Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Már Jónsson hafði umsjá með endur- útgáfunni og ritaði inngang að henni sem hér er vitnað í. Jón Thoroddsen innritaðist í Hafn- arháskóla 19. október 1841, rétt orð- inn 23 ára, og gekk í Hið íslenska bókmenntafélag fjórum vikum síðar. Líkt og aðrir íslenskir námsmenn bjó hann frítt á stúdentagarði við háskól- ann, svonefndum Garði (á dönsku Regensen), með mánaðarlegan fram- færslustyrk til fjögurra ára. Hann tók þátt í félagslífi Íslendinga og skrifaði 6. sept- ember 1842 undir ályktun um end- urreisn alþingis. Fáum vikum síð- ar féll hann á tveimur prófum við háskólann og tapaði bæði styrknum og herberginu. Þann 25. febrúar 1843 skrifaði hann undir aðra ályktun um endurreisn alþingis. Um sumarið fór hann til Íslands og var á Reykhólum 23. júlí þegar foreldrar hans gengu frá gagnkvæmri erfða- skrá sem fól í sér að það þeirra sem lengur lifði héldi eignarhlut þeirra í jörðinni til dauðadags. Prófunum náði hann um haustið, sem þýddi endurheimtan styrk og garðvist til næstu þriggja ára. Jón sat fundi Ís- lendinga um stjórnmál og 16. apríl 1844 skrifaði hann undir þakkarbréf til konungs, sem nú hafði ákveðið að allir embættismenn á Íslandi skyldu kunna íslensku. Frá hausti 1846 leigði hann herbergi úti í bæ, síðast í húsi við Nybrogade gegnt nýbyggðu safni hins hálfíslenska myndhöggv- ara Bertels Thorvaldsens. Þórður lést 10. nóvember 1846 og enn skrapp Jón til Íslands sumarið 1847 til að vera viðstaddur arfaskipt- in. Nam virði dánarbúsins eftir skuldir 1472 rd. 60 sk., sem var fimm- falt meira en meðalbóndinn átti á þessum árum. Helminginn átti Þórey og hafi verið farið eftir gildandi erfðalögum, sem er líklegt, fékk Jón tvöfaldan arf á móti systrum sínum eða 368 rd. 15 sk. Tæpur helmingur af því var hlutur hans í Reykhólum sem Þórey þó hélt til æviloka, Áður hafði Jón tekið arf eftir fóstra sinn Jónas Jónsson í Sælingsdalstungu, þar á meðal hálfa jörðina eða 30 hundruð að fornu mati; hafði Þórður selt þá eign 29. maí 1845 fyrir 1200 rd. Sé gert ráð fyrir því að íslenskur háskólanemi í Kaupmannahöfn hafi þurft um 200 ríkisdali á ári til fram- færslu og dægradvalar hafa þessir fjármunir átt að duga Jóni ágætlega, jafnvel þótt hann héldi sig vel. Bókmenntafélagið gaf út ársritið Skírni sem einkum flutti Íslend- ingum fréttir af erlendum vettvangi. Fjölnir hóf göngu sína árið 1835 og birti skáldskap ekki síður en upp- byggilegar greinar. Hann kom síðast út vorið 1847, helgaður minningu Jónasar Hallgrímssonar. Þar birtist í fyrsta sinn ljóð eftir Jón Thoroddsen og annað eftir Benedikt Gröndal, son Sveinbjarnar Egilssonar. Góður vin- ur þeirra Jóns og Benedikts var Gísli Brynjúlfsson og 27. febrúar 1848 átti hann frumkvæði að því efna til tíma- rits sem yrði helgað skáldskap og þeir myndu stjórna sjálfir. Hann var rétt orðinn tvítugur og Benedikt árinu eldri, en Jón nálægt þrítugu. Benedikt lýsti ferlinu síðar: „við fundumst í herbergi Jóns, og þar hundrifumst við Gísli, en Jón var allt- af að stilla til friðar, og ég gekk loks- ins frá öllu saman.“ Nafn tímaritsins lá fyrir 6. mars og skyldi það heita Norðurfari, enda ætlað lesendum á Íslandi. Þetta voru ákafatímar í dönskum stjórnmálum. Danakonungur var hertogi í Slésvík, sem heyrði undir danska konungsríkið, en líka í Holt- setalandi sem annars tilheyrði þýska ríkjasambandinu. Í báðum hertoga- dæmum voru uppi háværar kröfur um að þau fengju stjórnarskrá og að Slésvík yrði þá líka hluti af þýska sambandinu. Þann 24. mars 1848 samþykkti Friðrik sjöundi að Holt- setaland fengi stjórnarskrá en ekki Slésvík. Andsvar heimamanna var að stofna bráðabirgðastjórn