Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 36
Heimsstyrjöldin fyrri, tíu lykildagsetningar
28. júní
1914
28. júlí - 4. ágúst
1914
6. - 9. september 1914
Yfir 180.000 falla í liði bandamanna
í orrustunni um Dardanellasund
25. apríl
1915
til janúar 1916
Yfir 400.000 þýskir
hermenn og hermenn
bandamanna láta lífið
í orrustunni um Somme
Bandaríkin
ganga til liðs
við bandamenn
Framrás Frakka
stöðvuð við
Chemin des Dames.
Margir gerast
liðhlaupar
25. febrúar til
desember 1916
1. júlí til
nóvember 1916 6. apríl 1917
16. apríl til 9. maí
1917 3. mars 1918
11. nóvember
1918
FRAKKLAND
BRETLAND
BELGÍA
París
Moskva
Verdun
Orrustan umMarne
Orrustan
um Somme
Sarajevó
Dardanellasund
Rethondes
ÍTALÍA
ÞÝSKALAND
AUSTURRÍKI-
UNGVERJALAND
RÚSSLAND
BÚLGARÍA
RÚMENÍA
SERBÍA
SVISS
GRIKKLAND
ALBANÍA
OTTÓMAN-
KEISARADÆMIð
Bandamenn
Mið-
veldin
Hlutlaus
Serbneskur þjóðernissinni myrðir
austurríska erkihertogann Franz-Ferdinand
í Sarajevó í Serbíu
Frakkar gera gagnárás
í orrustunni um Marne.
Yfir 100.000 falla úr
hvorri fylkingu
Skrifað undir Brest-
Litovsk sáttmálann.
Lenín nær völdum
eftir rússnesku
byltinguna 1917 og
skrifar undir vopna-
hléssamning í desember
Skrifað undir
vopnahlés-
samning
í Rethondes
kl. 11 að morgni
Stríðinu lýkur
Austurríki-Ungverja-
land lýsir stríði á
hendur Serbíu,
Þjóðverjar á hendur
Rússlandi og Frakk-
land og Bretland á
hendur Þýskalandi
Yfir 300.000 falla
í orrustunni um
Verdun
Brest-Litovsk
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í starfi sínu sem prófessor í nútíma-
sögu við University College Dublin
verður Robert Gerwarth áþreifan-
lega var við hve fjarlæg fyrri heims-
styrjöldin virðist í hugum ungs
fólks. Þeir sem
eldri eru höfðu
einhverja teng-
ingu við stríðið, og
áttu kannski afa
og ömmu, langafa
eða langömmu
sem fengu að
kenna á hörmu-
legum afleiðing-
um stríðsins á eig-
in skinni. „En
fyrir þá sem fæddust á 10. áratug
síðustu aldar er fyrri heimsstyrjöld-
in í raun alveg jafn fjarlæg og mið-
aldir,“ segir hann. Robert verður á
meðal fyrirlesara á alþjóðlegu mál-
þingi Rannsóknarsetursins EDDU
og Sagnfræðistofnunar Háskóla Ís-
lands sem haldið verður í Þjóðminja-
safni Íslands í dag og hefst klukkan
13. Hann mun m.a. fjalla um þær
landamærabreytingar, sem urðu í
kjölfar fyrri heimsstyrjaldar, og
hvernig enn má greina áhrif fyrra
stríðs í mörgum af þeim fréttum
sem við lesum í blöðunum í dag.
Djúp sár sögunnar
Að mati Roberts kann að vera
áhyggjuefni hvernig þau átök sem
geisuðu í Evrópu á fyrri hluta síð-
ustu aldar hafa færst úr fersku
minni fólks yfir í sögubækurnar.
„Við erum orðin mjög vön þeirri
hugmynd á Vesturlöndum að Evr-
ópa sé friðsæl heimsálfa, en af og til
koma gamlar átakalínur í ljós og
minna okkur á að hvað áföll sög-
unnar rista djúpt. Þeir árekstrar
sem urðu t.d. á milli Úkraínu og
Rússlands á Krímskaga eiga upphaf
sitt í ákvörðunum sem teknar voru
við lok fyrri heimsstyrjaldar, og
sama má segja um stríðið sem geis-
aði á Balkanskaga á 10. áratugnum.“
Raunar má halda því fram, segir
Robert, að Evrópa hafi náð að jafna
sig mun betur á seinni heimsstyrj-
öldinni en þeirri fyrri. Seinni heims-
styrjöldin hafi snúist um átök ólíkr-
ar hugmyndafræði á meðan sú fyrri
hafi umfram allt verið styrjöld á
milli stórvelda sem mörg liðu í kjöl-
farið undir lok og molnuðu í smærri
einingar sem leiddi af sér mikið um-
rót jafnt í stjórnmálum og efnahags-
málum.
Hlustað á bergmálið
Mikilvægt er, að mati Roberts, að
minna á aðdraganda og afleiðingar
fyrri heimsstyrjaldar til að geta skil-
ið betur vandamál samtímans.
