Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Kennari í Snælandsskóla
Umsjónarkennari í Smáraskóla
Umsjónarkennari í Salaskóla
Leikskólar
Deildarstjóri í Austurkór
Deildarstjóri í Álfatún
Deildarstjóri í Fífusali
Deildarstjóri í Kópahvol
Deildarstjóri í Núp
Leikskólakennari í Álfaheiði
Leikskólakennari í Álfatún
Leikskólakennari í Austurkór
Leikskólakennari í Baug
Leikskólakennari í Læk
Leikskólakennari í Urðarhól
Sérkennari í Austurkór
Sérkennari í Baug
Velferðarsvið
Starfsfólk í þjónustuíbúðir
Starfsmaður á skammtímaheimili
Stjórnsýslusvið
Verkefnastjóri Náttúrufræðistofu
Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin
eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Starfsmaður skal m.a. sinna eftirfarandi verkefnum:
• Reikningsskil og bókfærslu á fjárhagsáætlun umboðsins
• Skjöl og skjalavistun sem og vinnu með meðhöndlun pósts
• Stjórnunarlegum samskiptum við opinbert yfirvald á Íslandi sem og á Grænlandi
• Skipulagning dagskráa fyrir skemmtanir og heimsóknir í Reykjavík og á Íslandi í sambandi við
aðra starfsmenn sendiskrifstofunnar
• Samvinna um samskiptaáætlun við utanríkisráðuneytið vegna heimsóknar til Grænlands
• Upplýsingaleit, ferðapantanir og önnur tilfallandi og hagnýt verkefni
• Veita lið við almenna málsmeðferð og verkefnavinnu, m.a.:
Fundargerðir, svara fyrirspurnum, skipuleggja margvíslega atburði, vinna við markaðsgreiningu,
skrifa skýrslur og annað upplýsandi efni, sinna þýðingum sem og viðhaldi á heimasíðu, uppfærslu
á samfélagsmiðlum o.s.frv.
Hæfni
• Vænst er af umsækjanda að hann hafi viðeigandi menntun og/eða reynslu innan áðurnefndra sviða
• Gengið er út frá að viðkomandi tali og skrifi reiprennandi íslensku og ensku. Önnur tungumál eins
og grænlenska, danska og skandinavíska er kostur
• Hafa áhuga á Grænlandi og grænlenskum málefnum
Staðan felur í sér að starfsmaðurinn vinni sjálfstætt og kerfisbundið, og geti unnið með öðrum sama
hverrar stöðu viðkomandi gegnir og þvert á menningu.
Starfsmaðurinn verður að geta meðhöndlað mikið upplýsingaflæði og m.a. hafa ábyrgð á reiknings-
skilum sendiskrifstofunnar, vinna með skjöl og taka á móti gestum og sinna þeim.
Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík hefur verið starfandi síðan í október 2018 og er til húsa í
miðborg Reykjavíkur. Skrifstofuna er verið að byggja og góð samvinna verður að vera á milli
verðandi starfsmanns og yfirmann sendiskrifstofunnar. Sendiskrifstofan samanstendur í þessum
skrifuðu orðum af yfirmanni sendiskrifstofunnar og síðar meir af ritara/verkefnastjóra sem og
lærlingi.
Í daglegri vinnu okkar metum við til mikils fagmennsku sem krydduð er með sveigjanleika og húmor
sem okkur finnst vera mikilvægir eiginleikar í litlu og faglegu umhverfi. Það verða töluð mörg tungu-
mál á vinnustaðnum, þar á meðal grænlenska, því er viðeigandi að hafa áhuga á Grænlandi.
Laun og ráðningarskilmálar
Vinnutími er 37 tímar á viku. Vinnuveitandi er opinber sendiskrifstofa og því getur vinnutíminn
verið svolítið lengri hverja viku. Ráðið er í stöðuna með 5 mánaðar reynslutíma. Laun og ráðningar-
skilmálar er í samræmi við ráðningu Sendiskrifstofu Grænlands í Reykjavík sem og í samráði við
gildandi samning viðkomandi samningsaðila á Íslandi.
