Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
GLÆSILEGUR NÝRBÆKLINGURKOMINN ÚT
JÓLABÆKLINGUR
Ísland gerðist í fyrradag aðili aðalþjóðasamþykkt um farendur,
sem er nýyrði í þessu samhengi og
notað yfir enska orðið migrants.
Jón Magnússon lögmaður gagn-
rýnir þetta og telur samninginn
veikja landa-
mæri og að í
honum felist
að „gagnrýni á
fólksflutninga
sé glæp-
samleg“.
Aðfinnslurhans
snúa þó ekki
síst að því að nánast engin umræða
hafi farið fram um þessa samþykkt,
hvorki hér né í öðrum Evrópu-
ríkjum. Það er vissulega aðfinnslu-
vert og alls ekki gagnlegt.
Jón bætir við að þar sem umræðahafi orðið um samninginn hafi
það „leitt til þess að ríki hafa neitað
að undirrita hann eða hann hefur
valdið pólitískri ólgu og deilum“.
Það er áhyggjuefni.
Á vef stjórnarráðsins kemurfram að markmiðið með sam-
þykktinni sé að „bæta viðbrögð al-
þjóðasamfélagsins við vaxandi
fólksflutningum“. Ennfremur segir
þar að samþykktin sé ekki lagalega
bindandi, taki mið af fullveldi ríkja
og „undirstrikar rétt hvers ríkis til
að ráða sjálft innflytjendalöggjöf
og stefnu í málefnum innflytjenda“.
Þá sagði í ávarpi ráðuneytisstjóra
við undirritunina að samþykktin
breytti í engu réttindum Íslend-
inga, svo sem tjáningarfrelsi.
Sérstakt er að slíkt þurfi að takafram, en mikilvægt að stjórn-
völd starfi samkvæmt því. En það
er mikið umhugsunarefni hvers
vegna stjórnvöld leggja sig ekki
fram um að kynna slíka samþykkt
rækilega áður en hún verður að
veruleika. Þögn um þennan mála-
flokk hjálpar engum.
Hljótt um sam-
þykkt um farendur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Karlmaður um þrítugt hefur
verið dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi fyrir að hafa ráðist
gegn fimm ára gömlu barni í
aftursæti bifreiðar við gatnamót
Laugavegs og Snorrabrautar í
nóvember í fyrra. Var maðurinn
undir miklum áhrifum fíkniefna
þegar brotið átti sér stað og
sagðist ekkert muna eftir of-
beldisverkinu.
Í dómi héraðsdóms er því lýst
að barnið hafi verið í aftursæti
bifreiðar og var móðir barnsins
ökumaður. Var bíllinn kyrr-
stæður á rauðu ljósi þegar mað-
urinn kom ásamt félaga sínum
að bílnum. Opnuðu þeir bæði bíl-
stjóradyrnar og aftur-
sætisdyrnar þar sem barnið var.
Öskraði konan á þá og náði að
loka dyrunum hjá sér og tók þá
eftir að barnið var hágrátandi í
aftursætinu og blóðugt í framan.
Drengurinn greindi meðal
annars frá því að maðurinn
hefði slegið sig í andlitið og
klipið fast í nefið á eftir. Kom
fram að árásin hefði haft tals-
verð áhrif á drenginn.
Hvorugur mannanna man eft-
ir því að hafa reynt að opna bíl-
dyrnar, en þeir höfðu drukkið
mikið saman fyrr um daginn og
voru í annarlegu ástandi.
Dómurinn taldi sannað að
maðurinn hefði ráðist að
drengnum og slegið hann í and-
litið. Er hann fundinn sekur um
líkamsárás og brot á barna-
verndarlögum. Er tekið fram að
þótt hann hafi verið undir áhrif-
um leysi það hann ekki undan
refsiábyrgð, þó talið sé að ásetn-
ingur hans hafi verið þoku-
kenndur vegna ölvunar.
