Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 10
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Jólasýning Smiðjunnar SMIÐJAN Listhús - Innrömmun Louisa Matt Kristján Davíðsson Jón Stefánsson Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 568 3890 Opið alla virka daga kl. 11-17, laugardaga kl. 12-14. Óskum eftir verkum eftir gömlu meistaranna Innrömmun vönduð og góð þjónusta í 27 ár Þorvaldur Skúla Str. 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna www.holabok.is — holar@holabok.is Hvernig myndir þú bregðast við ef þú stæðir allt í einu andspænis hvítabirni? Fjölmargir Íslendingar hafa því miður upplifað það og ekki allir lifað af. Hvítabirnir á Ísland er mögnuð bók um þessar grimmustu skepnur sem hingað hafa komið allt frá landnámsöld til okkar daga og stundum skilið eftir sig blóðuga slóð, en einnig orðið að gjalda fyrir heimsóknina með lífi sínu. Hvítabirnir á Íslandi - mögnuð bók og fróðleg! HVÍTABIRNIR Á ÍSLANDI Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Í þeim meðferðarúrræðum sem SÁÁ býður upp á hallar mjög á kon- ur. Stærsti vandinn felst í því að það vantar endurhæfingarúrræði fyrir þær,“ segir Víðir Sigrúnarson geðæknir sem starfar sem sér- fræðilæknir í fíknisjúkdómum á sjúkrahúsinu Vogi. „Færri konur hafa komið til meðferðar og þær koma seinna en karlar. Einu úrræðin fyrir konur eftir meðferð er eftirmeðferð á Vík í fjórar vikur sem hægt er að lengja í 8 til 12 vikur í sérstökum til- vikum. Áfangaheimilið Dyngjan tek- ur við fimm konum en þar líkt og á Vík geta konur ekki fengið að hafa börnin sín hjá sér né hitta þau,“ seg- ir Víðir og bendir á að karlmenn hafi tök á endurhæfingu á áfangaheim- ilinu Vin í allt að tvö ár. Karlmenn hafi líka kost á því að komast í vík- ingameðferð fyrir endurkomumenn og svo sé sérstakt úrræði fyrir eldri karlmenn. „Ég veit að það hefur ver- ið ýtt á félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg að koma með fjár- magn til þess að koma á fót endur- hæfingarúrræði fyrir konur. En þær koma oftar seinna í meðferð en karl- ar,“ segir Víðir sem telur að ein af ástæðunum sé að konur þori jafnvel ekki í meðferð af hræðslu við að missa umgengni við börn sín auk þess sem þær beri enn ábyrgð á börnunum þegar þær koma í með- ferð en minna sé um það hjá körlum. Félagslegur vandi kvenna sé oft stærri og áfallasaga þeirra meiri. Konur eru í verri stöðu „Við þurfum nauðsynlega aukið fjármagn frá heilbrigðisráðuneytinu og fleiri aðilum til þess að koma upp sérhæfðum endurhæfingarúrræðum fyrir konur. Það eru ekki nýjar frétt- ir og við höfum um allnokkurt skeið sagt frá þörfinni,“ segir Víðir sem fer ekki leynt með að þar sem karl- menn hafi fram að þessu verið fleiri en konur í meðferðum þá hafi meira tillit verið tekið til þeirra þarfa. Nú vilji SÁÁ gera betur. „Nú þegar konur sækja meira í meðferð verður skorturinn á endur- hæfingu ljósari og hópur kvenna á ekki í nein hús að venda eftir út- skrift. Ég tel ekki að fíknisjúkdómar hafi aukist meira hjá konum en körl- um. Konur koma nú fyrr í meðferð og því verður vandinn augljósari,“ segir Víðir og bætir við að ungmenni sem komi í meðferð hjá SÁÁ fái sömu meðferð óháð kyni þar sem kynjamunurinn sé ekki eins mikill á meðan þau séu ung. Rótin fagnar aukinni athygli Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, fagnar því að barátta samtakanna sé farin að ná eyrum forsvarsmanna SÁÁ þar sem nýir stjórnendur með nýjar