Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Staða á biðlistum eftir skurðaðgerð-
um sem eru hluti af biðlistaátaki heil-
brigðisyfirvalda hefur lagast tölu-
vert, en er þrátt fyrir það í mörgum
tilfellum fjarri viðmiðunarmörkum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Embættis landlæknis.
Embættið kallar þrisvar á ári eftir
upplýsingum um stöðu á biðlistum
eftir völdum skurðaðgerðum. Að-
gerðarstaðir eru beðnir um upplýs-
ingar um sautján aðgerðarflokka,
sem sumir hverjir eru hluti af biðlist-
aátaki. Meðal upplýsinga sem óskað
er eftir er heildarfjöldi á biðlista og
fjöldi sem hefur beðið lengur en 3
mánuði. Viðmiðunarmörk Embættis
landlæknis um ásættanlegan biðtíma
eftir aðgerð eru 90 dagar (3 mánuðir)
og er miðað við að 80% komist í að-
gerð innan þess tíma.
Aðgerðum fjölgað mikið
Í skýrslunni segir að á heildina lit-
ið hafi biðlistaátakið skilað miklum
árangri. Aðgerðum hefur fjölgað
mikið og biðtími hefur styst þrátt
fyrir að hann sé enn of oft yfir við-
miðunarmörkum. Á sama tíma og
átakið hefur staðið yfir hefur þörfin
fyrir sumar aðgerðir aukist sem lýsir
sér í auknu innflæði sjúklinga á bið-
lista eftir þeim aðgerðum. Þá hafa
ýmsir þættir dregið úr afkastagetu
sjúkrahúsanna, s.s. lokun rúma,
skortur á hjúkrunarfræðingum og
frestun aðgerða. Einnig hefur áhrif
hversu margir þeir einstaklingar eru
sem lokið hafa meðferð á Landspít-
ala og bíða eftir þjónustu annars
staðar, svo sem hjúkrunarrými, end-
urhæfingu eða búsetuúrræði. Meta
þarf þörf fyrir þessar aðgerðir til
lengri tíma og auka framleiðni í sam-
ræmi við það mat. Þá gefur mismun-
andi biðtími eftir aðgerð milli að-
gerðarstaða tilefni til þess að efla enn
frekar samstarf á milli sjúkrahúsa.
Í skýrslunni eru tilteknir 17 flokk-
ar skurðaðgerða í biðlistainnköllun. Í
ellefu þeirra virðist bið vera yfir við-
miðunarmörkum, en miðað er við að
bilið sé viðunandi ef 80% komast í að-
gerð innan þriggja mánaða.
Biðlistar eftir skurðaðgerðum á
augasteinum hafa styst verulega frá
upphafi biðlistaátaks í ársbyrjun
2016 en eru þó um þriðjungi lengri
nú en í fyrri innköllunum þessa árs.
Biðlistar eru mislangir eftir aðgerð-
arstöðum og of langir á heildina litið.
Mikil bið eftir
mjaðmaaðgerðum
Biðlistaátak varðandi kvenaðgerð-
ir (aðgerðir á grindarholslíffærum)
hefur staðið í tæp tvö ár. Misjafnt er
hve hátt hlutfall hefur beðið lengur
en 3 mánuði, en á heildina litið hafa
40% þeirra sem bíða eftir aðgerð á
aðgerðarstöðum sem eru hluti af bið-
listaátakinu beðið lengur en sem því
nemur.
Alls hafa 34 af 82 konum beðið
lengur en 3 mánuði eftir brottnámi
legs en hlutfallið er mjög misjafnt
milli aðgerðarstaða.
Um sjö af hverjum 10 sem bíða eft-
ir liðskiptaaðgerð á mjöðm hafa verið
lengur en 3 mánuði á biðlista á þeim
þremur aðgerðarstöðum sem taka
þátt í biðlistaátakinu. Biðlistar hafa
styst talsvert frá upphafi biðlistaá-
taks í ársbyrjun 2016 en bið er enn
langt umfram viðmiðunarmörk.
Ríflega tveir af hverjum þremur á
biðlista eftir liðskiptaaðgerð á hné á
þeim þremur aðgerðarstöðum sem
taka þátt í biðlistaátakinu hafa beðið
lengur en 3 mánuði. Þótt staða á bið-
listum hafi lagast töluvert frá upp-
hafi biðlistaátaksins í mars 2016 er
bið enn langt umfram viðmiðunar-
mörk.
Sjö einstaklingar af 17 á biðlista
eftir aðgerð á hjartalokum hafa beðið
lengur en 3 mánuði. Miðgildi biðtíma
hjá þeim sem fóru í aðgerð á sl. 12
mánuðum var 12 vikur, en var 7 vikur
hjá þeim sem fóru í aðgerð á árinu
2017.
Bið eftir brjósta-
minnkun ekki ásættanleg
Bið eftir brjóstaminnkun er um-
fram ásættanleg viðmið, en 99 af 108
konum hafa beðið lengur en 3 mán-
uði. Þá hafa alls 47 af 61 konu verið á
biðlista eftir endurgerð brjósts leng-
ur en 3 mánuði á Landspítala.
Tveir af hverjum þremur (27 af 41)
hafa beðið lengur en 3 mánuði eftir
aðgerð vegna vélindabakflæðis eða
þindarslits.
Í fyrstu innköllun ársins 2018 hafði
enginn beðið lengur en 3 mánuði eftir
skurðaðgerð á maga vegna offitu.
Fjölgað hefur umtalsvert á biðlistum
á seinni hluta ársins og nú hafa 62 af
129 (48%) beðið lengur en 3 mánuði.
Helmingur þeirra 46 sem eru á
biðlista eftir brottnámi hvekks um
þvagrás hefur beðið lengur en 3 mán-
uði.
gudmundur@mbl.is
Biðlistaátakið skilað árangri
Staða á biðlistum eftir skurðaðgerðum hér á landi hefur lagast töluvert á undanförnum mánuðum
Lokun rúma og skortur á hjúkrunarfræðingum hefur dregið úr afkastagetu sjúkrahúsanna
Morgunblaðið/Ásdís
Skurðaðgerðir Unnið er markvisst að því að útrýma biðlistum eftir aðgerðum í sérstöku átaki heilbrigðisyfirvalda.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Glæsilegar
jólagjafir
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Opið alla
daga til jóla