Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
um landsins. Sáð var í tæpa 10
hektara í vor og er bústjórinn,
Birgir Freyr Ragnarsson, ánægður
með árangurinn. Ræktunin gekk
þó ekki áfallalaust. Vegna mikilla
rigninga í vor eyðilagðist sáning í
um þremur hekturum. Þá seinkuðu
rigningar í haust uppskerustörfum.
Varla eru dæmi hér á landi um
þreskingu um mánaðamótin nóv-
ember og desember í korn- og
repjuræktun.
„Veðrið er það eina sem við ráð-
um ekki við í þessu. Það þornaði
loksins til í síðustu viku. Við höfum
verið að bíða í allt haust. Við tókum
þetta á nokkrum klukkutímum og
fengum fína uppskeru, mikið af ol-
íufræi og hálmi,“ segir Birgir.
Vegna þess að akurinn var sleginn
eftir þurrk þarf ekki að þurrka
fræið og það fer beint í pressun.
Það sparar mikla orku.
Hratið notað í fóður fyrir kýr
Hann segist ekki vera búinn að
vigta uppskeruna að fullu en sýnist
að hún gæti svarað til 1,2 tonna af
fræi á hvern hektara. „Þetta er í
fyrsta skipti sem ég rækta repju og
veit ekki hvort þetta er mikið eða
lítið. Ég er ánægður með allt sem
við fáum. Svo höldum við áfram og
náum betri árangri næst,“ segir
Birgir.
Verið er að pressa fræið þessa
dagana. Olían verður hreinsuð og
notuð á skipin en hratið notað sem
próteinríkt fóður fyrir kýrnar í
Flatey. Hálmurinn er notaður sem
undirburður í kálfastíur. Þannig
nýtist öll plantan við rekstur bús
og útgerðar.
„Þetta hefur verið áhugavert
verkefni, það er alltaf gaman að
prófa eitthvað nýtt,“ segir Birgir
um ræktunina í sumar.
Ljóst er að miklir möguleikar
eru til repjuræktunar í Flatey sem
er stór jörð og ekki nýtt til rækt-
unar nema að hluta. Vitað er að
forráðamenn fyrirtækisins hafa
áhuga á að auka ræktunina. Birgir
segir þó að eftir sé að ákveða
hversu mikið land verði tekið undir
repju á næsta ári.
Tvöfalt það sem skipin brenna
Jón Bernódusson, skipaverk-
fræðingur hjá Samgöngustofu, hef-
ur í mörg ár unnið að athugun á
möguleikum til orkuskipta á skip-
astól Íslendinga. Hann hefur trölla-
trú á repjuræktun og notkun
repjuolíu á skipin til að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
við útgerðina.
Jón segir að árlega brenni ís-
lenski fiskiskipaflotinn 160 þúsund
tonnum af olíu og losi um 500 þús-
und tonn af koltvísýringi. Með 30%
íblöndun repjuolíu á allan flotann
væri hægt að draga úr losun hans
um 60%, eða um 300 þúsund tonn.
Bendir hann á að það sé á við
heildarlosun frá bílaumferð á öllu
höfuðborgarsvæðinu.
Hann skýrir þetta út með því að
segja að repjuræktun dragi að sér
tvöfalt það magn sem skipin
brenna. Þannig tekur repjan í sig 6
tonn af koltvísýringi á hvern rækt-
aðan hektara. 3 tonn fari út í and-
rúmsloftið við brennsluna og því sé
umhverfislegi ávinningurinn 3 tonn.
„Þetta er virkasta leiðin til að
draga úr koltvísýringi í andrúms-
loftinu,“ segir Jón og vekur athygli
á loftslagsmarkmiðum íslenskra
stjórnvalda og aðgerðaáætlun sem
gera ráð fyrir aukinni hlutdeild
endurnýjanlegs eldsneytis í skip-
um.
Jón segir að nota megi repju-
olíuna beint á skipavélar. Reiknað
er með 5% íblöndun í dísilolíu í
upphafi, í vélar eins eða tveggja
skipa Skinneyjar-Þinganess og
hlutfallið síðan aukið. Repjuolían
hefur lítið minni orkugetu en jarð-
dísill og bruninn er hreinni. Að
ýmsu er þó að hyggja varðandi
notkunina og segir Jón nauðsynlegt
að fá staðfestingu vélaframleiðenda
á því að óhætt sé að gera þessa til-
raun.
Umhverfisávinningurinn er ótví-
ræður fyrir Skinney-Þinganes, að
mati Jóns, en yfirskrift tilraunar-
innar er „Róið á repju“. „Verið er
að breyta matarolíu í fiskafurð og
draga úr notkun jarðefnaelds-
neytis. Matarolían sem flutt er til
landsins er mest notuð sem steik-
ingarolía og er fargað þegar búið
er að steikja frönsku kartöflurnar
og fer því ekki til manneldis nema
að litlum hluta,“ segir Jón og bend-
ir á að fyrirtækið geti nýtt þetta í
markaðssetningu afurða sinna.
