Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Landsvirkjun hélt
fyrir nokkru morgun-
verðarfund um orku-
markað í mótun. Það
var ánægjulegt að sjá
í erindi Sveinbjörns
Finnssonar á fund-
inum betur útfærða
hugmynd um aðra
leið að frjálsum
markaði en þá sem
undirritaður varpaði
fram innan Lands-
virkjunar fyrir hálfum öðrum ára-
tug. Hugmyndin gengur út á að
verðleggja orku Landsvirkjunar
þannig að nokkuð fáist fyrir þann
sveigjanleika sem vatnsorka fyrir-
tækisins hefur umfram jarð-
varmaorku.
Form þess markaðar sem
Landsvirkjun er þarna að lýsa er
byggt upp á grundvelli þeirrar
auðlindastýringar sem fyrirtækið
ástundar í orkukerfi sínu og getur
því hentað betur hér en form
orkumarkaða í ESB. Það verður
hins vegar að segja þá sögu eins
og er, að þessi markaður er hvorki
vel virkur í skilningi tilskipunar
ESB nr. 72/2009 né þjónar hann
langtímamarkmiðum ESB, svo
landsreglarinn sem fylgir með í
þriðja orkupakkanum getur illa
samþykkt þetta markaðsform. Því
svipar meira til markaða Evrópu
eins og þeir voru 2003, þegar
fyrsti orkupakkinn var sam-
þykktur.
Heitið landsreglari á við Orku-
stofnun þegar hún vinnur að lög-
bundnum verkefnum samkvæmt
tilskipun ESB, en þau skal vinna
með því markmiði að koma fram
stefnumálum sam-
bandsins svo sem
markaðsvæðingu eftir
reglum ESB og sæ-
streng hver sem
stefna ríkisstjórnar
Íslands er. Það hefur
verið gagnrýnt að
setja þetta hlutverk
Orkustofnunar í lög
frá Alþingi og gera
landsreglarann að
óháðu stjórnvaldi hlið-
stætt ráðherra. Þess-
ari gagnrýni svarar
ráðuneyti atvinnuvega og nýsköp-
unar því einu, að ekki verði stofn-
að sérstakt embætti landsreglara.
Ráðuneytið virðist ekki skilja hlut-
verk landsreglarans til fulls.
Í fyrstu voru raforkumarkaðir
svipaðir almennum uppboðum,
þannig að viðskipti komust á við
handsal. Eftir 2009 breyttist form-
ið í það sem kalla má óbein tilboð
þar sem viðskipti fara fram á því
verði þar sem jafnvægi ríkir milli
framboðs og eftirspurnar. Mark-
aðsverð ákvarðast nú með skýrari
hætti og verðjöfnun er markviss-
ari, sem hvort tveggja er í sam-
ræmi við langtímastefnu ESB. Á
þessu formi fellur raforkumark-
aðurinn vel að því hlutverki sínu
að taka við orkunni af eldsneyt-
ismörkuðum og flytja áfram í
formi rafmagns til orkunotenda.
Hlutverkaskipting verður þarna
alveg skýr, eldsneytismarkaðir
tryggja orkuframboð og raf-
orkumarkaðir tryggja öryggi
flutnings og vélaraflið sem þarf til
að breyta eldsneyti í raforku.
Það hefur ætíð verið og verður
að vera áfram hlutverk raforku-
fyrirtækjanna hér að tryggja
orkuna og það gerir Landsvirkjun
fyrir sitt leyti með auðlindastýr-
ingu. Hlutverk landsreglara er
skilgreint af hálfu ESB þannig, að
hann getur lítið annað en þvælst
fyrir eða skaðað þegar reynt er að
feta sig áfram að nothæfu mark-
aðsformi sem tekur mið af auð-
lindastýringu eins og Lands-
virkjun er að gera. Lands-
reglarinn er því óþarfur til allra
annarra verka en þeirra sem kerf-
isstjórinn Landsnet getur ágæt-
lega unnið án hans.
Þó Landsvirkjun sé komin vel af
stað, þá er eftir sá hjallinn sem
erfiðastur verður, sem er að gera
sölufyrirtækin óháð móðurfyrir-
tækjunum. Þar með missa jarð-
varmafyrirtækin markaðs-
tryggingu sem er þeim mikilvæg,
meðal annars vegna markaðs-
ráðandi stöðu Landsvirkjunar. Á
þessu sviði skaðar þriðji orku-
pakkinn.
Með sveigjanleika sínum veita
vatnsorkuverin verðmætari þjón-
ustu en jarðvarminn. Finna verður
leið til að bæði þessi orkuform fái
notið sín á markaðnum á hag-
kvæman hátt á heildina litið.
Einnig þarf að taka tillit til þess
að markaðsverðmæti orkunnar á
hverjum virkjunarstað er afar
misjafnt vegna mismunandi kostn-
aðar við orkuöflun.
Nauðsynlegt er að koma á auð-
lindastýringu yfir allt landið með
þeim hætti sem Landsvirkjun hef-
ur og taka jarðvarmann þar með.
Ef við síðan ætlum að koma hér á
frjálsum markaði er álitlegast að
þróa áfram þann vísi sem Lands-
virkjun kynnti á morgunverð-
arfundi sínum og hafa náið samráð
við fyrirtækin á markaðnum. Sam-
þykkt þriðja orkupakkans mun
gera þetta ferli ómögulegt.
Þegar orkulögin voru sett 2003
og við samþykktum að vera í innri
orkumarkaði ESB grunaði engan
að ESB mundi taka þá stefnu að
gera allt svæði innri raforkumark-
aðarins að einu verðsvæði og
breyta mörkuðunum svo þeir virki
betur í þá átt. Til að koma þeirri
stefnu örugglega fram lætur ESB
þjóðþing landanna setja sérstakan
yfirmann, landsreglarann, yfir raf-
orkugeirann utan valdsviðs hverr-
ar ríkisstjórnar en í reynd með
ráðherravald og náin tengsl við
ACER. ESB tryggir síðan með
reglugerðum að landsreglarinn sé
fulltrúi þjóðar sinnar í viðræðum,
sem jafnvel geta valdið henni
verulegum fjárskuldbindingum.
Hráorkan hér, vatn og jarðgufa
getur ekki farið gegnum orku-
markað eins og eldsneyti aflstöðva
Evrópu gerir og því nær vald
landsreglarans einnig yfir vinnslu
úr auðlindunum. Þannig virkar
þriðji orkupakkanum hér á landi.
Þetta fyrirkomulag vegur of mikið
að fullveldi okkar og það er Al-
þingis að kveða fyrst upp þann
dóm. Þingið á að hafna þriðja
orkupakkanum.
Raforkumarkaður Landsvirkjunar
Eftir Elías Elíasson » Þetta fyrirkomulag
vegur of mikið að
fullveldi okkar og það er
Alþingis að kveða fyrst
upp þann dóm.
Elías Elíasson
Höfundur er sérfræðingur í
orkumálum.
eliasbe@simnet.is
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?