Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 36
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Ingveldur Ægisdóttir og maki henn- ar Kristinn Aðalsteinn Eyjólfsson hafa um árabil staðið í ströngu við heilbrigðis- og almannatrygg- ingakerfið hér á landi fyrir hönd langveikrar dóttur sinnar, Lovísu Lindar. Lovísa, sem verður þriggja ára í febrúar, er með afar sjaldgæfan litn- ingagalla í geni sem kallast SCN2A. Ásamt því er hún með sex aðrar greiningar og er bæði hreyfi- og þroskahömluð. Álagið við að eiga langveikt barn er mikið en bæst hefur í það álag þar sem foreldrarnir hafa meðal annars þurft að standa í að kæra úrskurði frá Sjúkratryggingum Íslands til að fá nauðsynleg hjálpartæki handa Lovísu. Grunaði eitthvað frá fæðingu „Hún var níu mánaða þegar hún fékk fyrsta flogakastið. Mig var nátt- úrlega búið að gruna það frá fæðingu að það væri eitthvað að. Hún grét allt fyrsta hálfa árið og alveg upp í 12 tíma á dag. Svo steig hún aldrei í fæt- ur, var ekki með grip í höndum og sjónin var ekki í lagi. Svo fékk hún flogakast og út frá því fór ferli í gang,“ segir Ingveldur spurð um hvenær þau vissu að Lovsía væri veik. Álagið og svefnleysið hafði mikil áhrif á foreldrana og upphaflega beindust spjót heilbrigðistarfsmanna að Ingveldi þar sem óttast var að hún hefði verið í neyslu á meðgöngunni. „Ég var með hana í ungbarnaeftirliti og hún grét svo mikið og svo svaf hún heldur ekki neitt. Barnalækn- irinn hélt að hún væri í fráhvörfum og fannst ekkert annað geta skýrt þennan grát. Ég var því tilkynnt til barnaverndar,“ segir Ingveldur og daginn eftir var barnavernd komin á heimilið. Slíkur grunur reyndist ekki á rökum reistur, en Ingveldur segist hafa verið farin að missa hárið og dofna í höndum vegna streitu á með- an þessi óvissa stóð yfir. „Við upplifðum okkur bara lengi vel eins og fyrsta fólkið sem var að eignast langveikt barn. Bæði vegna viðbragða frá spítalanum og annars staðar frá,“ segir Kristinn og bætir við að þau hafi bæði verið í miklu áfalli. „Í áfallinu verður maður auð- vitað ekki hressasti maðurinn og manni líður ekki vel en mér finnst það skelfilegt hvernig er tekið á þessu hlutum. Eiginlega til skamm- ar,“ segir Kristinn. Lovísa var að lokum send í heila- rit, sem sýndi að það væri eitthvað mikið að að sögn Ingveldar. „Svo var hún send í heilaskanna, tekinn mænuvökvi og alls konar prufur en það kom ekkert út úr því. Svo fékk hún kippaflogaveiki ungbarna [e. in- fantile spasms] sem er mjög hættu- legt og það hefur skaðleg áhrif á heil- ann ef það er ekki stöðvað innan viss tíma. Það virkuðu engin neyðarlyf og engin flogalyf,“ segir Ingveldur en það endaði með að Lovísa var lögð inn. „Við fórum inn á spítalann 27. nóv- ember [árið 2016] og svo var það á gamlárskvöld sem hún var bara að fjara út, var í sífelldu flogi og búin að missa allan mátt. Við þurftum á end- anum að stappa niður fótunum og segja „þið verðið að gera eitthvað“ þegar það var ákveðið að hún yrði svæfð. Henni var þá komið í dá þar sem er slökkt á heilanum.“ Lovísu var haldið sofandi í þrjár vikur á meðan læknarnir leituðu lausna. Það tók síðan langan tíma að vekja hana aftur og segir Ingveldur að hún hafi fengið gjörbreytt barn í hendurnar eftir á. „Brosið var farið, hláturinn farinn, allt sem var búið að þroskast fór. Mér fannst meira að segja eins og útlitið hefði breyst en Berjast fyrir rétti barnsins síns  Foreldrar langveiks barns hafa þurft að standa í ströngu til að fá aðstoð og hjálpartæki fyrir barn sitt  Synjað um legubekk og kærðu úrskurðinn  Meira en hálfs árs bið eftir sjúkrarúmi Morgunblaðið/Eggert Fjölskylda Ingveldur og Kristinn ásamt Lovísu Lind sem verður þriggja ára í febrúar. Fjölskyldan bíður nú eftir sjúkrarúmi handa Lovísu. 36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.