Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 VIÐTAL Guðrún Vala Elísdóttir vala@simenntun.is „Viðtökurnar hafa verið alveg hreint frábærar,“ segir Geir Konráð Theo- dórsson, uppfinningamaður í Borg- arnesi, sem hefur hafið framleiðslu á hákarlanammi. Fyrsta tilraunafram- leiðslan seldist upp á tveimur vikum. „Ég er alveg í skýjunum og er strax farinn að framleiða meira.“ - En hvað er þetta hákarlanammi og hvernig datt Geir í hug að fram- leiða það? ,,Jú,“ segir Geir, „það var þannig að á þeim stutta tíma sem ég var í Listaháskóla Íslands vann ég að ýmsum hugmyndum og eins og svo margt hjá mér byrjaði þetta sem brandari sem gekk kannski aðeins of langt. Ísland er þekkt á netinu fyrir að vera með heimsins versta mat að mati margra, frábært myndband er á Youtube af Gordon Ramsay að æla upp hákarlsbita til dæmis, og ég vildi bara fagna þessu í staðinn fyrir að reyna að fela það. Það er nú hálfgerð þjóðaríþrótt að plata útlendinga til að smakka hákarl og ég ákvað því að búa til brjóstsykur með alvöru mjúkri hákarlsmiðju.“ Innihaldið að mestu bara sykur, sterkja og skelfing Geir segist þó fljótt hafa komist að því að sá brjóstsykur myndi brjóta allar matvælareglugerðir og á end- anum varð því uppskriftin að mestu sykur, kartöflumjöl og svo hjartar- salt til að fá hið dásamlega skelfilega ammoníakbragð. „Fyrst ég gat ekki notað alvöru hákarl í nammigerðina þá gafst ég upp og það var ekki fyrr en á þessu ári sem það kom til mín að bara efna- greina hákarlinn og sjá hvort ég gæti gert hákarlalíki með virku efn- unum.“ Eftir að hafa gert skelfilega marg- ar tilraunir á sjálfum sér, fjölskyldu og vinum ákvað hann að sleppa trí- metýlamíninu og halda sig við amm- oníakið til að fá vott af hákarlsbragð- inu og binda það svo í hálfgert hvítt sykurhlaup. Hann prófaði sig mest áfram heima í eldhúsi, en fékk síðan frábæra og ódýra aðstöðu til að framleiða þetta í gegnum Ljóma- lindina í Borgarnesi. Því miður hefur hákarlanammið ekkert næringargildi og er ekkert hollara en annað sykurhlaup. Inni- haldið er að mestu bara sykur, sterkja og skelfing, að sögn Geirs. „Ég vildi að ég gæti logið einhverju til að búa til nýjasta heilsukúrsæðið, vegan-hákarlanammiskúrinn hljóm- ar t.d. ágætlega, en svo er ekki,“ seg- ir Geir og heldur áfram: ,,Þetta er náttúrlega bara ætlað þeim sem hafa gaman af þessu, eða gaman af því að sjá aðra pínast við að borða þetta. Það var í raun happ að loka-upp- skriftin varð vegan því þá getur þetta mögulega verið leið fyrir sívax- andi hóp fólks sem getur í raun ekki borðað neitt að taka þátt í stemning- unni á þorrablótum, sem venjulega eru ekkert sérlega veganvæn.“ Það furðulega við þetta og kemur Geir enn á óvart er að örfáum aðilum sem hafa smakkað finnst þetta gott, án gríns. „Kannski er þetta bara allt- af til í íslensku sálinni hjá sumum okkar, að rembast við að þykja skelfilegur matur góður.“ Hefur ekki tölu á því hversu oft hann hefur kúgast Geir segist vera búinn að borða allt of mikið af þessu og hefur ekki tölu á því hve oft hann hefur kúgast. „Það var að vísu mest þegar ég var að reyna að hafa rotna fiskbragðið samblandað með ammoníakinu, en eftir að ég sleppti því er lokaútgáfan í raun bara allt í lagi. Skelfilegt bragð í smástund og svo fer það og eftir er sætan af sykrinum og svo auðvitað glottið á fólkinu sem horfir á þig.“ Geir hannaði einnig umbúðirnar sjálfur og fór á netið til þess að læra það. Núna er hákarlanammið bara selt í Landnámssetrinu í Borgarnesi og svo hægt að panta í gegnum netið beint frá framleiðanda. Ef allt geng- ur vel mun næsta framleiðsla fara í sölu á fleiri stöðum eins og í Ljóma- lindinni í Borgarnesi og Melabúðinni í bænum. Geir telur verðið sann- gjarnt, ein pakkning kostar undir 1.000 ISK, en svo fari það eftir því hvað söluaðilar leggi á vöruna. Mikilvægt að þora að framkvæma Geir segist hafa komist að því í gegnum tíðina að allir hafi sköp- unarkraftinn til að finna hluti upp. „Hvort sem það er þegar ég hef verið að vinna í grunnskólanum heima í Borgarnesi eða yfir glasi af bjór á Dússabar, þá eru endalaus dæmi af því að börn sem fullorðnir komi til mín eftir að þau frétti að ég sé uppfinningamaður til að viðra ein- hverja hugmynd. Börnin eru uppfull af uppfinningum og eru ekkert feim- in við að tala um þær, en venjulega eru það hinir fullorðnu sem þurfa að vera aðeins búnir að fá sér örlítið í aðra tána áður en þeir opna sig.