Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Langar þig í ný gleraugu BLACK FRIDAY Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mannskæðasta slys íslenskrar flug- sögu varð fyrir 40 árum þegar Flugleiðaþotan Leifur Eiríksson, TF-FLA, brotlenti í aðflugi að Kat- unyake-flugvelli við Colombo á Sri Lanka að kvöldi 15. nóvember 1978. Flugvélin var í pílagrímaflugi og að koma frá Jeddah í Sádi-Arabíu. Millilent var á Sri Lanka áður en haldið yrði áfram til Surabaya á Jövu í Indónesíu. Vélin var af gerðinni Douglas DC-8 og um borð voru 249 indónes- ískir pílagrímar og 13 Íslendingar, þar af átta manna áhöfn, alls 262 manns. Í slysinu fórust 183, þar af átta Íslendingar og 175 Indónesar. Þetta var þá fjórða mesta flugslys sögunnar. Vont veður var á Sri Lanka þeg- ar flugvélin kom þangað, þrumur og eldingar og mikið vatnsveður. Vélin fékk lendingarleyfi eftir að hafa hringsólað nærri flugvellinum um stund. Rétt áður en flugvélin brotlenti var hreyflum hennar gefið fullt afl. Svo kom mikill hvellur og högg og flugvélin brotnaði í þrjá hluta. Annar vængurinn rifnaði af og eldur kviknaði þar sem flugvélin kom niður í skógi, um tvo kílómetra frá enda flugbrautarinnar, að því er segir í bók Óttars Sveinssonar, Út- kall, Leifur Eiríksson brotlendir (Reykjavík, 2006). Fimm Íslendingar komust af Fimm Íslendingar lifðu flugslysið af, misjafnlega mikið slasaðir. Þau voru Harald Snæhólm, flugstjóri, og flugfreyjurnar Jónína Sigmars- dóttir, Kristín E. Kristleifsdóttir, Oddný Björgólfsdóttir og Þuríður Vilhjálmsdóttir. Þau eru enn á lífi. Íslendingarnir sem voru í áhöfn þotunnar og fórust voru: Haukur Hervinsson, 42 ára flugstjóri. Hann lét eftir sig eiginkonu og tvö börn. Guðjón Rúnar Guðjónsson, 38 ára flugmaður. Hann lét eftir sig eigin- konu og þrjú börn. Ragnar Þor- kelsson, 55 ára flugvélstjóri. Hann lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Erna Haraldsdóttir, 38 ára flug- freyja. Hún lét eftir sig eiginmann. Sigurbjörg Sveinsdóttir, 37 ára flugfreyja. Hún lét eftir sig eigin- mann og eitt barn. Þrír Íslendingar voru skráðir farþegar í þessari ferð og fórust einnig. Þeir voru: Ásgeir Pétursson, 48 ára yfirflugstjóri. Hann lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Ólafur Axelsson, 47 ára deild- arstjóri í flugdeild Flugleiða. Hann lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Þórarinn Jónsson, 52 ára forstöðu- maður flugdeildar. Hann lét eftir sig eiginkonu og fjögur börn. Þjóðin var harmi slegin Slysið varð um klukkan 18.00 að íslenskum tíma þann 15. nóvember og fengu aðalstöðvar Flugleiða fregnir af slysinu um klukkan 22.00 um kvöldið, að því er fram kom í Morgunblaðinu. Ekki er ofsögum sagt að þjóðin hafi verið harmi slegin þegar fréttist af slysinu. Fánar blöktu hvarvetna í hálfa stöng og hugur landsmanna var hjá aðstandendum þeirra sem fórust og þeim sem af komust. Þeirra sem létust var m.a. minnst á Alþingi og aðstandendum sendar samúðar- kveðjur. Lík sjö Íslendinganna sem fórust komu heim að kvöldi sunnudagsins 19. nóvember. Fjöldi fólks var þá samankominn á Reykjavíkur- flugvelli. Á meðal viðstaddra voru ættingjar og vinir hinna látnu, for- ystumenn Flugleiða, samgöngu- ráðherra, ýmsir embættismenn og fjöldi einkennisklæddra flugmanna og flugfreyja. Lúðrasveit lék