Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
TIL SÖLU Steindur gluggieftir Gerði Helgadóttur
Glugginn er 91cm á lengd og 82cm á breidd.
Upplýsingar í síma 865 1222.
Tilboð
óskast
Veður víða um heim 12.12., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Hólar í Dýrafirði 3 súld
Akureyri 5 alskýjað
Egilsstaðir 5 skýjað
Vatnsskarðshólar 8 alskýjað
Nuuk -3 alskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló -6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 léttskýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 2 þoka
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 4 heiðskírt
París 3 heiðskírt
Amsterdam 4 skýjað
Hamborg 3 léttskýjað
Berlín 2 léttskýjað
Vín 2 skýjað
Moskva 0 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 7 þoka
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 8 þoka
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -8 þoka
Montreal -10 léttskýjað
New York 3 rigning
Chicago 4 þoka
Orlando 7 heiðskírt
13. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:14 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 11:58 14:57
SIGLUFJÖRÐUR 11:43 14:38
DJÚPIVOGUR 10:52 14:52
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Vaxandi suðaustanátt, 15-23 m/s síð-
degis, hvassast syðst. Talsverð rigning um landið
suðaustanvert, en úrkomulítið norðan- og vestan-
lands. Hiti víða 3 til 8 stig.
Suðaustan 10-23 m/s, hvassara allra syðst fram eftir degi, en hvassast norðaustantil í kvöld.
Talsverð rigning um landið suðaustanvert, þurrt norðanlands, en annars rigning með köflum.
Söng- og leikkonan Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir, sem fer með aðalhlutverkið í söngleik
Borgarleikhússins um líf og feril Ellýjar Vil-
hjálms söngkonu, heimsótti Hrafnistu í gær. Þar
flutti hún nokkrar af söngperlunum sem Ellý
Vilhjálms gerði frægar og eru í söngleik Borgar-
leikhússins. Pálmi Sigurhjartarson var undir-
leikari Katrínar Halldóru á Hrafnistu.
Heimilisfólkið á Hrafnistu kunni vel að meta
flutninginn og raulaði eflaust með enda mörg
lög Ellýjar Vilhjálms með vinsælustu dægur-
lagaperlum þjóðarinnar.
Söng- og leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir heimsótti Hrafnistu
Morgunblaðið/Eggert
Sígildar dægurlagaperlur Ellýjar rifjaðar upp
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslendingar eru fastheldnir á hefðir þegar
kemur að jólamatnum. Í ár verður hamborgar-
hryggur og hangikjöt víða á borðum en þó virð-
ast æ fleiri tilbúnir að prófa
eitthvað nýtt.
„Ég fæ töluvert af fyrir-
spurnum og heyri í fólki í
kringum mig. Mín tilfinning
er að fólk sé í auknum mæli
að hverfa frá hefðum, eða að
minnsta kosti hef ég heyrt
þó nokkra segja að nú ætli
þeir að hafa eitthvað annað
en hamborgarhrygg eða
pörusteik í fyrsta skipti í
þrjátíu ár eða eitthvað slíkt.
Það hefur samt ekkert endilega með nýjunga-
girni að gera, meira að fólk vill eitthvað aðeins
léttara, eða allavega ekki eins mikið reykt og
saltað,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir, einn
helsti matarsérfræðingur landsins.
Nanna segir að þeir sem vilji breyta til prófi
margir kalkúnabringu, önd eða eitthvað slíkt
auk þess sem framandi réttir sjáist líka. „Svo
gæti ég alveg trúað að naut og lamb yrði al-
gengari jólamatur en oft áður af því að það eru
svo margir komnir með sous vide-græju.“
Fuglakjöt sækir í sig veðrið
Þó að innflutningur á kjöti hafi aukist síð-
ustu ár merkja kaupmenn sem Morgunblaðið
ræddi við ekki að framandi tegundir á borð við
fasana, akurhænur, kengúru og dádýr verði
áberandi á borðum þegar klukkan slær sex á
aðfangadag. Hins vegar kjósi fleiri léttari mat
og jafnvel einfaldari í framreiðslu.
