Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 84
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
40%
AF ALLRI JÓLAVÖRU
Í DESEMBER
ARVE jólaskraut.
Ø20 cm.
1.995 kr.
ARVE jólaskraut.
Ø35 cm.
4.995 kr.
Oddhvassir blýantar nefnist al-
þjóðleg skopmyndasýning um kven-
réttindi og málfrelsi sem opnuð
verður í dag kl. 17 í Borgarbóka-
safninu í Gerðubergi. Sýningin er í
boði Kvenréttindafélags Íslands og
sendiherra Frakklands á Íslandi og
eru höfundar skopmyndanna teikn-
arar sem starfa víða um heim og
sumir hverjir í löndum þar sem list
þeirra leggur frelsi þeirra að veði.
Alþjóðleg skopmynda-
sýning í Gerðubergi
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 347. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Vonandi hjálpar það mér að hafa
íslenska leikmenn og stelpur sem
ég þekki við hlið mér og fyrir aftan
mig. Við vonandi skellum í íslensk-
an lás þarna í vörninni,“ segir Guð-
rún Arnardóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, sem hefur samið við
Djurgården í Stokkhólmi og vonast
til að mynda sterkt íslenskt þríeyki
aftast á vellinum. » 1
Skellum vonandi í
íslenskan lás í vörninni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Söngvarinn Harold Burr heldur
jólatónleika í Hannesarholti í kvöld
kl. 20. Burr var áður í hinni þekktu
bandarísku söngsveit The Platters
og mun í kvöld syngja jólalög af
ýmsum gerðum. Burr hefur haldið
fjölda tónleika hér á
landi og komið
nokkrum sinnum
fram í Hann-
esarholti.
Á undan tón-
leikunum býðst
kvöldverður í
jólaanda í
veitinga-
stofunum á 1.
hæðinni og
þarf að panta
borð til að
njóta hans.
Harold Burr í jólaskapi
í Hannesarholti
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Þrítug íslensk kona, Sara Nassim
Valadbeygi, er tilnefnd til Grammy-
verðlaunanna sem framleiðandi tónlist-
armyndbands söngkonunnar Tierra
Whack, Mumbo Jumbo. Fjögur önnur
myndbönd eru tilnefnd í sama flokki og
Mumbo Jumbo. Grammy-verðlaunin
verða afhent í Los Angeles 10. febrúar.
Að sögn Söru er Tierra Whack vel
þekkt söngkona í Bandaríkjunum.
„Grammy-verðlaunin eru ein virt-
ustu tónlistarverðlaun í heimi og því
mikill heiður að vera tilnefnd. Mestu
þýðinguna hefur þetta fyrir Tierra
Whack sem er ung og ótrúlega hæfi-
leikarík listakona. Hún og leikstjórinn
Marco Prestini eiga þetta innilega skil-
ið og ég vona að tilnefningin opni fyrir
þeim fleiri tækifæri,“ segir Sara en
Mumbo Jumbo hefur fengið 468.000
áhorf á youtube frá því í október 2017.
Sara er alin upp í Vesturbæ Reykja-
víkur, gekk í Hagaskóla og MH en
þaðan fór hún til Los Angeles í meist-
aranám í kvikmyndaframleiðslu.
„Ég fór í skóla sem heitir American
Film Institute Conservatory sem er
mjög virtur í faginu. Ég útskrifaðist
2015 og hef búið í LA síðan og unnið
sem framleiðandi,“ segir Sara sem hóf
störf í kvikmyndabransanum á Íslandi
fyrir tvítugt.
„Ég byrjaði sem aðstoðarmanneskja
og vann mig upp eftir því sem árin liðu.
Kvikmyndir, saga kvikmynda og gerð
kvikmynda hafa alltaf heillað mig en
það hefur eflaust eitthvað að gera með
það að mamma mín, Hrönn Kristins-
dóttir, er kvikmyndaframleiðandi.
„Ég lít á mig sem skapandi kvik-
myndaframleiðanda og hef áhuga á því
að halda áfram að kynnast og vinna
með skapandi fólki. Ég er sjálf alin upp
við skapandi hugsunarhátt og margir
af mínum nánustu vinum og ættingjum
deila ástríðu fyrir sköpun og list,“ segir
Sara, sem hefur meðal annars fram-
leitt sex eða sjö stuttmyndir. Hún hef-
ur verið framleiðslustjóri við gerð ís-
lenskra kvikmynda svo sem
Hjartasteins og nýverið kvikmyndar-
innar Héraðsins sem Grímar Jónsson
framleiddi og Grímur Hákonarson
leikstýrði. Þar að auki hefur Sara unn-
ið að tónlistarmyndböndum fyrir
nokkra þekkta listamenn, svo sem
Cold War Kids og Björk.
„Þessa dagana fer allur tími minn í
undirbúning fyrir mynd í fullri lengd
sem ég framleiði og heitir Dýrið og er í
leikstjórn Valdimars Jóhannssonar,“
segir Sara.
Fjölhæf Sara Nassim hefur í rúman áratug unnið í kvikmyndaiðnaði á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Sara Nassim tilnefnd
til Grammy-verðlauna
Framleiðandi Mumbo Jumbo-myndbands Tierra Whack
Sara Nassim hefur gegnt ýms-
um störfum í tengslum við
framleiðslu á erlendum kvik-
myndum og þáttum sem tekin
hafa verið á Íslandi, svo sem
Game of Thrones, Secret Life of
Walter Mitty og Noah. Af inn-
lendum kvikmyndum sem Sara
hefur komið að má nefna Fúsa,
Eldfjall, Rokland og Mömmu
Gógó.
Kvikmyndir
SARA NASSIM