Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 84

Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 84
Sönn vinátta sigrar allt Tinna trítlimús og Vargur í Votadal bbbmn Texti: Aðalsteinn Stefánsson Myndir: Ingi Jensson Bókabeitan, 2018. 58 bls. Um er að ræða bók í bókaflokki sem kallast Ljósaserían og er ætl- uð börnum sem eru að æfa sig í lestri. Letrið í bókinni er frekar stórt og það loftar ágæt- lega um text- ann sem ger- ir hana auðlesnari fyrir vikið. Sagan fjallar um músastelpuna Tinnu og kanínustrák- inn Kola sem leggja upp í svaðilför til að sækja hjartagras, lækningajurt fyrir veika ömmu Tinnu. Þau vita að margar hættur leynast á leið- inni og þá sérstaklega í Votadal þar sem hjartagrasið vex, en þar ræður svangur fálki ríkjum. Litlu munar að illa fari, en með útsjón- arsemi og hjálp frá rjúpna- fjölskyldu ná smádýrin takmarki sínu. Þegar Tinna og Koli skila sér loksins aftur heim eru allir orðnir hræddir um þau. Fullorðnu dýrin brýna fyrir þeim að þetta megi þau ekki gera aftur en hetjudáð þeirra er engu að síður fagnað. Ágætis jafnvægi á milli eðlilegra skamma fyrir að stelast í burtu og fagnaðarláta fyrir vel unnið verk. Sögusviðið er Heiðmörk, sem mörg börn kannast við og því auð- velt fyrir þau að glöggva sig á að- stæðum og sjá fyrir sér umhverfið. Hugljúf og spennandi saga, en helsti boðskapur hennar er að með samvinnu og sannri vináttu sé hægt að yfirstíga stór og erfið verkefni. Ævintýraleg útilega Pétur og Halla við hliðina – Útilegan bbbnn Texti: Ingibjörg Valsdóttir Myndir: Auður Ýr Bókabeitan, 2018. 49 bls. Útilegan er önnur bókin um þau Pétur og Höllu í bókaflokknum Ljósaserían, sem ætluð er ungum lesendum sem eru að ná tökum á lestrinum. Líkt og í öðrum bókum seríunnar er textinn í stærri kant- inum og letrið þægilegt aflestrar. Pétur og Halla fá leyfi til að fara ein í útilegu rétt fyrir utan bæinn þar sem þau búa. Þau ætla að hafa það notalegt, fara í berja- mó, borða nestið sitt og sofa í tjald- inu. Foreldr- arnir ítreka við þau að fara varlega og hafa sím- ann við hönd- ina ef eitt- hvað skyldi koma upp á. Krakkarnir gera nú ekki ráð fyrir að þess gerist þörf og kippa sér því lítið upp við það þeg- ar síminn dettur í ána og skemm- ist. Þá byrja ævintýrin hins vegar fyrir alvöru. Við fylgjumst með baráttu Péturs og Höllu við skrímsli með horn, sem reynist þó ekki alveg jafn ógurlegt og þau töldu í fyrstu. Þá ber óvæntan gest að garði sem þau gleðjast bæði innilega yfir að sjá. Bókin er bæði spaugileg og spennandi. Hún nær að kitla hlát- urtaugar yngstu lesendanna, en er þó svolítið lengi í gang og lítil spenna er í atburðarásinni fyrr en hún er vel hálfnuð. Þá verður tölu- verður hasar. Höfundur hefur einfaldleikann að leiðarljósi í texta bókarinnar og orðanotkunin hæfir mjög vel ung- um lesendum. Sögupersónurnar útskýra sjálfar nokkur orð sem koma upp og gætu vafist fyrir þeim yngstu. Bókin hentar því vel börnum sem eru nýbyrjuð að lesa sjálf. Spennandi en þung á köflum Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni bbmnn Texti: Jenný Kolsöe Myndir: Bergrún Íris Bókabeitan 2018. 59 bls. Aron Magni og afi hans og nafni virðast sækja í ótrúleg ævintýri án þess að ætla sér það sérstaklega, en þetta er þriðja bókin um þá nafna í bókaflokknum Ljósaserían sem ætluð er yngstu lesendunum. Um er að ræða spennusögu sem nær því að verða frekar óhugnanleg á tímabili, en inn í ótrú- lega atburða- rásina flétt- ast saga af fallegu sam- bandi afa og barnabarns. Aron Magni og afi ferðast um í húsbílnum hans afa og í þessari bók halda þeir að Kleifarvatni með viðkomu í Strandarkirkju. Þeir fara reyndar ekki strax að kirkj- unni heldur kíkja í heimsókn til að bíða af sér hóp ferðamanna, því afa líkar ekki vel við ferðamenn. Röfl afa yfir ferðamönnunum hefði reyndar alveg mátt missa sín því sú sena virðist ekki hafa neinn til- gang. Þá virðist það heldur ekki hafa neinn tilgang fyrir söguna að Aron Magni skuli óska sér í kirkj- unni, en við fáum aldrei að vita hver óskin var. Þær ætla sér að eiga notalega stund í húsbílnum við Kleifarvatn en um morguninn þegar þeir vakna virðist ekki allt með felldu úti á vatninu. Skyndilega rísa tvö skrímsli þar upp úr og jörðin leik- ur á reiðiskjálfi með þeim afleið- ingum að allt hreyfist úr stað og sprungur myndast. Aron Magni og afi kastast til í bílnum og afi fótbrotnar illa. Það verður því verðugt verkefni fyrir Aron Magna að hjálpa afa og sama tíma reyna að flýja undan ógurlegu skrímslunum. Að lokum sér hann ekki annan kost í stöðunni en að skilja afa eftir í bílnum og hlaupa eftir hjálp og stendur uppi sem hetja fyrir vikið. Bókin er svo sannarlega spenn- andi og ætti að halda ungum les- endum ágætlega við efnið, sér- staklega þegar atburðarásin nær hámarki. Texti bókarinnar er hins vegar stundum ívið þungur og fyrir koma orð sem ég efast um að ungir lesendur viti hvað þýða. Til dæmis þegar talað er um rúðuþurrkur sem „vinnukon- urnar“, bolla sem „fanta“ og hvað þá þegar þeir fá sér „Sæmund í sparifötunum“ með kaffinu. Fjörið tekur völdin Korkusögur bbbbn Texti: Ásrún Magnúsdóttir Myndir Sigríður Magnúsdóttir Bókabeitan 2018. 59 bls. Korkusögur er safn af nokkrum smásögum um hina hugmyndaríku og orkumiklu Melkorku Þöll, sem alltaf er kölluð Korka, nema þeg- ar hún gerir eitthvað af sér. Sem gerist reyndar nánast í öllum sög- unum, enda er hún algjör prakk- ari og gjörn á að koma sér í vand- ræði. Þó yfirleitt alveg óvart. Bókin er hluti af bókaflokknum Ljósaserí- unni fyrir yngstu les- endurna. Sögurnar af Korku eru allar mjög fjörugar og fjalla um hin ýmsu upp- tæki hennar, til dæmis þegar hún ákveður að fara að hoppa á tram- pólíninu um miðja nótt þegar fjörið í maganum tekur völdin og hún getur ekki sofið lengur. Svo ákveður hún að búa til leikvöll með sandi inni í herberginu sínu þegar hún á að vera að taka til og reynir að flýja út um gluggann þegar mamma skipar henni að ryksuga. Einn daginn dettur henni í hug að hún geti orðið góð- ur fallhlífarstökkvari og ætlar að nota stóran bol af pabba sem fall- hlíf. Mamma nær sem betur fer að stoppa hana af áður en hún fer sér að voða. Uppátæki Korku eru skemmti- leg og vekja kátínu lesenda. Sög- urnar eru þægilega stuttar og henta því vel þeim eru að byrja að lesa og hafa ekki mikið úthald. Þá er textinn frekar einfaldur og auðlesinn og ef erfið orð koma fyrir þá eru þau útskýrð fyrir Korku af einhverjum fullorðnum. Lesandinn ætti því aldrei að þurfa að staldra við orð sem hann skilur ekki. Korkusögur eru því tilvaldar fyrir káta og uppá- tækjasama krakka sem þurfa stundum að hemja fjörið í mag- anum með því að setjast niður og lesa. Bækur fyrir káta krakka Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is Vinátta Mynd eftir Inga Jensson úr Tinna Trítilmús og Vargur ı́ Votadal. 84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is LeIðIsKrOsS SeM ÞOlIr ÍSlEnSkA VeÐRÁTtU! VERÐ 8.990 KR.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.