Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 6

Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, mælir með því að fólk fari að með gát þeg- ar það bítur í jólakræsingarnar. Á þessum árstíma er jafnan talsvert um að fólk leiti til tannlækna vegna þess að það brýtur tennur sínar á hnetum og stökkri steikarskorpu og það getur verið bæði sársauka- fullt og dýrt. „Við tannlæknar verðum tals- vert vör við þetta á þessum árstíma, eiginlega alveg frá því að jólahlað- borðin byrja,“ segir Elín. „Fólk brýtur tennurnar með því að bryðja skorpuna á purusteikum. Stundum er sökudólgurinn hnetuskurn sem hefur ef til vill ekki verið nægilega fjarlægð og loðir við hnetuna sem fer svo í sósu eða einhvern rétt þannig að skurnin er ekki sýnileg og fólk bítur í hana.“ Elín segir að alvarlegustu til- vikin af þessu tagi verði þegar bitið er í högl sem verða eftir í rjúpum. „Tennurnar geta jafnvel klofnað þannig að ekki er hægt að bjarga þeim og þá þarf að fjarlægja þær og setja eitthvað annað í staðinn, t.d. tannplanta, brú eða tannparta sem eru laus tanngervi. Fyllingar geta líka losnað eða brotnað og þá þarf stundum að byggja tönnina upp með krónum.“ Elín segir að tannlæknar hafi ráð undir rifi hverju til að bregðast við tilvikum sem þessum. „En það væri best fyrir alla ef þetta myndi ekki gerast, því fyrir utan það hvað þetta getur verið dýrt fyrir fólk, þá getur þetta verið mjög sársaukafullt og varpað töluverðum skugga á jóla- gleðina.“ Óþarfi að sleppa þessu Spurð hvernig hægt sé að fyrir- byggja óhöpp sem þessi segir Elín að eina leiðin til þess sé að bíta var- lega í purusteik og mat sem getur innihaldið hnetur. Þá sé vissara að skoða rjúpurnar vel, því vel megi sjá á þeim hvar skotið hafi farið í fugl- inn. „Það er algjör óþarfi að sleppa því að borða þetta, en gott að vera meðvitaður um að þetta getur gerst þegar tiltekinn matur er borðaður.“ Að sögn Elínar verður hægt að leita til Tannlæknavaktarinnar ef þörf er á tannlæknaþjónustu yfir há- tíðarnar. Allar upplýsingar um stað- setningu og afgreiðslutíma eru á vef- síðu Tannlæknafélags Íslands og slóðin er tannsi.is. Aðalsökudólgarnir eru purusteik, hnetur og högl Morgunblaðið/Golli Purusteik Tannlæknir ráðleggur aðgát þegar hún er borðuð.  Margir fara flatt á því að bíta hraustlega í jólakræsingarnar Skattar á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu hafa hækkað milli ára. Í nýjum tölum Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París, OECD, um þetta skatthlutfall kemur fram að hlutfall skatta af landsfram- leiðslu á Íslandi var 37,7% í fyrra. Árið áður, 2016, nam þetta hlutfall 36,4% hér á landi. Ísland er í 13. sæti af 36 OECD- ríkjum hvað þetta hlutfall varðar í fyrra. Til samanburðar er Ísland í 15. sæti á nýbirtum lista. Árið 2015 var Ísland í 13. sæti á umræddum lista. Meðaltal skatta sem hlutfall af landsframleiðslu í OECD-ríkjunum var 34,2% í fyrra og hafði hækkað um 0,2% frá fyrra ári að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Hlutfallið var hæst í Frakklandi í fyrra, 46,2%. Næst kom Danmörk en þar var hlut- fallið 46%. Höfðu þessi tvö lönd sætaskipti á listanum frá því árið 2016. Hlutfallið í Svíþjóð reyndist vera 44% í fyrra og í Noregi var það 38,2%. Í samantekt OECD kemur fram að meðaltalið í OECD-ríkjunum sé nú hærra en nokkru sinni fyrr. Áður hafði meðaltalið hæst farið árin 2000, 33,8%, og 2007 þegar það var 33,6%. Hlutfallið hækkaði í 19 af þeim 34 löndum sem skiluðu inn bráðabirgða- gögnum fyrir árið 2017 en lækkaði í hinum 15 löndunum. Þegar horft er í baksýnisspegilinn má sjá að hlutfallið hefur sveiflast mun meira á Íslandi en í OECD- ríkjunum. Á árunum 2002 til 2006 fór það stighækkandi en lækkaði svo í 31,9% árið 2009. Eftir það hækkaði það á ný og varð hæst 38,6 árið 2014. Þá lækkaði hlutfallið á ný og fór nið- ur í 36,4% árið 2016. Það hækkaði svo á ný í fyrra eins og áður segir. hdm@mbl.is Skatthlutfallið hækkar tals- vert á milli ára  Nýjar tölur frá OECD  Ísland í 13. sæti  Hlutfallið hæst í Frakklandi Hlutfall skatta af landsframleiðslu* Ísland og OECD-ríkin 2017 Frakkland Danmörk Belgía Svíþjóð Finnland Ítalía Austurríki Grikkland Holland Lúxemborg Noregur Ungverjaland Ísland Þýskaland Slóvenía Tékkland Portúgal OECD meðaltal Pólland Spánn Bretland Eistland Slóvakía Ísrael Kanada Nýja-Sjáland Japan Lettland Litháen Sviss Ástralía Bandaríkin Kórea Tyrkland Írland Chile Mexíkó 46.2% 46% 44.6% 44% 43.3% 42.4% 41.8% 39.4% 38.8% 38.7% 38.2% 37.7% 37.7% 37.5% 36% 34.9% 34.7% 34.2% 33.9% 33.7% 33.3% 33% 32.9% 32.7% 32.2% 32% 30.6% 30.4% 29.8% 28.5% 27.8% 27.1% 26.9% 24.9% 22.8% 20.2% 16.2 *H lu tf al l a f v er gr i l an ds fr am le ið sl u ár ið 2 01 7. H ei m ild : O EC D R ev en ue S ta tis tic s 20 18 . Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is 6.928 stöðugildi eru í A-hluta Reykjavíkurborgar, sem gerir um 55 stöðugildi á hverja 1.000 íbúa. Þetta kom fram í umræðum um fjárhagsáætlun borgarinnar, sem afgreidd var í fyrrakvöld. Þetta er um fimm stöðugildum meira á hverja 1.000 íbúa en hjá helstu ná- grannasveitarfélögum borgarinnar. Samkvæmt tölum Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, sem taka til stöðugilda í samstæðum sveitar- félaganna, eru stöðugildi í allri sam- stæðu Reykjavíkurborgar 7.869, eða sem nemur 62,4 starfsmönnum á hverja 1.000 íbúa. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð- isflokksins, segir tölurnar sýna að rekstur borgarinnar sé óhagkvæm- ari en hann eigi að vera. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hins vegar að fjöldi starfsfólks borgar- innar sé sambærilegur við önnur sveitarfélög en Reykjavík veiti um- fangsmeiri velferðarþjónustu en aðrir. Mismunandi reikningsaðferðir Þegar rýnt er í tölur Sambands íslenskra sveitarfélaga sést að Reykjavík er með 7.829 stöðugildi, Kópavogur með 1.931 stöðugildi og Hafnarfjörður 1.469. Þegar fjöldi stöðugilda er borinn saman við íbúa- fjölda í þessum sveitarfélögum er niðurstaðan sú að í samstæðu Reykjavíkurborgar eru 62,4 stöðu- gildi á hverja 1.000 íbúa en sam- stæða Kópavogs er með 53,7 stöðu- gildi á hverja 1.000 íbúa bæjarins og Hafnarfjörður með 50 stöðugildi fyrir hverja 1.000 íbúa Hafnarfjarð- ar. Ef horft er til hinna bæja höfuð- borgarsvæðisins sést að fjöldi stöðu- gilda miðað við 1.000 íbúa er svip- aður hjá þeim; Garðabær er með um 45 stöðugildi á hverja 1.000 íbúa, Seltjarnarnes um 53 og Mosfellsbær 52,9 stöðugildi á hverja 1.000 íbúa. Meðaltal höfuðborgarsvæðisins alls er þá 52,4 stöðugildi á hverja 1.000 íbúa og 50,4 ef Reykjavík er sleppt. Ef einungis er miðað við þau stöðugildi sem eru í A-hluta þessara sveitarfélaga fækkar stöðugildunum í Reykjavík niður í 6.928, eða sem nemur 55 stöðugildum á hverja 1.000 íbúa. Stöðugildi í Kópavogi á hverja 1.000 íbúa verða þá 53,3 og í Hafnarfirði 48, ef bara er horft til A-hluta þessara sveitarfélaga, en meðaltal stöðugilda hjá Kópavogi og Hafnarfirði er þá 50,6 á hverja 1.000 íbúa. Reksturinn lakari „Hér er langstærsta sveitarfélag- ið, þannig að hér ætti að vera hag- kvæmasti reksturinn,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks- ins. Hann bendir á að miðað við töl- ur Sambands íslenskra sveitarfé- laga megi segja að rekstur borgarinnar sé lakari um allt að 20%, sem sé munurinn á fjölda stöðugilda hjá Reykjavík og hinum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðis- ins. Eyþór tekur fram að borgarstjóri hafi mótmælt þeim útreikningum sjálfstæðismanna og viljað draga frá starfsmenn hjá fyrirtækjum borg- arinnar. „En meira að segja með þeim æfingum er staðan sú að Reykjavík er með 10% lakari árang- ur en hinir.“ Umfangsmeiri þjónusta Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri segir aftur á móti að gagnrýni minnihlutans sé á röngum forsend- um, þar sem blandað hafi verið inn í hana starfsfólki sem vinni hjá fyr- irtækjum borgarinnar. „Fjöldi starfsfólks okkar er býsna sambæri- legur við önnur sveitarfélög þótt Reykjavík veiti reyndar umfangs- meiri velferðarþjónustu en aðrir og hafi fleira starfsfólk sem því nem- ur,“ segir Dagur. Fleiri stöðugildi eru hjá Reykjavíkurborg  Dagur segir borgina reka umfangsmeiri velferðarþjónustu Fjöldi stöðugilda hjá sveitarfélögum Fjöldi stöðugilda Stöðugildi á 1.000 íbúa*** Samstæða* A-hluti** Samstæða* A-hluti** Reykjavík 7.869 6.928 62,4 55,0 Kópavogur 1.931 1.916 53,7 53,3 Hafnarfjörður 1.469 1.412 50,0 48,0 Garðabær 705 44,9 Mosfellsbær 534 50,6 Seltjarnarnes 242 52,9 *Skv. töflu Samb. ísl. sveitarf. **Skv. árs- reikningum sveitarf. 2017 m.v. launa- greiðslur. ***M.v. íbúafjölda 1. jan. 2018. Heimildir: Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Mosfellsbær Seltjarnarnes 62,4 53,7 50,0 44,9 50,6 52,9 Höfuðborgarsvæðið 2017 Fjöldi stöðugilda (samstæðu) á hverja 1.000 íbúa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.