Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Um leið og það kemur smá klaki
niðri í bæ þá heldur fólk að það sé
snjólaust í fjallinu. Svo er ekki og við
verðum með opið í dag,“ segir Guð-
mundur Jónsson, forstöðumaður
skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli á Akur-
eyri.
Fyrsta opnun vetrarins var í
Hlíðarfjalli um liðna helgi og nýttu
sér margir þær frábæru aðstæður
sem þá buðust. Í vikubyrjun hlýnaði
allhressilega í veðri fyrir norðan og
því hafa margir talið að skíða-
ævintýrið sé úti í bili. Svo er ekki að
sögn Guðmundar.
„Það fór allt á kaf hér á Akureyri í
síðustu viku og þá héldu allir að það
væri líka allt á kafi í Hlíðarfjalli. Stað-
reyndin er sú að það þarf aðeins
lengri tíma til að fá nægan snjó í
brekkurnar. Þess vegna erum við
með snjóframleiðslu, til að tryggja og
styrkja skíðabrekkurnar. Þó það
hlýni í einn eða tvo daga er ekki þar
með sagt að allur snjór fari. En ef
svona hlýindi væru í viku, ég tala nú
ekki um ef það væri líka vindasamt,
þá þyrftum við að hafa áhyggjur.“
Bláfjöll lokuð fram að jólum
Guðmundur segir að upplifun fólks
af snjó á skíðasvæðum megi líkja við
það hvernig fólk horfir á búning
íþróttaliðsins KR. „Ég kalla þetta
KR-heilkennið. Þegar þú horfir á
KR-búninginn þá virðast svörtu lín-
urnar vera stærri en þær hvítu. Á
skíðasvæði er skíðað á fyrirfram
ákveðnum leiðum og þar höfum við
ýtt snjónum til og troðið hann til að
þétta brautirnar. Þar hangir snjórinn
mikið lengur en á öðrum stöðum en
þegar það kemur hláka þá stendur
þetta auða, þetta svarta, upp úr og
fólk segir að það sé enginn snjór í
fjallinu. Snjórinn er bara á þeim stöð-
um sem við viljum hafa hann.“
Guðmundur segir að opið verði í
dag en svo ráði veðrið því hvort opið
verði um helgina. „Við tökum tvo
daga í einu, það er verið að kynna
nýjar lægðir einu sinni á dag og það
er ekki komin mynd á það hvernig
verður um helgina. Okkar bænir
þessa dagana snúa að því að fá ann-
aðhvort frost eða snjókomu.“
Opið hefur verið á skíðasvæðum
Dalvíkur og Ólafsfjarðar síðustu
daga. Magnús Árnason, fram-
kvæmdastjóri skíðasvæðanna í Blá-
fjöllum og Skálafelli, segir í samtali
við Morgunblaðið að veðurfar hafi
ekki verið hagstætt að undanförnu og
hann telur ólíklegt að þar verði skíðað
fyrir jól. „En ég vonast enn til þess að
við náum að opna milli jóla og nýárs.“
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Hlíðarfjall Skíðafólk fékk frábæra helgi fyrir norðan og áfram verður opið í Hlíðarfjalli í dag.
Biðja fyrir frekari
snjókomu og frosti
Opið verður í Hlíðarfjalli í dag en óvíst með helgina
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin og Íslenskir aðalverktakar hf. skrifuðu í
fyrradag undir samning um gerð fyrsta áfanga við
breikkun hringvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. ÍAV
hf. átti lægsta tilboðið í verkið og hljóðaði það upp á 1.361
milljón króna. Verkinu skal lokið næsta haust eða 15.
september.
ÍAV mun þegar hefjast handa við verkið enda stuttur
verktími og hefur í raun þegar hafið undirbúning að því
að koma upp aðstöðu á verkstað.
Það voru Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar Vegagerðarinnar, og Sigurður R. Ragn-
arsson, forstjóri Íslenskra aðalverkta hf., sem skrifuðu
undir verksamninginn í húsakynnum Vegagerðarinnar.
Að sögn Sigurðar R. Ragnarssonar eru starfsmenn
ÍAV byrjaðir að vinna í námu, þaðan sem efni verður tek-
ið í vegstæðið. Byrjað verður að grafa í veglínunni sjálfri
í næstu viku. „Við verðum með 20-25 manns að jafnaði í
verkinu þegar það er komið á fullt,“ segir Sigurður.
Verkið „Gljúfurholtsá – Varmá“ er 1. áfangi af verkinu
hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði. Þessi
hluti felst í breikkun hringvegar ásamt gerð nýrra gatna-
móta við Vallaveg og Ölfusborgaveg. Heildarlengd kafl-
ans er um 2,5 kílómetrar.
Til framkvæmdanna telst einnig gerð nýrra hliðarvega
sem tengjast nýjum vegamótum, annars vegar Ölfusveg-
ar frá Ölfusborgavegi að Hvammsvegi og hins vegar Ás-
nesvegar frá Vallavegi að Ásnesi. Inni í verkinu er einnig
breikkun brúar yfir Varmá og undirgöng austan Varmár
fyrir gangandi og ríðandi.
Loks eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitu-
fyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra
þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.
Framkvæmdir hefjast
við Suðurlandsveginn
Vegagerðin og ÍAV undirrita verksamning um breikkun
Ljósmynd/Vegagerðin
Samningum lokið Óskar Örn Jónsson og Sigurður R.
Ragnarsson unrirrituðu samninginn um verkið.
Atvinna
Nice&Mónakó
sp
ör
eh
f.
Vetur 1
Glæsileg ferð á frönsku rivíeruna eða Côte d‘Azur þar
sem við njótum lífsins og tökum þátt í hátíðahöldum
heimamanna á blómahátíð í Nice og upplifum
ævintýralega sítrónuhátíð í Menton. Fetum í fótspor
kvikmyndastjarna í Cannes og látum suðrænan blæ leika
um okkur í furstadæminu Mónakó.
28. febrúar - 8. mars
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 238.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Gjöfin sem gleður,
mjúka gjöfin frá
Lín Design
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
BALDUR GUNNARSSON
MÍN KLUKKA
KLUKKAN ÞÍN
LJÓÐ
Í ljóðum
Baldurs
Gunnars-
sonar
falla möskvar
tungumálsins vítt
yfir mannheima
og ánetja þann
sannleik sem oft
fer huldu höfði:
Hið undraverða í
hinu algenga, hið
dýrmæta í hinu
látlausa.