Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 14

Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ásíðustu misserum höfumvið bryddað upp á ýms-um nýjungum í starf-seminni hér þannig að við getum komið betur en ella til móts við fólk í nærumhverfi þess, gert þjónustuna skilvirkari, dregið úr álagi á sjúkrahúsin og nýtt fjárveitingar sem best. Heilsu- gæslan er í örri þróun um þessar mundir,“ segir Óskar Reykdals- son, framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins. Heimsóknum fjölgar Komur á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu, sem eru alls nítján, voru á síðasta ári 488.193 talsins auk margvísleg- arar þjónustu annarrar sem veitt er í gegnum síma, netið eða með öðrum móti. Heimsóknum fjölgaði um 4% milli áranna 2016 til 2017. Kemur þar meðal annars íbúa- fjölgun og eins að fólki er í vax- andi mæli beint til heilsugæsl- unnar enda er oft betra að sinna málunum þar en á sjúkrahúsi. Í dag hefur heilsugæslan á höf- uðborgarsvæðinu úr 7,5 millj- örðum króna að spila á ári hverju og hafa fjárveitingarnar verið auknar talsvert síðustu ár. „Á hverri heilsugæslustöð er- um við alltaf með einn lækni og hjúkrunarfræðing sem aðeins sinna bráðamálum. Gjarnan koma um 50 sjúklingar á dag á neyð- arvaktina á hverri stöð og þá er útkoman 1.000 manns á dag. Oft eru þetta til dæmis foreldrar með veik börn, almenn slys eins og tognanir og sár eftir áverka, pestir og slíkt. Reynslan hefur sýnt að 95% þessara verkefna getum við sinnt á bráðavakt okkar og við sendum þá sem við ráðum ekki við áfram eftir þörfum. Þannig þarf fólk ekki að leita annað,“ segir Óskar. Síðdegisvakt er á öllum stöðv- um, þar sem fólk fær þjónustu vegna bráðra veikinda eða erinda sem ekki þola bið. Hliðstæð síð- degisþjónustu er morgunvakt eins og sett var á laggirnar í sumar við heilugæsluna í Árbæjarhverfi. Móttaka sú er opin frá kl. 8.30- 10.00 og þar standa tveir til þrír læknar vaktina auk hjúkr- unarfræðinga. Óskar segist vænta að með þessari vakt eflist þjónusta á Árbæjarstöð og álag yfir daginn jafnist, til dæmis í vetur þegar inflúensan skellur á. „Það er okkar markmið að sinna öllum svo fólk fái úrlausn síns vanda,“ segir hann. Heilsugæslan á höfuðborgar- svæðinu starfar eftir rekstrarlíkani sem tekið var í gagnið á síðasta ári. Í einföldustu mynd er upp- bygging þess sú að fjárveitingar fylgja sjúklingnum. Sé sá til dæmis eldri borgari sem glímir við fjöl- þættan vanda fær heilsugæslustöð- ina fjárveitingu samkvæmt þjón- ustu sem viðkomandi þiggur. Sé sjúklingurinn á besta aldri og vandamál hans aðeins fá og tilfall- andi eru fjárveitingarnar minni sem því nemur. Reynslan af þess- ari fjármögnun segir Óskar að sé góð og réttlát. Skráningar á stöðu hvers sjúklings ráði því hvaða fjár- munir fáist og þar hangi á spýt- unni að gæðastarf í heilugæslunni hafi verið styrkt. Efld geðheilbrigðisþjónusta „Meðal efldra þátta í starfsemi okkar er geðheilbrigðisþjónustan,“ segir Óskar. Í dag eru sálfræð- ingar komnir til starfa á öllum heilsugæslustöðvum á höfuðborgar- svæðinu og í fyrstu hefur þunginn verður settur í þjónustu við börn og unglinga. Í framtíðinni er svo ætlunin að bjóða upp á að minnsta kosti fyrstu skrefin í meðferð fyrir fullorðna við þunglyndi, kvíða og slíku. Að undirbúningi þess og ann- ars er unnið meðal annars á vegum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu sem nýlega var sett á laggirnar og þjónar öllu landinu. „Í þjónustu við aldraða þurfum við að gera breytingar,“ segir Ósk- ar. Hann telur æskilegt að heilsu- gæslan sjái alfarið um greiningar á elsta fólkinu, því sem er yfir átt- rætt, og er með minnistruflanir. Eru það einstaklingar sem í fram- haldinu þurfa hugsanlega á aðstoð