Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Í þessari ferð opnast okkur leyndir töfrar Suður-Kína og
við kynnumst miklum fjölbreytileika, tignarlegu landslagi
og óviðjafnanlegri menningu hinna mörgu þjóðarbrota
svæðisins. Við heimsækjum m.a. iðandi heimsborgina
Hong Kong og upplifum stórbrotna náttúrufegurð við
Guilin fljótið þar sem sykurtoppafjöllin gnæfa yfir og
fagurgrænar hæðir hrísgrjónaakranna blasa við.
15. apríl - 1. maí
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Allir velkomnir á kynningarfund 13. desember kl. 18:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
TöfrarSuður-Kína
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Mér finnst það bara mjög sanngjarnt og ég hélt að það
yrði hærra,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á
Akureyri, spurð út í verðlagningu á einni ferð í gegnum
Vaðlaheiðargöngin. Göngin verða formlega opnuð 12. jan-
úar á næsta ári. Veggjöld um göngin verða innheimt raf-
rænt en ekki í gjaldskýli og er grunngjald fyrir bíla undir
3,5 tonnum 1.500 krónur á hverja ferð. Hins vegar verður
hægt að fá allt upp í rúmlega helmings afslátt ef keyptar
eru fleiri ferðir fyrirfram.
„Ég geri nú ráð fyrir að fólkið hér muni kaupa sér fleiri
en eina ferð þannig að kostnaðurinn verður minni,“ segir
Ásthildur. Mögulega verður unnt að opna göngin fyrir um-
ferð undir lok desember en það ræðst þó af því hvernig
miðar við lokafrágang ganganna, að því er fram kemur í
tilkynningu sem send var í tengslum við opnunina.
Ákveðið hefur verið að ef göngin verða opnuð fyrir um-
ferð fyrir jól verður gjaldfrítt í þau til 2. janúar 2019.
Myndavélar eru í göngunum sem taka myndir af númerum
ökutækja sem ekið er um göngin. Veggjaldið skuldfærist
sjálfkrafa á það greiðslukort sem skráð er við bílnúmerið.
Ætluðu sér margir að keyra Hvalfjörðinn
Spurð hvort einhverjir hafi kvartað yfir verðinu á göng-
unum segir Ásthildur svo ekki vera. „Nei, nei, ef fólk gref-
ur upp hvernig þetta var þegar Hvalfjarðargöngin voru
opnuð þá ætluðu nú margir að keyra Hvalfjörðinn en ég
held að þeir hafi verið fljótir að skipta yfir.“
Göngin liggja á milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Heild-
arlengd þeirra með vegskálum er um 7,5 km. Til sam-
anburðar eru Vestfjarðagöng, sem eru veggöng undir
Breiðadals- og Botnsheiði, samtals 9,1 km. Þá er lengri
leggur Héðinsfjarðarganga 7,1 km og Hvalfjarðargöng 5,8
km.
„Sanngjarnt“ verð í göngin
Styttist í opnun Vaðlaheiðarganga Kostar 1.500 kr. fyrir bíla undir 3,5 tonnum
Vaðlaheiðargöng
» Kostar 1.500 kr. fyrir bíla
undir 3,5 tonnum.
» Mögulega verður unnt að
opna göngin fyrir umferð undir
lok desember.
» Ef það verður opnað fyrir jól
verður frítt til 2. janúar.
» Formlega opnuð 12. janúar á
næsta ári.
» Sanngjarnt verð, segir
bæjarstjóri Akureyrar.
Guðni Einarsson
Snorri Másson
Jáeindaskanni Landspítalans var
tekinn formlega í notkun í gær. Páll
Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, sagði við það tækifæri að þetta
væri „gríðarlega mikilvægt verkefni
sem ekki hefði verið mögulegt og
ábyggilega ekki svo fljótt sem raunin
varð, ef ekki hefði verið fyrir aðkomu
Íslenskrar erfðagreiningar“. Skann-
inn var tekinn í notkun í ágúst síð-
astliðnum og þurfti að vinna bug á
einhverjum tæknilegum örðug-
leikum til að byrja með. Það er nú að
baki.
Jáeindaskanninn nýtist fyrst og
fremst til þess að greina og með-
höndla krabbamein en einnig ýmsa
aðra sjúkdóma. Þetta er tækni sem
hefur hingað til kallað á utanferðir
sjúklinga, því hún hefur ekki verið
fyrir hendi hérlendis fyrr en nú.
Talað er um að á tólfta hundrað
sjúklinga geti gengist undir rann-
sókn í skannanum á ári en áður voru
að meðaltali 200 sendir út til Dan-
merkur árlega. Páll Matthíasson
sagði skannann vera til mikilla hags-
bóta, ekki síst fyrir þá sem eru of
veikir til að fara til Kaupmannahafn-
ar í rannsókn.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sagði við
athöfnina að sig langaði afskaplega
að gera grín að þessu öllu saman.
