Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 92
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 TOWER kollur. Ýmsir litir. Ø30 x H53 cm. 5.995 kr. ERTU AÐ LEITA AÐ JÓLAGJÖF? WWW.ILVA.IS/JOLAGJOF Degi íslenskrar tónlistar er fagnað í dag. Af því tilefni býðst þjóðinni að taka undir í lögunum „Hossahossa“ með Amabadama, „B.O.B.A.“ með Jóapé og Króla og „Vikivaka“ eftir Valgeir Guðjónsson við texta Jó- hannesar úr Kötlum, en útvarps- stöðvar útvarpa flutningi laganna beint frá Skelfiskmarkaðnum kl. 11.30. Við sama tækifæri verða heiðursverðlaunin Lítill fugl afhent auk þess sem sérstakir velunnarar íslenskrar tónlistar fá hvatningar- verðlaun. Degi íslenskrar tón- listar fagnað með söng FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. „Ég er mjög ánægð að byrja í sænsku deildinni. Það er skref upp á við en samt sem áður ekkert alltof stórt fyrsta skref. Leikurinn er að- eins hraðari en heima og meira af ungum leikmönnum sem hungrar í að ná langt,“ segir Andrea Jacob- sen, tvítug landsliðskona í hand- knattleik sem er á fyrsta ári sínu í atvinnumennsku í Svíþjóð. » 1 Ekkert alltof stórt fyrsta skref ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Þýsk og íslensk jóla- tónlist ómar í Garðabæ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tómas Ingi Tómasson, knattspyrnu- maður, yfirþjálfari yngri flokka Fylkis og aðstoðarþjálfari 21 árs karlalandsliðs Íslands í fótbolta, gekkst undir liðskiptaaðgerð á mjöðm fyrir um fjórum árum og hef- ur ekki náð sér síðan. Efnt verður til Tommadags á sunnudag til að styrkja Tomma og fjölskyldu hans, en hann vonast til þess að fá bót meina sinna í Þýskalandi á næstunni. Tommi hefur verið á spítala lengst af síðan í apríl sl. Hann hefur borið þjáningar sínar í hljóði og var alfarið á móti því að bera veikindin á torg þegar fyrst var rætt um að halda sér- stakan styrktardag. „Ég vildi ekki þessa athygli, en því er ekki að neita að tíminn frá fyrstu aðgerð hefur reynst okkur afskaplega erfiður og kostnaðurinn mikill,“ segir Tommi. „Góður og einlægur vilji býr að baki átakinu, ég er mjög þakklátur fyrir stuðninginn og því náði jáið yfirhönd- inni.“ Styrktardagskrá á sunnudag Tommadagurinn verður í Egilshöll nk. sunnudag. Landsliðsmennirnir fyrrverandi og þjálfararnir Eyjólfur Sverrisson, Rúnar Kristinsson og Arnar Grétarsson stjórna knatt- þrautum á opinni æfingu fyrir sex til tólf ára stúlkur og stráka kl. 9.45 til 10.45 og greiðir hvert barn 1.000 kr. fyrir æfinguna. Kl. 11 hefst úrslita- leikur Tommamótsins, þar sem pressulið Rúnars Kristinssonar tek- ur á móti landsliði Eyjólfs Sverris- sonar. Á meðal leikmanna má nefna Guðna Bergsson, Inga Sigurðsson, Kristján Finnbogason, Birki Krist- insson, Willum Þór Þórsson og Ólaf Skúlason, en allir sem koma að leikn- um greiða frjáls framlög við inngang- inn rétt eins og allir áhorfendur. Auk þess má leggja inn á styrktarreikn- ing (528-14-300, kt. 0706694129). Þegar Tómas fór í fyrstu aðgerð- ina í janúar 2015 var talið að hann myndi ná sér fljótt en annað kom á daginn. „Ég var með stöðuga verki en læknirinn trúði mér ekki og sagði bara áfram gakk. Ég hélt áfram upp- byggingu en var jafnóðum sleginn niður aftur. Eftir um tveggja ára baráttu við kerfið fékk ég loks lækni til þess að kanna málið og fór í fjöl- margar skoðanir og sprautur. Mikil vökvasöfnun var við nárann og þurfti oft að tappa úr pokanum, mest um 360 millilítrum í einu, rúmlega kók- dós.“ Hann segir að í raun hafi ekkert gerst. Menn hafi verið sammála um að eitthvað væri að, en það hafi ekki verið fyrr en Ragnar Jónsson bækl- unarlæknir kom að málinu í árs- byrjun að brugðist hafi verið al- mennilega við. Hann hafi farið í aðra aðgerð í apríl, þá þriðju í ágúst og loks í september. „Í síðustu aðgerð- inni fékk ég sýklalyf sem ég var með bráðaofnæmi fyrir og datt út en ég var á réttum stað, á gjörgæslu, og þeir náðu að kalla mig til baka.“ Tommi er ósáttur við að hafa verið eins lengi frá vinnu og raun ber vitni, fer flestra sinna ferða í hjólastól eða styðst við hækjur, en horfir bjart- sýnn fram á veginn. Andlega hliðin hafi verið erfið en sr. Gunnar Matt- híasson hafi verið algjör sáluhjálpari á spítalanum. „Ég hef rýrnað mikið og hef átt í erfiðleikum með daglegar athafnir, en sagt er að um 1% þeirra sem fara í svona liðaðgerðir lendi í óþekktum dæmum eins og ég.“ Hann fer í sýnatöku í Hamborg í næstu viku og vonast til þess að komast þar í aðgerð í janúar. „Ég vona að ég fái góða gjöf um jól eða áramót,“ segir hann um næstu skref. „Þetta hefur verið mjög erfitt og mig langar svakalega til þess að fara að gera eitthvað. Fyrsta innlögnin átti að taka þrjá til fjóra daga og þeir standa enn yfir, en ég ætla ekki að tapa þessum leik.“ Morgunblaðið/Ómar U21 árs landsliðið Tómas Ingi Tómasson segir Hirti Hermannssyni til á æfingu haustið fyrir fyrstu aðgerðina. Tapar ekki þessum leik  Tommadagurinn til styrktar Tómasi Inga Tómassyni Söngvararnir Lilja Guðmundsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson flytja þýska og íslenska aðventu- og jóla- tónlist á árlegum aðventu- tónleikum þýska sendiráðsins í Vídalínskirkju í Garðabæ annað kvöld kl. 19.30. Með þeim leika Helga Bryndís Magnúsdóttir á píanó og orgel og Matthías Birgir Nardeau á óbó. Aðgangur er ókeyp- is en tekið er við frjálsum fram- lögum á tónleik- unum til styrkt- ar Barnaspítala Hringsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.