Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 49
lendinga með kaup á jarðeignum.
Á þessi eina kona að ráða sölu
landsins? Ég vil fá lög þar sem
bóndi selur jörð sína og selur
hann þá fasteign auk ræktaðs
lands, en ríkið, það er þjóðin,
kaupir þá af bóndanum víðerni
þau er fylgja jörðinni, bóndinn fær
sitt og þjóðin sitt, annað er glóru-
laust. Auðvitað yrði þetta aldrei
samþykkt því að auðmenn eru á
eftir víðernum landsins, þeim er
nokk sama um bújarðirnar sem
slíkar og auðvitað á þjóðin ekki fé
til kaupanna, því fé þjóðar fer í
ríkislaun og uppihald flottræfl-
anna. Kannski nóg fyrir komandi
kynslóðir að eiga sér höfuðborg og
hálendi.
Katrín Jakobsdóttir, á meðan þú
og þingheimur talið endalaust um
loftslagsmál, kynbundið ofbeldi og
forréttindajafnrétti er verið að
selja landið. Enginn einasti þing-
maður talar um að varðveita eigi
eignarhald á landinu til komandi
kynslóða, þetta tal og aumingja-
væðing ykkar á öllu og öllum
hentar vel auðmönnum ásamt
getuleysi ykkar til að stýra landi
og þjóð. Minnkið undirlægjuhátt
ykkar gagnvart öðrum ríkjum.
Fækka þarf þingmönnum í 33, nú
sýna þingmenn vangetu sína með
sífelldri fjölgun aðstoðarmanna og
sérfræðinga og kannski mundi líka
hætta þetta endalausa blaður og
rifrildi. Alþingi er höfuðlaus her
og frelsið sem þið takið ykkur er
stjórnleysi og óráðsía.
Hættið að leika ykkur með fjör-
egg þjóðar, en það er landið Ís-
land. Varðveitið landið, því land-
laus verðum við sem rekald í
ólgusjó annarra. Þið Evrópusinnar
á þingi, flytjið bara til hnignandi
Evrópu, ef ekki farið þá að vinna
fyrir land og þjóð. Hættið þessu
sífellda bulli. Til kvenna á Alþingi,
hættið að láta allt snúast um ykk-
ur sjálfar og kvenþjóðina, það eru
líka karlmenn og drengir úti í
þjóðfélaginu okkar. Stjórnmál eru
ekki bara kvenréttindi. Ekkert
skrítið þó að drengir séu þung-
lyndir og með kvíða, – þið konur
farið offari.
» Það hryggir mig að
horfa upp á sölu
lands míns, lands sem
ég fékk að fæðast til og
tilheyra, sem veitt hefur
mér skjól og gleði.
Höfundur býr á Sauðárkróki.
UMRÆÐAN 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
Í J Ó L A P A K K A N N
Black Friday og
Stafrænn mánudagur
hafa náð nýjum hæð-
um í íslensku sam-
félagi ef marka má til-
boðsæði kaupmanna
þetta árið. Þessir dag-
ar marka byrjun á
jólagjafainnkaupum
landsmanna. Síðustu
ár hefur jólaverslunin
þróast mikið og nota
Íslendingar netið í auknum mæli
til þess að kaupa jólagjafir handa
vinum og vandamönnum, en vef-
verslun á Íslandi hefur aukist
verulega á undanförnum árum og
fjöldi netverslana er enn að
aukast. Það er því mikilvægt að
setja markvissa stefnu bæði þegar
kemur að jólainnkaupum sem og
jólasölu.
Vefverslun á heimsvísu jókst um
18% á síðasta ári og eyddu kaup-
endur 7,9 billjón Bandaríkjadoll-
urum í kaup á netinu. Nærri helm-
ingur kaupanna fór fram í gegnum
snjallsíma, kannanir sýndu að 61%
kaupenda voru reiðu-
búnir til að versla við
fyrirtæki sem þeir
höfðu ekki verslað við
áður. Hérna skapast
gríðarlegt tækifæri
fyrir þau fyrirtæki
sem hafa uppgötvað
töfra stafrænna
lausna.
Fólk virðist vera
enn opnara fyrir því
að prófa ný vöru-
merki og leita á aðr-
ar slóðir þegar kemur að inn-
kaupum fyrir hátíðarnar, talsverð
aukning hefur orðið á leitar-
orðafrösum eins og „búðir eins
og …“ og „vörumerki eins og …“ á
leitarvélum Google. Verslun á net-
inu gefur kúnnanum aukið forskot
og virðist eins og fólk sé að nýta
sér netið mun betur með því að
kanna mikilvæga hluti eins og t.d.
verð, úrval o.fl.
Ein athyglisverðasta þróunin í
stafrænni markaðssetningu er að
myndbönd hafa náð að ryðja sér
til rúms sem einn vinsælasti mið-
illinn þegar kemur að því að gefa
fólki hugmyndir að jólainnkaupum,
en næstum því tveir þriðju við-
skiptavina segjast hafa fengið hug-
myndir og innblástur í gegnum
auglýsingamyndbönd og meira en
90% af þeim segjast hafa uppgötv-
að nýjar vörur og vörumerki í
gegnum YouTube.
Fyrirtæki sem vilja standa upp
úr þessa hátíðina þurfa að muna
að ekki eru allir viðskiptavinir
eins, og það þarf að sérsníða
markaðssetninguna að hverjum og
einum. Auðvelt er að velja réttan
markhóp fyrir hverja auglýsingu
þegar auglýst er á netinu og sam-
félagsmiðlum, því er oft gott fyrir
verslanir og fyrirtæki að útvista
(e.g. outsource) þeim hluta rekst-
ursins og leyfa fagmönnum að sjá
um allt sem við kemur stafrænni
markaðssetningu. Oft er gott að
hafa í huga að „Jói frændi“ getur
ekki allt.
Stuðst var við upplýsingar og gögn frá
Google við vinnslu þessarar greinar.
Eftir Diðrik Örn
Gunnarsson
Diðrik Örn Gunnarsson
» Black Friday og
Stafrænn mánudag-
ur hafa náð nýjum hæð-
um í íslensku samfélagi
ef marka má tilboðsæði
kaupmanna þetta árið. Höfundur er stofnandi og eigandi
Stafrænu auglýsingastofunnar og
stundakennari við Háskólann í
Reykjavík.
didrik@stafraena.is
61% fólks er tilbúið til að versla af
fyrirtækjum sem það hefur ekki
verslað við áður.
Stafræn verslun fyrir hátíðarnar
Ef marka má fréttir DV og fleiri
miðla var ýmislegt ósæmilegt,
ruddalegt og óviðeigandi sagt á bar-
kvöldi fyrir nokkrum dögum og rýt-
ingar reknir í bak. Samkvæmt sömu
miðlum má skilja að þetta sé í fyrsta
sinn í sögunni sem slíkt gerist á bar-
þingi. Líklega hafa blaðamennirnir,
nýlega lausir við bleyjuna og blíð-
mælgi barnaheimilanna, aldrei heyrt
minnst á barferðir á Borgina, Geir
Hall., Kjartan Jóh., Jón Baldvin og
fleiri formenn með hnífa í baki, né
það að sagan á það til að endurtaka
sig.
Alþýðan í algleymi sínu er yfir sig
hneyksluð og kjaftforasti þingmaður
sögunnar biður þjóðina afsökunar á
orðum annarra þingmanna. Finnst
ekki fleirum en mér íronían yfir-
gengileg?
Guðjón Smári Agnarsson
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Klausturbar
Skál! Er öl innri maður?
Bílar