Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 63
DÆGRADVÖL 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
ÁN TÓBAKS
MEÐ NIKÓTÍNI
Zonnic Mint munnholsduft í posa og Zonnic Pepparmint munnholsúði innihalda nicotin. Lyfin eru ætluð til
meðferðar við tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ósköp notalegt að finna að
fólk getur glaðst yfir velgengni annarra. Þú
rekur smiðshöggið á framkvæmdirnar á
heimilinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Ný kynni færa þér ferskar hugmyndir
og breytingar á reglubundinni rútínu gera
daginn eftirminnilegan. Hristu af þér slenið
og gakktu í verk sem þarf að klára.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sestu nú niður og gerðu áætlun um
að gera draum þinn að veruleika. Þú sérð oft
sóknarfæri þar sem aðrir sjá ekki neitt. Nýttu
þér þennan hæfileika.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of
með þín mál. Hlustaðu á hjartað einu sinni,
ekki bara horfa á excel-skjalið sí og æ. Ekki
spenna bogann þó of hátt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér líður betur en oft áður. Sníddu þér
stakk eftir vexti og ekki ætla of knappan tíma
í verkefni. Þú færð storminn í fangið í stuttan
tíma, svo kemur logn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér tekst að miðla málum ef þú kem-
ur til dyranna eins og þú ert klædd/ur. Þér
líður frábærlega nú þegar þú ert búin/n að
skila verkefnum og málið er úr þínum hönd-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þú skiljir ekki lífið til fulls er engin
ástæða til þess að láta hugfallast. Nýir siður
fylgja oft nýju ári. Ertu búin/n að ákveða
hvað þú gerir eða breytir?
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ástvinir átta sig ekki á því hvað
þú ert að fara eða misskilja þig alfarið. Fylgdu
straumnum og sjáðu hvert hann leiðir þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Taktu þér frí frá áhyggjunum,
þær bæta hvort sem er ekki neitt og breyta
engu. Þú hefur alltaf verið veik/ur á svellinu
þegar kemur að kræsingum, gættu hófs, þá
fer allt vel.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hamingjan er alls staðar í dag.
Fólk á sömu línu og þú gleðst með þér og
finnst að þú ættir að slá upp veislu. Sópaðu
verkefnum undir teppið í bili.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að læra að notfæra þér
betur þá góðu strauma sem leika um þig.
Forðastu að taka mikilvægar ákvarðanir hvað
varðar börn í dag. Gæfan eltir þig á röndum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu hrokann ekki ná yfirhöndinni í
samskiptum þínum við aðra. Sendu þakk-
arbréf, hringdu eða hugsaðu til fólks með
þakklæti í hjarta.
Á mánudaginn spurði Sigmund-ur Benediktsson á Leir hvort
ekki væri gaman að breyta um um-
ræðuefni og yrkja um stökuna smá-
vegis. Að yrkja dýrt sé af sömu
hvötum og að ráða krossgátu, sem
sé orðaleit. Munum þó að ein af
bestu vísum um hana er:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Spjalli sínu lýkur Sigmundur
með því að segja, að dýrleiki vísu sé
aukaatriði og alltaf val höfundar og
yrkir síðan „Stökugleði“:
Óðinn syngur öndin slyng
áttþætt klingir rím í hring.
Fjörið yngist allt um kring
ekkert þvingar hagyrðing.
Sigurlín Hermannsdóttir tók
áskoruninni:
Róum við á vísnamið
veljum fagurt mót í dag.
Rímnasmiðum leggjum lið,
líst mér bragur Kolbeinslag.
„Önnur víxlhenda,“ sagði Pétur
Stefánsson:
Sleitulaust hún léttir spor,
lífið allra bætir.
Sumar, haust og vetur, vor,
vísan snjalla kætir.
Léttir geði ljóðamál,
listsnilld Íslendinga.
Það sem gleður þjóðarsál,
það er vísan slynga.
Léttvægt verður lífsins streð,
lítið vill mann þjaka,
meðan hérna gleður geð
glæst og velgerð staka.
Nú þakkaði Sigmundur fyrir góð-
ar undirtektir!
