Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
595 1000
Jólalottó Heimsferða
Njóttusólarumhátíðarnar
TenerifeeðaGran Canaria
Aðeinsörfásæti laus
Frá kr.
199.995
Frá kr.
149.995
20. 21. og 22. desemberBirtm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Útboði fyrir NATO lokið
Framkvæmdir við flugskýli kafbátaleitarvéla í Keflavík hefjast á næsta ári
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Útboðinu er lokið og verður til-
kynnt um niðurstöðuna á næstunni.
Búast má við að framkvæmdir hefj-
ist svo á nýju ári,“ segir Sveinn H.
Guðmarsson, upplýsingafulltrúi
utanríkisráðuneytisins.
Vísar hann í máli sínu til fyrirhug-
aðra framkvæmda á vegum Banda-
ríkjahers á öryggissvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli. Er um að ræða tvö
verkefni, annars vegar hönnun og
verkframkvæmd vegna breytinga á
flugskýli 831 og hins vegar hönnun
og byggingu sjálfvirkrar þvotta-
stöðvar fyrir flugvélar. Breytingarn-
ar á flugskýli 831 munu felast í end-
urnýjun á hurð flugskýlisins og
rafkerfi sem flugvélar tengjast við.
Flugvélaþvottastöðin sem hanna á
og reisa verður sjálfvirk þvottastöð
og nýtist hún einkum við að skola
sjávarseltu af kafbátaleitarvélum
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Breytingar fyrir nýja gerð véla
Flugskýli Atlantshafsbandalags-
ins á Keflavíkurflugvelli hefur verið
notað fyrir P-3 Orion eftirlitsflugvél-
ar, sem hafa haft það verkefni að
fylgjast með ferðum rússneskra kaf-
báta í Norður-Atlantshafi. Skýlið
rúmar hins vegar ekki nýja tegund
eftirlitsvéla, svonefndar P-8 Posei-
don, og því þarf að ráðast í breyting-
arnar. Nýju vélarnar eru byggðar á
Boeing 737-800 og eru þær búnar
helstu nýjungum í könnunarbúnaði.
Þá segir Sveinn einnig í gangi út-
boð sem tekur til stækkunar á flug-
hlaði til vesturs á Keflavíkurflug-
velli. „Útboðið tekur til fram-
kvæmda á vestursvæði og viðhalds á
þotuskýlum sem finna má þar við,“
segir Sveinn og bætir við að útboð-
inu ljúki á vormánuðum næsta árs.
Morgunblaðið/Arnaldur
Varnarsamstarf Eldri gerð leitar-
véla, svonefnd P-3 Orion, í Keflavík.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Langir biðlistar eru eftir sálfræði-
þjónustu á heilsugæslustöðvum um
allt land. Í ljósi þess telur heilbrigð-
isráðherra þörf á að efla þessa þjón-
ustu og segist ætla að leggja á það
áherslu. Kemur þetta fram í svari
Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð-
isráðherra við skriflegri fyrirspurn
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
formanns Viðreisnar, um sálfræði-
og geðlæknaþjónustu.
Alls leituðu 6.300 einstaklingar
undir 30 ára aldri til geðlækna og
barnageðlækna á árunum 2015-2017.
Á síðasta ári leituðu 3.447 einstak-
lingar eftir þjónustu sem er svipaður
fjöldi og næstu tvö árin á undan.
Fram kemur í svarinu að í upphafi
þessa árs voru 7.392 einstaklingar
með gilt 75% örorkumat þar sem
fyrsti sjúkdómsgreiningarflokkur
var geðraskanir. Heldur hefur fjölg-
að í þessum flokki síðustu árin.
Fleiri ganga til sálfræðings
Þingmaðurinn spurði sérstaklega
um það hversu margir hefðu nýtt sér
sálfræðiþjónustu á heilsugæslu-
stöðvum og um biðlista eftir þjónust-
unni. Ekki bárust svör frá öllum heil-
brigðisstofnunum. Í nóvember höfðu
2.478 einstaklingar nýtt sér sálfræði-
þjónustu það sem af var árinu sem er
meira en allt árið á undan. Biðlisti
barna (yngri en 18 ára) er misjafn
eftir stöðvum. Sums staðar kemst
fólk strax að, einnar til fjögurra
vikna biðlisti er á flestum og á ein-
staka heilsugæslustöð getur verið
allt að átta vikna biðtími. Hjá þeim
sem eru eldri er biðtíminn lengri, eða
þrjár til átta vikur. Í lok október
höfðu 597 einstaklingar nýtt sér sál-
fræðiþjónustu hjá Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja sem er nærri 100
fleiri en allt árið 2017. Tekur fimm til
sjö mánuði að komast að. Bið eftir
sálfræðiþjónustu hjá Heilbrigðis-
stofnun Austurlands eru tveir til sex
mánuðir og þrír til fjórir mánuðir hjá
börnum hjá Heilbrigðisstofnun
Vesturlands.