“ Geir telur að allir hafi grunneigin- leikann að fá hugmynd en það sem mestu máli skiptir, og hann sjálfur glímir við, er að þora að framkvæma það sem kemur manni til hugar. „Sem betur fer hefur það aldrei ver- ið auðveldara því það eru mörg tæki- færi hér á Íslandi sem geta hjálpað manni. Til dæmis getur hver sem er lært að 3D-prenta frumgerðir í Fab- lab, fengið viðtal hjá Nýsköpunar- miðstöð Íslands og sótt um í við- skiptahraðal hjá Icelandic Start- ups.“ Frá unga aldri hefur Geir alltaf verið að finna upp hluti, skrifa niður hugmyndir og búa eitthvað til. ,,Því miður er ekki margt sem ég hef náð að koma alla leið í fram- leiðslu. Það er þetta að þora að fram- kvæma. Lengi vel var ég svona skúffuskáldsuppfinningamaður eða eitthvað þannig. Sú uppfinning sem ég hef lengst farið með er frisbí- diskaveiðarfæri. Einnig hannaði ég hálfgerðan fiskieldisgildrudróna og svo trefil með innbyggðri mengunar- síu. Það sem ég vinn þó við svona dagsdaglega er að hræða börn og túrista með þjóðsögum á Sagnalofti Landnámssetursins í Borgarnesi og svo að elda mat á ýmsum veitinga- stöðum á Íslandi og Noregi.“ Geir er alltaf á einhverju flakki en endar að sögn ávallt aftur á Íslandi, í „blessaða heimabænum“ sínum Borgarnesi. Leikstýrir föður sínum „Fyrir mig sem uppfinningamann er það alveg dásamlegt að vera hér með fjölskyldu og vinum og öllu því góða fólki í bænum sem hvetur mann áfram í vitleysunni. Auk þess er hérna góður stuðningur við skapandi fólk, hvort sem það er í frumkvöðla- starfi eða listum,“ segir Geir en þessa dagana er hann að vinna að nokkrum fleiri verkefnum, t.d. að leikstýra föður sínum sem er að fara að setja upp sýninguna „Farðu á þinn stað“ á Sögulofti Landnámsset- ursins. „Þetta er sérlega gaman fyrir mig því hann hefur leikstýrt mér með mína sýningu um svartagaldur á sama sviði. Einnig er ég að vinna að Sögusteinum, listrænu verkefni með sýrugrafna list í grjót, sem mynda myndasögur í vörður. Svo að lokum er ég að skrifa lítið verk um ævintýri mín og skoplegar uppgötvanir um ættartré Íslendinga í Widener- bókasafninu í Harvard-háskóla þar sem ég bjó um stund síðasta sumar með kærustunni.“ Það lítur nú út fyrir að Geir sé að fara aftur á flakk eftir þessi verk- efni, því kærastan hans, sem er bandarísk, var að fá vinnu hjá Al- þjóðastofnuninni um fólksflutninga (IOM) fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Afríku. „Hún er núna flutt til Níger og er að reyna að freista mín að flýja vet- urinn og koma í 37 stiga meðalhitann þarna í Niamey. Ég er svo innilega ástfanginn að ég er strax farinn að íhuga uppfinningar sem gætu gagnast mér þarna í Sahara-eyði- mörkinni. Við sjáum bara til,“ segir Geir brosandi. Nammið byrjaði sem brandari  Geir Konráð Theodórsson, uppfinningamaður í Borgarnesi, hefur prófað sig áfram með brjóstsyk- ur með hákarlabragði  Vinnur annars við það að hræða börn og ferðamenn með þjóðsögum Morgunblaðið/Guðrún Vala Uppfinningamaður Geir Konráð Theodórsson í Borgarnesi hefur brallað ýmislegt á ævinni. VATN, HÚSASKJÓL OG BETRI HEILSA MEÐ ÞINNI HJÁLP! •Valgreiðsla í heimabanka: 2.500 krónur •Söfnunarsími 907 2003: 2.500 krónur •Framlag að eigin vali á framlag.is • Söfnunarreikningur 0334-26-50886 kennitala 450670-0499 HJÁLP TIL SJÁLFSHJÁLPAR Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna – Action by Churches Together
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.