Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 32
VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég vildi að fólk gæti upplifað þenn- an stórfenglega heim norrænnar goðafræði án þess að það þyrfti að fara í gegnum milljón skruddur, og túlkað hann út frá eigin sjónar- horni,“ segir Reynir A. Óskarsson, en hann er hönnuður fræðsluspilsins Ragnarök – Örlög goðanna, sem kom út nýverið á ensku, dönsku og ís- lensku. Þá kemur það út á norsku og þýsku snemma á næsta ári. Reynir er mikill áhugamaður um víkingatímabilið, fornsögurnar og norræna goðafræði og hefur hann um árabil kannað, ásamt hópi ann- arra áhugamanna, ýmsa þætti sem snúa að Íslendingasögunum og sann- leiksgildi þeirra mögnuðu lýsinga sem þar er að finna. Reynir nefnir sem dæmi um rannsóknarefni hvort hægt sé að gera bogastreng úr mannshári, líkt og Gunnar á Hlíð- arenda hugðist gera í Njálu. Hann segir að tilurð spilsins hafi sprottið upp af þeim rannsóknum, þar sem hann hafi viljað kynna sér betur þann hugmyndaheim sem fornkapparnir forðum lifðu í. Á sama tíma hafi hann tekið eftir að mikið af umfjöllun nútímans hafi bjagað ímynd af norrænu goðafræðinni, og má þá til dæmis nefna nýlegar kvik- myndir sem fjalla um Þór og aðra kappa í Ásgarði. „Ég vildi búa til eitthvað sem væri það einfalt að þú myndir læra af því, jafnvel þó að þú værir ekki viljandi að reyna að læra.“ Breyttu orðabókinni Reynir segir að hönnun spilsins hafi tekið sig um ár og að hann hafi reitt sig mjög á aðstoð sérfræðinga í goðafræðinni en ljóst er að mikil rannsóknarvinna liggur að baki. „Þetta er unnið úr frumheimildunum að öllu leyti,“ segir Reynir og bætir við að ekkert sé í spilunum sem ekki sé hægt að rekja beint til þeirra skriflegu heimilda sem við höfum um þennan hugarheim norrænna manna til forna. Rannsóknarvinna Reynis við spilið hefur nú þegar haft óvænt áhrif utan land- steinanna, þar sem þýð- andi spilsins í Noregi setti sig í samband við Reyni og spurði hann hvers vegna ekki væri getið um ákveðin fjöl- skyldu- tengsl á einu spilanna, sem væru alkunna. „Og ég sagði við hana, að þau tengsl væru ekki nefnd neins staðar í frum- heimildunum, en að hún mætti endilega láta mig vita ef hún gæti fundið þau þar.“ Eftir nánari athugun hringdi þýðandinn í umsjónarmenn norskrar alfræðiorðabókar sem hélt hinu gagnstæða fram. Þeir könnuðu málið og ákváðu að lokum að breyta færslunni í orðabókinni. Sex mismunandi spil Með spilastokknum fylgir lítill bæklingur, þar sem tæpt er aðeins á norrænni goðafræði, auk þess sem nefndar eru sex mismunandi aðferð- ir til þess að nota spilin, eftir því hversu kunnugir menn eru goða- fræðinni. Einfaldasta leiðin til að spila þau felst í því að goðin og aðrar kynjaverur norrænnar goðafræði eru borin saman út frá fjórum mis- munandi þáttum á kvarðanum 1-10. Reynir segir að mikil vinna hafi farið í að finna út hvaða þættir ættu að vera saman, auk þess hvernig ætti að gefa þeim einkunn. Hann nefnir sem dæmi að sjálfur þrumuguðinn Þór hafi ekki verið ósigrandi, því meira að segja hann hafi farið halloka í glímu sinni við Elli kerlingu. Á spilunum eru einnig efn- isflokkar, til dæmis hvort viðkom- andi vera er ás, jötunn eða eitthvað annað, hvar hún býr og hver fjöl- skylda hennar er. Þá efnisflokka má nýta til þess að spila spilið á annan hátt fyrir þá sem þekkja betur til í goðafræðinni. Þá er einnig á spilunum ítarleg lýsing á hverri veru, sem byggist á frumheimildunum. „Það gerist því jafnvel ósjálfrátt að fólk sem notar spilin fer að lesa á þau, jafnvel án þess að það hafi ætlað sér það,“ segir Reynir, og bætir við að með því sé takmarki spilsins eiginlega náð. „Ég vil að sem flestir fái að drekka úr þessum viskubrunni sem norræna goðafræðin er,“ segir Reynir. Þess má geta fyrir áhugasama að sérstakar kynningar verða haldnar á spilunum á næstunni, annars vegar í Spilavinum í dag milli kl. 16 og 18 og svo í safnbúð Þjóðminjasafnsins á laugardaginn milli kl. 12 og 14. Drukkið af Mímisbrunni sagnanna  Nýtt fræðsluspil, Ragnarök – Örlög goðanna, sem byggist á norrænni goðafræði, komið út  Spilið verður gefið út á norsku og þýsku á næsta ári  Takmarkið að fræða og skemmta um leið Morgunblaðið/Hari Ragnarök Reynir A. Óskarsson hannaði fræðsluspil um norræna goðafræði, það má spila á ýmsa vegu. Spilin Mikið af upplýsingum er á spilunum um norrænu goðin. 32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Sjónaukar fyrir leikhús Verð frá 16.900 Red Bull Paddock með vandaðri Fire Race linsu Verð 7.950 Bollé íþróttagleraugu Verð 24.890 Einnig til með golflinsu Flottar gjafir í jólapakkann Ray Ban round metal Verð 19.950 Julbo fjallagleraugu Verð 19.850 Landrover Conwy sólgleraugu með Polarized linsu Verð 18.900 Red Bull Lesmo með vandaðri Fire Race linsu Verð 9.950 Eyesland | Grandagarði 13 | Glæsibæ, 5. hæð | Sími 510 0110 | www.eyesland.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.