Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 22
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
Sæmundargleði
í Framheimilinu í Safamýri
Úrval jólabóka á tilboðsverði
Kaffi og konfekt
Höfundar kynna eftirtaldar bækur
Við fögnum nýrri bók
Þórðar Tómassonar í Skógum
og bókauppskeru haustsins með glæsilegri
bókagleði sunnudaginn 9. desember
klukkan 15.00–18.00
forsætisráðherra á sama stað:
„Katrín sagði meðal annars að
saga Íslands á síðustu 100 árum
hefði ekki verið saga „værðar og
hvíldar“. Sagði hún að kynslóð fram
af kynslóð hefði unnið sleitulaust til
að „koma Íslandi í hóp þeirra sjálf-
stæðu ríkja í heiminum þar sem vel-
megun er mest. Margir draumar
hafa ræst og Ísland trónir nú á toppi
ýmissa þeirra lista sem mæla hag-
sæld og velferð“.
Nú eru runnir upp tímar marg-
miðlunar og samfélagsmiðla og
margir tjáðu sig á 100 ára afmælinu.
En fáir hafa fangað stundina með
jafn meitluðum orðum og blaðamað-
ur Morgunblaðsins fyrir 100 árum:
„Það mátti sjá á mörgum, að þeir
fundu að stundin, sem leið um há-
degið í gær, var alvöruþrungin
stund, og lengi munu menn minnast
augnabliksins, þegar klofinn, ís-
lenzkur fáni sveif að hún í fyrsta
sinn. Að baki stjórnarráðshússins
stóðu tvær stengur auðar. Þær
mintu á síðasta þáttinn í fullveldis-
baráttunni og klofni fáninn sýndi að
nýtt tímabil var hafið í sögu þjóðar-
innar.“
Blíðviðri á fullveldis-
daginn en afar kalt
á 100 ára afmælinu
Fréttafrásagnir Morgunblaðsins með 100 ára millibili
Morgunblaðið 1918 Fyrirsögnin var lítil og engin mynd fylgdi frásögninni.
Morgunblaðið 2018 Frásögnin var skreytt nýjum og gömlum myndum.
Sigurður
Eggerz
Katrín
Jakobsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dúðaðir gestir Tignarfólk sat og stóð við vesturhlið húss stjórnarráðsins við hátíðarhöldin á laugardaginn.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Dagurinn í gær var mesti blíðviðr-
isdagur, sem komið hefir lengi, og
lagði forsjónin þannig sinn skerf til
þess að þessi merkilega stund gæti
orðið sem hátíðlegust.“ Þannig hefst
forsíðufrétt Morgunblaðsins mánu-
daginn 2. desember 1918, daginn eft-
ir að Íslendingar fögnuðu fullveldi
landsins með athöfn á tröppum
stjórnarráðsins.
„Kalt var og vindasamt á laugar-
daginn þegar þess var minnst víða
um land að 100 ár voru liðin frá því
að Ísland varð frjálst og fullvalda
ríki. Setti veðurfarið nokkurt strik í
reikninginn við hátíðahöld þau sem
fram fóru við stjórnarráðið.“
Þannig hefst frétt Morgunblaðs-
ins mánudaginn 3. desember 2018
þar sem lýst er hátíðarhöldum í til-
efni 100 ára fullveldis Íslands.
Þetta leiðir hugann að því að
Morgunblaðið er eini íslenski frétta-
miðillinn sem hefur flutt fréttir af
þessum hátíðarhöldum með 100 ára
millibili. Vísir flutti fréttir af full-
veldishátíðinni 1918 en hann kemur
ekki lengur út sem dagblað, heldur
vikublað undir heitinu DV.
Saga samtímans í 105 ár
Morgunblaðið hóf göngu sína 2.
nóvember 1913 og hafði því komið út
í rúmlega fimm ár þegar Ísland varð
fullvalda ríki. Vilhjálmur Finsen var
ritstjóri blaðsins og Árni Óla var
blaðamaður. Í 105 ár hefur blaðið
skrifað sögu samtímans.
Í fréttinni fyrir 100 árum var end-
ursögn af ræðu Sigurðar Eggerz
ráðherra, sem hann flutti á tröppum
stjórnarráðsins. Ráðherranum
mæltist þannig, svo vitnað sé í hluta
ræðunnar:
„Í dag eru tímamót. Í dag byrjar
ný saga, saga hins viðurkenda ís-
lenzka ríkis. Fyrstu drættina í þeirri
sögu skapar sú kynslóð, sem nú lifir,
frá þeim æðsta, konunginum, til þess
sem minstan á máttinn. Það eru ekki
aðeins stjórnmálamennirnir, er
miklu ráða um mál þjóðarinnar, sem
skapa hina nýju sögu, nei, það eru
allir. Bóndinn, sem stendur við orfið
og ræktar jörð sína, hann á hlutdeild
í þeirri sögu, daglaunamaðurinn sem
veltir steininum úr götunni, hann á
hlutdeild í þeirri sögu, sjómaðurinn,
sem situr við árarkeipinn, hann á
þar hlutdeild. Allir, sem inna lífs-
starf sitt af hendi með alúð og sam-
vizkusemi, auka veg hins íslenzka
ríkis. Og sú er skylda vor allra.“
Og 100 árum síðar vitnar Morgun-
blaðið í ræðu Katrínar Jakobsdóttur