Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Landsvirkjun hélt fyrir nokkru morgun- verðarfund um orku- markað í mótun. Það var ánægjulegt að sjá í erindi Sveinbjörns Finnssonar á fund- inum betur útfærða hugmynd um aðra leið að frjálsum markaði en þá sem undirritaður varpaði fram innan Lands- virkjunar fyrir hálfum öðrum ára- tug. Hugmyndin gengur út á að verðleggja orku Landsvirkjunar þannig að nokkuð fáist fyrir þann sveigjanleika sem vatnsorka fyrir- tækisins hefur umfram jarð- varmaorku. Form þess markaðar sem Landsvirkjun er þarna að lýsa er byggt upp á grundvelli þeirrar auðlindastýringar sem fyrirtækið ástundar í orkukerfi sínu og getur því hentað betur hér en form orkumarkaða í ESB. Það verður hins vegar að segja þá sögu eins og er, að þessi markaður er hvorki vel virkur í skilningi tilskipunar ESB nr. 72/2009 né þjónar hann langtímamarkmiðum ESB, svo landsreglarinn sem fylgir með í þriðja orkupakkanum getur illa samþykkt þetta markaðsform. Því svipar meira til markaða Evrópu eins og þeir voru 2003, þegar fyrsti orkupakkinn var sam- þykktur. Heitið landsreglari á við Orku- stofnun þegar hún vinnur að lög- bundnum verkefnum samkvæmt tilskipun ESB, en þau skal vinna með því markmiði að koma fram stefnumálum sam- bandsins svo sem markaðsvæðingu eftir reglum ESB og sæ- streng hver sem stefna ríkisstjórnar Íslands er. Það hefur verið gagnrýnt að setja þetta hlutverk Orkustofnunar í lög frá Alþingi og gera landsreglarann að óháðu stjórnvaldi hlið- stætt ráðherra. Þess- ari gagnrýni svarar ráðuneyti atvinnuvega og nýsköp- unar því einu, að ekki verði stofn- að sérstakt embætti landsreglara. Ráðuneytið virðist ekki skilja hlut- verk landsreglarans til fulls. Í fyrstu voru raforkumarkaðir svipaðir almennum uppboðum, þannig að viðskipti komust á við handsal. Eftir 2009 breyttist form- ið í það sem kalla má óbein tilboð þar sem viðskipti fara fram á því verði þar sem jafnvægi ríkir milli framboðs og eftirspurnar. Mark- aðsverð ákvarðast nú með skýrari hætti og verðjöfnun er markviss- ari, sem hvort tveggja er í sam- ræmi við langtímastefnu ESB. Á þessu formi fellur raforkumark- aðurinn vel að því hlutverki sínu að taka við orkunni af eldsneyt- ismörkuðum og flytja áfram í formi rafmagns til orkunotenda. Hlutverkaskipting verður þarna alveg skýr, eldsneytismarkaðir tryggja orkuframboð og raf- orkumarkaðir tryggja öryggi flutnings og vélaraflið sem þarf til að breyta eldsneyti í raforku. Það hefur ætíð verið og verður að vera áfram hlutverk raforku- fyrirtækjanna hér að tryggja orkuna og það gerir Landsvirkjun fyrir sitt leyti með auðlindastýr- ingu. Hlutverk landsreglara er skilgreint af hálfu ESB þannig, að hann getur lítið annað en þvælst fyrir eða skaðað þegar reynt er að feta sig áfram að nothæfu mark- aðsformi sem tekur mið af auð- lindastýringu eins og Lands- virkjun er að gera. Lands- reglarinn er því óþarfur til allra annarra verka en þeirra sem kerf- isstjórinn Landsnet getur ágæt- lega unnið án hans. Þó Landsvirkjun sé komin vel af stað, þá er eftir sá hjallinn sem erfiðastur verður, sem er að gera sölufyrirtækin óháð móðurfyrir- tækjunum. Þar með missa jarð- varmafyrirtækin markaðs- tryggingu sem er þeim mikilvæg, meðal annars vegna markaðs- ráðandi stöðu Landsvirkjunar. Á þessu sviði skaðar þriðji orku- pakkinn. Með sveigjanleika sínum veita vatnsorkuverin verðmætari þjón- ustu en jarðvarminn. Finna verður leið til að bæði þessi orkuform fái notið sín á markaðnum á hag- kvæman hátt á heildina litið. Einnig þarf að taka tillit til þess að markaðsverðmæti orkunnar á hverjum virkjunarstað er afar misjafnt vegna mismunandi kostn- aðar við orkuöflun. Nauðsynlegt er að koma á auð- lindastýringu yfir allt landið með þeim hætti sem Landsvirkjun hef- ur og taka jarðvarmann þar með. Ef við síðan ætlum að koma hér á frjálsum markaði er álitlegast að þróa áfram þann vísi sem Lands- virkjun kynnti á morgunverð- arfundi sínum og hafa náið samráð við fyrirtækin á markaðnum. Sam- þykkt þriðja orkupakkans mun gera þetta ferli ómögulegt. Þegar orkulögin voru sett 2003 og við samþykktum að vera í innri orkumarkaði ESB grunaði engan að ESB mundi taka þá stefnu að gera allt svæði innri raforkumark- aðarins að einu verðsvæði og breyta mörkuðunum svo þeir virki betur í þá átt. Til að koma þeirri stefnu örugglega fram lætur ESB þjóðþing landanna setja sérstakan yfirmann, landsreglarann, yfir raf- orkugeirann utan valdsviðs hverr- ar ríkisstjórnar en í reynd með ráðherravald og náin tengsl við ACER. ESB tryggir síðan með reglugerðum að landsreglarinn sé fulltrúi þjóðar sinnar í viðræðum, sem jafnvel geta valdið henni verulegum fjárskuldbindingum. Hráorkan hér, vatn og jarðgufa getur ekki farið gegnum orku- markað eins og eldsneyti aflstöðva Evrópu gerir og því nær vald landsreglarans einnig yfir vinnslu úr auðlindunum. Þannig virkar þriðji orkupakkanum hér á landi. Þetta fyrirkomulag vegur of mikið að fullveldi okkar og það er Al- þingis að kveða fyrst upp þann dóm. Þingið á að hafna þriðja orkupakkanum. Raforkumarkaður Landsvirkjunar Eftir Elías Elíasson » Þetta fyrirkomulag vegur of mikið að fullveldi okkar og það er Alþingis að kveða fyrst upp þann dóm. Elías Elíasson Höfundur er sérfræðingur í orkumálum. eliasbe@simnet.is Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.