Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hafnar eru framkvæmdir við endur-
bætur og stækkun á einu sögufræg-
asta húsi Reykjavíkur, Hafnarstræti
18. Húsið er að stofni til frá árinu
1795 en byggt hefur verið við það
margoft. Síðast voru þarna skemmti-
staðurinn D10 (Dúfnahólar 10) og
veitingastaðurinn Pizza Royal á jarð-
hæðinni.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
í september 2017 að auglýsa tillögu
að breytingu á deiliskipulagi Kvosar-
innar vegna lóðarinnar nr. 18 við
Hafnarstræti. Heimilað var aukið
byggingamagn, sem felst í að lyfta
núverandi húsi upp um 90 cm, byggja
kjallara undir það og nýja viðbygg-
ingu sunnan við húsið, kjallari og
tvær hæðir. Húsið er nú 680 fermetr-
ar en verður eftir breytinguna 1.020
fermetrar.
Þá var einnig heimilað að rífa
skúra á baklóðinni. Húsið sjálft er
friðað, enda talið hafa mikið varð-
veislugildi vegna menningarsögu og
mikilvægis í götumynd. Skúrarnir
eru ekki friðaðir.
Suðurhús ehf. er eigandi hússins.
Fyrirtækið mun sjálft annast endur-
bætur og breytingar, en kostnaður
við þær er áætlaður um 600 milljónir.
Feðginin Páll V. Bjarnason og Ólöf
Pálsdóttir, arkitektar hjá P ARK
teiknistofu sf., hönnuðu breytingarn-
ar. Ljúka á framkvæmdum við húsið
haustið 2019. Margir hafa sýnt því
áhuga að leigja í húsinu.
Hús flutt á lóðina árið 1795
Hafnarstræti var heppileg versl-
unargata. Bryggjur bæjarins voru
þar hjá og kolum m.a. skipað þar á
land. Í húsakönnun Minjasafns
Reykjavíkur frá 2006 er saga hússins
Hafnarstræti 18 rakin. Chr. A. Jacob-
æus kaupmaður lét flytja hús á lóðina
frá Keflavík árið 1795. Húsið sem
hann flutti var einlyft og lét hann inn-
rétta sölubúð í öðrum endanum en
íbúð í hinum, eins og þá var siður.
Jacobæus lét síðan flytja annað hús á
lóðina frá Keflavík og reisti það rétt
vestan við hitt húsið og var ekki nema
örlítið bil á milli þeirra. Hann lét síð-
an reisa nýtt hús þvert við vesturgafl-
inn á þessu húsi og fram með Kola-
sundi.
P.C. Knudtzon kaupir húsin árið
1838. Samkvæmt virðingagjörð frá
1844 var verslunarhúsið grindarhús
með múrsteinum í grind, klætt lista-
súð og málað á norður- og austur-
hliðum, en hinar hliðarnar tvær voru
tjargaðar. Borðaþak var á húsinu.
Auk verslunarhússins var pakkhús á
lóðinni, Norðurpakkhúsið. Fyrir
sunnan var salt- og kolageymsla.
Sunnar á lóðinni var Suðurpakkhúsið
og íbúðarhús frá 1818.
Martin Smith kaupir árið 1852
búðina og Norðurpakkhúsið ásamt
kola- og saltgeymsluhúsi sunnan við
pakkhúsið. Íbúðarhúsið og Suður-
pakkhúsið var selt Sigurði Melsted
kennara 1854. Smith lét sameina
sölubúðina og geymsluhúsið og setja
síðan sameiginlegt þak á öll þrjú hús-
in með kvistum. Smith reif gamla
kolageymsluhúsið sunnan við búðina
árið 1867 og byggði nýtt í staðinn. Ár-
ið 1891 eignaðist B. Muus og Co. hús-
in og var þá verslunin kölluð Nýhöfn.
Ditlev Thomsen eignaðist húsið um
aldamótin og lét hann endurbæta það
árið 1904 og var það þá járnklætt.
Breytt í tímanna rás
Húsinu hefur verið breytt í tím-
anna rás. Gluggar á neðri hæð hafa
verið stækkaðir og dyrum breytt. Ár-
ið 1924 var sett á það mansard þak og
þakhæð hússins breytt og hún hækk-
uð. Árið 1950 var sett viðarklæðning
á neðri hæð hússins og gluggum
breytt. Húsinu var enn breytt árið
1984 en þá var settur inngangur og
gluggar á austurgafl hússins.
Minjastofnun Íslands heimilaði
niðurrif skúranna með þeim skil-
yrðum að fornleifafræðingur hefði
eftirlit með jarðraski og kæmu forn-
leifar í ljós þyrfti að rannsaka þær áð-
ur en framkvæmdir héldu áfram.
Nokkrar ástæður eru taldar mæla
með hækkun hússins. Það er áber-
andi lægst í umhverfinu og myndi
sóma sér mun betur ef því væri lyft.
Hafnarstræti 16 er t.d. nokkuð hærra
eða tvær hæðir og ris.
Sögufrægt hús endurbyggt
Framkvæmdir eru hafnar við endurbætur og stækkun á Hafnarstræti 18 Húsið er að stofni til
frá 1795 og þar voru þekktir kaupmenn með starfsemi Varðveislugildi vegna menningarsögu
Staðan í dag Iðnaðarmenn eru byrjaðir að vinna að endurbótum. Þeirra
bíður mikið verk eins og sjá má. Húsið á að verða tilbúið haustið 2019.
Tölvumynd/Onno ehf.
Framtíðarútlit Svona mun húsið líta út að breytingum loknum. Ekki er víst
að þessi litur verði á húsinu. Það var síðast rautt en þar áður ljósgrænt.
Húsin við austasta hluta Hafnarstrætis hafa flest verið
endurnýjuð á undanförnum árum sem og gatan sjálf.
Þegar endurbyggingu Hafnarstrætis 18 lýkur á næsta
ári verður þetta ein glæsilegasta gata Reykjavíkur.
Húsið lengst til hægri á myndinni, Hafnarstræti 16,
er að stofni til frá árinu 1824. Árið 1880 var það hækk-
að um eina hæð þannig að það varð tvílyft með miðju-
kvisti fram að götu eins og fólk þekkir það í dag. Húsið
er í dag miðstöð myndlistarmanna. Svarta húsið fjærst,
Hafnarstræti 20, var byggt 1977. Það stingur í stúf við
önnur hús og væri til mikilla bóta að mála það ljósum
litum eins og það var upphaflega. Vinstra megin, á lóð-
unum Hafnarstræti 17-19, voru gömul og ónýt hús rif-
in. Þeirra í stað byggði Suðurhús ehf. ný hús af miklum
myndarbrag. Þar er m.a. að finna glæsihótel, Reykja-
vík Konsúlat hótel og veitingastaðinn Gott.
Morgunblaðið/sisi
Verður ein glæsilegasta gata borgarinnar
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron
sameinar tvo heima
Þú kemst á raforkunni einni saman í flestar
ferðir með allt að 50 kílómetra drægni,
eftir það tekur sparneytin bensínvélin við.
Verð frá 4.560.000 kr.
Til afhend
ingar strax
Eigum nokkra Audi A3 e-tron á einstöku tilboðsverði.