Raunhæfasta leiðin
Jón segir að ræktun repju og
notkun hennar á fiskiskip sé raun-
hæfasta leiðin til orkuskipta á ís-
lenska fiskiskipaflotanum vegna
þeirra kosta sem nefndir hafa ver-
ið. „Þetta er það sem er í boði. Vill
útgerðin taka þátt í því að rækta
hluta olíunnar sem hún notar eða
vill hún frekar flytja olíuna inn?“
spyr Jón.
Til þess að repjuolía verði 30% af
eldsneyti fiskiskipanna þurfi að
rækta repju á 50 þúsund hekt-
urum, til dæmis á söndum Suður-
lands. Fyrst þurfi að byggja upp
jarðveg með lúpínu í fáein ár.
Þannig stuðlar þetta verkefni að
uppgræðslu ógróins lands auk þess
sem mikið fóður fellur til við þresk-
ingu og pressun.
Hann bætir því við að ef rækta
eigi repju fyrir alla eldsneytis-
notkun fiskiskipanna þurfi 160 þús-
und hektara eða svæði sem sé 40
sinnum 40 kílómetrar að stærð.
Það taki tvær klukkustundir að aka
í kringum það á löglegum hraða
sem Samgöngustofa mæli með!
Tilraunir hafa verið gerðar með
ræktun repju hér á landi í nokkur
ár en með misjöfnum árangri. Jón
segir að næg þekking sé fyrir
hendi til að stórauka ræktunina.
Vísar hann til þess að bændur sem
staðið hafi í þessari ræktun í lengri
tíma hafi sýnt fram á möguleikana.
Bændur hafi hins vegar ekki treyst
sér til að fara í stórræktun vegna
þess að þeir hafi ekki haft mögu-
leika til að losna við olíuna.
Verkefni Skinneyjar-Þinganess,
Samgöngustofu og Mannvits
hefur vakið athygli í lífdísil-
greininni. Þannig hefur Jóni
Bernódussyni verið boðið að
halda þrjá fyrirlestra í Berlín í
næstu viku, meðal annars í
þýska efnahagsráðuneytinu og
hjá samtökum lífdísilframleið-
enda.
Hann var á vinnufundi um
sjálfbært eldsneyti í flugi sem
haldinn var í Kaupmannahöfn í
síðasta mánuði og kynnti verk-
efnið þar. Eftir það hafa norræn
samtök um sjálfbærni í flugi
beðið um aukna samvinnu og
fulltrúi stórs fyrirtækis á þessu
sviði hefur óskað eftir að koma
til viðræðna um möguleikana
hér.
Jón tekur fram að verkefnið
haldi áfram. Nú sé unnið að
frekari útreikningum á kolefnis-
ávinningnum og greinargerð um
stöðu verkefnisins.
Verkefni
vekur athygli
REPJUOLÍA
Ávinningur fyrir andrúmsloftið
Repjuræktun dregur í sig tvöfalt meiri koltvísýring en losnar við brennslu olíunnar á fiskiskipum
Mælt með repju til orkuskipta Skinney-Þinganes ræktar repju og notar til íblöndunar á skip sín
Ljósmynd/Birgir Ragnarsson
Uppskerustörf Repjuakrarnir voru skornir um helgina og gekk verkið vel.
Í fjarka sést í risafjós Selbakka ehf. í Flatey og fjær Skálafellsjökull.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Uppskerustörfum á repjuökrum
kúabús Selbakka ehf. í Flatey á
Mýrum er lokið. Fræin verða
pressuð og notuð á skip eiganda
búsins, Skinneyjar-Þinganess á
Höfn í Hornafirði. Sú kolefnis-
binding sem
verður við rækt-
un repjunnar er
meiri en nemur
losun koltví-
sýrings við
brennslu hennar
í vélum skip-
anna. Fyrir-
tækið hefur því
bæði umhverfis-
legan og hag-
rænan ávinning
af notkun repjuolíu auk þess
ávinnings sem það skilar sam-
félaginu.
Skinney-Þinganes hefur dregið
úr losun gróðurhúsalofttegunda í
starfsemi sinni, meðal annars með
því að rafvæða fiskimjölsverk-
smiðju sína og endurnýja og
breyta fiskiskipum. Tilraun sem
fyrirtækið stendur að í samvinnu
við Samgöngustofu og verk-
fræðistofuna Mannvit um ræktun
og notkun repjuolíu til íblöndunar
í eldsneyti skipanna er einn eitt
verkefnið. Fékk fyrirtækið verð-
laun á umhverfisdegi atvinnulífs-
ins fyrr á þessu ári fyrir framtak
ársins á sviði umhverfismála.
Ráðum ekki við veðrið
Skinney-Þinganes og Sam-
göngustofa fengu repjuolíu hjá
bændum á Suðurlandi á síðasta ári
og settu á humarveiðiskipið Þinga-
nes í tilraunaskyni.
Ákveðið var að gera tilraunir
með ræktun á repju á jörðinni
Flatey á Mýrum en þar rekur Sel-
bakki, dótturfélag Skinneyjar-
Þinganess, eitt af stærstu kúabú-
Jón
Bernódusson
POTTAR OG PÖNNUR
Fagmaðurinn velur AMT en þú?
Þýsk hágæðavara
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Allt fyrir eldhúsið