að halda til dæmis í heimahúsum eða á hjúkrunarheimili. Að heilsu- gæslan sjái um þetta verkefni geti flýtt fyrir meðferð. Einnig verði að sinna betur eldra fólki sem verður fyrir byltum og brotnar, enda sé slíkt oft vísbending um meiri veik- indi og að eitthvað alvarlegt sé að. Getan er vanmetin „Heilsugæslan gæti að mestu sinnt þeim rannsóknum og undir- búningi sem gera þarf áður en fólk fer í aðgerðir. Hver eru helstu gildi, rannsóknir og almenn heilsu- farsstaða fyrir skipulagðar aðgerð- ir? Allt þetta þarf að liggja fyrir áður en fólk leggst á bekkinn og sumir líka þurfa að koma sér í form og hreyfa sig svo líkaminn sé sem best undirbúinn því inngripi sem til dæmis svæfingin er. Já, geta heilsugæslunnar til að sinna algengum veikindum er klárlega vanmetin, svo ég nefni nú bara af handahófi algeng vandamál til dæmis of háan blóðþrýsting, þvag- færasjúkdóma, sykursýki og fleiri sjúkdóma sem svo margir glíma við,“ segir Óskar að síðustu. Heilsugæslan er í örri þróun Þjónustan sé í nær- umhverfi fólksins. Heilsu- gæslan er vanmetin og getur sinnt fleiri verk- efnum. Morgunvakt í Árbæ gefur góða raun. Fjárveitingar auknar en meira þarf til, segir forstjóri lækninga. Morgunblaðið/Hari Læknir Það er markmiðið að sinna öllum sem til okkar leita og vinna með öll verkefni þannig að fólk fái úrlausn síns vanda, segir Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Staðan í heilsugæslunni í dag er á margan hátt góð. Í dag eru á landinu öllu alls 47 læknar í sér- námi í heimilislækningum og þar af 35 á höfuðborgarsvæðinu, sem gerir okkur bjartsýn á framtíð- ina,“ segir Óskar Reykdalsson. Á síðustu 3 árum hefur stöðum sér- fræðinga í heimilislækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðsins verið fjölgað úr 80 í rúmlega 100 og tvær nýjar heilsugæslustöðvar verið opn- aðar; það er á Höfðanum í Reykjavík og Urðarhvarfi í Kópa- vogi. „Fjölgunin er nærri 30 sér- fræðilæknar og það munar um minna. Við teljum æskilegt að fjölga í svipað og í Danmörku eða 75 lækna á hverja 100.000 íbúa,“ segir Óskar. Bætir við að skýrt sé þó að á Íslandi þurfi að gera bet- ur í heilbrigðismálum, en í dag er til þeirra varið um 9% af vergri landsframleiðslu. Í nágrannalönd- unum sé hlutfallið víða um 11%. „Heilsugæslan hér fær mun minni fjármuni en í öðrum lönd- um. Samt erum við ágætlega sett með fjölda heimilislækna, en hér eru þeir um 60 á hverja 100 þús- und íbúa sem er svipað og í Sví- þjóð, en nokkru hærra í Dan- mörku. Á Íslandi þurfum við hins vegar í ríkari mæli aðrar fag- stéttir í heilsugæsluna, svo sem lyfjafræðinga, sjúkraþjálfara, fé- lagsráðgjafa og fleiri og vonandi fáum við svigrúm til þess.“ Þurfum nýjar fagstéttir LÆKNASTÖÐUM Í HEILSUGÆSLU HEFU VERIÐ FJÖLGAÐ Mennta- og menn- ingarmálaráðherra hefur enn ekki borist tillaga frá Minjastofnun um friðlýsingu Víkur- garðs, hins forna kirkjugarðs í miðbæ Reykjavík- ur. Kristrún Heiða Hauksdóttir, upplýsingafulltrúi ráðu- neytisins, staðfesti þetta í gær. Það var 15. október sem Minja- stofnun tilkynnti að hún hefði ákveðið að hefja undirbúning tillögu til ráð- herra um friðlýsinguna. Bréf um áformin var sent öllum hagsmuna- aðilum. Engin svör fást hjá Minja- stofnun um stöðu málsins og segist stofnunin ekki ætla að veita neinar upplýsingar fyrr en ákvörðun ráðherra liggi fyrir. Víkurgarður Erindi um frið- un ekki borist Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Nýjustu jólalínurnar 10% afsláttur fimmtud.-laugard. DIMMALIMMDimmalimmReykjavik.is Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 BLACK FRIDAY föstudag og laugardag 30% afsláttur af úlpum 20% afsláttur af öllu öðru Skoðið úrvalið á facebook

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.