hefur tékkneski
flugherinn þrisvar sinnt loftrýmis-
gæslu á Íslandi,“ segir Knot.
Margir héldu með Íslandi
Hann segir Íslendinga eiga sér
marga velunnara í Tékklandi.
„Þegar íslenska karlalandsliðið
spilaði [á EM 2016] í Frakklandi
studdu Tékkar liðið. Margir Tékkar
urðu hugfangnir af fegurð hins
heillandi íslenska landslags. Ég
þekki jafnvel Tékka sem lét breyta
tékknesku nafni sínu til að heiðra Ís-
land. Þá má nefna að í Prag er
„klúbbur Íslandsaðdáenda“ en þar
kemur saman fólk sem hefur yndi af
íslenskri náttúru, menningu og bók-
menntum. Fyrir mig sem lögfræðing
eru íslensku hegningarlögin mikil-
væg. Grágás er enda eitt elsta lög-
skýringarrit Evrópu. Tékkar kunna
líka að meta Íslendingasögurnar og
glæpasögurnar,“ segir Knot sem
talar fimm tungumál, þar með talin
norska. Hann hefur áhuga á ís-
lenskunámi.
Margvísleg tækifæri í Slóvakíu
Eins og fjallað hefur verið um í
Morgunblaðinu eru nú um 160 ís-
lenskir læknanemar í háskólabæn-
um Martin í Slóvakíu. Rætt er um
„Litla-Ísland“, slíkur er fjöldinn.
Fram kom í Morgunblaðinu á dög-
unum að til skoðunar væri hvort
slóvakískunám á Íslandi yrði mögu-
lega styrkhæft úr uppbyggingar-
sjóði EES í Brussel. Rætt var við
Árna Pál Árnason, varafram-
kvæmdastjóra sjóðsins, í blaðinu.
Sagði hann hlutverk uppbygg-
ingarsjóðs EES í Brussel tvíþætt.
Annars vegar að draga úr félagslegu
og efnahagslegu misvægi í Evrópu.
Hins vegar að styrkja tvíhliða tengsl
framlagsríkjanna þriggja við við-
tökuríkið. Viðtökuríkin séu 15 tekju-
lægstu aðildarríkin innan ESB.
Öðlast alþjóðlega reynslu
Denisa Frelichová, sendiherra
Slóvakíu á Íslandi með aðsetur í
Ósló, segir starfsemi sjóðsins hafa
styrkt tengsl Slóvakíu og Íslands.
„Styrkirnir skapa tækifæri fyrir
opinberar stofnanir, fyrirtæki, rann-
sakendur, námsmenn, menningar-
geirann og fleiri aðila. Með þeim
geta styrkhafar öðlast mikilvæga al-
þjóðlega reynslu og sérfræðiþekk-
ingu. Íslendinga og Slóvaka bíða því
óendanleg tækifæri til samstarfs og
það gleður mig að við erum á fram-
sækinn hátt að dýpka samstarf á öll-
um sviðum: stjórnmálum, efnahags-,
mennta- og menningarmálum.
Á komandi styrkjatímabili viljum
við beina meiri athygli að því að auka
viðskipti ríkjanna og laða að meiri
erlenda fjárfestingu til Slóvakíu,
sem mælist samkeppnishæft land
sem er opið fjárfestum. Við erum
stolt af því að eiga framúrskarandi
háskóla og viljum dýpka akademískt
samstarf og efla námsmannaskipti
við Ísland. Við leitum tækifæra til
samstarfs þar sem Ísland hefur
sannað sig sem leiðandi á heimsvísu.
Þá einkum á sviðum á borð við um-
hverfisvernd og aukna notkun jarð-
varmaorku. Slóvakía er eitt þeirra
ríkja í Mið-Evrópu sem hafa mikinn
jarðvarma.“
Tækifæri í ferðaþjónustu
Frelichová segir ýmis tækifæri til
að efla samstarf ríkjanna í ferða-
þjónustu. Slóvakía hafi upp á margt
að bjóða og Ísland sé að styrkjast
sem áfangastaður fyrir ferðamenn
frá Slóvakíu. Slóvakar séu áhuga-
samir um íslenska menningu. Nær-
tækt dæmi sé tónlistarhátíðin „Hval-
ur“ sem haldin var í Bratislava í
síðasta mánuði (sjá www.hvalur.sk).