Var maðurinn sem fyrr segir
dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi og þarf hann að greiða
drengnum 400 þúsund krónur í
miskabætur.
Fangelsisdómur fyrir árás á ungan dreng
Morgunblaðið/Ómar
Réttarríki Maðurinn fékk dóm.
Allt um sjávarútveg
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Það var eiginlega bara svolítið hjá-
kátlegt,“ segir Bára Halldórsdóttir
um bréfið sem henni barst í gær þar
sem hún er boðuð til þinghalds í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur vegna beiðni
frá lögmanni fjögurra þingmanna
Miðflokksins vegna mögulegs einka-
máls.
Bára var stödd á Klaustri bar 20.
nóvember síðastliðinn þegar hún
varð nokkurra þingmanna vör sem
fóru illum orðum um konur, fatlaða
og samkynhneigða. Hún tók samtöl
þingmannanna upp og sendi fjöl-
miðlum nokkru síðar.
„Mér fannst þetta eiginlega bara
svolítið fyndið, þetta bréf inniheldur
einhverjar flækjur sem ég skil ekki,“
segir Bára, sem var á leið til fundar
við lögfræðing til að fá nánari útskýr-
ingu á boðuninni þegar blaðamaður
mbl.is náði tali af henni.
Bára er boðuð sem aðili máls til
þinghaldsins en ekki til skýrslutöku
eins og greint hefur verið frá í fjöl-
miðlum. RÚV hefur eftir Símoni Sig-
valdasyni, dóm-
stjóra Héraðs-
dóms Reykja-
víkur, að Bára sé
boðuð til að gera
henni ljóst að
hugsanlega verði
höfðað mál gegn
henni og hún gæti
því þurft að
bregðast við því.
Bára er
ranglega feðruð í bréfinu sem henni
barst í fyrradag, sögð Guðmunds-
dóttir en ekki Halldórsdóttir. Henni
var síðar fært bréf með réttu nafni.
Bára segir að þessi mistök séu skýrt
dæmi um hvernig litið sé á aðkomu
hennar í Klaustursmálinu. „Ég held
að það ýti undir það hversu miklu
máli ég skipti í þessu, ég greinilega
skipti ekki það miklu máli að þau geta
ekki einu sinni munað nafnið mitt
rétt.“
Bára vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um næstu skref fyrr en eftir að
hún væri búin að ræða við lögfræð-
ing, en hún sagði í samtali við mbl.is á
þriðjudag að lögfræðingar hefðu haft
samband við hana að fyrra bragði og
boðið fram aðstoð sína. „Ég mæti ef
ég á að mæta. Það kemur í ljós þegar
ég er búin að tala við einhverja sem
hafa meira vit á þessu en ég.“
Þakklát fyrir stuðninginn
Þrátt fyrir mögulega málsókn
segir Bára að hún finni enn fyrst og
fremst fyrir stuðningi. Jón Gnarr,
grínisti og fyrrverandi borgarstjóri,
lýsti t.a.m. yfir stuðningi við Báru á
Twitter í fyrradag þar sem hann seg-
ist vera tilbúinn að efna til söfnunar
fyrir Báru ef „svo ólíklega vildi til“ að
hún yrði dæmd til að „borga eitt-
hvað“.
„Þetta er voðalega gott að vita
að fólk sem er réttsýnt standi með
manni,“ segir Bára. Þá hefur einnig
verið stofnaður hópur henni til stuðn-
ings á Facebook undir heitinu „Takk
Bára“ og eru liðsmenn hans yfir
8.600. Hópurinn stendur fyrir sam-
stöðuviðburði fyrir Báru á mánudag
fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur
þegar Bára á að mæta til þinghalds.
„Það er ótrúlega gott að vita af fólki
þarna úti sem styður mann.“
„Hjákátlegt“ að vera boðuð
til þinghalds í héraðsdómi
Bára er ranglega feðruð í bréfi Héraðsdóms Reykjavíkur
Bára
Halldórsdóttir