Hann hefði t.d. langað að segja að
það hefði verið við hæfi að bjóða
þjóðminjaverði „þar sem tækið er
orðið svo gamalt, það er svo langt
síðan það var keypt“. Þá sagði hann
að fjarvera Svandísar Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra væri lýsandi fyr-
ir hve mikið verk væri fyrir höndum
að koma stjórnvöldum í skilning um
að taka verði góðan rekstur heil-
brigðiskerfisins alvarlega sem verk-
efni. Svandís var fjarverandi vegna
þingflokksfundar.
Jáeindaskanninn
formlega í notkun
Hægt verður að jáeindaskanna
á tólfta hundrað sjúklinga á ári
Morgunblaðið/Eggert
Jáeindaskanninn Ekki þarf lengur að senda íslenska sjúklinga til Kaupmannahafnar í jáeindaskönnun.
Slasaður ökumaður var fluttur á
Landspítalann með þyrlu Land-
helgisgæslunnar um klukkan 18.00
í gær. Hann var ökumaður bíls sem
rakst á annan bíl sem kom úr gagn-
stæðri átt á Gaulverjabæjarvegi
skammt frá Hraunsá laust fyrir
klukkan 17.00. Ökumaður hins bíls-
ins var fluttur á Landspítalann með
sjúkrabíl.
Brunavarnir Árnessýslu (BÁ),
lögregla og sjúkraflutningamenn
komu á staðinn. Hálftími leið frá
því að útkall barst og þar til búið
var að ná ökumönnunum úr bíl-
unum með klippum. Þeir fengu
fyrst aðhlynningu í sjúkrabílum, að
sögn Péturs Péturssonar, slökkvi-
liðsstjóra BÁ. Veginum var lokað
um tíma vegna rannsóknar. Ekki
var hálka á svæðinu.
Ökumaður fluttur
með þyrlu á spítala
Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri
Grunnskóla Húnaþings vestra, lagði
fram erindi, að beiðni foreldra, á
fundi byggðaráðs Húnaþings um
greiðslu vegna heimakennslu barna.
Um er að ræða beiðni frá foreldrum
barna á Þorgrímsstöðum og í
Saurbæ á Vatnsnesi en ástæða
beiðninnar er slæmt ástand vegarins
um Vatnsnes.
„Þetta kemur náttúrlega til af því
að ástandið á Vatnsnesveginum hef-
ur verið mjög erfitt undanfarið.
Þetta er sú leið sem foreldrar hafa
núna óskað eftir til að reyna að
minnka álagið á börnin,“ segir Sig-
urður. „Ferðatími skólabílsins hefur
lengst mjög mikið út af veginum því
það er í raun og veru ekki hægt að
fara hraðar en á 20 til 30 km hraða.
Þetta er frekar löng leið og það er
hávaði og ónot og ógleði sem fylgir
þessu. Þessi beiðni kemur frá for-
eldrum og maður hefur skilning á
henni.“
Þurfa að þrýsta á stjórnvöld
Í erindinu kemur fram að foreldr-
ar eru áhyggjufullir vegna ferðatíma
og líðanar barna sinna sem þurfa að
ferðast til og frá skóla í allt að
klukkustund og 20 mínútur á degi
hverjum. Aksturstíminn hefur
lengst um a.m.k. 20 mínútur á dag og
þrátt fyrir að skólabifreiðin sé vel
útbúin og uppfylli allar kröfur sem
gerðar eru til slíkra bifreiða kvarti
börn undan ógleði og hávaða sem
skapast þegar ekið er í hverja holuna
á fætur annarri. Segir Sigurður að
um sé að ræða átta til tíu börn sem
ferðast með bílnum og að þau séu í 2.
upp í 10. bekk.
Í fundargerð byggðaráðs Húna-
þings vestra segir að byggðaráð deili
áhyggjum foreldra af líðan og vel-
ferð barnanna og lengingu aksturs-
tímans. Byggðaráðið telur sig hins
vegar ekki geta samþykkt erindið.
„Byggðaráð telur sig ekki geta
samþykkt erindið um greiðslu til for-
eldra vegna heimakennslu með vísan
í reglugerð 531/2009 um heima-
kennslu á grunnskólastigi. Byggða-
ráð mun halda áfram að þrýsta á
stjórnvöld um úrbætur og breytta
forgangsröðun í vegamálum með
áherslu á skólaakstursleiðir,“ segir í
fundargerðinni. mhj@mbl.is
Vilja heimakennslu vegna
slæms ástands vegarins
Ferðatími skóla-
barna í Húnaþingi
vestra lengst til muna
Ljósmynd/Hunathing.is
Skólabíll Vegurinn sem börnin þurfa að fara yfir á hverjum degi er
afskaplega illa farinn og hefur ferðatíminn lengst sökum þess.