Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Ég skrifa þessa
grein vegna þess að ég
og fjölskylda mín vilj-
um að mál Áslaugar
Perlu Kristjónsdóttur,
sem lést eftir að henni
var hrint yfir handrið
á svölum á 10. hæð
fjölbýlishúss við Engi-
hjalla árið 2000, verði
endurupptekið.
Greinina má lesa í
heild sinni á vef Morgunblaðsins
www.mbl.is/greinar en hér birtist
einungis útdráttur úr þeirri grein.
Eftirfarandi eru rökin fyrir því
að við viljum fá málið endur-
upptekið:
„Þegar við pabbi Áslaugar Perlu
fórum til lögreglunnar var okkur
sagt að blúndunærbuxur hennar úr
satíni hefðu fundist í rassvasa
handtekna, tættar í sundur á báð-
um hliðum. Gallasmekkbuxur henn-
ar girtar niður að hnjám og önnur
krækjan á þeim skemmd. Hún var í
þrennum glænýjum fatnaði; galla-
smekkbuxunum, nærbuxunum og
íþróttaskóm.
Ákærði var handtekinn, upp úr
klukkan tíu þennan laugardags-
morgun í íbúð hálfsystur sinnar
sem bjó í kjallaranum. Þá viður-
kenndi hann fyrir lögreglu að bera
ábyrgð á láti Áslaugar Perlu; hótaði
síðan að drepa lögregluna og börn
hennar þegar hann losnaði eftir 15-
20 ár, vegna þess verknaðar er
hann hefði framið núna.
Útdráttur úr fyrstu yfirheyrslu
30. maí. Þá voru mörg sönnunar-
gögn komin fram:
Eins og játning ákærða. Nýleg
för af húðfitu, á röri
handriðs, handaför á
sitt hvorum enda þess
og langt fitufar í miðið
eftir líkama. Ljósmynd
af stúlku upp við hand-
riðið, sem náði henni
um brjóst, hún jafnhá
Áslaugu Perlu. Á
brunastigapalli ljós-
mynd af veski hennar
og fótspor eftir
ákærða. Þaðan inn-
angengt frá svölum.
Stærð svala 150x155
sm. Hæð handriðs 120 sm. Samt
voru engin gögn lögð fram. Ákærði
vill ekki svara hvort til átaka hafi
komið á milli þeirra áður en hún
féll niður. Í lok yfirheyrslu segist
hann ekki vilja segja af hverju
þetta gerðist og ekki heldur hvern-
ig það gerðist, en hann eigi sök á
því að stúlkan féll fram af. Rann-
sóknari spurði ekki neitt út í þessar
fullyrðingar.
Önnur yfirheyrsla 31. maí, úr-
dráttur:
Spurður hvaða nærbuxur fundust
tættar í sundur í rassvasa hans?
Það eru hennar. Hvers vegna rifn-
ar? Ég reif þær. Hvernig? Það er
bara eitt orð yfir það: harkalegt
kynlíf. Þá spyr rannsóknari hvort
hann eigi við að um kynmök hafi
verið að ræða. Hún vildi hætta,
sagði ákærði. Ég var að fara, hún
kom og var að æsa sig og ég bara
hrinti henni. Man ekki hvað hann
gerði eftir það. Hvar var hann er
hann hrinti stúlkunni? Ég var hjá
svölunum eða eitthvað, ég man það
ekki. Hvernig sneri stúlkan er hún
fór fram af svölunum? Bakinu að
mér, brjóstinu að svölunum. Sagði
gallasmekkbuxurnar hefðu verið
girtar upp um hana. Honum ekki
sagt að réttarlæknir sagði þær þétt
vafðar um ökkla og kálfa og þannig
dregnar niður áður en hún lenti á
jörðunni, þær féllu þétt að fótleggj-
um hennar. Ekki bent á að hann
hafi skilið eftir sig fótspor á bruna-
stigapalli og veski Áslaugar Perlu.
Annar karlmaður yfirheyrir 6.
júní, útdráttur:
Ég get ekki sagt að þau hafi ver-
ið rædd, en þessi kynmök sem áttu
sér stað voru með hennar sam-
þykki. Spurður hvort hann hafi
sjálfur girt niður um hana smekk-
buxurnar, eða hún sjálf: Ég man
það ekki. Honum ekki bent á að
buxurnar voru tættar utan af henni
með afli eins og nærbuxurnar. Töl-
urnar til hliðar á smekkbuxunum
voru hnepptar og á sínum stað.
Þær féllu að mittinu. Tölurnar voru
boltaðar niður, þess vegna sáust
engin ummerki um átök á tölum
eða tölufestingum. Vinstra axla-
bandið var ekki losað af tölunni á
smekknum heldur afli beitt. Hvert
fóru þau eftir að komið var úr lyft-
unni: Ég man það ekki. Hvort
þeirra ýtti á lyftuhnappinn? Ég
man það ekki. Kannast ekki við að
axlabandið hafi verið skemmt.