Geymir sagan góðan fund
græðir hagsæld slynga.
Stökudagur léttir lund
ljúfra hagyrðinga.
Sigmundur gekk síðan til sængur
og sagði þetta hafa verið dásam-
legan leirdag:
Valið lið um vísnamið
vænan lengi dró sér feng.
Árs og friðar ykkur bið,
óðs úr fleng til náða geng.
Næsta dag skipti Sigrún Haralds-
dóttir yfir í braghendu:
Langt er fjarri litur vors
og ljóssins styrkur
dagurinn er varla virkur
vont er þetta langa myrkur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stökugleði á Leir
„HVAR SÉRÐU ÞIG FYRIR ÞÉR EFTIR
500 ÁR?“
„Ég þarf aÐ BIÐJA YFIRMANNINN UM
KAUPHÆKKUN Á MORGUN. HVERNIG LÍTUR
ÞETTA ÚT?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem deilir
með þér áhuga á útivist.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LÍKAMSRÆKTARRÁÐ
KATTARINS GRETTIS …
ÁÐUR EN HAFIST ER HANDA VIÐ
ERFIÐAR ÆFINGAR VERÐUR
AÐ EYÐA VIÐEIGANDI TÍMA Í
TEYGJUÆFINGAR
ÉG MÆLI MEÐ ÁTTA TIL
TÓLF KLUKKUSTUNDUM
ÉG MUN LÉTTAST EF ÉG HÆTTI AÐ
NASLA Í RÚMINU!
OG ÉG MUN VERÐA
ANDVAKA!
DJÚPFRYSTI-
MIÐSTÖÐ
MANNAUÐUR
GAUL
UML
SLARK …
Laaaaaast Christmas, I gave youmy heart!“ Hljómþýðir tónar
hjartaknúsarans George Michaels
stungu sem skerandi hnífar í eyru
Víkverja um nónbilið í fyrradag.
Hann hafði gert þau mistök að fá sér
kaffi og fara í kaffisalinn þar sem út-
varp K100 hljómar öllum stundum.
Þetta reyndust „banvæn“ mistök.
Ekki bókstaflega samt. Það eru allir í
lagi, sko, nema kannski egó Víkverja.
x x x
Svo er mál með vexti að Víkverjivar að keppa við nokkra vini sína
og fyrrverandi skólafélaga. Keppnin
snerist um það hver gæti enst lengst í
desembermánuði án þess að heyra
hið fræga lag, „Last Christmas“ með
Wham. Þetta mun vera runnið upp
hjá útvarpsstöð í Bretlandi, sem kall-
ar keppnina „Whamageddon“, og
þegar keppendur heyra lagið hafa
þeir verið sendir til „Whamhalla“, eða
„Whamhallar“, svo aðeins sé vísað í
norrænu goðafræðina.
x x x
En nú var Víkverji sumsé úr leik.Hann, ásamt öðrum einherjum
Whamhallar, þarf nú að bíta í súrt
Wham-epli, vitandi það að hefði hann
ekki fengið sér kaffi þennan örlaga-
ríka dag væri hann ennþá með í
keppninni. Þegar þetta er ritað
standa tveir af vinum Víkverja eftir
óspjallaðir af Wham þessi jólin. Megi
betri eyrun vinna.
x x x
Víkverji hefur reyndar alveg tekiðþátt í svipuðum sniðgöngugrein-
um áður. Oftast hefur áskorun Vík-
verja snúið að því að reyna að endast
sem lengst í desember án þess að
heyra lagið „Jólahjól“ með Snigla-
bandinu og Stebba Hilmars. Að þessu
sinni gekk það ekki betur en svo að
Víkverji féll af hjólinu með háværum
dynk í fyrstu viku desember.
x x x
Þá er úr vöndu að ráða. Víkverji erekki með fleiri jólalög til þess að
reyna að sniðganga þessi jólin. Auk
þess eru bara 11 dagar til jóla. Spurn-
ing hvort Víkverji ætti kannski bara
að hætta þessu rugli og fara að undir-
búa jólin?
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína.
(Sálmarnir 66.209