og gátu dönsk stjórnvöld ekki sætt sig við það, heldur bjuggu út flota og land- her. Jón hreifst með og 31. mars bauð hann sig fram til herþjónustu. Á hádegi 19. apríl hélt hann ásamt öðr- um sjálfboðaliðum úr röðum há- skólanema frá Kaupmannahöfn og lá leiðin til Flensborgar á Suður- Jótlandi. Þaðan gekk hópurinn yfir nótt til Gottorp og strax að morgni hófst bardagi við þýskar hersveitir. Að eigin sögn, í bréfi til Brynjólfs Péturssonar 28. apríl, drap Jón þá einn mann og særði annan: „Þar held ég mig hafa sært prússneskan dáta sem ætlaði að skjótast yfir gerðið en ég skaut á hann og þá hvarf hann … Ég var á vinstra fylkingararmi og varð einna fyrstur til að skjóta og féll sá er fyrir varð.“ Í bréfi til Gísla 3. maí baðst hann afsökunar á því að hafa farið án þess að kveðja og sagð- ist mundu ganga aftur, félli hann, til þess eins að sjá Norðurfara. Ætla má að föðurarfur Jóns og andvirði Sælingsdalstungu hafi verið uppurin eigi síðar en í ársbyrjun 1849, því 20. mars bað hann móður sína um að útvega 500 ríkisdali, svo hann gæti „lokið af þessu langvaran- lega Exameni er svo margt hefur hingað til stutt að að hindra mig í“. Því miður útskýrir hann ekki þessar hindranir. Þórey gerði hvað hún gat og 24. maí gaf hún út skuldabréf fyrir 200 rd. úr föðurarfi þriggja barna Hildar dóttur sinnar. Þá upphæð hef- ur hún áreiðanlega sent Jóni. Þá efndi hún til uppboðs á Reykhólum 19. júní og hugðist selja búshluti og búfé, en engir komu. Á meðan á þessu stóð sat sonurinn við skriftir. Í Fjölni árið 1847 höfðu birst nokkrar stuttar sögur eftir Jónas Hallgrímsson, þar á meðal „Grasa- ferð“ og „Fífill og hunangsfluga“, sem vafalaust vöktu aðdáun yngri landa hans sem líka langaði til að skrifa. Gísli Brynjúlfsson hafði þá samið „Sögur afdalakarlsins“, stuttar og skemmtilegar. Hugur hans stóð til frekari afreka og 14. janúar 1848 fékk hann innblástur eftir viðdvöl í bókabúð: „Þegar eg sé þetta ógrynni bóka, langar mig til líka að rita bók, og alltaf styrkist hjá mér það áform að gera allt til þess eg geti búið til ís- lenzka smíðissögu. Væri hún vel skrifuð, yrði hún að komast í álit, því heimurinn er nú orðinn leiður á þessu eilífa frakkneska gutli.“ Hið göfuga markmið skáldsagnagerðar hafa þeir félagar vafalítið rætt sín á milli og eftir að Jón kom úr stríðinu lét hann á það reyna, með prýðilegum ár- angri, því enn þykir Piltur og stúlka vera skemmtileg og læsileg bók. Ekki er varðveitt minnsta slitur úr handriti eða próförkum að Pilti og stúlku og vonlaust að segja nákvæm- lega til um það hvenær sagan var skrifuð. Í æviágripi nafna síns árið 1876 fullyrti Jón Sigurðsson að skáldsagan hefði verið skrifuð vetur- inn 1848-1849 og prentuð veturinn eftir. Líklegra er þó að skriftir hafi tekið lengri tíma og öruggt að sagan tók nokkrum breytingum í með- förum, því til er í handriti ólík gerð „Búðarvísna“ og „Vögguvísu“, þar sem glittir í eldra stig skáldsög- unnar, sem þá hét Indriði og Sigríð- ur. Fullvíst er aftur á móti að Piltur og stúlka var prentuð í apríl 1850, eftir því sem fram kemur á varð- veittri kröfu frá prentaranum, Søren Lauritz Møller. Bókin er 146 blaðsíð- ur í litlu broti. Letrið er smátt en gott bil á milli lína þannig að textinn er þægilegur aflestrar. Á titilsíðu er höfundar ekki getið en útgefandi sagður vera Jón Þórðarson Thór- oddsen. Ámóta brellur voru alsiða á þessum árum og ýmist að höfundar birtu verk sín undir dulnefni eða þættust aðeins hafa gefið þau út. Upplagið var 500 eintök og prent- kostnaður 64 rd. 48 sk. Pappírinn hefur Jón þurft að borga aukalega og má ætla að hann hafi kostað 43 rd. en útgáfan þá samanlagt 107 rd. 