Heilbrigðisráðherra bendir á í
þessu sambandi að sálfræðiþjónusta
í heilsugæslu hefur verið að byggjast
upp á undanförnum árum í samræmi
við aðgerðaáætlun í geðheilbrigðis-
málum. „Miðað við þær upplýsingar
sem nú liggja fyrir um bið er þörf á
að efla sálfræðiþjónustu í heilsu-
gæslu enn frekar á næstu árum, og
ráðherra mun leggja áherslu á þá
eflingu þjónustunnar.“
Ráðherra telur þörf á
að efla sálfræðiþjónustu
Margra mánaða bið eftir sálfræðiþjónustu á heilsugæslu
„Það þarf að
leggja meiri vinnu
í undirbúning
málsins en ég
taldi í fyrstu,“
segir Ásta Ragn-
heiður Jóhannes-
dóttir, formaður
siðanefndar
Alþingis, við
Morgunblaðið.
Vísar hún í máli
sínu til þeirrar gagnasöfnunar sem
hafin er í tengslum við mál sex þing-
manna Miðflokksins og Flokks fólks-
ins sem viðhöfðu gróft og niðrandi
orðalag um samþingmenn sína og
minnihlutahópa í samfélaginu. Um-
mælin féllu 20. nóvember á Klaustur
bar í miðborg Reykjavíkur og náðust
upptökur af þeim. Er málið kannað
sem mögulegt siðabrotamál. Auk
hennar skipa þau Hafsteinn Þór
Hauksson, dósent við lagadeild Há-
skóla Íslands, og Salvör Nordal,
doktor í heimspeki og umboðsmaður
barna, siðanefnd Alþingis.
Ásta Ragnheiður segir nefndina
hafa komið saman til fundar vegna
málsins. „Við erum búin að hittast
einu sinni til þess að fara yfir næstu
skref. En áður en nefndin tekur
formlega til starfa þarf að safna öll-
um nauðsynlegum gögnum og svo
eiga þessir þingmenn sem hlut eiga
að máli andmælarétt. Og það þarf að
fá þær athugasemdir áður en vinna
siðanefndar hefst“ khj@mbl.is
Mikil vinna
fer í undir-
búninginn
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Safna gögnum í
Klausturmáli
Bubbi Morthens
fær heiðurslaun
listamanna á
næsta ári, sam-
kvæmt tillögu
allsherjar- og
menntamála-
nefndar Alþingis
við fjárlaga-
frumvarp 2019.
Hann kemur inn
á listann í stað Þorsteins frá Hamri
sem er látinn. Lagt er til að 25 lista-
menn fái heiðurslaun, eins og undan-
farin ár.
Bubbi fái
heiðurslaun
Bubbi Morthens
Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðar-
fjalli verður opnað næstkomandi
laugardag. Einnig skíðasvæði Sigl-
firðinga í Skarðsdal. Þegar er búið
að opna skíðasvæði Dalvíkinga í
Böggvisstaðafjalli.
Snjókoman á Norðurlandi að
undanförnu skapar góðan grund-
völl fyrir starfsfólk skíðasvæðanna
til að opna þau fyrir almenning fyrr
en áætlað var. Það dugar þó ekki
allsstaðar enda hefur vindur verið
það mikill í fjöllum að snjórinn fýk-
ur mikið í burtu. Starfsfólk Hlíðar-
fjalls er á fullu alla daga að fram-
leiða snjó til að bæta við og ýta
honum til og troða svo færið verði
sem best þegar gestir fara að
steyma þangað á laugardag. Til að
byrja með verður Fjarkinn opnaður
ásamt Hólabraut, Auði og Töfra-
teppinu.
Ástandið er verra á sunnan- og
vestanverðu landinu með tilliti til
hagsmuna skíðafólks. Einar
Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöll-
um, segir ástandið aumt þar. Eng-
inn snjór, aðeins hvítt þrifalag, eins
og hann tekur til orða. Með fram-
leiðslu á snjó í vélum, eins og stend-
ur til að koma upp í Bláfjöllum,
hefði verið hægt að opna þar um
þessar mundir.
helgi@mbl.is
Undirbúa
opnun í
Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Snjókoman á Norðurlandi skapar skilyrði til þess að skíðasvæðin verði opnuð hvert á fætur öðru