Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 44

Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 44
44 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Að vera eða vera ekki, það er spurningin, sagði Hamlet í sam- nefndu leikverki eftir Shakespeare. Spurði hvort betra væri að lifa eða deyja. Samskonar spurning blasti við kílógramminu í síðustu viku er ákveðið var að breyta skilgreiningu þess. Fékk það að deyja en var þó eiginlega gefið líf samstundis aftur, án þess að nokkur yrði þess var. Í grafhvelfingu undir hertoga- höllu í hlynskógi vestur af Parísar- borg er varðveittur í innsigluðu rými hlutur á stærð við epli sem ákvarðar þyngd jarðarinnar. Mót- aður með vísindalegt og pólitískt umrót í kjölfar Frönsku bylting- arinnar að bakgrunni hefur litli platínu- og iridín-hólkurinn hvílt þar. Að mestu hefur hann verið látinn í friði síðustu 130 árin, þessi nákvæma viðmiðun fyrir kíló- gramm. Hin alþjóðlega frumgerð kíló- sins, „Le Grand K“ eða Stóra K eins og það er þekkt fyrir að vera, er ein af helgustu menjum vís- indanna; hlutur sem allar aðrar þyngdir eru bornar saman við – og tótem metrakerfisins sem kom til sögunnar á tímabili frelsis, jafn- réttis og bræðralags. Vegsamaður sívalningur Svo dýrt hefur sívalningurinn verið vegsamaður að hann hefur aðeins fjórum sinnum verið vigt- aður frá 1889. Og hvelfinguna í Pa- villion de Breteuil-höllinni, sem geymir hann, má einungis opna þegar þrír handhafar lyklanna að henni snúa lásnum samtímis. Verða þeir að vera af þremur mis- munandi þjóðernum. En nú er svo komið að sívalning- urinn er að missa einstaka stöðu sína. Hundruð vísindamanna hvar- vetna að úr heiminum skunduðu í síðustu viku til Versala á 26. alls- herjarráðstefnuna um mál og vog. Þar stóð til að skipta Stóra K-inu út fyrir allsherjarformúlu sem skilgreinir kílógramm á grundvelli skammtasviðsfræðinnar. Með því myndu þeir standa við heit sem gefin voru við stofnun metrakerfis- ins um að viðhalda einu kerfi í þágu alls fólks. „Kílógrammið er síðasta mæli- einingin sem grundvallast af efnis- legum hlut,“ sagði Thomas Gren- on, framkvæmdastjóri frönsku mælingafræðistofnunarinnar, í að- draganda ráðstefnunnar í glæsisöl- um Versala. „Vandinn er að kílóið hefur átt líf, það gat sveiflast að vog. Sem er ekki viðunandi miðað við þá nákvæmni sem við gerum kröfur til nú til dags.“ Hvað er í sekúndu? Þegar metrakerfið kom til sög- unnar seint á 18. öld varð það hlutskipti vísindamanna að kerfis- binda, skrá og setja í skipulegt kerfi, eina formgerð sem tjáði vegalengd, tíma, rafmagnsferla og efnismassa í svipuðum yfirfæran- legum mælieiningum. Þeir skil- greindu metra sem einn tugmillj- ónasta úr fjórðungsgeira kvaðrants jarðar þar sem hann rann gegnum París. „Við horfum nú um öxl og get- um sagt að ferlið sem þeir fóru í gegnum var tiltölulega gott og við myndum ekki fara mjög ólíkt að í dag,“ sagði Martin Milton, for- stjóri frönsku stofnunarinnar BIPM, (Bureau International des Poids et Mesures), sem er alþjóð- legur verndari mælikerfa jarðar- búa. Metrinn var brúkaður til að skil- greina efnismagn; hversu mikið rúmdesímetri (10 cm x 10 cm x 10 cm) af vatni vó. Upp frá því var sá massi nefndur kílógramm. Vísindunum hefur fleygt fram frá því á dögum byltingarinnar í París 1789. Metrinn er nú skilgreindur út frá því hversu langt ljós ferðast í tómarúmi á broti úr sekúndu. Sjálf sekúndan var skilgreind með skír- skotun í snúning jarðar en frá 1960 hefur hún opinberlega verið skilgreind sem tíminn sem það tekur sesín-133 atóm að