„Sagnfræðingar hafa oft á orði að þó
svo að sagan endurtaki sig ekki þá
sé ýmislegt sem bergmálar aftan úr
fortíðinni. Er t.d. gott að ekki
gleymist að við lok fyrri heimsstyrj-
aldar koma mörg lönd Evrópu á lýð-
ræðislegu stjórnarfari í fyrsta sinn,
en á innan við 10-15 árum voru al-
ræðisstjórnir komnar til valda í
mörgum þeirra. Rétt eins og dæmin
sanna að ófriður getur brotist út í
Evrópu þegar síst væntir þá er ekki
hægt að taka frjálslyndu lýðræði
sem sjálfsögðum hlut og víða í Mið-
og Austur-Evrópu eru stjórnmálin
núna að taka á sig alræðislegan
blæ,“ útskýrir Robert. „Sagan kenn-
ir okkur að lýðræði og friður er eitt-
hvað sem við þurfum að standa vörð
um, og getum ekki gengið að sem
vísu.“
Sagnfræðin veitir ýmsar vísbend-
ingar um hvað gæti þurft að varast
svo að ekki fari allt á versta veg. Ro-
bert segir t.d. að þau lönd sem tóku
upp lýðræði eftir fyrri heimsstyrjöld
en umbreyttust síðan í alræðisríki
hafi iðulega verið þau lönd sem lutu í
lægra haldi í styrjöldinni og sátu
uppi með þunga klafa vegna ákvæða
Versalasamningsins. „Hjá þeim
þjóðum sem stóðu uppi sem sigur-
vegarar hafði farsæl niðurstaða
heimsstyrjaldarinnar þau áhrif að
gefa lýðræðinu ákveðinn lögmætis-
stimpil. Þetta vantaði hjá þjóðunum
sem töpuðu stríðinu og fyrir vikið
áttu alræðishugmyndir auðveldara
uppdráttar. Það létti heldur ekki
undir með lýðræðislega kjörnum
fulltrúum sigruðu þjóðanna hve frið-
arsamningar voru íþyngjandi.“
Robert bendir líka á að öfgafólk
eigi yfirleitt auðveldara með að
finna hugmyndum sínum meðbyr
þegar illa árar í efnahagslífinu. Eftir
fyrra stríð hafi stór hluti Evrópubúa
liðið skort og verið móttækilegri en
ella fyrir alls kyns áróðri og lýð-
skrumi. „Við sjáum svipaða hluti
gerast eftir fjármálahrunið 2008 og
vegna mikils innstreymis flótta-
manna vegna átakanna fyrir botni
Miðjarðarhafs. Eins og hendi sé
veifað sæta pólitíkusar færis með
öfgastefnu bæði á vinstri og hægri
ás stjórnmálanna,“ segir Robert en
bætir við að góðu fréttirnar séu þær
að það virðist draga allan mátt úr
öfgafólkinu þegar efnahagsástandið
batnar. „Þá hættir boðskapur þeirra
að vera jafn sannfærandi enda finnst
kjósendum ekki lengur að sér
þrengt.“
Óvæntar beygjur
Að þessu sögðu þá má læra það af
sögubókunum að fólk má ekki sofna
á verðinum. Robert nefnir t.d. Brex-
it sem nýlegt dæmi um hvernig
stjórnmálin geta óvænt tekið skarpa
beygju til verri vegar. „Og víða um
heim sjáum við hvernig internet og
samfélagsmiðlar geta virkað eins og
olía á eld öfga- og ranghugmynda,
og þurfa þær skoðanir sem koma
fyrir sjónir almennings ekki lengur
að fara í gegnum síu hefðbundinna
fjölmiðla,“ segir Robert og þykir
merkilegt að sjá hvað fólk lætur út
úr sér í netheimum. „Að skoða t.d.
athugasemdasvæðið hjá fjölmiðlum
fær mann til að spyrja sig hvers
konar hugmyndir hafa mallað undir
yfirborðinu en fá núna vettvang til
að fljóta upp á yfirborðið,“ segir
hann. „Lausnin er alls ekki að beita
ritskoðun, en ég held það sé brýnt
að við hugleiðum vandlega hvernig
við mótum umræðuna og leyfum
hugmyndum að þróast og breiðast
út á öld samfélagsmiðla.“
Áhrifa fyrra stríðs gætir enn
Á margan hátt hefur Evrópa jafnað sig betur á seinni heimsstyrjöldinni en þeirri fyrri Sumar
af þeim línum sem dregnar voru á landakortið árið 1918 eru pólitískar átakalínur dagsins í dag
Robert
Gerwarth
AFP
Fjarlæg Fyrri heimsstyrjöldin virð-
ist ungu fólki mjög fjarlæg.
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Lambhagavegur 8 og 10
8
10
Byggingarréttur til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í tvær
atvinnulóðir, Lambhagaveg 8, sem er 3.391 m2
og Lambhagaveg 10, sem er 3.115 m2
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar eru á vef Reykjavíkurborgar.
Tilboðum skal skila til þjónustuvers Reykjavíkurborgar fyrir
kl. 14.00 fimmtudaginn 6. desember 2018.