áherslur séu teknir við. Hún segir að SÁÁ hafi verið dóminerandi yfir meðferð- arúrræðum á Íslandi og önnur úr- ræði varla þrifist á meðan. SÁÁ hafi fylgt svokölluðu heilasjúkdómsmód- eli þar sem gengið sé út frá því að fíkn sé ólæknandi sjúkdómur en um það séu skiptar skoðanir. „Rótin hefur gagnrýnt skort á fjölbreytni og það er ekki bara á Ís- landi sem ekki er tekið tillit til kynjamunar við fíknimeðferðir. Við blásum til ráðstefnu um kyn og fíkn um mánðaðamótin febrúar/mars þar sem við fáum framsækna fræðimenn með sérþekkingu á kynjafræðilega vinklinum og jaðarsettum hópum í fíknigeiranum,“ segir Kristín og bætir við að á Íslandi vanti tölfræði og fjölbreyttari rannsóknir sem ekki snúa eingöngu á líffræðilegum þátt- um í tengslum við þann hóp sem glímir við fíknisjúkdóma á Íslandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vík Konur sitja ekki við sama borð og karlar þegar kemur að endurhæfingarmeðferðum hjá SÁÁ. Fá endurhæfingarúrræði fyrir konur í fíknimeðferð  Karlmenn fá fleiri úrræði en konur  Rótin segir vanta tölfræði og meiri rannsóknir  Geta ekki haft börn hjá sér Víðir Sigrúnarson Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráð- herra, ávarpaði í gær loftslagsráð- stefnu Samein- uðu þjóðanna fyr- ir Íslands hönd. Hann þakkaði Milliríkjanefnd SÞ um loftslags- mál, IPCC, fyrir skýrslu sína um loftslagsmál og lagði áherslu á að Ís- land áliti hana mikilvægt leiðarljós í verkefninu sem framundan væri. Skýrslan hefði gefið okkur enn eitt viðvörunarkallið. „En ég spyr: Hversu margar slíkar viðvaranir í viðbót þurfum við?“ spurði Guð- mundur Ingi, að því er kemur fram í tilkynningu. Ráðherra lagði áherslu á að það að berjast gegn loftslagsbreytingum væri að berjast fyrir mannréttind- um. „Við verðum að ganga sameinuð til verka gegn loftslagsvandanum af ástríðu, mannúð og ábyrgð.“ Hann sagði að bylting í orkuskipt- um í samgöngum væri framundan og að Ísland stefndi á kolefnishlutleysi árið 2040. „Það er metnaðarfullt markmið en nauðsynlegt. Heims- byggðin þarf að ná kolefnishlutleysi á seinni hluta aldarinnar. Það þýðir að sum okkar verða að ná því mark- miði fyrr. Þróuð ríki eiga að vera í fararbroddi við að ná kolefnishlut- leysi.“ Ráðherra lagði áherslu á að ríki heims væru ekki nægjanlega metn- aðarfull í aðgerðum fyrir jörðina og fyrir komandi kynslóðir. Nauðsyn- legt væri að þau gerðu betur. Auk þess þyrftum við að breyta hugsun- arhætti okkar, gjörðum og neyslu- mynstri. „Okkar bíður dökk framtíð ef við fylgjum ekki leiðsögn vísindanna og Parísarsamningsins. Norðurslóðir eins og við þekkjum þær í dag yrðu gjörbreyttar. Við erum hættulega nálægt því að hrinda af stað óaftur- kræfri bráðnun Grænlandsjökuls. Súrnun hafsins er sérlega hröð í norðurhöfum, þar á meðal í hafinu við Ísland. Losun kolefnis út í and- rúmsloftið er alvarleg ógn við lífríki hafsins,“ sagði hann. Guðmundur Ingi tók í ávarpi sínu dæmi af Hjartafelli í Þjórsárverum, inni á miðhálendi Íslands, sem tveir skriðjöklar hefðu eitt sinn umlukið og þannig myndað hjarta. Með bráðnun jöklanna væri hjartað nú að hverfa. Mikilvægt væri að bregðast hratt við loftslagsbreytingum og það af öllu hjarta. Á fundinum hefur Guðmundur Ingi m.a. verið í pallborði á vegum Alþjóðaorkumálastofnunarinnar um orkuþörf í heiminum. „Hjartað er að hverfa“  Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, flutti ávarp á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.