gjögta ná- kvæmlega 9.192.631.770 sinnum, hvorki oftar né sjaldnar. Í staðinn fyrir að rekja það til efnismagns einstaks hlutar verður kílóið í framtíðinni skilgreint á grunni Planck-fastans sem hlutfall af skammtaorku sem tíðni ljóss getur borið til þessarar sömu tíðni, eða 6.626 x 10-34 joule-sekúndur. Orka tengist efni eðlislægt, eins og Einstein sýndi fram á með jöfn- unni E = mc2. Milljón sinnum stöðugra Planck-fastann ásamt tveimur skammtafræðifyrirbærum sem gera ráð fyrir myndun raforku, er hægt að nota til að útreikna massa á sömu vélrænu orkunni og þarf til að færa hann úr stað. „Ýtir þú við massa er orkan sem þarf til þess háð honum. Hana má byggja algjörlega á raf- orku sem skammtaorku fastarnir leggja okkur til,“ sagði Milton við AFP. Fylgjendur þessarar nálg- unar segja útkomuna að minnsta kosti milljón sinnum stöðugri en efnislæg mannasmíði og muni hafa víðtækt notagildi í framtíð- inni. „Fyrir margan búnaðinn er kílógramm afar mikill massi,“ sagði Milton. Framfarir í lyfja- og efnafram- leiðslu hafa leitt til þess að íblönd- unarefni lyfja eru í vaxandi mæli mæld í míkrógrömmum og jafnvel enn nákvæmar en það. „Eitt kíló er ágætt fyrir kart- öflur þar sem ekki er mikil þörf á nákvæmni í vigtun. En það er ekki rétta þyngdarmiðið fyrir margt í kröfuharðri vísinda- starfsemi og nákvæmnisiðnaði. Nýja kerfið leyfir óendanlegar hlutfallalausnir, sagði Milton Allir sammála Á ráðstefnunni í Versölum lá líka fyrir vísindamönnunum að breyta því hvernig amper (raf- straumur), kelvin (hitaeining) og mól (massi atóms) eru skilgreind með skírskotun til náttúrulögmál- anna. Milton sagði þá ákvörðun vera aðferð til að tryggja að alls staðar á byggðu bóli myndu menn alltaf vera sammála um hvað kílógramm nákvæmlega væri – hvort sem um væri að ræða sykursekk, lítra vatns eða nákvæma skammtatölu. „Við búum í veröld þar sem fólk óttast að þróunin í átt til marg- hliða samfélaga væri að stöðvast og jafnvel snúast við. Öðru máli gegnir í mælingavísindunum, hér koma löndin saman og sammæl- ast,“ sagði hann. Hvað Stóra K varðar kann svo að vera að það hafi ekki hentað lengur sem hið fullkomna kíló- gramm. En framlag þess til vís- indanna er fráleitt búið. „Það verður áfram hér í graf- hvelfingunni, við sömu aðstæður og allar götur frá 1889. Það verð- ur hér til varanlegra tilrauna því við munum vigta það komandi áratugi til að sjá hvernig það bregst við aðstæðum. Stóra K verður áfram áhugaverður efnis- bútur í augum vísindanna,“ sagði Milton. Að vera eða vera ekki kíló  Vísindamenn geta nú mælt hversu mikla skammtaorku þarf til að færa massa úr stað  Með því eru útreikningar á mæliþyngdum orðnir miklum mun nákvæmari AFP Vísindamaður frönsku mælingastofnunarinnar BIPM við útjaðar Parísar hugar að kibble voginni, rafvog sem mælir þunga hlutar af afar mikilli ná- kvæmni út frá styrkleika rafstraums og spennu. Frumgerð kílósins var framleidd á níunda áratug nítjándu aldarinnar og var 90% platína (pt) og 10% iridín (Ir). Í millitíðinni hefur BIPM framleitt rúmlega 80 eftirgerðir af Pt/Ir sívalningnum. Hvað er kíló þungt? Heimild: BIPM AFP mynd/BIPM Inniheldur 90% platínu og 10% iridíum Alþjóðleg frumgerð Varðveitt undir þremur gler- hjálmum í alþjóðastofnun um mælieiningar (BIPM) nálægt París Búin til 1889 Léttist um 50 míkrógrömm, 0,000005 grömm á 129 árum Síðasta mælieiningin sem er mæld gagnvart ákveðnum efnislegum hlut fyrir alla fagurkera... Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is HEIMILI & HUGMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.