Lögreglan skoðaði áverka og
fatnað og tók ljósmyndir. Það voru
tíu áverkar, blóð á sumum þeirra
og á fatnaði hans. Áverkar komu
hvergi fram; hvorki í yfirheyrslum
lögreglu né í héraðsdómi:
1. Klór á hægri kinn.
2. Hægra megin á hálsi.
3. Framanverðri öxl.
4. Neðan við hægra brjóst.
5. Á framanverðri vinstri öxl.
6. Við vinstra brjóst. Þar fannst
blóð á íþróttatreyju Á.
7. Aftan við vinstra eyra, blóð-
kögglar í sárinu.
8. Á miðju baki. Þar fannst einn-
ig blóð á íþróttatreyju Á.
9. Neðarlega á baki. Þar fannst
blóð bæði á nærbuxum og
íþróttatreyju Á.
10. Á framhlið síðbuxna hans
voru sýnileg óhreinindi á
vinstra hné og hægra læri.
Áverkar á Áslaugu Perlu: Rispur
í andliti og úlnliðssvæði utanverðu.
Skrámur á fingrum og hnúum. Mar
á vinstri framhandlegg utanverðum.
Mar á hægri og vinstri olnboga aft-
anvert. Marblettur 2,5-3 sm í þver-
mál á enni, auðsjáanleg risastór
kúla við kistulagningu. Afrifa á ytri
kynfærum; 1 sm á breidd 4 sm á
lengd. Hæstiréttur gefur sterklega
í skyn að dóttir mín hafi samþykkt
þessa afrifu, en hún kom þegar
ákærði reif nærbuxurnar undan
henni.
Áslaug Perla og ákærði fóru út
úr leigubíl fyrir utan blokkina
klukkan 10 mínútur fyrir níu. Þau
þekktust ekki neitt. Hún hélt hún
væri að fara í partí. Vitni í héraði.
Fyrir utan lyftuna á tíundu hæð
veittist hann að henni af svo mikl-
um offorsi og afli að hann náði með
einu átaki að þröngva hnausþykk-
um gallasmekkbuxunum niður um
hné. Hún skall aftur fyrir sig í gólf-
ið og fékk marblett á hægri og
vinstri olnboga aftanvert.
Henni tókst ekki að standa upp
aftur, því hún var fjötruð um fætur,
en náði að sparka í hann með öðr-
um fæti á vinstra hné og hinum á
hægra læri. Ákærði gerði strax
aðra atlögu; tætti þá nærbuxurnar í
sundur á báðum hliðum með offorsi
og enn aðra þar sem hann reif þær
undan henni og stakk þeim síðan í
rassvasann. Á framhlið síðbuxna
hans voru sjáanleg óhreinindi á
vinstra hné og hægra læri. Sjáanleg
óhreinindi á utanverðri bakhlið
nærbuxna hennar og blóðkám í
klofbót þeirra. Afrifa á ytri kynfær-
um, 1x4 sm.
Það fannst eingöngu DNA-snið af
lim hans í leggöngum hennar. Hann
hélt limnum ekki inni, þá kreppti
hann hnefann og kýldi hana af öllu
afli í ennið. Þar sást risastór kúla
við kistulagningu. Ekki hægt að
skilgreina áverka eftir höggið, því
höfuðkúpan brotnaði.
Áslaug Perla missti meðvitund.
Hann tók hana í fangið. Við hand-
riðið rankaði hún við sér og rak upp
skelfingaróp. Íbúi á 9. hæð hrökk
upp af svefni við öskur, heyrði
hvorki sagt neitt né öskrað á móti.
Ákærði lagði hana á magann á
handriðið og þröngvaði líkama
hennar yfir það. Hún féll 26 metra
niður á steinsteypta stéttina.
Íbúi fór að horfa á Með afa með
börnum sínum, sem hófst kl. níu.
Hann var nýbyrjaður, þegar hann
varð þess var að eitthvað féll
framhjá glugganum. Hann heyrði
mikinn dynk: Áslaug Perla dó kl.
níu. Leigubílstjórinn kom heim til
sín um kl. níu, sagði það 10 mínútna
akstur.“
Meira: www.mbl.is/greinar
Eftir Gerði
Berndsen »Ég og fjölskylda
mín viljum að
mál Áslaugar Perlu
Kristjónsdóttur
verði endurupptekið.
Gerður Berndsen
Höfundur er móðir Áslaugar Perlu.
Morðið við Engihjalla 27. maí 2000
Sjónaukar fyrir leikhús
Verð frá 16.900
Red Bull Paddock
með vandaðri Fire Race linsu
Verð 7.950
Bollé íþróttagleraugu
Verð 24.890
Einnig til með golflinsu
Flottar gjafir
í jólapakkann
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Ray Ban round metal
Verð 19.950
Julbo fjallagleraugu
Verð 19.850
Landrover Conwy sólgleraugu
með Polarized linsu
Verð 18.900
Red Bull Lesmo
með vandaðri Fire Race linsu
Verð 9.950