Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 50
Marta María
mm@mbl.is
Hvað skiptir mestu máli varðandi
hönnun á heimilum?
„Þegar farið er í stærri verkefni
innandyra er gríðarlega mikilvægt
að fá fagfólk að verkinu. Sérþekking
innanhússarkitekta snýr að því að
hanna heildarskipulag og innrétt-
ingar um leið og hugað er að lýsingu,
hljóðvist og efnisvali. Þeim peningum
er vel varið, því ef vandað er til verka
verður ekki aðeins upplifun heim-
ilisfólksins betri heldur skilar það sér
vel til baka í endursöluverði hús-
næðis. Mistök í stórum fram-
kvæmdum geta hins vegar verið
mjög kostnaðarsöm og erfitt að leið-
rétta þau. Þegar grunnurinn er góð-
ur er svo miklu auðveldara að breyta
til og leika sér með rýmið eftir því
sem tíminn líður. Ef það er fyrir
hendi er hægt að gera ótrúlega hluti
með því einu að breyta um liti, efnis-
áferðir, húsgögn og fylgihluti/
decoration,“ segir hún og bendir á að
innanhússarkitektanám taki fjögur
ár í viðurkenndum háskólum.
Árðið 2002 festu Rut og eigin-
maður hennar kaup á húsi í Breið-
holti sem hún hannaði frá grunni. Í
gegnum tíðina hefur oft verið fjallað
um heimilið enda notar Rut það sem
tilraunastofu. Hún segir að það gangi
ekki að gera alltaf það sama og það
þurfi að vera einhver þróun. Upp á
síðkastið hefur hún staðið í ströngu
við að endurhanna heimilið.
„Ég er alltaf að leitast við að gera
eitthvað nýtt enda eyði ég miklum
tíma í að þróa nýjar útfærslur og efn-
isáferðir í innréttingum, málningu og
gólfefnum. Ég er svo heppin að fá að
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
Stækkar Rut segir
að svört mött loft
stækki rýmið.
Svörtu loftin stækka rýmið
Rut Káradóttir innanhússarkitekt hefur verið leiðandi í hönnun á íslenskum heimilum síðan hún kom heim úr námi frá Ítalíu fyrir meira en
tveimur áratugum. Hún notar sitt eigið heimili sem tilraunastofu og segir að það sé miklu betra að selja fólki sem hún er að hanna fyrir
hugmyndir þegar það getur séð hvernig hlutirnir líta út í raun og veru. Hún segir líka að það að fá innanhússarkitekt spari fólki mikla peninga.
Eins og nýtt Eldhúsið var áður hvítt
sprautulakkað. Rut lét mattlakka það svart
og segir að það breyti mjög miklu. Brún-
bleiki liturinn fer vel með þessu svarta.
Vinnuherbergið Hér málaði Rut
vinnuherbergið í brúnbleikum
tón sem fer vel við Eggið.
SJÁ SÍÐU 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018