sorg- arlög og var athöfnin alvöruþrung- in og hátíðleg. Kisturnar voru sveipaðar íslenska fánanum og var þeim raðað upp við flugvélina. Flugliðar báru kisturnar að líkbíl- um sem óku þeim að Fossvogs- kirkju þar sem haldin var minning- arathöfn. Íslendingarnir sem komust af úr slysinu komi flestir heim 27. nóv- ember. Búnaður flugvallarins bilaður Formleg rannsókn flugslyssins var í höndum yfirvalda á Sri Lanka. Íslensk og bandarísk flug- málayfirvöld voru ekki sammála niðurstöðu rannsóknarnefndar Sri Lanka, að því er fram kemur á Wikipedia. Íslensk lofthæfiyfirvöld sendu sérfræðinga út til Sri Lanka vegna rannsóknar flugslyssins og gáfu síðan út skýrslu um orsakir slyss- ins sem nú er hægt að lesa á síðu Rannsóknarnefndar samgöngu- slysa (rnsa.is). Helsta orsök slyss- ins var rakin til óstöðugs aðflugs- hallageisla (ILS) sem olli því að hann var skakkur eða boginn. Aðrir meðvirkandi þættir voru að radar- flugumferðarstjórinn hefði gefið flugmönnunum rangar upplýsingar um fjarlægð og hæð. Veðurað- stæður voru slæmar og bæði með- vindur og niðurstreymi til staðar í lokaaðflugi. Þá hafi tilkynninga- þjónusta til flugmannanna (NO- TAM) verið ófullnægjandi. Fram kemur í Útkallsbókinni að tækjabúnaður flugvallarins hafi verið í mjög slæmu ástandi og bil- anir tíðar. Viðhald á blind- aðflugstækjunum og ástand þeirra hefði verið óviðunandi og aðflugs- ljós vantaði. Íslensku rannsóknar- mennirnir komust að því að flug- menn hefðu kvartað yfir blind- aðflugsbúnaði flugvalllarins bæði fyrir og eftir flugslysið. Hvorki var tilskilið eftirlit né heldur virkt eftirlits- eða viðvörunarkerfi til staðar á flugvellinum. 40 ár frá flugslysinu á Sri Lanka  Mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu var þá 4. stærsta flugslysið  183 fórust í slysinu, þar af átta Íslendingar  Fimm Íslendingar lifðu slysið af  Bilaður flugleiðsögubúnaður á flugvellinum Morgunblaðið/RAX Sorg Athöfnin á Reykjavíkurflugvelli þegar kistur sjö þeirra sem fórust í flugslysinu komu heim var alvöruþrungin. Starfsfólk Isavia fagnaði í gær níu milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár. Í frétt frá Isavia segir að hann hafi komið til landsins frá Pittsburg í Bandaríkj- unum með flugvél Wow Air. Hinir heppnu eru Olive Ho frá Hong Kong og Chun Liang Li frá Taívan. Þau millilentu á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun en héldu síðan áfram för sinni til Kaupmannahafnar. Þau voru leyst út með gjöfum frá Bláa lóninu og veitingastaðnum Hjá Höllu. Í frétt Isavia segir að þau hafi verið afar ánægð með mót- tökurnar við komuna til landsins, sem hafi eðlilega komið þeim mjög á óvart. Eftir Olive Ho er haft að hún hafi einu sinni áður komið til Íslands en muni sannarlega gera sér ferð aftur hingað til lands. Níu milljón farþegar hafa nú það sem af er árinu farið í gegnum Keflavíkurflugvöll og er það í fyrsta sinn sem því takmarki er náð. Þar er samtals um að ræða komu-, brottfarar- og skipti- farþega. Flug Grétar Már Garðarsson, viðskiptastjóri, Gunnhildur Erla Vilbergs- dóttir, deildarstjóri, Olive Ho, Chun Liang Li, Ólöf S. Lárusdóttir, verkefnastjóri, og Gunnar K. Sigurðsson, markaðsstjóri Isavia. Níu milljónasti farþeginn í Leifsstöð  Aldrei fleiri farþegar um flugvöllinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.