Frekari upplýsingar um starfið er að fá hjá yfirmanni umboðsins, Jacob Isbosethsen, í síma
+354 6655610, tölvupóstfang: jsis@nanoq.gl
Áhugasamir umsækjendur skulu senda inn afrit af prófskírteinum, upplýsingum um fyrri störf,
o.s.frv. til
jsis@nanoq.gl
Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík
Túngata 5
101 Reykjavík
Ísland
- Fyrirsögnin í tölvupóstinum skal vera „ansøgning stillingsopslag sekretær“
og þarf umsóknin að vera á dönsku.
Umsóknina skal senda til Sendiskrifstofu Grænlands eigi síðar en 29. desember 2018.
Sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík
leitar eftir ritara/verkefnastjóra
Sendiskrifstofa Grænlands leitar eftir kraftmiklum ritara/fulltrúa til að sinna bókhaldi og starfi ritara. Starfsbyrjun er samkomulag.
- Virðing - Traust - Jákvæðni -
Bláskógabyggð leitar að jákvæðum og dugandi einstaklingum á líflegan og
skemmtilegan vinnustað. Við hvetjum jafnt konur sem karla að sækja um störfin.
ATVINNA Í BLÁSKÓGABYGGÐ
Starfsmaður Framkvæmda-
og veitusviðs
Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir stöðu starfs-
manns Framkvæmda- og veitusviðs lausa til
umsóknar.
Meginverkefni:
• Verkefni sem snúa að verklegum framkvæmdum
s.s. tæknivinnu, viðhaldsverkefnum, nýfram-
kvæmdum, umsjón og verkeftirliti. Aðstoða
við framkvæmd viðhaldsverkefna.
• Verkefni sem snúa að starfi á skrifstofu,
s.s. áætlanavinna og aðstoða við gerð útboða.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun starfsmanns skal vera iðnaðar- og/eða
tæknimenntun.
• Stundvísi og reglusemi og færni í almennum
samskiptum, en mikil áhersla er lögð á góða
þjónustu hjá Bláskógabyggð.
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð yfirsýn.
• Nákvæmni og skilvirkni í starfi.
• Krafa um góða almenna tölvukunnáttu.
• Hafi skilning og þekkingu á áætlanagerð,
s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð.
Um er að ræða fullt starf. Laun og starfskjör sam-
kvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2018 en
umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til sviðsstjóra á
netfangið bjarni@blaskogabyggd.is eða á skrifstofu
sveitarfélagsins í Aratungu Reykholti, 801 Selfoss.
Starf forstöðumanns íþrótta-
mannvirkja á Laugarvatni
Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir laust til
umsóknar starf forstöðumanns íþróttamannvirkja á
Laugarvatni.
Verkefni forstöðumanns felast m.a. í:
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi,
fjárhagsáætlunum og rekstri íþróttamannvirkja.
• Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og
búnaðar.
• Ráðningum afleysingafólks.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr.
814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
• Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni.
• Hafi þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum
og reynslu af því að umgangast börn og unglinga.
• Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd.
• Hafi hreint sakavottorð.
Um er að ræða fullt starf. Laun og starfskjör sam-
kvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2018 en
umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til sviðsstjóra á
netfangið bjarni@blaskogabyggd.is eða á skrifstofu
sveitarfélagsins í Aratungu Reykholti, 801 Selfoss.
Aðstoðarmatráður
Vegna forfalla auglýsir sveitarfélagið Bláskógabyggð
stöðu aðstoðarmatráðs lausa til umsóknar.
Bláskógabyggð leitar að jákvæðum og dugandi
einstaklingi á líflegan og skemmtilegan vinnustað. Við
hvetjum jafnt konur sem karla að sækja um starfið.
Meginverkefni:
• Aðstoð við matseld.
• Umsjón með frágangi og þrif í eldhúsi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af starfi í eldhúsi æskileg.
• Góð færni í mannlegum samskiptum.
• Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Um er að ræða fullt starf. Laun og starfskjör sam-
kvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2018 en
umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til sviðsstjóra á
netfangið bjarni@blaskogabyggd.is eða á skrifstofu
sveitarfélagsins í Aratungu Reykholti, 801 Selfoss.
Atvinnuauglýsingar 569 1100