48 sk. – fjórðungur föðurarfsins! Í Danmörku þótti gott ef bækur seldust í þetta mörgum eintökum. Íbúar í Kaup- mannahöfn voru um 130 þúsund tals- ins og í lesandi yfirstétt vart fleiri en 4000 manns, en til sveita nokkur þús- und prestar og aðrir menntamenn, auk aðalsmanna. Íslenskur bókamarkaður var ann- ars eðlis og lesendahópurinn líklega næstum því jafn stór, þrátt fyrir fá- mennið; árið 1840 voru Íslendingar 57 þúsund talsins og hafði fjölgað um tvö þúsund áratug síðar. Bændur og búalið lásu sér til skemmtunar og fróðleiks, einkum reyndar guðsorð, en ýmislegt annað barst um landið frá Reykjavík og Kaupmannahöfn. Annar árgangur Norðurfara hafði verið prentaður í 600 eintökum og Jón hefur gert sér vonir um að Piltur og stúlka næði svipaðri sölu. Til eru tölur um upplag bóka sem voru prentaðar í Viðey árin 1831-1844 og síðan í Reykjavík til ársloka 1846. Passíusálmarnir voru prentaðir í hvorki fleiri né færri en 2000 eintök- um árið 1832 og aftur í 2500 eintök- um fjórum árum síðar. Hugvekjur eftir þýska guðfræðinginn Christoph Christian Sturm (1740-1786) komu út í 1000 eintökum árin 1832-1833, en fyrsta bindið aftur í 2000 eintökum árið 1835 og hin tvö í 3000 eintökum þremur árum síðar. Stafrófskver ætl- að börnum var gefið út í 1000 eintök- um árið 1832 og aftur árin 1834 og 1835 í tvöfalt fleiri eintökum, en næst árið 1843 í 800 eintökum. Númarímur Sigurðar Breiðfjörð voru gefnar út í 2000 eintökum árið 1835 en Njáls saga í þúsund eintökum árið 1844. Þetta voru rit sem nutu hylli alþýðu á meðan árleg boðsrit Bessastaða- skóla, sem meðal annars geymdu Odysseifskviðu í þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar, komu út í 400- 500 eintökum. Jón hefur því heldur haft þann hóp lesenda í huga fyrir söguna fremur en allan almenning. Piltur og stúlka tók tvímælalaust mið af tilþrifum fremstu rithöfunda samtímans, danskra, enskra, þýskra og franskra. Jón Sigurðsson viðhafði þau orð árið 1876 að hún væri „fyrsta nýsaga, sem samin sé á Íslenzku“ og hafði í huga enska orðið „novel“. Um sérstöðu sögunnar miðað við íslenska sagnagerð áratugina á undan nægir að vísa í orð Steingríms J. Þorsteins- sonar frá 1943: „En Piltur og stúlka ber svo mjög af þessum tilraunum öllum til skáldsagnagerðar, bæði að byggingu, mannlýsingum, samræðu- stíl og raunar allri list, að telja verður hana tvímælalaust fyrstu íslenzku sögu í hinum nýja skáldsagnastíl.“ Söguefnið sótti Jón til Íslands, þótt ekki léti hann atburði gerast á heima- slóðum sínum vestanlands heldur á Austurlandi. Frásögnin hefst á hreppakrytum út af aldraðri ósjálf- bjarga konu sem mundi ekki hvar hún var fædd, enn að hætti Cerv- antesar sem í byrjun Don Kíkóta mundi ekki hvað þorpið hét þar sem sagan gerðist. Án efa lýsti Jón per- sónum sem hann þekkti og hafði hlið- sjón af stöðum þar sem hann hafði al- ið manninn á Reykhólum, í Sælingsdalstungu og á Hrafnagili, en ekki síst á Bessastöðum og í sjálfum höfuðstaðnum – og greinilegt er af ýmsum smáatriðum í bókinni að hún gerðist í samtímanum. Íslensk smíðissaga Jóns Thoroddsens Í tilefni af því að liðin eru 200 ár frá fæðingu Jóns Thoroddsens og 150 ár frá andláti hans var fyrsta skáldsaga hans og fyrsta íslenska skáldsagan, Piltur og stúlka, gefin út að nýju. Þessi útgáfa er frábrugðin fyrri endurútgáfum að því leyti að þetta er í fyrsta sinn sem frumútgáfa verksins, sem kom út 1850, er gefin út að nýju, en aðrar útgáfur byggjast á endurskoðaðri gerð Jóns af sögunni. Göfugt markmið Kristín Ólína Thoroddsen og Jón Thoroddsen með Þor- valdi, syni þeirra. Myndin er tekin í Reykjavík 1867. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.