Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 22
Aðventuhátíð verður í Lindakirkju
í Kópavogi næstkomandi sunnu-
dagskvöld kl. 20. Kór Lindakirkju
og einsöngvarar úr kórnum syngja
fjölbreytt jólalög og sálma, undir
stjórn Óskars Einarssonar.
Hljómsveitina skipa Óskar Ein-
arsson, Páll Elvar Pálsson, Pétur
Erlendsson og Brynjólfur Snorra-
son. Unglingagospelkór Linda-
kirkju og Barnakór Lindakirkju
syngja, undir stjórn Áslaugar
Helgu Hálfdánardóttur.
Miðaverð er aðeins 1.500 kr. og
rennur innkoman óskipt til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Miðasala fer
eingöngu fram á midi.is. Húsið
verður opnað kl. 19.30.
Aðventuhátíð Kór
Lindakirkju syngur.
Aðventuhátíð í Lindakirkju
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
102985
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
11 dagar til jóla
Diplómadeildir Myndlistaskólans í Reykjavík standa fyrir jólalistabasar á
Loft hosteli, Bankastræti 7, næsta sunnudag kl. 15-19.
Þar verður alls kyns handverk til sölu sem nemendur segja tilvalið í jóla-
pakkann. Hægt verður að borga með peningum, millifærslum, Aur eða
Kass og auk þess verður einn posi á staðnum, segir í tilkynningu.
Jólalistabasar myndlistarnema
Í samstarfi við Frú Laufeyju, félag
um skaðaminnkun, ætla sjö slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamenn að róa
á Concept2-róðravél stanslaust í
eina viku og safna þannig fé fyrir
verkefni Rauða krossins í Reykja-
vík, Frú Ragnheiði. Fer róðurinn
fram í versluninni Under Armour í
Kringlunni.
Frú Ragnheiður hefur það mark-
mið að ná til jaðarhópa í samfélag-
inu. Afrakstur söfnunarinnnar
verður m.a. notaður til að kaupa
tæki, hjúkrunarvörur og sýklalyf.
Hægt er að leggja söfnuninni lið
með því að fara á vefslóðina
gefa.raudikrossinn.is/8287 eða
senda sms-ið TAKK í símanúmerið
1900 og gefa þannig 1.900 kr. Einn-
ig verður hægt að mæta í Under
Armour og taka róður á vélinni
gegn 1.000 kr. gjaldi.
Róa lífróður í viku fyrir Frú Ragnheiði
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þrátt fyrir mikil fundarhöld í
tengslum við endurnýjun kjara-
samninga virðist vera borin von að
takast muni að ljúka gerð þeirra fyr-
ir áramót. Samningarnir á almenna
vinnumarkaðinum renna út í árslok.
Viðræðunefndir stéttarfélaganna og
Samtaka atvinnulífsins hafa fundað
reglulega og mikil vinna fer fram um
einstök viðfangsefni í vinnuhópum
og undirhópum m.a. um húsnæðis-
mál o.fl. Þá munu skv. heimildum
blaðsins vera væntanlegar bráða-
birgðaniðurstöður starfshóps um
skattabreytingar næsta miðvikudag.
Funda frá morgni til kvölds
„Það eru undirhópar á fullu að
vinna og það er fundað á hverjum
einasta degi frá morgni til kvölds,“
segir Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR. Landssambönd og félög
hafi skipt með sér verkum svo ekki
séu allir að vinna í því sama og segir
hann mikla samstöðu í hópnum.
Ragnar Þór segir öll mál uppi á
borðum en ekkert í höfn enn sem
komið er. ,,Auðvitað eru menn að
reyna að vera lausnamiðaðir en
þetta er bara í vinnslu og erfitt að tjá
sig um stöðuna að öðru leyti en því
að það er ekkert farið að sjá til lands
í neinum af þess um stóru málum en
þau eru þó öll í vinnslu,“ segir hann.