Loks rifjar Frelichová upp að Vigdís
Finnbogadóttir, forseti Íslands, hafi
verið fyrsti forsetinn sem heimsótti
Slóvakíu heim eftir að landið öðlaðist
sjálfstæði fyrir 25 árum. Slóvökum
sé heiður að heimsókn Vigdísar.
Vilja aukin viðskipti við Ísland
Sendiherra Tékklands á Íslandi segir Tékka áforma frekari innflutning á matvælum til Íslands
Sendiherra Slóvakíu á Íslandi segir slóvakísk stjórnvöld leggja áherslu á aukin viðskipti við Ísland
Útflutningur til Tékklands og Slóvakíu
2010 til 2018** í milljónum króna ásamt tölum um innflutning
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Útflutningur (fob-verð)* Slóvakía Tékkland
Innflutningur (cif-verð)* Slóvakía Tékkland
2.895
4.918
475
5.256
8.768
794
Samtals
2010-2018**
Útflutn-
ingur
Innflutn-
ingur
Slóvakía 7.832 23.283
Tékkland 5.225 52.917
*Cif = Kostnaður vörunnar við afhendingu,
að meðtöldum flutningskostnaði og
flutningstryggingu.
Fob = Verð vörunnar komið um borð
í flutningsfar í útflutningslandi.
**Fyrstu 9 mán. 2018.
Heimild: Hagstofa Íslands.
„Við erum að kanna hvort við getum notið aðstoðar
frá uppbyggingarsjóði EES við að setja upp grunn-
kennslu í slóvakísku og kynningu á slóvakískri menn-
ingu fyrir þá íslensku nemendur sem hafa staðist inn-
tökupróf í læknisfræðina í Slóvakíu,“ segir Þórir
Ibsen, sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi,
Tékklandi og Slóvakíu. Málið sé á undirbúningsstigi.
„Við höfum vilyrði frá slóvakískum samstarfs-
aðilum í málinu, þar með talið frá háskólanum,“ segir
Þórir sem væntir niðurstöðu á næstu vikum.
Verðmæti innflutnings frá Tékklandi til Íslands frá
árinu 2010 nemur um 53 milljörðum. Það er rúmlega tífalt verðmæti út-
flutnings frá Íslandi til Tékklands á sama tímabili. Verðmæti innflutnings
frá Slóvakíu til Íslands nam þá um 23,3 milljörðum og verðmæti útflutn-
ings frá Íslandi til Slóvakíu er um 7,8 milljarðar á þessu sama tímabili.
Kenni slóvakísku á Íslandi
NÁM GÆTI NOTIÐ STUÐNINGS STYRKTARSJÓÐS
Þórir Ibsen
Sími 551 8588 gullbudin.is
20%afsláttur
af öllum vörum*
*nema tilboðsvörum
Black Friday
Allan daginn 23. nóvember
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jaroslav Knot, sendiherra Tékk-
lands á Íslandi með aðsetur í Ósló,
segir mikinn áhuga í Tékklandi á að
auka innflutning matvöru til Íslands.
„Við viljum bjóða Íslendingum
framúrskarandi matvörur frá Tékk-
landi. Vel þekktir og vinsælir tékk-
neskir bjórar, á borð við Pilsner Ur-
quell og Budweiser, eru þegar á
boðstólum á íslenska markaðnum.
Nú erum við að skoða markaðinn
fyrir sælgæti og súkkulaði,“ segir
Knot sem var á Íslandi á dögunum
þegar þess var minnst að 100 ár voru
liðin frá stofnun Tékkóslóvakíu
haustið 1918. Af því tilefni var haldin
tónlistarhátíð í Hörpu þar sem Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,