„Fuglakjötið hefur verið að sækja í sig veðr-
ið, til dæmis kalkúnaskip og salvíusmjör-
sprautaðar kalkúnabringur. Andabringur eru
líka í stöðugri sókn. Þetta eru bæði minni
skammtar en af hefðbundna jólamatnum og
jafnvel búið að eiga aðeins við hann. Þá þarf
fólk ekki að eyða eins miklum tíma yfir pott-
unum,“ segir Karen Rúnarsdóttir, markaðs-
stjóri Krónunnar. Hún segir að vitaskuld selj-
ist mjög vel af klassískum jólamat en auknar
vinsældir léttari rétta þýði óneitanlega að
minna seljist af söltuðu kjöti á móti. Þá njóti
veganmatur sífellt meiri vinsælda.
Friðrik Guðmundsson í Melabúðinni segir
að sígildur matur á borð við hamborgarhrygg
með beini seljist vel en gott úrval af hrein-
dýrakjöti leggist sérstaklega vel í viðskiptavini
verslunarinnar. „Það er mikið flutt inn af villi-
bráð og sumt af því selst vel en annað ekki. Við
höfum verið mjög stórir í hreindýri. Svo er
gaman að sjá hvað það hefur verið að aukast
úrvalið af veganmat,“ segir hann.
Nanna kannast vel við uppgang veganmatar
um jólin. „Ég fæ mikið af fyrirspurnum um há-
tíðarrétti fyrir grænmetisætur og veganfólk,
bæði eitthvað fyrir alla fjölskylduna og ekki
síður um minni rétti sem hægt er að elda handa
grænkeranum í fjölskyldunni – það er jú svo
margt fleira til en bara hnetusteik og nú er orð-
ið mun auðveldara að finna uppskriftir að slík-
um réttum en áður var.
Og ég veit að í sumum tilvikum hefur fólk
verið að púsla þetta saman þannig að vegan-
réttirnir geti þá verið meðlæti með kjötinu sem
hinir fá og þá hefur fólk kannski verið að
breyta til með kjötréttinn svo að þetta passi
allt betur saman. Þannig að ég held að vegan-
réttir verði víða eldaðir fyrir þessi jól.“
Sífellt fleiri sækja í léttari jólamat
Margir hverfa frá gömlum hefðum við val á jólamatnum Léttari matur nýtur meiri vinsælda á
kostnað saltaðs og reykts kjöts Veganmatur sífellt vinsælli Vilja eyða minni tíma yfir pottunum
Nanna
Rögnvaldardóttir
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Klassík Hamborgarhryggur á jólaborði.
Tveir karlmenn á þrítugsaldri
hafa verið dæmdir í þriggja mán-
aða fangelsi hvor fyrir líkams-
árásir á tvo dyraverði við
skemmtistaðinn Kíkí í miðbæ
Reykjavíkur. Voru þeir einnig
fundnir sekir um að hafa ekki
hlýtt fyrirmælum lögreglu og beit
annar þeirra jafnframt lögreglu-
mann. Þá var sambýliskona ann-
ars þeirra fundin sek um að hafa
rifið í hár lögreglumanns þegar
reynt var að handtaka mennina
tvo.
Árásin átti sér stað í desember
árið 2016, en báðir mennirnir voru
mjög ölvaðir að eigin sögn. Voru
þeir í röð við staðinn er kom til
orðaskipta milli annars mannsins
og dyravarðar. Í framhaldinu var
dyravörðurinn kýldur og tekinn
hálstaki. Síðar fékk annar dyra-
vörður einnig hnefahögg.
Þá var konan dæmd í 30 daga
fangelsi. Eru dómarnir allir skil-
orðsbundnir.
Tveir karlar og ein
kona dæmd fyrir
árás við barinn Kíkí
Kíkí Hópurinn tókst á við dyraverði og lög-
reglu við skemmtistaðinn í miðbænum.