Skammur tími er til áramóta eða
aðeins níu virkir dagar og telur hann
óraunhæft að reikna með að takist
að ljúka samningum á þeim tíma.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins
og Björn Snæbjörnsson, formaður
SGS, eru á sama máli. „Við erum bú-
in að vera að funda nokkuð stíft síð-
ustu vikurnar og munum funda
næstu tvær vikur fram að jólum en
mér finnst ólíklegt að við náum fundi
milli jóla og nýárs. Við munum nota
tímann ef við erum að tala um eitt-
hvað sem skiptir máli en mér sýnist
augljóst að við séum varla að fara að
ná samningum fyrir áramót miðað
við hvernig staðan er,“ segir Krist-
ján.
Björn kveðst enga trú hafa á að
viðræðurnar verði leiddar til lykta
fyrir áramótin. ,,Það hefur verið
ágætisvinna í hinum ýmsu hópum.
Það hefur svo sem ekki mikið komið
út úr því en það er vinna í gangi.“
Meta gögn frá Hagstofunni
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir að
fengist hafi gögn frá Hagstofunni
fyrir hvert og eitt stéttarfélag og er
verið að meta vinnustundir, yfir-
vinnutíma og fleira m.a. til að meta
kostnað og áhrif af einstaka breyt-
ingum. „Ég hef ekki farið í grafgötur
með það að stóra tækifærið í þessum
kjarasamningum er að draga úr
þeim mikla yfirvinnukúltúr sem er á
Íslandi og það skapar þá grunn fyrir
hækkun dagvinnulauna. Þar erum
við stödd í vinnunni eins og sakir
standa,“ segir Halldór.
Spurður um aðkomu stjórnvalda
til að greiða fyrir gerð samninga
segir hann að sögulega séð hafi að-
koma stjórnvalda verið á lokametr-
um kjaraviðræðna. „Mér finnst ekki
ólíklegt að það verði líka með þeim
hætti núna,“ segir hann.
Að sögn Kristjáns hafa stjórnvöld
lítið haft sig í frammi. „Mér heyrist
ekkert vera að gerast hjá stjórnvöld-
um. Það er engin hlustun í gangi þar
og mér heyrist að það sé bara ekkert
sem þeir ætli sér að leggja til mál-
anna með raunverulegum hætti eins
og þetta er núna,“ segir hann.
Dragist viðræðurnar fram á
næsta ár eins og allt útlit er fyrir
mun verkalýðshreyfingin krefjast
þess að nýir samningar gildi frá ára-
mótum. Ragnar Þór segir að hreyf-
ingin þurfi að ákveða hvernig hún
ætlar að bregðast við því ef viðræð-
urnar dragast fram á næsta ár.
Mörg mál séu í vinnslu, m.a. eigi
húsnæðisnefnd forsætisráðherra að
skila af sér 20. janúar en óvíst sé
hvað komi út úr þeirri vinnu og hvort
það verði verkalýðshreyfingunni að
skapi. Meta þurfi hvort mynda eigi
nægilega mikinn þrýsting til að
meiri kraftur verði settur í þessa
vinnu. Einn af valkostunum sé sá að
vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemj-
ara ef ástæða þyki til að koma á virk-
ari verkstjórn. „Síðan er hugsanlegt
að við náum bindandi samkomulagi
um að kjarasamningurinn gildi frá 1.
janúar þannig að það gefur okkur
kannski meira andrými. Það eru
ennþá margar leiðir í stöðunni,“ seg-
ir Ragnar Þór.
Verslunarmenn ætla að funda í lok
þessarar viku og taka afstöðu til
stöðu samningaviðræðnanna og
ræða næstu skref. Á föstudaginn er
líka boðaður formannafundur
Starfsgreinasambandsins þar sem
fara á yfir stöðuna. Ekki er útilokað
að þar verði rætt hvort komið sé að
þeim tímapunkti að vísa til sátta-
semjara.
Önnum kafin en sjá ekki til lands
Lítil sem engin von er um að samningar náist fyrir áramót Verslunarmenn og SGS meta stöðuna
og næstu skref í lok vikunnar Bráðabirgðatillagna um skattabreytingar er að vænta á miðvikudag
Morgunblaðið/Hari
Að renna út Aðeins sjö virkir dagar eru til jóla og afar ólíklegt er talið að
takast muni að semja fyrir áramót en kjarasamningar falla úr gildi í árslok.
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Björn
Snæbjörnsson
Ragnar Þór
Ingólfsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson